Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Koltvísýringur sogaður úr andrúmsloftinu á Hellisheiði Í dag hófst starfsemi í fyrstu og stærstu heildstæðu lofthreinsi- og förgunarstöð í heiminum skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Stöðin getur fangað allt að fjögur þúsund tonn af koltvísýringi úr andrúmsloftinu á ári og auðvelt er að auka afköstin. 8.9.2021 20:02
„Ekki fallegt“ að selja hús sem var gjöf til Alzheimer-sjúklinga Áform um að selja húsnæði vinsæls dagvistunarúrræðis fyrir heilabilunarsjúklinga mæta mótstöðu aðstandenda. Fríðuhús var gjöf til Alzheimer-samtakanna á sínum tíma, sem fyrrverandi starfsmaður segir „ekki fallegt“ að setja á sölu. 8.9.2021 19:20
Undraverður bati þrátt fyrir gríðarlegan blóðmissi og lífshættulega áverka Bati mannsins sem var skotinn af lögreglu á Egilsstöðum í síðasta mánuði hefur verið undraverður, að sögn Tómasar Guðbjartssonar hjartaskurðlæknis á Landspítalanum. Hann segir fæsta lifa svo alvarlega áverka af enda hafi hann misst því sem jafngildi nær öllu blóði mannslíkamans. Skotið fór í hægra lunga mannsins, í gegnum brjóstholið og hafnaði á vegg fyrir aftan hann. 8.9.2021 19:02
Sjómaður lagði Sjóvá vegna spriklandi stórþorsks sem skar hann á þumal Tryggingafélagið Sjóvá hefur verið dæmt til að greiða sjómanni 5,1 milljón vegna slyss sem varð um borð í togara útgerðarfélagsins Brims árið 2018, þegar sjómaðurinn skarst illa á hendi þegar stórþorskur sem hann var að gera að, spriklaði í höndum hans með þeim afleiðingum að sjómaðurinn skarst illa á hendi. 8.9.2021 18:25
Átján sýrlenskir flóttamenn komu til landsins í dag Síðdegis í dag komu átján sýrlenskir flóttamenn frá Líbanon til Íslands og er von á 21 til viðbótar á morgun. Um er að ræða hluta þess hóps sem átti upphaflega að koma í fyrra en tafir urðu móttöku þeirra vegna faraldursins. 8.9.2021 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Kristján Már Unnarsson verður í beinni útsendingu frá Skaftárhlaupi sem hefur látið að sér kveða í dag í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann ræðir við bændur og búalið um áhrifin af þessu hlaupi í ár og verður með einstakt myndefni af þessum hamförum. 8.9.2021 18:14
Vilja halda samtali áfram þrátt fyrir viðræðuslit Sjúkratryggingar Íslands munu leggja til að samtal haldi áfram á millu stofnunarinnar og Læknafélags Reykjavíkur þrátt fyrir að félagið líti svo á að viðræðum þess um samninga við sérfræðilækna sé slitið. 8.9.2021 17:35
Byltingarkennd lofthreinsistöð á Hellisheiði Í dag hófst starfsemi í lofthreinsistöðinni Orca skammt frá Hellisheiðarvirkjun sem fangar koltvísýring úr andrúmsloftinu og fargar honum í samstarfi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Carbfix. Þetta er fyrsta lofthreinsistöð þessarar tegundar í heiminum. 8.9.2021 17:08
Spítalinn af hættustigi: Sjö inniliggjandi og einn á gjörgæslu Landspítalinn er kominn niður af hættu stig og á óvissustig samkvæmt ákvörðun farsóttarnefndar og viðbragðsstjórnar í dag. Óvissustig er fyrsta af þremur viðbragðsstigum Landspítala. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 8.9.2021 16:55
Ekki kunnugt um nýja reglugerð og veiddu á bannsvæði Skipi í eigu dótturfélags Síldarvinnslunnar var í gær gert að hætta veiðum og snúa til hafnar frá svæði þar sem bannað var að veiða með botnvörpu. Skipstjórinn segir að sér hafi ekki verið kunnugt um bannið. 8.9.2021 15:52
