Fleiri fréttir

„Erfitt að sjá fullorðna og börn deyja í massavís“

Magna hefur starfað í hjálparstarfi á vegum Rauða krossins í Síerra Leóne til þess að reyna koma í veg fyrir útbreiðslu ebólufaraldursins. Núna heldur hún námskeið og fræðir sjálfboðaliða í Sviss og á Íslandi. Fjölskyldan óttast um hana meðan hún er úti.

Þingmaður spyr ráðherra um opnun sendibréfa

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, leggur fram fyrirspurn á Alþingi um opnun stjórnvalda á sendibréfum. "Mér fannst þeir ganga mjög langt eftir að fólk fór að kaupa af Amazon. Þá var eins og það væri í lagi að opna allt,“ útskýrir Birgitta.

Kærir lögregluna fyrir njósnir

Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi formaður Hægri grænna, telur að freklega sé brotið á friðhelgi einkalífs hans í nýopinberaðri skýrslu lögreglunnar um mótmæli almennings á hrunárunum. Guðmundur lagði í gær fram kæru til ríkissaksóknara.

Hólaskóli kostar tæmingu rotþróa

Háskólinn á Hólum stendur straum af kostnaði við staðarhald á Hólum þótt það sé ekki lögbundið verkefni skólans lengur. Ríkisendurskoðun segir staðarhaldið ekki samræmast skólarekstri.

Varað við hvassviðri eða stormi í nótt

Vegagerðin varar við austan hvassviðri eða stormi við suðurströndina í nótt en vindhviður geta náð allt að 35-40 metrum á sekúndu. Þá má búast við mikilli úrkomu suðaustanlands.

Töluverð mengun víðsvegar um landið

Enn eru há gildi brennisteinsdíoxíðs að mælast á norðanverðu Snæfellsnesi. Alls voru 3700 míkrógrömm mæld með færanlegum handheldum mæli í Ólafsvík nú eftir hádegið.

Þykir ómaklega vegið að Framsóknarflokknum

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins og nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs, segir stefnu flokksins hvað varðar trúfrelsi og byggingu bænahúsa skýra.

Harður árekstur við Hringbraut

Flytja þurfti einn á slysadeild og draga bíl burtu með krana eftir árekstur á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu um tvöleytið í dag.

Búast má við stormi við suðurströndina

Búast má við austan hvassviðri eða stormi við suðurströndina í kvöld og nótt. Vindhviður geta náð allt að 30-35 metrum á sekúndu. Einnig má búast við mikilli úrkomu SA lands.

Styður ekki framsóknarmenn til trúnaðarstarfa

Höskuldur Þórhallsson þingmaður Framsóknarflokks var í dag kjörinn forseti Norðurlandaráðs. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna bauð sig fram gegn Höskuldi. Steingrímur fékk 9 atkvæði og Höskuldur 52.

Benedikt sendi yfirvöldum tóninn

Benedikt Erlingsson bað áhorfendur á verðlaunaafhendingu kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs að hjálpa íslenskum kvikmyndaframleiðendum.

Konur í meirihluta kirkjuráðs í fyrsta sinn

Nýtt kirkjuráð var kjörið á kirkjuþingi í dag. Í ráðinu sitja tveir fulltrúar vígðra og tveir fulltrúar leikmanna, kjörnir af þinginu, auk biskups Íslands sem er forseti kirkjuráðs.

40 þúsund SMS til landsmanna

Almannavarnir hafa sent út SMS skilaboð vegna brennisteinsdíoxíðs mengunar á vestur- og norðurlandi nú í morgun.

Mikil mengun á Akureyri

Íbúar á Akureyri hafa fengið varúðar sms um að halda sig innandyra í dag og loka gluggum vegna mengunar á svæðinu.

Verkalýðshreyfingin býr sig undir harða baráttu

Menn vilja ekki samflot í komandi kjarasamningum á almenna markaðnum. Þeir telja hagsmunum sínum betur borgið með því að hver semji fyrir sig. Margar greinar geti borgað mun hærri laun en þær gera í dag.

Mikil gasmengun í Skagafirði

Almannavarnir hafa sent út viðvörun til íbúa á svæðinu og er fólk beðið um að halda sig innandyra.

Sjá næstu 50 fréttir