Fleiri fréttir

Járn í töfluformi ófáanlegt á Íslandi

"Fyrir þá sem eru með alvarlegan járnskort eigum við engin lyf nema á sprautuformi sem er rándýrt," segir íslenskur lyfjafræðingur. Járn í töfluformi hefur ekki verið fáanlegt hér á landi síðan upp úr áramótum.

Hundur ógnaði manni og smáhundi á Suðurnesjum

Schäfer-hundur réðst á mann og smáhund hans á göngu á Suðurnesjum á dögunum. Þá olli Husky-hundur dagmóður áhyggjum þar sem hann sást hlaupandi nærri börnum sofandi í barnavögnum.

Fimm í varðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls

Fimm karlmenn sæta gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Í síðustu viku var lagt hald á verulagt magn af því sem talið er vera sterk fíkniefni. Það voru starfsmenn tollyfirvalda, með aðstoð fíkniefnaleitarhunda, sem fundu efnin, en þau voru send í nokkrum póstsendingum til landsins.

Niðurstaða EFTA dómstólsins ekki áfellisdómur yfir samningaleiðinni

Nýfengin niðurstaða í Icesave-málinu fyrir EFTA dómstólnum er ekki áfellisdómur yfir þeirri leið samninga sem til stóð að fara frá haustmánuðum 2008, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, í ræðu á landsfundi flokksins í Vodafonehöllinni í dag.

Óvissustigi aflétt á Landspítalanum

Ástandið á Landspítalanum er viðráðanlegt eins og stendur og ákveðið hefur verið að aflétta óvissustigi. Viðbragðsstjórn spítalans kom saman nú í hádeginu til að meta stöðuna. Flensan er nú í hámarki samkvæmt upplýsingum frá sóttvarnarlækni.

"Þá getum við fagnað almennilega"

Björk Eiðsdóttir, móðir Blævar Bjarkardóttur Rúnarsdóttur, var kampakát með fréttir þess efnis að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Bjarkar gegn íslenska ríkinu yrði ekki áfrýjað.

Ein elsta vídeóleiga landsins lokar - "Tæknin tók okkur illilega"

"Við erum að loka búllunni og játum okkur sigraða - það er tæknin sem tók okkur illilega,“ segir Ragnar Snorrason, eigandi myndbandaleigunnar Grensásvídeó, sem er ein elsta vídeóleiga landsins og jafnframt ein sú ástsælasta. Leigan lokar í lok mánaðarins þar sem fólk er hreinlega hætt að koma og leigja myndir.

Ærin Gjóska bar í fyrrinótt

Ærin Gjóska bar aðfaranótt gærdagsins tveimur gimbrum á bænum Teigi í Eyjafjarðarsveit. Gjóska er í eigu Gunnhildar Jakobsdóttur frístundabónda sem segir að hrúturinn fái að vera með ærnum í haga.

Dómnum verður ekki áfrýjað

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að taka þurfi lög um mannanafnanefnd til endurskoðunar. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær leyfilegt væri að nefna stúlkur Blær á Íslandi.

Tryllitækjum úr Top Gear stillt upp við Hallgrímskirkju

Fjölmennt tökulið er hér á landi til þess að taka upp þátt í nýrri Top Gear þáttaröð. Aðalmennirnir að baki þáttunum, þeir Tanner Foust, Rutledge Wood og Adam Ferrera eru allir á landinu, eftir því sem fram kemur á vefnum Car Buzz. Bílar á þeirra vegum sáust við Hallgrímskirkju fyrr í vikunni en vefurinn birtir myndir sem birtust upphaflega á vefnum Hooniverse. Tanner Foust mun sjálfur hafa staðfest að hann væri hér á landi með færslu á myndaforritinu Instagram.

Yfir 500 veittu upplýsingar til lögreglu

Alls bárust 502 símtöl í Upplýsingasíma lögreglunnar (fíkniefnasímann) árið 2012. Á vef lögreglunnar kemur fram að símtölum fari fjölgandi á milli ára.

Jóhanna og Steingrímur blésu á kerti

Í dag eru fjögur ár frá því að ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboð var mynduð, þann 1. febrúar 2009.

"Eins og maður sé á annarri plánetu"

Leikarar í sjónvarpsþáttunum "Game of Thrones" dásama Ísland í innslagi þar sem fylgst er með tökum á þriðju þáttaröðinni sem fram fór að nokkru leyti hér á landi.