Yfirlæknar sitja fyrir svörum um breytt fyrirkomulag leghálsskimana Krabbameinsfélag Íslands býður til opins fundar um nýtt fyrirkomulag leghálsskimana kl. 15 í dag. Á fundinum verður farið yfir verklag leghálsskimana eftir að þær fluttust frá Krabbameinsfélaginu til Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. 8.9.2021 14:30
Óþægileg stemmning eftir að Ólafur sneri aftur Ólafur Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið aftur sæti sem varamaður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Borgarfulltrúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið óþægilegt að sitja fund með Ólafi í morgun. 8.9.2021 14:27
Jonni Sigmars og Landsflokkurinn úr leik í komandi kosningum Jóhann Sigmarsson, stofnandi Landsflokksins, sem ætíð er kallaður Jonni Sigmars, vandar stjórnvöldum og stjórnsýslu ekki kveðjurnar. Framboð hans hefur verið dæmt úr leik vegna skorts á undirskriftum. 8.9.2021 14:25
Áforma friðlýsingar til verndar votlendis Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, segir koma sterklega til greina að gripið verði til friðlýsinga til verndar óraskaðs votlendis á næstu árum. Þar sé um forgangsatriði að ræða. 8.9.2021 14:07
Atvinnuleysi á hraðri niðurleið Ríflega sex þúsund manns hafa fengið störf í gegnum átakið Hefjum störf hjá Vinnumálastofnun. Forstjóri stofnunarinnar segir átakið hafa gengið vonum framar en um 45% þeirra sem hafa fengið störf í gegnum það er fólk með erlent ríkisfang. Hún segir að atvinnuleysistölur stefni hratt niður á við. 8.9.2021 14:01
Stal bíl í morgunsárið en handtekinn eftir stuttan sprett Karlmaður tók sig til og star bíl í miðbæ Akureyrar á tíunda tímanum í morgun. Ökumaður bílsins hafði skilið bílinn eftir í gangi meðan hann var að ferja inn vörur. Þegar ökumaðurinn kom út var bíllinn horfinn. 8.9.2021 13:56
Flokkur fólksins kynnir lista sinn í Norðausturkjördæmi Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og stofnandi Stuðmanna og Græna hersins, skipar efsta sæti lista Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar sem fram fara 25. september næstkomandi. 8.9.2021 13:36
Guðlaugur Þór skilar ekki uppgjöri vegna prófkjörs Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, varði tæpum níu milljónum króna í prófkjörsbaráttu í sumar. 8.9.2021 13:06
Slíta viðræðum sérfræðilækna við sjúkratryggingar Læknafélag Reykjavíkur hefur tilkynnt Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) að félagið líti svo á að viðræðum þess um samninga við sérfræðilækna sé slitið. 8.9.2021 12:21
Dómsmálaráðherra gagnrýnir Helga Magnús vararíkissaksóknara Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra gagnrýnir vararíkissaksóknara fyrir framgöngu hans á samfélagsmiðlum. Hann megi ekki rýra traust og trú almennings með framgöngu sinni á opinberum vettvangi. 8.9.2021 12:21
Þórólfur segir Kára í jötunmóð og beina sverðinu að fóstbróður sínum í faraldrinum Sóttvarnalæknir telur ekki tilefni til snemmbúinna tilslakana líkt og ráðherrar hafa kallað eftir. Þá sé ekki rétt að afnema fjöldatakmarkanir líkt og Kári Stefánsson leggur til. Hann segir Kára í jötunmóð og nú beina sverðinu að fóstbróður sínum í Covid. 8.9.2021 12:07
Þykir leitt að hafa gleymt sér á hárgreiðslustofunni Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist hafa gleymt sér þegar hún fór í klippingu á mánudag án þess að bera sóttvarnagrímu. Hún birti mynd af sér í klippingunni á Story á Instagram en slíkar myndir hverfa eftir sólarhring. 8.9.2021 11:55
