40% vilja afsögn ráðherra Brjánn Jónasson skrifar 1. febrúar 2013 06:00 Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, forystumenn stjórnarflokkanna, hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir hvernig haldið var á Icesave-málinu. Fréttablaðið/Vilhelm
Fjórir af hverjum tíu landsmönnum vilja að forystumenn stjórnarflokkanna segi af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins, samkvæmt niðurstöðu nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls segjast 39,7 prósent þeirra sem afstöðu taka til spurningarinnar vilja að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra segi af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins, en 60,3 prósent vilja að þau sitji áfram. Mikill munur er á afstöðu landsmanna til málsins eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þannig vill meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Jóhanna og Steingrímur víki. Afar fáir stuðningsmenn stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar eru sama sinnis. Við framkvæmd könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 var hringt þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki. Hringt var miðvikudaginn 30. janúar og fimmtudaginn 31. janúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Eiga forystumenn ríkisstjórnarflokkanna að segja af sér vegna niðurstöðu Icesave-málsins? Alls tóku 83,9 prósent þeirra sem tóku þátt afstöðu til spurningarinnar.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Fleiri fréttir Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Sjá meira