Aðvörunarkerfi kom í veg fyrir innbrot

Í nótt var gerð tilraun til innbrots í verkstæði á Kjalarnesi, en þeir sem þar voru að verki hurfu á braut þegar aðvörunarkerfi fór í gang.

Varð fyrir líkamsárás á heimili sínu

Um klukkan tvö í nótt kom maður á slysadeild með áverka, sagðist hann hafa orðið fyrir líkamsárás á heimili sínu. Var hann með áverka í andliti og víðar.

Mál lögreglumanns fellt niður

Ríkissaksóknari hefur fellt niður mál lögreglumanns á Blönduósi sem hafði sætt rannsókn vegna kynferðisbrots. Sami lögreglumaður var sýknaður af ákæru um annað kynferðisbrot í nóvember síðastliðnum.

40% vilja afsögn ráðherra

Fjórir af hverjum tíu landsmönnum vilja að forystumenn stjórnarflokkanna segi af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins, samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Fá lóðina sem Eiður skilaði

Alþingismaðurinn Magnús Orri Schram og Herdís Hallmarsdóttir, slitastjórnarmaður í Landsbankanum, hrepptu byggingarlóðina í Hólmaþingi 7 þegar fulltrúi sýslumanns dró á milli umsækjenda á fundi framkvæmdaráðs Kópavogs á miðvikudag.

Landsbókasafnið rauf friðhelgi kommúnista

Landsbókasafn Íslands – Háskólasafn mátti ekki veita aðgang að félagatali Kommúnistaflokks Íslands frá árunum 1930 til 1938, segir Persónuvernd í úrskurði.

Ný forysta fer beint í baráttuna

Það skýrist á morgun hver munu leiða Samfylkinguna inn í kosningabaráttuna, en landsfundur flokksins hefst í dag. Raunar liggur þegar fyrir hver verður næsti formaður flokksins þar sem kosningu um það lauk á mánudaginn. Það verður hins vegar ekki gefið upp fyrr en klukkan 11.30 á morgun. Að því loknu kýs Samfylkingarfólk sér nýjan varaformann.

Mest hægt að vinna 15 milljarða króna

Íslendingar verða í fyrsta skipti með í Eurojackpot lottóinu þegar dregið verður í dag. Vinningar í Eurojackpot geta numið milljörðum króna. Lágmarksvinningsupphæð í hverri viku er tíu milljón evrur, eða jafnvirði 1,7 milljarða íslenskra króna, og getur hæst orðið 90 milljón evrur, eða 15 milljarðar króna. Ein röð kostar 320 krónur.

Erfðabreyttar örverur nýttar

Umhverfisstofnun hefur gefið út leyfi til Háskóla Íslands fyrir afmarkaðri starfsemi með erfðabreyttar örverur á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum. Um er að ræða rannsóknir á mæði-visnuveiru og herpes-hestaveiru.

Þótti sér líkt við Göbbels

"Ég mótmæli harðlega samlíkingu formanns bæjarráðs um að líkja mér við áróðursmálaráðherra nasista í seinni heimsstyrjöldinni, hún er honum til skammar,“ bókaði áheyrnarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar, Jón Jósef Bjarnason, á bæjarráðsfundi í Mosfellsbæ. Verið var að ræða byggingu hjúkrunarheimilis.

Norski loðnuskipstjórinn sleppur með lága sekt

Afli norska loðnuskipsins Manon reyndist töluvert meiri en skipstjóri hafði tilkynnt um að veitt hefði verið innan íslensku efnahagslögsögunnar. Dómsátt var gerð í málinu eftir rannsókn lögreglunnar á Eskifirði. Landhelgisgæslan telur ekki ástæðu til að halda að brot sem þessi séu algeng. Víðtækt eftirlit er á miðunum.

Deilt um framsal ríkisvalds í stjórnskipunarlögum: Getum þurft að hverfa frá EES-aðild

Verði framsal ríkisvalds ekki heimilað með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í frumvarpi til stjórnskipunarlaga gætu Íslendingar staðið frammi fyrir ákvörðun um hvort ætti að stíga út úr EES-samningnum. Þetta sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra á þingi í gær en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins hafði hafið máls á þessu efni.

Hugsað til bráðabirgða

Snæfellsbær sagði nýverið upp þjónustusamningi frá 2011 við Grundarfjarðarbæ um verkefni skipulags- og byggingafulltrúa, vegna anna fulltrúans heima fyrir. „Þetta er ekkert sem kemur á óvart.

Sjá næstu 50 fréttir