Bíða þess að hlaupið nái hámarki við Þjóðveginn Talið er að Skaftárhlaup hafi náð hámarki sínu við Sveinstind en nú er þess beðið að hlaupvatnið nái hámarki við þjóðveginn á næstu dögum. Það flæki málin að vatn í ánni hafi verið mikið áður en hlaup hófst í Eystri-Skaftárkatli. 8.9.2021 11:37
Áhöfn togskips grunuð um ólöglegar veiðar Íslenskt togskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum innan lokaðs svæðis austur af Glettingi um hádegisbil í gær. 8.9.2021 11:35
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður rætt við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um framhald sóttvarnaaðgerða en ráðherrar í ríkisstjórninni sögðust í gær vongóðir um að létt yrði á aðgerðum fyrr en seinna. 8.9.2021 11:32
37 greindust með Covid-19 innanlands í gær 37 greindust með Covid-19 í gær. 544 eru í einangrun og 930 í sóttkví. 8.9.2021 10:53
Foreldrar Þórhildar: „Báðum Guðna Bergsson aldrei um trúnað varðandi upprunalega tölvupóstinn“ Foreldrar Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur segjast aldrei hafa beðið Guðna Bergsson, þáverandi formann Knattspyrnusambands Íslands, um að halda trúnað um fyrsta tölvupóstinn sem sendur var á sambandið vegna máls Þórhildar og Kolbeins Sigþórssonar landsliðsmanns. 8.9.2021 10:36
Grunaður um að hafa lokkað dreng upp í bíl og brotið á honum Landsréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhald yfir karlmanni á sjötugsaldri sem er grunaður um að hafa í ágúst lokkað fjórtán ára dreng upp í bílinn sinn og brotið á honum. Karlmaðurinn var handtekinn sama dag og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Meðal gagna málsins eru samskipti í farsíma þar sem umræður eru af kynferðislegum toga. 8.9.2021 10:33
Þrettán í sóttkví eftir smit hjá starfsmönnum Heilsustofnunar í Hveragerði Alls hafa þrettán verið sendir í sóttkví eftir að tveir starfsmenn Heilsustofnunar í Hveragerði greindust með Covid-19 í gær. 8.9.2021 09:59
Hlaupið náð hámarki sínu en á eftir að skila sér í byggð Dregið hefur úr rennsli Skaftár við Sveinstind og mælist það nú um 1.100 rúmmetrar á sekúndu miðað við hámarksrennsli í gæt upp á um 1.500 rúmmetra á sekúndu. Hlaupvatn á enn eftir að skila sér niður farveg Skaftár og áhrif þess á byggð eiga því eftir að koma í ljós. 8.9.2021 09:48
Umhverfisstofnun varar við áhrifum innkirtlatruflandi efna Verða sáðfrumur í karlmönnum horfnar eftir 20 ár? spyr Umhverfisstofnun í tilkynningu á vefsíðu sinni þar sem fjallað er um innkirtlatruflandi efni í umhverfinu. 8.9.2021 09:44
Greinilegt að kvika streymi enn úr eldstöðinni Þó hálfgert goshlé hafi staðið í tæpa viku við Geldingadali er greinilegt að enn streymi einhver kvika upp á yfirborðið við eldstöðina. Ótímabært er að velta upp möguleikanum á að gosinu sé að ljúka. 8.9.2021 09:11
Halda vitnaleiðslur yfir starfsfólki Play vegna horfinna flugrekstrarhandbóka WOW Héraðsdómur Reykjaness hefur fallist á að halda vitnaleiðslur yfir fjórum einstaklingum tengdu flugfélaginu Play vegna meintrar óheimilar notkunar Play á flugrekstrarhandbókum WOW air. 8.9.2021 08:40
Lengja opnunartímann í bólusetningu til klukkan 19 á morgun Á morgun verður opið í bólusetningar frá kl. 10 til 19 á Suðurlandsbraut 34. Með þessu vonast Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu til að fleiri sjái sér fært að mæta. 8.9.2021 07:34
