Fleiri fréttir

Árekstur á Álftanesvegi

Árekstur varð á Álftanesvegi um klukkan hálf fimm í dag. Þar skullu tveir bílar saman en að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu virðist sem enginn sé alvarlega slasaður. Allir eru komnir út úr bílunum. Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn að störfum á vettvangi.

Magnús Hlynur ráðinn til Stöðvar 2 og Vísis

Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður hefur verið ráðinn til starfa fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. "Ég er mjög sáttur og sæll að vera kominn á þennan nýja vinnustað eftir að RUV lét mig fara,“ segir Magnús Hlynur í samtali við Vísi.

Lögreglan á Akureyri leitar að þessu fólki

Lögreglan á Akureyri leitar fjögurra aðila í tengslum við rannsókn á þjófnaðarmáli. Þessir aðilar voru staddir á Akureyri þann 03.09.2012. Líklegast er um erlenda aðila að ræða. Meðfylgjandi myndir voru teknar af þremur þessara aðila í hraðbanka á Akureyri.

Kannabis á Kjalarnesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Kjalarnesi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 65 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 14 kg. Stór hluti hússins var undirlagður af þessari starfsemi og var búnaðurinn eftir því.

Áratuga gamlar myndir úr starfi lögreglunnar birtar á vefnum

Lögreglan hefur sett upp sérstaka myndasíðu á myndavefnum flickr. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að lögreglan sjái fyrir sér ýmsa möguleika til miðlunar upplýsinga. Til dæmis að geyma þarna inni upplýsingar um ökutæki sem hefur verið stolið. "Þetta er nú bara svona einn liðurinn í notkun okkar á samfélagsmiðlum," segir Stefán í samtali við Vísi.

Þriggja ára fangelsi fyrir hrottalega árás í Breiðholti

Mennirnir sem réðust á mann á sjötugsaldri í Breiðholti í júlí og héldu honum klukkutímum saman á hemili hans og hótuðu honum ofbeldi voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annar þeirra, Daniel Arciszewski, var dæmdur í þriggja ára fangelsi en hinn, Snorri Sturluson, í tveggja ára fangelsi. Mennirnir voru ákærðir fyrir að beita manninn ofbeldi og meiða hann. Þeir neyddu hann líka til að millifæra hundruð þúsunda á bankareikning sinn.

Amazon kynnir nýja vörulínu í dag

Vefverslunarrisinn Amazon mun svipta hulunni af nýrri vörulínu í dag. Fyrirtækið mun kynna nýjar útgáfur af Kindle lesbrettinu sem og Kindle Fire spjaldtölvunni.

Guðbjartur hækkar laun Björns um 450 þúsund krónur

Guðbjartur Hannesson, heilbrigðisráðherra, hefur hækkað laun Björns Zoëga, forstjóra Landspítalans, um fjögur hundruð og fimmtíu þúsund krónur á mánuði. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

Börnum hafi verið gert að sæta einangrun

Kallað hefur verið eftir bótakröfum frá þeim sem voru vistaðir á Upptöku- eða unglingaheimili ríkisins á árunum 1971 til 1994, en talið er að börn hafi þar sætt illri meðferð og meðal annars verið gert að sæta einangrun þar til þau játuðu á sig refsiverða háttsemi.

Óskað eftir vitnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð norðan við gatnamót Álfabakka og Árskóga í Reykjavík síðdegis í gær, miðvikudaginn 5. september.

Ákærður fyrir að ræna 10/11 vopnaður skrúfjárni

Karlmaður fæddur 1985 hefur verið ákærður fyrir að ræna verslun 10/11 Við Grímsbæ í mars síðastliðnum. Mál hans var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn var vopnaður skrúfjárni sem hann lét standa fram úr ermi peysu sinnar.

Drífa Snædal verður framkvæmdastjóri SGS

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambandsins hefur ráðið Drífu Snædal sem framkvæmdastjóra SGS, en hún mun hefja störf hjá sambandinu 17. september næstkomandi samkvæmt tilkynningu frá sambandinu. Fráfarandi framkvæmdastjóri, Kristján Bragason starfar við hlið Drífu til áramóta.

Prófessor og þingmaður deila í héraðsdómi

"Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli,“ sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun."Maður á ekki von á því að alþingismaður ljúgi upp á mann opinberlega og í skrifuðu máli," sagði Ragnar Árnason prófessor við Háskóla Íslands, í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Aðalmeðferð í meiðyrðamáli hans gegn Þór Saari, alþingismanni, hófst klukkan níu í morgun.

