Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skærgrænt hjól við sumargötu Reykjavík öðlaðist í morgun nýtt kennileiti þegar skærgrænt hlið úr notuðu reiðhjóli var sett upp á Laugarvegi til að hindar bílaumferð. Hjólahliðið vakti strax athygli ferðamanna sem stilltu sér unnvörpum upp við hjólin og brostu í myndavélar. 23.7.2012 16:15
Eldurinn kom upp í rafmagnstöflu Orsakir þess að eldur kom upp í skipinu Maggý VE á fimmtudag í síðustu viku eru raktar til þess að loki við lensidælu í vélarrúmi hafi ekki lokast og síðuloki virkaði ekki. Sjór lak því inn um lensirör skipsins og komst þannig inn í vélarrúmið. Í framhaldi af þessu kviknaði eldur í rafmagnstöflu. Eins og fram kom á fimmtudag voru sjö í bátnum þegar eldurinn kom upp. Björgunarsveitabátar úr Grindavík og Vestmannaeyjum voru kallaðir til aðstoðar og jafnframt þyrla Landhelgisgæslunnar. Báturinn var svo dreginn til hafnar í Vestmannaeyjum. 23.7.2012 16:10
Starfsmenn sérstaks saksóknara enn til skoðunar Rannsókn Ríkissaksóknara á málum tveggja starfsmanna embættis sérstaks saksóknara, þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar, stendur enn yfir. Samkvæmt upplýsingum frá Sigríði Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, er búist við að henni ljúki á næstu vikum. Mennirnir tveir eru grunaðir um brot á þagnaskylduákvæði í störfum sínum þegar þeir seldu þrotabúi Milestone upplýsingar sem þeir urðu sér úti um í störfum sínum fyrir sérstakan saksóknara. Embætti sérstaks saksóknara kærði mennina í maí síðastliðnum og hefur rannsókn staðið yfir síðan þá. 23.7.2012 15:47
Eldmar, Ebonney og Einbjörg voru öll samþykkt Mannanafnanefnd samþykkti þrjú ný eiginnöfn þann 11. júlí síðastliðinn. Um er að ræða karlmannsnafnið Eldmar og kvenmannsnöfnin Ebonney og Einbjörg. Í rökstuðningi mannanafnanefndar segir að nöfnin taki íslenskri beygingu í eignarfalli og samræmist að öðru leyti lögum um mannanöfn. 23.7.2012 15:38
Rækjuveiðar bannaðar og leyfðar aftur Sjávarútvegsráðuneytið hefur fellt úr gildi reglugerð sem sett var á fimmtudaginn síðasta um stöðvun úthafsrækjuveiða. Atburðinn má að öllum líkindum rekja til klaufaskapar í ráðuneytinu eða þess að afladagbækur voru ekki skoðaðar nógu vel. 23.7.2012 15:18
Leit hafin að erlendu pari Ekkert hefur spurst til þýsks pars sem er á ferðalagi hér á landi frá 14. júlí síðastliðnum. Lögreglan á Hvolsvelli er að hefja leit og eftirgrennslan að parinu. Fólkið ætlaði að láta vita af sér á miðvikudag í síðustu viku en hefur ekki gert það. Þegar heyrðist til þeirra þann 14. júlí voru þau stödd austan Torfajökuls. Lögreglan biður þá sem geta mögulega gefið einhverjar upplýsingar um fólkið að hafa samband í síma 4884110. 23.7.2012 14:10
Íslenskir ólympíufarar láta umferðartafir ekki spilla stemningunni Íslensku ólympíufararnir eru lagðir af stað út en Andri Stefánsson, fararstjóri íslensku keppendanna, kom í Ólympíuþorpið á föstudaginn var. Hann segir að stemningin í hópnum sé góð. 23.7.2012 13:56
Velti bíl við að sveigja frá lömbum Fjórir erlendir ferðamenn komust í hann krappann þegar lömb hlupu skyndilega upp á þjóðveginn og í veg fyrir bíl þeirra í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. 23.7.2012 12:13
Vinsældir Ísafjarðar hjá siglingafólki aukast Skútuheimsóknum á Ísafirði hefur fjölgað ár frá ári. Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri á Ísafirði, segir að draumurinn sé koma upp góðri aðstöðu, ráðast í markaðsátak og gera Ísafjörð að nokkurs konar skútubækistöð norðursins. 23.7.2012 11:24
Gulir hundar þurfa meira pláss Ef hundur er með gulan borða, gula slaufu eða eitthvað með gulum lit á taumnum eða hálsbandinu þá er óráðlegt að nálgast hann. Þetta eru skilaboð herferðar sem nefnist Guli hundurinn og er að ryðja sér til rúms hér á landi. 23.7.2012 10:40