Skilja ekkert í orðum Katrínar um Hvalárvirkjun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vonar að Hvalárvirkjun verði ekki að veruleika og segir framkvæmdina eins og hún líti út í dag umtalsvert stærri en þá sem var á teikniborðinu þegar hún var færð í nýtingarflokk rammaáætlunar. Talsmenn VesturVerks skilja ekkert í orðum forsætisráðherrans. 8.9.2021 07:00
Fyrrverandi starfsmaður forsetaembættisins kærir samstarfsmann fyrir kynferðislega áreitni „Þessi mál hafa tekið gríðarlegan toll,“ segir fyrrverandi starfsmaður forsetaembættisins sem bjó á Bessastöðum en hefur nú kært kynferðislega áreitni af hálfu samstarfsmanns til lögreglu. 8.9.2021 06:47
Fjölbreytt verkefni: Skemmdarverk, óspektir og ölvunarsvefn Það er óhætt að segja að verkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi verið nokkuð fjölbreytt í gærkvöldi og nótt. Í miðborginni var maður handtekinn vegna innbrots og þjófnaðar, kona handtekinn vegna óspekta og lögregla kölluð til eftir að ökumaður ók bifreið sinni á ljósastaur. 8.9.2021 06:28
„Ég er að varpa ljósi á sannleikann“ Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður segist vera að varpa ljósi á sannleikann með umdeildri Facebook-færslu þar sem hann birti brot úr skýrslutöku yfir þolanda í ofbeldismáli. Starfsfólk Stígamóta sé farið að velja leikmenn í íslenska landsliðið. Ef almenningur sé hættur að treysta yfirvöldum þá sé samfélagið komið á mjög slæman stað. 8.9.2021 06:01
Árnar á Eskifirði hamdar með steyptum stokkum Fimm ár sem renna í gegnum Eskifjarðarbæ eru að missa náttúrulega farvegi sína og flæða í framtíðinni um steypta stokka, með framkvæmdum sem kosta vel á þriðja milljarð króna. Tilgangurinn er að verja byggðina fyrir ofanflóðum. 7.9.2021 23:10
Þakkar lífsgæðum landsbyggðarinnar í túnfæti Reykjavíkur fyrir mikinn vöxt Íbúum Hveragerðis hefur fjölgað um hátt í fimmtung á þremur árum og tvö hundruð íbúðir eru nú í byggingu til að mæta þeirri fjölgun. Bæjarstjórinn reiknar með að bæjarbúar verði orðnir fimm þúsund eftir tíu ár, en þeir voru 2.777 um áramótin síðustu. 7.9.2021 22:17
Ekið á hjólreiðamann í miðborginni Karlmaður um fimmtugt slasaðist þegar ekið var á hann á horni Tryggvagötu og Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur síðdegis í dag. 7.9.2021 21:59
Tvöföld ánægja: Afastrákurinn var íbúi númer tuttugu þúsund Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, upplifði sannkallaðan tímamótadag fyrir skemmstu, þar sem hann eignaðist dótturson, sem síðar reyndist hafa verið tuttugu þúsundasti íbúi Reykjanesbæjar. 7.9.2021 21:20
Um 104 þúsund fjár slátrað hjá SS á Selfossi Sauðfjárslátrun hófst hjá Sláturfélagi Suðurland á Selfossi í morgun en um 104 þúsund fjár verður slátrað þar næstu vikurnar. Illa hefur gengið að fá fólk til starfa í sláturtíðinni. 7.9.2021 20:31
Höfnuðu eina tilboðinu og bjóða út flugstöðina á ný Isavia hefur hafnað eina tilboðinu sem barst í viðbætur og breytingum á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Stefnt er á að bjóða út verkið á ný. 7.9.2021 20:23
Vilja nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann líkaði við umdeilda Facebook-færslu Stígamót hafa skorað á dómsmálaráðherra að skipa nýjan vararíkissaksóknara eftir að hann brást við umdeildri færslu á Facebook þar sem upplýsingar úr lögregluskýrslu í ofbeldismáli Kolbeins Sigþórssonar koma fram. 7.9.2021 20:00