Fannst undarlegt að borða dýr sem hún var nýbúin að skoða

Leikkonan Emma Watson sagði í viðtali við þáttastjórnandann David Letterman að Ísland væri gullfallegt land, "þetta er eins og að koma til annarrar plánetu,“ útskýrði Emma þegar hún lýsti reynslu sinni af landinu. Leikkonan var hér við tökur á kvikmyndinni Nóa ásamt stórstirninu Russel Crowe í sumar.

Eiður búinn að birta þúsundasta molann

Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi umhverfisráðherra og bloggari, hefur skrifað þúsundasta molann um málfar og miðla á vefsvæði sitt. Í tímamótamolanum sínum lítur hann yfir horfinn veg og veltir fyrir sér hvaða áhrif skrif hans kunna að hafa haft, en í pistlum sínum hefur Eiður oft tuktað til ritstjórnir sem starfa hér á landi.

Annir hjá björgunarmönnum vegna göngumanna í basli

Göngumaður féll og meiddist á hné fyrir oafn Kjarnaskóg við Akureyri í gærkvöldi. Hann gat gefið neyðarlínunni upp GPS staðsetningu, þannig að björgunarmenn voru fljótir að finna hann og bera til byggða. Hann var þrátt fyrir það orðinn nokkuð kaldur.

Nýnemar tolleraðir í MR

Það ríkir mikil gleði í Menntaskólanum í Reykjavík í dag en 260 nýnemar eru tolleðarir núna fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá skólanum hófst tolleringin klukkan korter yfir elelfu í morgun og lýkur fljótlega eftir hádegi. Að athöfninni lokinni eru nýnemarnir svo boðnir velkomnir með ljúffengri köku og mjólk.

Tóku ofurölvi pilt úr umferð eftir busaball

Lögreglan tók ofurölvi pilt úr umferð á busaballi Menntaskólans við Hamrahlíð í Vodafone höllinni undir morgun. Hann var vistaður í fangageymslum af manúðarástæðum.

Slökkviliðið kallað út að Viðeyjarkirkju

Slökkviliðið fékk brunaboð frá Viðeyjarkirkju laust fyrir miðnætt. Viðeyjarferjan var þegar ræst út samkvæmt viðbragðsáætlun og fimm slökkvliðsmenn sendir með henni með búnað.

Samkeppni um skipulag Geysis

Eigendur meirihluta Geysissvæðisins í Haukadal ætla að ráðast í miklar framkvæmdir og fjárfestingar á svæðinu. Þeir stofnuðu Landeigendafélag Geysis ehf. í gær utan um verkefnið.

Gætu liðið mánuðir til viðbótar

Nokkrir mánuðir til viðbótar gætu liðið þar til íslenskt fólk, sem ættleiddi tvær stúlkur frá Kólumbíu, fær úrlausn sinna mála. Hjónin, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Friðrik Kristinsson, hafa verið föst með stúlkurnar í Kólumbíu síðan í desember í fyrra.

Athugasemd frá Fréttablaðinu

Á meðal gagna í meiðyrðamáli Gunnlaugs gegn Teiti er fyrsta fréttin af málsókn Gunnlaugs, sem birtist í Fréttablaðinu 8. júní í fyrra. Teitur og verjandi hans halda því fram að með því að fara óblíðum orðum um Teit í viðtali við Fréttablaðið hafi Gunnlaugur gert sig útsettari en ella fyrir óvæginni umfjöllun af hálfu Teits.

Skipti um skoðun

Steinunn Valdís Óskarsdóttir var áhrifamaður í borgarstjórn Reykjavíkur þegar staðsetningu sjúkrahússins var fagnað, meðal annars með vísan í nálægð við Háskóla Íslands og eflingu miðborgarinnar. Hún hefur nú upplýst að hún telji forsendur breyttar.

Íbúar telja breitt yfir neikvæð áhrif spítala

Íbúasamtök 3. hverfis, sem nær til Hlíða, Holta og Norðurmýri, segja umhverfismat á deiliskipulagstillögu um nýjan Landspítala við Hringbraut vera meingallað. Reynt sé að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar.

Stóra systir sallaróleg yfir kæruhótun

Grasrótarsamtökin Stóra systir sendu út beiðni til almennings í vikunni og kölluðu eftir aðstoð við að uppræta vændi í samfélaginu. Samtökin svöruðu nokkrum spurningum fyrir Fréttablaðið í gegn um tölvupóst. Hafið þið fengið mikil viðbrögð?

Lést í Jökulsá í Lóni

Maðurinn sem fannst látinn eftir að hann féll af baki í Jökulsá í Lóni á mánudagskvöld hét Ingólfur Vopni Ingvarsson. Hann var 53 ára, búsettur á Höfn í Hornafirði og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú börn.