Rifjar upp afskriftir aðalkeppinautanna "Er þetta réttlæti?" spyr Kristþór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ísafoldarprentsmiðju ehf., í grein í Fréttablaðinu í dag þar sem hann fjallar um afskriftir skulda aðalkeppinauta prentsmiðjunnar. 23.7.2012 09:33
Hátt í 30 þúsund eiga inneign hjá Tryggingastofnun Um 29 þúsund bótaþegar eiga inneign hjá Tryggingastofnun ríkisins eftir síðasta ár, en endurreikningur og uppgjör á lífeyri og tengdum bótum hjá Tryggingastofnun ríkisins liggur fyrir. Í flestum tilfellum er um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% eiga inneign undir 100 þúsund krónum. Aftur á móti eru um 14 þúsund sem hafa fengið ofgreitt á síðasta ári og Tryggingastofnun á því kröfu á þessa aðila. Þar er líka í flestum tilfellum um óverulegar upphæðir að ræða því að um 70% þeirra skulda Tryggingastofnun innan við 100 þúsund krónur. 23.7.2012 09:30
Fá ekki vínveitingaleyfi að sinni "Það er formið sem setur okkur stólinn fyrir dyrnar,"? segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur, um breytingu á fyrri afgreiðslu embættis hennar á umsókn Hrafnistu um vínveitingaleyfi. 23.7.2012 08:00
Virkja íbúana gegn lúpínunni "Nú er tíminn til að herja á þennan skaðvald sem ógnar íslensku flórunni á stórum svæðum hér í og við þéttbýlið. Íbúum sem vilja leggja framtakinu lið eru gefnar frjálsar hendur með að slá lúpínuna niður hvar sem hana er að finna og mega byrja strax,? segir í ákalli umhverfisnefndar Djúpavogshrepps og áhugahóps um eyðingu lúpínu. 23.7.2012 07:00
Teknir með kannabis og vopn Þegar lögreglumenn ætluðu að hafa tal af ökumanni bíls í Breiðholti, við venjubundið eftirlit upp úr miðnætti, gaus kannabislykt á móti þeim. 23.7.2012 06:49
Handtekinn eftir innbrot í apótek Lögreglunni var tilkynnt um að maður hefði brotist inn í apótek í Kópavogi laust fyrir klukkan fimm í morgun. 23.7.2012 06:48
Ferðamenn sluppu ómeiddir frá umferðaróhappi Fjórir erlendir ferðamenn sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum í Hestfirði við sunnanvert Ísafjarðardjúp í gærkvöldi. Bíllinn hafnaði á réttum kili, en var óökufær. 23.7.2012 06:47
Allir komust til og frá Eyjum með Herjólfi í gærkvöldi Allir farþegar, sem áttu pantað far með Herjólfi til og frá Eyjum í gær, komust leiðar sinnar í tveimur ferðum skipsins í gærkvöldi til Landeyjahafnar. 23.7.2012 06:23
Íbúð gjöreyðilagðist í eldsvoða á Tálknafirði Engan sakaði þegar íbúð í fjölbýlishúsi á Tálknafirði gjöreyðilagðist í eldi í gærkvöldi. 23.7.2012 06:16
Vilja að ríkið hefji rannsóknir Skotveiðifélag Íslands, Skotvís, skorar á hið opinbera að hefja rannsóknir á þeim áhrifum sem kynnu að fylgja því að koma hreindýrahjörðum til Vestfjarða. Sigmar B. Hauksson, sem haft hefur forgöngu um málið, segir að málefnið hafi verið rætt ýtarlega og eftir standi að rannsaka hvort smithætta yrði þessu samfara og hvort dýrin myndu þrífast vel þar. 23.7.2012 06:00
Um sex þúsund leirdúfur liggja Nú stendur yfir hin svokallaða Dúfnaveisla en hún býður meðal annars upp á það að menn án byssuleyfis geti gert sér ferð á næsta leirdúfnavöll og fengið að skjóta á leirdúfu undir handleiðslu reyndra manna. 23.7.2012 06:00
Klætt steini á tveimur árum Vestmannaeyjar Þjóðhátíðarnefndin í Vestmannaeyjum hefur fengið tveggja ára frest til að ganga endanlega frá nýja þjónustuhúsinu í Herjólfsdal. Bæjarstjórnin hafði sett ófrávíkjanleg skilyrði um að húsið verði klætt með náttúrusteini. Að auki á að klæða þak þess með grasi. Bæjarstjórnin kveðst hafa fullan skilning á því að þessar framkvæmdir séu bæði dýrar og tímafrekar og veitir þjóðhátíðarnefndinni áðurnefndan frest.- 23.7.2012 06:00
