Fleiri fréttir

Gripaflutningar á fötluðum

Bergur Þorri Benjamínsson, málefnafulltrúi Sjálfsbjargar, Landssamband fatlaðara og varamaður í stjórn gagnrýnir harðlega þá bíla, sem notaðir eru víða um land til að keyra fatlaða á milli staða og talar um gripaflutninga á fötluðum í því sambandi. Þá furðar hann sig á því að ekki séu þriggja punkta belti eða hnakkapúðar í bílunum.

170 milljónir frá landbúnaðnum alla daga ársins

Íslenskur landbúnaður skilar 170 milljónum krónum á dag í þjóðarbúið og greinin skaffar tólf þúsund störf, þar af um eitt þúsund á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma er helmingur á öllum þeim mat sem við neytum fluttur inn til landsins.

Eitraður kræklingur í Hvalfirði

Matvælastofnun hefur varað við neyslu kræklings úr Hvalfirðinum, en í honum hafa fundist eiturefni sem geta verið skaðleg heilsu fólks.

Brotthlaup einstaka manna fremur en klofningur

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, óttast ekki að komi fram klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokknum

Emmsjé Gauti sýpur seyðið af ófærðinni

Norðfirðingar eru ekki þeir einu sem þurfa að súpa seyðið af slæmu veðurfari en aflýsa þurfti tónleikum með Emmsjé Gauta, Úlfi Úlfi og Agent Fresco á Ísafirði.

„Þau ljúga og ljúga og ljúga“

„Þessi þingsályktunartillaga hefur örugglega legið fyrir lengi og Evrópuskýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla skipti stjórnarflokkana greinilega engu máli,“ segir Björn Valur Gíslason, fyrrum þingmaður Vinstri grænna.

Norðfirðingar fastir í firðinum

"Það er búið að vera ófært síðan í fyrrakvöld. Það er búinn að vera mjög mikill snjór,“ segir Ásgeir Jónsson, sjómaður, sem annast mokstur í göngunum.

„Svona líta svikarar út“

Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður og evrópusinni segir Bjarna Benediktsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson vera svikara.

Átt þú þessa skó?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú brugðið á það ráð að setja inn myndir af óskilamunum á netið í von um að réttir eigendur finnist.

Ræðir sæstreng við breskan kollega sinn

Ragnheiður Elín Árnadóttir ræðir við orkumálaráðherra Bretlands um sæstrengsverkefnið í næsta mánuði. Ráðherra vill að forræði verkefnisins færist alfarið til stjórnvalda. Vinna verkefnastjórnar Rammaáætlunar veldur henni vonbrigðum.

Dulin hótun forsætisráðherra

Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að í gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Seðlabankann í ræðu á Viðskiptaþingi í síðustu viku hafi falist dulin hótun.

Meirihluti Reykvíkinga segist myndu kjósa með aðild að Evrópusambandinu

Rúmlega helmingur íbúa Reykjavíkur myndi líklegast kjósa með aðild að Evrópusambandinu ef gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu í dag. Í sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur myndu svipað margir kjósa með og á móti en í öðrum sveitarfélögum á landinu myndi stór meirihluti kjósa gegn aðild.

Óhöppum fjölgar um 50 prósent

Umferðaróhöppum sem tengjast akstri undir áhrifum fíkniefna fjölgaði um fimmtíu prósent í janúar, samanborið við þrjá mánuðina á undan.

Hverfisgata opnuð fyrir umferð

Hverfisgatan var opnuð á ný fyrir bílaumferð í gær. Áfram verður unnið við lokafrágang götunnar alla næstu viku.

Lokuð í klefa með klósetti og sjónvarpi

Hjördís Svan Aðalheiðardóttir fékk sinn fyrsta gest í fangelsi í Horsens í Danmörku. Nefnd á vegum Evrópuþingsins hefur sent Dönum tvær kvartanir vegna handtöku Hjördísar.

Fá eingreiðslu og orlofsuppbót

Öll félögin, þar sem kjarasamningur Alþýðusambandsins við Samtök atvinnulífsins var felldur í janúar, hafa nú staðfest samninginn nema eitt, það er Verkalýðsfélag Akraness. Nýr fundur hefur ekki verið boðaður hjá ríkissáttasemjara.

Svikin loforð

"Ég veit engin dæmi þess að svona stór fyrirheit í kosningum um jafn mikilvægt mál hafi verið svikin án einhverra afleiðinga.“

„Niðurstaða er bara niðurstaða“

„Menn tóku bara þingsályktunartillögu um að fara í viðræðurnar án þess að tala við fólkið og nú er bara farið hinn veginn,“ segir Brynjar Níelsson um ákvörðun Sjálfstæðisflokksins um að draga aðildarumsókn Íslands í Evrópusambandið til baka

Verði ákærðir fyrir að hýsa eftirlýst börn

Samtök foreldra barna með áhættuhegðun gagnrýna lögreglu fyrir það hversu sjaldan þeir einstaklingar eru látnir svara til saka, sem skjóti skjólshúsi yfir eftirlýst börn. Upplýsingar um fjölda ákæra í þessum málum liggja ekki fyrir hjá lögreglu en þar á bæ er fullyrt að ákæra sé alltaf lögð fram þegar það á við.

Dulin hótun forsætisráðherra í garð Seðlabankans

Katrín Júlíusdóttir varaformaður Samfylkingarinnar segir að í gagnrýni Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra á Seðlabankann í ræðu á Viðskiptaþingi í síðustu viku hafi falist dulin hótun.

Tillaga um viðræðuslit komin fram

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um að umsókn Íslands um aðild að ESB verði dregin til baka. Málið verður rætt á þingi í upphafi næstu viku.

„Þetta kemur á óvart"

Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir að ákvörðun þingflokks Sjálfstæðisflokksins hafi komið sér á óvart.

Óveður á Kjalarnesi

Hálka er á Hellisheiði en hálkublettir á Mosfellsheiði. Það er ófært og óveður á Mývatns- og Möðrudalsöræfum og eins á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og Oddsskarði og beðið með mokstur til morguns

Dagur steig upp í gröfuna

Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, tók fyrstu skóflustunguna að grunni nýs fjölbýlishúss við Skyggnisbraut 8 – 12 – Friggjarbrunn 55-57 í Úlfarsárdal.

Sjá næstu 50 fréttir