Innlent

Varð fyrir líkamsárás á heimili sínu

Um klukkan tvö í nótt kom maður á slysadeild með áverka, sagðist hann hafa orðið fyrir líkamsárás á heimili sínu. Var hann með áverka í andliti og víðar.

Ekki vitað hverjir voru þarna að verki, en málið í rannsókn að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir einnig að nokkur útköll voru í nótt vegna ölvunar og hávaða í heimahúsum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×