Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Spilling eykst enn á Íslandi samkvæmt mælingu Transparency Ísland lendir í 17. sæti á árlegum lista Transparency International sem mælir spillingu í flestum heims. Staða Íslands hefur farið versnandi síðustu ár og enn hallar á ógæfuhliðina. 28.1.2021 06:52
Ekið á stúlku sem var að koma úr strætó Laust fyrir klukkan hálfsex í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að ekið hefði verið á þrettán ára stúlku í Árbæ. Hafði stúlkan verið að koma úr strætó þegar ekið var á hana. 28.1.2021 06:30
„Það er kominn tími til að hreinsa til og stoppa þetta“ Fanney Lind Thomas, leikmaður Breiðabliks í úrvalsdeild kvenna í körfubolta, segir að óviðeigandi hegðun þjálfara og annarra karla í valdastöðum innan körfuboltahreyfingarinnar hafi fengið að viðgangast óáreitt um árabil. Hún kveðst þekkja mýmörg dæmi um slíkt og jafnframt upplifað sjálf. Taka verði á vandamálinu fyrir komandi kynslóðir. 27.1.2021 23:37
Syllan brytjuð niður með vinnuvélum Unnið hefur verið að því síðdegis og í kvöld að brjóta niður stærðarinnar snjósyllu fyrir ofan Vesturfarasetrið á Hofsósi. Lögreglan á Norðurlandi vestra lokaði hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna stærðarinnar sprungu í snjólögum sem uppgötvaðist fyrir ofan setrið í gærkvöldi, fyrir árvekni ungs pilts. 27.1.2021 22:11
Hefur beðið eftir brjóstnámi í þrjú ár en beiðnin var aldrei gerð Kona sem beðið hefur eftir því að komast í brjóstnámsaðgerð og uppbyggingu á brjóstum í rúm þrjú ár komst að því í dag að beiðni um aðgerð hafi aldrei verið gefin út fyrir hana. Hún segir Landspítalann hafa brugðist sér í þessu máli. 27.1.2021 22:04
Bara krapi svo langt sem augað eygir Á morgun verður hafist handa við að ýta út krapa sem hefur safnast við veginn við Jökulsá á Fjöllum. Í gær þurfti að loka þjóðvegi eitt milli Mývatns og Egilsstaða vegna krapastífllu sem flæddi yfir veginn. 27.1.2021 21:32
Segir koma á óvart hve margir finni fyrir eftirköstum svo löngu eftir veikindin Fjórðungur þeirra sem smituðust af kórónuveirunni í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi finnur enn nokkur eða mikil einkenni sex mánuðum eftir veikindin. 27.1.2021 21:31
Vann rúmar 6,7 milljónir Heppinn áskrifandi vann þriðja vinning í Víkingalottói kvöldsins og fær rúmar 6.7 milljónir í sinn hlut. Hvorki fyrsti né annar vinningur gekk út að þessu sinni, að því er fram kemur í tilkynningu frá Íslenskri getspá. 27.1.2021 21:00
Berst við heilaþoku og ofurþreytu eftir alvarlega Covid-sýkingu í vor Einn þeirra sem er til meðferðar á Reykjalundi vegna eftirkasta Covid var meðvitundarlaus á Landspítalanum í þrjár vikur síðastliðið vor. Hann þjáist af síþreytu og hefur örmagnast við minnsta álag. Heilaþokan leikur hann grátt, kaffibragðið er ekki eins og áður - en hann er byrjaður að borða grænmeti eftir að bragðskynið breyttist. 27.1.2021 21:00
Fyrsti hópurinn sem var útskrifaður af Reykjalundi á enn eftir að ná sér Fyrsti hópurinn hefur verið útskrifaður úr sex vikna meðferð á Reykjalundi en á enn eftir að ná sér að fullu. 27.1.2021 20:17
Útivistarfólk varað við fjallaferðum vegna snjóflóðahættu Talsverð snjókoma hefur verið á norðurhluta landsins undanfarna daga og enn er óvissustig vegna snjóflóðahættu í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. 27.1.2021 19:49
Þörf á mun meiri inniviðafjárfestingum opinberra aðila en áætlað er Formaður Samtaka iðnaðarins segir þörf á mun meiri fjárfestingum í innviðum landsins en áætlanir opinberra aðila upp á 139 milljaðar kveða á um á þessu ári. Í kreppunni nú vegna kórónuveirufaraldurins sé rétti tíminn til að gefa verulega í. 27.1.2021 19:21
Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27.1.2021 19:01
„Hún þarf bara eitt gott partí og þá er ballið byrjað“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að lítið þurfi út af að bregða til að kórónuveirufaraldurinn fari aftur af stað. Veiran sé enn úti í samfélaginu, þó það sé í litlum mæli. Fara þurfi mjög hægt í tilslakanir. 27.1.2021 18:35
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjórðungur þeirra sem smituðust af kórónuveirunni í fyrstu bylgjunni hér á landi finna enn nokkur eða mikil einkenni sex mánuðum eftir veikindi. Fjallað verður ítarlega um eftirköst Covid-19 í kvöldfréttum Stöðvar 2. Við kynnum okkur rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar og greinum frá því hvaða einkennum fólk finnur helst enn fyrir. 27.1.2021 18:00
