Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Syngjandi systur á Hvolsvelli Þrjár systur á sveitabæ í Rangárvallasýslu hafa ekki setið með hendur í skauti um páskana því þær hafa notið þess að syngja saman. Pabbi og fósturpabbi þeirra spilar undir hjá þeim. 5.4.2021 20:03
Gestum sóttkvíarhótels frjálst að ljúka sóttkví annars staðar Öllum sem dvelja á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni er frjálst að ljúka sóttkví annars staðar, hafi þeir viðunandi aðstöðu til þess. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var frá Heilbrigðisráðuneytinu fyrir stuttu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði síðdegis í dag að ekki teldist lögmætt að skikka komufarþega frá áhættusvæðum í sóttkvíarhús. 5.4.2021 19:57
Ekki má skikka fólk í sóttkvíarhús Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að ekki sé lögmætt að skikka komufarþega frá áhættusvæðum í sóttkvíarhús. Þrjár kærur voru teknar fyrir í héraðsdómi í dag og voru þær byggðar á því að um ólögmæta frelsissviptingu væri að ræða. 5.4.2021 18:08
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Við verðum í beinni útsendingu frá gosstöðvunum í Geldingadölum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18.30, þar sem við fjöllum ítarlega um atburði dagsins og sýnum tilkomumiklar myndir af svæðinu. 5.4.2021 18:02
Ákveða á morgun hvort gossvæðið verði opið Viðbragðsaðilar sem staðið hafa vaktina við gosstöðvarnar í Geldingadölum síðustu daga munu koma saman á stöðufundi á morgun. Þá verður ákveðið hvort svæðið verður opnað aftur, en því var lokað í gær eftir að nýjar sprungur opnuðust suðaustur af upphaflega gosstaðnum. 5.4.2021 17:51
Sóttu slasaða skíðakonu Björgunarsveitin á Dalvík var kölluð út um klukkan tvö í dag eftir að tilkynning um slasaða skíðakonu innarlega í Karlsárdal, norðan við Dalvík, barst neyðarlínu. 5.4.2021 15:55
Tilkomumiklar myndir af nýju sprungunum Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, er við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga, þar sem hraun flæðir nú ofan í Meradali úr sprungum sem opnuðust í dag. 5.4.2021 15:40
Bein útsending Vísis frá gosstöðvunum Vísir verður í beinni útsendingu frá gosstöðvunum á Reykjanesskaga. Elísabet Inga Sigurðardóttir fréttamaður og Arnar Halldórsson tökumaður eru á svæðinu, fara yfir vendingar dagsins og mynda nýja hraunið. 5.4.2021 14:32
Sjáðu nýju sprunguna úr lofti Ný sprunga hefur nú opnast um hálfan kílómetra norðaustur af gosstöðvunum í Geldingadölum. Sprungan er um tvö hundruð metra löng og rennur hraunið niður í Merardali. 5.4.2021 14:10
Rýming gengið vel þó fólk hafi „aðeins maldað í móinn“ Rýming viðbragðsaðila í og við Geldingadali hefur gengið vel, að sögn Gunnars Schram, yfirlögregluþjóns á Suðurnesjum. Nokkur hundruð manns hafi verið á svæðinu þega ný sprunga opnaðist skammt frá upphaflegu gossvæði í hádeginu. 5.4.2021 14:09
Horfðu á sprunguna opnast og glæringarnar koma upp Þetta var vissulega óvænt en skemmtilegt, segir Kristján Kristjánsson, sem horfði á nýju sprunguna í Geldingadölum opnast í hádeginu í dag. Hann var nýkominn á gosstöðvarnar með tíu ára gömlu barnabarni sínu þegar sprungan opnaðist. 5.4.2021 13:49
Kolbrún Halldórsdóttir gefur kost á sér fyrir VG Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri og fyrrverandi ráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Vinstri grænna fyrir alþingiskosningar í haust. 5.4.2021 13:36
Sama kvikan en að koma upp á nýjum stað „Það er greinilega kominn leki af rásinni sem hefur fóðrað gamla staðinn og kvikan er að koma upp á nýjum stað. Þetta er sama kvikuæðin,“ segir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur um nýju sprunguna sem myndaðist í Geldingadölum í hádeginu. Útlit er fyrir að dregið hafi úr fyrra gosinu. 5.4.2021 13:27
Klárt mál að fólk gæti verið í hættu Sigurður Bergmann, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum og vettvangsstjóri, segir alla krafta viðbragðsaðila nú fara í að koma fólki af gossvæðinu eftir að ný sprunga opnaðist. Öryggisins vegna þurfi að loka svæðinu þar sem fólk gæti verið í hættu. 5.4.2021 13:16
Von á niðurstöðu í málinu í dag: Mótfallinn lokuðu þinghaldi enda mál sem á „erindi til þjóðarinnar“ Jón Magnússon, lögmaður var mjög mótfallinn lokuðu þinghaldi í máli um sóttkvíarhótel. Hann telur málefnið eiga erindi til þjóðarinnar og segir það mikilvægt innlegg í lýðræðislega umræðu. 5.4.2021 12:36