Ódýrast að ferðast um landið með Strætó

Að taka strætó á milli bæjarfélaga virðist vera ódýrasti ferðamátinn sem völ er á. Vagnarnir munu keyra til meira en fjörutíu bæjarfélaga eftir áramót. Strætó bs. fær 30 milljónir árlega frá sveitarfélögunum fyrir þátt sinn í starfinu.

Vilja fá leigubílaskýli í Lækjargötuna aftur

„Fólk getur beðið í þessu skýli í marga sólarhringa án þess að fá leigubíl,“ segir Jóhann Sigfússon, formaður Bifreiðastjórafélagsins Átaks, um safnskýli fyrir leigubílafarþega í Hafnarstræti.

80 milljónir í átta verkefni

Átta verkefni frá sex félagasamtökum hafa fengið úthlutað ríkisstyrkjum vegna þróunarsamvinnu. Fram kemur á vef utanríkisráðuneytisins að framlög í þessari úthlutun nemi um 80 milljónum króna.

Raflögnum og rafbúnaði víða ábótavant

Heilbrigðismál Raflögnum og rafbúnaði á sjúkrastofnunum hér á landi er víða ábótavant. Þetta kemur fram í úttekt Mannvirkjastofnunar á ástandi raflagna og rafbúnaðar á yfir hundrað sjúkrastofnunum.

Foreldrar kemba börnum ekki nóg

Foreldrar sem eiga börn í skólum þar sem lúsasmit kemur upp eru ekki nægilega duglegir við að kemba hár barna sinna. Þetta segir hjúkrunarfræðingur sem kallar eftir átaki á landsvísu til að hefta útbreiðslu sníkjudýrsins.

Vill hámark á gjaldskrá dagforeldra

Kópavogsbær vill setja hámarksgjald á þjónustu dagforeldra í bænum. Dæmi er um að foreldrar hafi greitt ríflega 90 þúsund krónur fyrir mánuð hjá dagforeldri í bænum sem er tvöfalt meira en bærinn telur æskilegt.

Þjóðverjar fjölmennastir í ágúst

Ferðamönnum á Íslandi fjölgaði í ágústmánuði milli ára um 13,2% samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Það er svipuð fjölgun og í öðrum mánuðum.

Styttist í kynningu á stjórnarskrárfrumvarpinu

Alþingi mun fljótlega senda kynningarbækling á hvert einasta heimili landsins til að varpa ljósi á innihald frumvarps stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár. Einnig verður opnuð heimasíða í upplýsingarskyni.

Bubbi heimsækir bændur í Beint frá býli

Beint frá býli eru nýir þættir á Stöð 2 þar sem Bubbi Morthens og Gísli Berg sækja íslenska bændur heim og blása til tónlistarveislu í stofunni heima hjá þeim ásamt vinsælustu hljómsveitum landsins.

Eitt stærsta þjófnaðarmál frá upphafi þingfest

Eitt stærsta þjófnaðarmál sem komið hefur upp á Íslandi var þingfest í dag. Þar er mæðgum af víetnömskum uppruna gefið að sök að hafa stolið fatnaði, skóm og snyrtivörum fyrir um 14 milljónir króna.

Andlega vanheill Íslendingur í fangelsi á Spáni

Íslendingur um sextugt, sem á við andlega vanheilsu að stríða, hefur setið í fangelsi á Spáni um tveggja ára skeið. Unnið er að því að koma manninum heim til þess að ljúka afplánun hér á landi.

Leita sama mannsins á sitthvorum staðnum

Tvær björgunarsveitir leita nú að sama slasaða ferðamanninum. Þær leita hins vegar á sitthvorum staðnum á landinu og ber mikið í milli. Ástæðan er sú að maðurinn hringdi sjálfur á Neyðarlínuna, óskaði eftir aðstoð og gaf upp gps-staðsetningu.

Sex unnu 22 milljónir í Víkingalottóinu

Sex einstaklingar unnu fyrsta vinning í Víkingalottóinu í kvöld og hlutu tæpar 22 milljónir í vinning hver. Vinningsmiðarnir voru allir seldir erlendis, 2 í Danmörku og 4 í Noregi.

Afinn fullur með barnabarnið í bílnum

Roskinn karlmaður var á dögunum stöðvaður við umferðareftirlit í borginni. Hann reyndist vera drukkinn við stýrið og ekki nóg með það því ólögráða barnabarn hans var meðferðis í bílnum. Afinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð en barnaverndaryfirvöld upplýst um málið vegna barnsins.

Sjá næstu 50 fréttir