Boða hertar sóttvarnir vegna skæðrar fuglaflensu Matvælastofnun mun leggja til við ráðherra að fyrirskipa hertar sóttvarnir hér á landi frá miðjum febrúar vegna skæðrar fuglaflensu, sem heldur áfram að breiðast út víða um heim. Talsverðar líkur eru taldar á því að fuglaflensan berist hingað með farfuglum og MAST segir afleiðingar smits á stórum alifuglabúum geta verið mjög alvarlegar. 27.1.2021 17:21
Ósannað að aðstoð við mæðgur sem komu til landsins hafi verið refsiverð Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað tvo af ákæru um að hafa skipulagt og aðstoðað konu og tvær dætur hennar að koma ólöglega til Íslands í þeim tilgangi að sækja um hæli hér á landi. 27.1.2021 15:30
Vill fækka nagladekkjum með gjaldtöku „Mér finnst það ákveðinn veruleikaflótti hjá þeim sem halda að þetta snúist bara um að borgin geti þrifið göturnar betur og að enginn þurfi að breyta sinni hegðun,“ segir Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og starfandi formaður umhverfis- og samgöngunráðs Reykjavíkurborgar. 27.1.2021 14:49
Vikið frá dómgæslu eftir „óeðlileg“ skilaboð til leikmanns í kvennaflokki Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að dómari muni ekki dæma aftur á vegum sambandsins eftir að hafa orðið uppvís að skilaboðum sem voru „óeðlileg“ og fóru „langt yfir strikið.“ 27.1.2021 14:26
Óska eftir vitnum að hjólreiðaslysi í Breiðholti þar sem maður lést Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir vitnum að slysi sem varð á göngustíg á móts við Hagasel 14-22 í Breiðholti laugardagsmorguninn 16. janúar. 27.1.2021 14:09
Segir gróf mannréttindabrot framin í skjóli bágborins eftirlits Formaður SEM samtakanna segir gróf mannréttindabrot framin daglega á Íslandi þegar hreyfihömluðum er meinaður greiður aðgangur að opinberum stöðum og íbúðarhúsnæði. Hann gagnrýnir byggingarfulltrúa og skipulagsyfirvöld harðlega og segir þau gefa afslátt af lögbundnum kröfum um aðgengi. 27.1.2021 14:00
Vegagerð hafin milli Mjólkár og Dynjanda Vinna er hafin við lagningu nýs vegarkafla Vestfjarðavegar í botni Arnarfjarðar, milli Mjólkárvirkjunar og fossins Dynjanda. Kaflinn er 4,3 kílómetra langur fyrir Meðalnes, milli Dynjandisvogar og Borgarfjarðar. Suðurverk annast stóran hluta verksins sem undirverktaki Íslenskra aðalverktaka. 27.1.2021 13:45
Árekstur á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs Einn var fluttur á sjúkrahús eftir árekstur tveggja bíla á mótum Sæbrautar og Skeiðarvogs í Reykjavík um hádegisbil. 27.1.2021 13:30
Óttast að krapastífla sé á fleiri stöðum í Jökulsá Verkstjóri á Húsavík sem staddur er við Krapastífluna við Jökulsá á Fjöllum óttast að fleiri krapastíflur séu í ánni. Lögreglan á Norðurlandi eystra er á leiðinni með dróna til að ná betri yfirsýn. 27.1.2021 12:42
Árvekni drengs á Hofsósi varð til þess að sprungan uppgötvaðist Árvekni ungs drengs á Hofsósi varð til þess að stærðarinnar sprunga í snjóalögum fyrir ofan Vesturfarasetrið uppgötvaðist. Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við Veðurstofuna lokað hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. 27.1.2021 12:30
Dansleikurinn reyndist íþróttaviðburður með tilboði á næsta bar Hátt í 25 geta búist við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum eftir að lögregla leysti upp danssamkvæmi í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem áfengi var haft við hönd. Áfengið hafði verið borið út af nálægum veitingastað, sem er brot á áfengislögum. 27.1.2021 12:01
Opinberir aðilar áforma framkvæmdir upp á 139 milljarða í ár Framkvæmdir opinberra aðila voru mun minni í fyrra en þeir höfðu boðað á útboðsþingi í upphafi þess árs. Mestu munar um stórfelldan samdrátt í framkvæmdum hjá Ísavia. Reykjavíkurborg stóð hins vegar nokkurn vegin við áform sem gefin voru á útboðsþingi í byrjun síðasta árs. 27.1.2021 11:57
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum okkar fjöllum við um snjóflóðahættu sem nú er á Hofsósi en þar var það fyrir árvekni ungs bæjarbúa sem stærðarinnar sprunga í snjóalögum fyrir ofan Vesturfarasetrið uppgötvaðist. 27.1.2021 11:31