Nýjar sprungur opnuðust á Reykjanesskaga Ný hraunsprunga hefur nú opnast um hálfan kílómetra norðaustur af gosstöðvunum í Geldingadölum. 5.4.2021 12:12
Flestir sýni stöðunni skilning en útgöngubann reynist mörgum þungbært Tvö hundruð og tuttugu manns dvöldu á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún í nótt. Í morgun bættist einn gestur við á hótelinu, en sá hafði komið frá skilgreindu hááhættusvæði í gegn um London. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins segir flesta gesti sýna stöðunni skilning. 5.4.2021 12:05
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður fjallað um kröfur gesta á sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún, sem hafa farið fram á að vera látnir lausir þaðan. Vonir standa til að úrskurður í málinu liggi fyrir í dag. Lögmaður eins gesta á hótelinu segir bagalegt að þinghald hafi ekki verið opið. 5.4.2021 11:58
Einn greindist utan sóttkvíar Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og var einn utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. 5.4.2021 10:34
Nístingskuldi og hvasst í Geldingadölum Heldur fámennt er við gosstöðvarnar í Geldingadölum enda nístingskuldi á svæðinu. 5.4.2021 10:14
Kennsla í loðnuveiði: Dæla úr nót annarra „Það er bara fundin torfa og kastað,“ svarar skipstjórinn á Beiti NK, Sturla Þórðarson, þegar við biðjum hann um að útskýra fyrir áhorfendum hvernig loðnuveiðar fara fram. 5.4.2021 07:43
Handtekinn eftir að hafa brotið gegn nálgunarbanni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann sem hafði brotið gegn nálgunarbanni í Hlíðahverfi í Reykjavík. Viðkomandi hafði einnig átt í hótunum og var hann vistaður í fangaklefa. 5.4.2021 07:37
Áfram kalt í veðri Frost var á landinu öllu í nótt og mældist það á bilinu 7 til 13 stig. Það dregur þó úr frosti eftir því sem líður á daginn og má búast við að það verði á bilinu 2 til 8 stig á landinu öllu. 5.4.2021 07:26
Minni umferð í dag en verið hefur og opið áfram á morgun Nokkuð færra fólk lagði leið sína að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag samanborið við síðustu daga. Aðeins voru um tvö til þrjú hundruð bílar á svæðinu þegar mest lét í dag. Gert er ráð fyrir að svæðið verði áfram opið á morgun en lokað var í gær vegna veðurs. 4.4.2021 22:34
Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu“ Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins. 4.4.2021 20:57
Óvænt gifting á Hvolsvelli tilkynnt í páskaeggi Það var mikið húllum hæ í húsi á Hvolsvelli í morgun þegar páskaeggin voru opnuð. Ástæðan er sú að þar var miði inn í, sem tilkynnti um óvænta uppákomu, sem fór fram í skjóli nætur. 4.4.2021 20:04
Samskiptagögn úr síma hins látna leiddu til handtöku mannanna Símasamskipti sem lögregla fann í síma mannsins sem lést í Kórahverfi í Kópavogi um helgina leiddu til þess að þrír Rúmenar voru handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur nú verið sleppt en sá þriðji sætir gæsluvarðhaldi. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu. 4.4.2021 19:58
„Gríðarlega veigamiklir hagsmunir“ fyrir alla sem dvelja á sóttkvíarhótelinu Málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið en ekki er að vænta niðurstöðu fyrr en í fyrsta lagi á morgun í máli þeirra sem látið hafa reyna á lögmæti þess að vera skikkaðir til að sæta sóttkví á sóttvarnarhóteli. Þetta staðfestir Ómar R. Valdimarsson lögmaður samtali við Vísi. 4.4.2021 19:12
„Nú hyllir undir að við séum að sleppa fyrir horn“ Breytingar sem verða á lífsleiðinni, heimsfaraldur kórónuveiru og sagan af Maríu frá Magdölum voru meðal þess sem var Agnesi M. Sigurðardóttur biskup Íslands ofarlega í huga í páskaprédikun hennar sem hún flutti við hátíðlega guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag, páskadag. 4.4.2021 19:01
Tólf einstaklingar undir í fimm málum Þinghald stendur enn yfir í máli sóttvarnalæknis og gesta sóttkvíarhótels sem krefjast þess að vistuninni verði aflétt tafarlaust. Ákvörðun var tekin um að loka þinghaldi á seinustu stundu að ósk eins lögmanna. 4.4.2021 18:30