Þrengt að botnvörpuveiðum Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) samþykkti á fimmtudag að banna veiðar ákveðinna fisktegunda utan 200 mílna fiskveiðilögsögunnar í Norðaustur-Atlantshafinu. Tegundirnar eru allar því marki brenndar að vera botnsæknar og hafa verið sóttar með botnvörpum. 23.7.2012 05:00
Þarf vefsíu gegn barnaklámi Lögregla telur mikilvægt að Ísland gangi inn í samstarf um netvarnir til að sporna gegn dreifingu myndefnis sem sýnir börn á kynferðislegan hátt. Samkvæmt nýjum lögum liggur allt að tveggja ára fangelsi við því að skoða slíkt efni á netinu. Norsk vefsía stöðvar þúsundir heimsókna á barnaklámssíður þar í landi á hverjum degi. 23.7.2012 05:00
Hollenskur bergrisi í Almannagjánni Mér fannst það bara alveg borðleggjandi að láta risa stíga út úr berginu, ég er jú á Íslandi þar sem tröll og ýmsar vættir ráða ríkjum,? segir hollenski hreyfimyndaframleiðandinn Auke de Vries. Hann gerði myndskeið þar sem bergrisi brýst út úr berginu í Almannagjá. 23.7.2012 05:00
Vopnfirðingar óttast um sitt heldra fólk Starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði eru uggandi en yfirmenn Heilbrigðistofnunar Austurlands tilkynntu starfsmönnum hjúkrunarheimilisins, á fundi sem boðað var til 26. júní síðastliðinn, að þeim yrði sagt upp. Þetta segir Steingerður Steingrímsdóttir, formaður stjórnar Austur-landsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands. 23.7.2012 04:00
Fjórðungsaukning á verðmæti Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa jókst um fjórðung fyrstu fjóra mánuði ársins, samanborið við sama tíma í fyrra. Verðmætið nam 58,5 milljörðum króna í ár, en 46,6 í fyrra. Það er aukning um 11,9 milljarða, eða 25,5 prósent, á milli ára. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands. 23.7.2012 04:00
Ekki merkt hvaðan grænmetið kemur "Í sumum verslunum eru haugar af erlendu grænmeti í lausu í grænum plastkössum merktum okkur. Þetta er sárt að sjá þegar nóg er til af íslensku grænmeti. Þegar ekki kemur fram að um erlent grænmeti sé að ræða telur neytandinn sig væntanlega að vera að kaupa íslenska tómata vegna kassanna sem þeir eru í. Það eru þar að auki skýr lög um að neytandinn eigi að vita hvaðan varan kemur,? segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. 23.7.2012 03:00
"Þyngri dómur en ég bjóst við“ "Þetta er þyngri dómur en ég bjóst við," segir Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrverandi fangelsisstjóri á Kvíabryggju, sem fyrir helgi var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að draga sér fé og muni frá fangelsinu, samtals að andvirði 1,6 milljóna. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir. 23.7.2012 02:00
Bensínþjófur þarf að greiða bensínið til baka Karlmaður var í dag dæmdur til að greiða Skeljungi skaðabætur en hann stal þaðan bensíni fyrir tæplega 20 þúsund krónur árið 2011. Hann var einnig ákærður fyrir að stela bensíni frá N1 í Ártúnshöfða en þar sem fulltrúi frá N1 mætti ekki við þingfestingu málsins þurfti hann ekki að greiða þeim skaðabætur. Maðurinn er fæddur árið 1976 en hann rauf skilorð með brotunum. Honum verður þó ekki gerð sérstök refsing - en hann þarf þó að borga bensínið til baka, eins og áður sagði. 23.7.2012 18:18
Eldur á Tálknafirði Eldur kom upp í fjölbýlishúsi á Tálknafirði fyrir stuttu. Slökkvistarf gengur vel en nokkrar fjölskyldur voru í húsinu þegar eldurinn kom upp. Fólkið komst út úr húsinu og varð ekki meint af. Slökkvistarf gengur vel. Upptök eldsins eru óljós en íbúðin er talin mikið skemmd. 22.7.2012 20:29
Óveðrið truflaði ekki landsmót Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun ávarpa mótsgesti við setningu landsmóts skáta á Úlfljótsvatni í kvöld. Þá mun Páll Óskar Hjálmtýsson stíga á stokk og syngja landsdmótið inn. Reiknað er með að á þriðja þúsund manns verði við setningu mótsins. 22.7.2012 18:00