Tollurinn fái víðtækari heimildir til þess að leita í farangri Drög að frumvarpi til breytinga á tollalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Tollyfirvöldum eru þar veittar auknar heimildir til þess að leita í innrituðum farangri, án þess að eigandinn sé viðstaddur. 27.1.2021 11:25
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 27.1.2021 10:57
Leggja til að sveitarfélög hætti að gefa trúfélögum lóðir Lagt er til að lög um Kristnisjóð falli brott í frumvarpi sem Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur lagt fram. Aðrir þingmenn flokksins, sem og Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar og Andrés Ingi Jónsson standa einnig að málinu. 27.1.2021 10:41
Verður hluti af leikskólanum Brákarborg Stefnt er að því að stjórnun og rekstur nýs leikskóla við Kleppsveg 150-152 muni heyri undir leikskólann Brákarborg sem er til húsa í Brákarsundi. 27.1.2021 10:26
Þrýstingsfall í flugvél Bláfugls vegna leka við frakthurð Þrýstingsfall varð í einni af Boeing-fraktflugvélum flugfélagsins Bláfugls í gærmorgun þegar vélin var á leið frá Dublin til Keflavíkur. Þrýstingsfallið uppgötvaðist þegar vélin var skammt frá Færeyjum. 27.1.2021 10:23
442 milljónir til bænda vegna kal- og girðingatjóns Greiddar hafa verið 442 milljónir króna í styrki úr Bjargráðasjóði vegna mikils kal- og girðingatjóns veturinn 2019-20. 27.1.2021 08:26
Taldi hugmyndina fráleita en hitti svo Jón Ásgeir Einar Kárason rithöfundur hefur sent frá sér mikla bók, Málsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, en þar er farið yfir einstakan feril athafnamannsins sem lenti í fordæmalausum málaferlum í tengslum við viðskipti sín og rekstur. 27.1.2021 08:01
Rafmagnslaust vegna bilunar í Garðabæ Rafmagnslaust er í Garðabæ vegna bilunar í háspennulínu. Unnið er að viðgerð, en bilunin kom upp klukkan 6:10 í morgun. 27.1.2021 07:35
Krapaflóðið lokar enn hringveginum Hringvegurinn milli Mývatns og Egilsstaða er enn lokaður þar sem krapastífla flæðir yfir veginn við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum. 27.1.2021 07:26
Strekkingur, bjart með köflum og stöku él Það verður austlæg átt í dag, víða strekkingur, allhvöss eða hvöss syðst og á Vestfjörðum en mun hægari austanlands. Þá verður bjart með köflum en stöku él úti við sjávarsíðuna. 27.1.2021 07:10
Hafnarsvæðinu á Hofsósi lokað vegna snjóflóðahættu Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur í samráði við ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands ákveðið að loka hafnarsvæðinu á Hofsósi vegna snjóflóðahættu. 27.1.2021 06:40
Fjöldi manns kærður fyrir brot á sóttvarnalögum vegna dansleiks í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi tilkynning um dansleik í húsnæði við hlið veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur. 27.1.2021 06:21
Mun fleiri „konur“ en „karlar“ breytt skráningu í kynsegin/annað Fjórtán hafa fengið kynskráningu sinni breytt hjá Þjóðskrá Íslands eftir að opnað var fyrir þann möguleika að velja „kynsegin/annað“ eftir áramót. 26.1.2021 22:07
Krapaflóðið tók sundur stofnstreng Krapaflóðið í Jökulsá á fjöllum í dag tók í sundur stofnstreng milli Reykjahlíðar og Hjarðarhaga. Ekki er gert ráð fyrir að hægt verði að gera við strenginn fyrr en á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mílu. 26.1.2021 21:38
Metár í fjölda nýrra íbúða í Reykjavík Metfjöldi íbúða var í byggingu í Reykjavík á síðasta ári þegar bygging yfir ellefu hundruð íbúða hófst. Líkur eru á mikili grósku á þessu ári en deiliskipulag liggur fyrir varðandi fjögur þúsund og níu hundruð íbúðir, meðal annars á BYKO reitnum þar sem rísa munu rúmlega áttatíu íbúðir. 26.1.2021 21:01
„Áhugavert“ bóluefni sem lofar mjög góðu Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, sem Íslendingar gætu átt von á til landsins á fyrsta ársfjórðungi, áhugavert bóluefni, sem svipi mjög til bóluefnis AstraZeneca. Niðurstöður úr fyrsta og öðrum fasa rannsókna lofi mjög góðu. 26.1.2021 19:53
Útboðsgjald á innfluttar landbúnaðarvörur hækkar um allt að 2.840 prósent Dæmi eru um að útboðsgjald vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum innan tollakvóta Evrópusambandsins hafi tuttugu og níu faldast eftir að eldri álagning var tekin upp á ný um áramót. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir þessar hækkanir skila sér út í verðlagið bæði á innfluttum og innlendum landbúnaðarvörum. 26.1.2021 19:20