„Ég trúi því að einn daginn muni eitthvað klikka“ „Ég trúi því að einn daginn muni eitthvað klikka,“ segir Alma Dögg Torfadóttir, sem hefur mátt þola ofsóknir í áratug, eða frá því hún var átján ára. 4.4.2021 18:16
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 fjöllum við ítarlega um umdeilt sóttkvíarhótel og kærurnar sem teknar voru fyrir í héraðsdómi nú síðdegis, en málflutningur stendur enn yfir. 4.4.2021 18:01
Sakborningur segist niðurbrotinn og að um sé að ræða slys Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina á andláti manns sem lést í Kópavogi um helgina segir að um slys hafi verið að ræða. Að sögn verjanda mannsins er hann niðurbrotinn vegna málsins að því er Rúv greinir frá. 4.4.2021 17:06
Lokað þinghald þegar kærurnar verða teknar fyrir Þinghald verður lokað þegar kröfur gesta á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni verða teknar fyrir. Fallist var á kröfu þess efnis nú fyrir skömmu. 4.4.2021 15:31
Gefur ekki kost á sér fyrir næstu kosningar Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðismanna fyrir alþingiskosningar í haust. Frá þessu greinir Páll í stöðuuppfærslu nú síðdegis þar sem hann segir áhugann hafa dofnað eftir fimm ár á þingi. 4.4.2021 15:05
Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald Karlmaður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í dag úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás við Vindakór í Kópavogi á föstudag, sem leiddi til andláts íslensks karlmanns um þrítugt. 4.4.2021 14:48
Vilja ekki dvelja á sóttkvíarhótelinu með þriggja mánaða barn sitt Hjón með þriggja mánaða gamalt barn eru á meðal þeirra sem hafa leitað til lögmanns í því skyni að bera ákvörðun stjórnvalda um skyldudvöl þeirra á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni undir dómstóla. 4.4.2021 14:28
Hvorki heimild né vilji til þess að hindra för fólks Ein tilkynning hefur verið send til lögreglu vegna einstaklings sem ákvað að yfirgefa sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni, þar sem fólki er gert að dvelja eftir komuna til landsins. Það heyrir til undantekninga að fólk vilji yfirgefa hótelið að sögn upplýsingafulltrúa Rauða krossins, sem segir heilt yfir hafa gengið mjög vel að taka á móti gestum. 4.4.2021 14:14
Fjórir skipverjar útskrifaðir í morgun Fjórir af tíu skipverjum súrálsskips sem greindust með kórónuveirusmit til Reyðarfjarðar í lok mars voru útskrifaðir í morgun. Fimm eru enn í einangrun um borð í skipinu en vonir standa til að þeir verði útskrifaðir fljótlega. 4.4.2021 13:51
Líknardeild hefur verið opnuð á Selfossi Líknardeild hefur verið opnuð á sjúkrahúsinu á Selfossi en fjögur rúm eru á deildinni fyrir líknar og lífslokameðferð. 4.4.2021 13:07
„Sérkennilegt að sóttvarnalæknir þurfi að svara fyrir reglugerð ráðuneytisins en svona er þetta nú bara“ Héraðsdómi Reykjavíkur hefur borist kröfugerð frá sóttvarnalækni vegna gesta sóttkvíarhótelsins við Þórunnartún sem krefjast þess að taka út sóttkvínna heima hjá sér. Fyrirtaka í málinu fer að líkindum fram eftir hádegi. Sóttvarnalæknir segir sérkennilegt að þurfa að svara fyrir reglugerð ráðuneytisins. 4.4.2021 12:38
Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn Lögregla hyggst gera kröfu um gæsluvarðhald yfir erlendum karlmanni sem grunaður er um árás við Vindakór í Kópavogi á föstudag. Íslenskur karlmaður fæddur árið 1990 lést af völdum áverka sinna í gær, en grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á manninn. 4.4.2021 12:20
Telur mögulegt að skuldbindingar í loftslagsmálum séu óraunhæfar Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist efins um hvort Íslendingar séu á réttri leið með þátttöku í loftslagsskuldbindingum Evrópusambandsríkja. Ísland eigi fátt sameiginlegt með þessum þjóðum í loftslagsmálum og hafi verulega sérstöðu hvað þau varðar. 4.4.2021 12:14
Hádegisfréttir Bylgjunnar Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á íslenskan karlmann, sem lést af sárum sínum á Landspítalanum í gær. Málið er rannsakað sem manndráp. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf. 4.4.2021 11:56
Tveir af fjórum sem greindust voru utan sóttkvíar Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir þeirra voru í sóttkví við greiningu, en tveir utan sóttkvíar og er beðið eftir niðurstöðu mótefnamælingar í tengslum við þau smit. Þá greindist einn á landamærunum. 4.4.2021 10:53