Herjólfur aftur á leið til Vestmannaeyja Herjólfur er nú á leið aftur til Vestmannaeyja þar sem ófært var í innsiglingunni til Landeyjahafnar. 22.7.2012 15:47
Reglur um vökva framlengdar Evrópusambandið hefur ákveðið að framlengja gildistíma reglna sem takmarka þann vökva sem flugfarþegar mega taka með sér í handfarangur. Í nærri sex ár hefur sú regla gilt að flugfarþegar mega aðeins taka með sér vökva í flug sem kemst fyrir í 100 millilítra umbúðum. Ílátin verða að vera ofan í poka sem svo er skimaður. 22.7.2012 13:30
Ferðir Herjólfs falla niður Ferð Herjólfs sem fara átti frá Vestmannaeyjum klukkan 11:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 13:00 fellur niður vegna ölduhæðar sem nú nær 3.1 metrum núna á tólfta tímanum. Töluvert brot er við hafnargarðanna. 22.7.2012 12:13
Barist í Damaskus og Aleppo Hart var var tekist á í Damaskus, höfuðborg Sýrlands í nótt. Hersveitir stjórnarhersins gerðu árás á nokkur úthverfi borgarinnar og notuðu við það þungavopn og herþyrlur. Þá voru einnig mikil átök í stærstu borg Sýrlands, Aleppo, í nótt. 22.7.2012 11:15
Herjólfur aftur á áætlun Herjólfur er aftur kominn á áætlun eftir að ferðum var frestað í gær. Vindur var þá um 30 metrar í hviðum og ölduhæð 3.1 og 2.8 metrar á duflunum tveimur í Landeyjarhöfn. 22.7.2012 09:47
Hvassast undir Eyjafjöllum í gær Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að spár hafi sannarlega ræst í gær. Undir Eyjafjöllum fóru hviður upp í 40 metra á sekúndu, að sama skapi fóru hviður í Vestmannaeyjabæ yfir 30 metra á sekúndu. 22.7.2012 09:41
Þrír teknir úr umferð í nótt Tveir voru teknir úr umferð vegna ölvunar, óspekta og brota á lögreglusamþykkt. Í bæði skiptin hafði lögregla rætt við aðilana áður og gefið þeim viðvörun. Það virðist ekki hafa dugað og því var gisting í fangaklefa eina meðalið að þessu sinni. Þeir mega búast við kæru vegna brota sinna. Á sjötta tímanum varð lögreglan vitni að líkamsárás í miðborginni. Þar réðst karlmaður á konu og veitti henni áverka. Maðurinn var handtekinn og gistir nú fangageymslu þar til hægt verður að yfirheyra hann. 22.7.2012 09:25
Ökuréttindaleysi og fíkniefnaakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af sjö ökumönnum í nótt. Um kvöldmatarleytið í gær var ökumaður stöðvar í miðborginni grunaður um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Við nánari athugun lögreglu reyndist aðilinn undir áhrifum fíkniefna. Þar að auki hafði hann verið sviptur ökuréttindum áður fyrir sömu iðju. Þá reyndist bifreiðinni afa verið stolið úr Austurborginni um helgina. Ökumanninum var sleppt úr haldi eftir töku blóðsýnis og skýrslutöku. 22.7.2012 09:17
Vagg og velta á torfæru í Jósepsdal Torfærukeppni var haldin í Jósepsdal í dag. Keppnissvæðið var vinsælt upp úr 1990 en hefur ekki verið notað síðastliðin sex ár. 21.7.2012 20:56
Víða farið að hvessa og versnar fram eftir kvöldi Farið er að hvessa all verulega á suðurlandi og mun veðrið halda áfram að versna fram eftir kvöldi. Slysavarnarfélagið Landsbjörg hvetur fólk til að halda kyrru fyrir. 21.7.2012 19:30
Kaupþing stefnir Vestmannaeyjabæ Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Vestmannaeyjabæ og krefur hann um rúmlega milljarð króna. Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir málið risavaxið fyrir lítið bæjarfélag en eyjamenn geri sjóklárt og undirbúi sig undir dómstólaleið 21.7.2012 18:30
Enginn með allar tölur réttar Enginn var með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 1, 7, 10, 14, 38 og bónustalan var 40. 21.7.2012 19:30
Eldur í ruslatunnu Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð út fyrr í dag vegna bruna í Kópavogi. Talið er að kviknað hafi í ruslatunnu og að eldurinn hafi síðan læst sig í nálægu húsi. 21.7.2012 18:02