Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
"Ekkert nýtt að forsetakosningar verði persónulegar" Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hún ræddi þar við þáttastjórnendur um forsetakosningarnar og var spurð áleitinna spurninga um hvort að aukin harka hafi færst í kosningabaráttuna. 21.6.2012 17:42
Hlaut minniháttar meiðsl við fallið Maðurinn sem féll fimm metra við Öxarárfoss á Þingvöllum á þriðja tímanum í dag hlaut minniháttar meiðsl. Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitamenn og fleiri aðilar voru kallaðir til aðstoðar manninum en þyrlan var afturkölluð. 21.6.2012 15:31
Datt fimm metra niður við Öxarárfoss Ferðamaður datt fimm metra niður í við Öxarárfoss á þriðja tímanum í dag. Björgunarsveitir og fleiri viðbragðsaðilar eru á leiðinni á staðinn til að koma viðkomandi til aðstoðar. Á þessari stundu er ekkert vitað um meiðsl hans. 21.6.2012 14:57
Anna Kristín: Jóhanna sýndi engan sáttarvilja Anna Kristín Ólafsdóttir, sem stefndi forsætisráðuneytinu fyrir brot á jafnréttislögum, segir það alrangt sem haldið er fram í yfirlýsingu frá forsætisráðuneytinu um að Jóhanna Sigurðardóttir hafi sýnt einhvern sáttavilja vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála um að lög hafi verið brotin við ráðningu í skrifstofustjóra ráðuneytisins. "Hvorki fyrr né síðar hefur hún haft samband við mig vegna málsins eða komið til mín skilaboðum um vilja hennar til sátta," segir Anna Kristín í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér eftir hádegi í dag. 21.6.2012 14:01
Enn leitað að lottó-milljónamæringnum Einstaklingurinn sem vann 73 milljónir í lottó fyrir tæpum tveimur vikum er enn ekki fundinn. Milljónirnar liggja því enn óhreyfðar. 21.6.2012 13:17
Jarðskjálfti suðaustur af Kolbeinsey Jarðskjálfti að stærð 3,7 með upptök um 30 kílómetrum suðaustur af Kolbeinsey varð laust eftir klukkan ellefu í dag. Fáir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið. Ekki er vitað til þess að fólk hafi fundið fyrir skjálftanum. 21.6.2012 12:29
Vill að þeir sem græða á náttúrunni gefi meira Þeir sem eru að græða peninga á íslenskri náttúru ættu að láta meira af hendi rakna til að hlúa að henni og halda henni við. Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður umhverfisnefndar Alþingis. 21.6.2012 12:26
Segir að Jóhanna hafi ekki ætlað sér að virða niðurstöðu kærunefndar Lögmaður Önnu Kristínar Ólafsdóttur, sem í gær voru dæmdar miskabætur vegna brots forsætisráðuneytisins á jafnréttislögum gagnrýnir yfirlýsingu ráðuneytisins vegna málsins og segir hana líta framhjá mikilvægum þáttum dómsins. 21.6.2012 12:15
Herdís segir ummæli röng Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segir að ummæli hennar í Vísi árið 1977 séu ekki rétt eftir henni höfð. Svar hennar við því hver hennar fyrstu viðbrögð yrðu ef hingað til lands flyttust 10 þúsund svertingjar má sjá hér fyrir ofan. 21.6.2012 11:30
"Lögfræðingurinn í manni vill sjá málið hjá Hæstarétti" Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hafði ekki kynnt sér dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn forsætisráðuneytinu þegar Vísir hafði samband við hana í morgun. Fréttastofa náði tali af Ingibjörgu Elíasdóttur, lögfræðingi hjá Jafnréttisstofu. 21.6.2012 11:07
Árásin var persónuleg Það var persónulegur ágreiningur sem stigmagnaðist og náði svo að lokum hámarki sem var rótin að árás á konu í Hafnarfirði í desember á síðasta ári, en dómur féll í málinu í gær. Þá var Einar "Boom“ Marteinsson, fyrrverandi forseti Hells Angels á Íslandi sýknaður af málinu í en í dómsniðurstöðunni segir að ekkert bendi til þess að hann hafi komið að árásinni og að glæpurinn hafi ekki tengst skipulagðri glæpastarfsemi eins og lagt var upp með af hálfu ákæruvaldsins. 21.6.2012 10:26
Blóðdropinn afhentur í dag Blóðdropinn, glæpasagnverðlaun Hins íslenska glæpafélags, verður afhentur í dag. Verðlaunin hlýtur besta glæpasaga ársins 2011 að mati dómnefndar. Bókin verður jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna árið 2013. Afhendingin fer fram á Borgarbókasafninu í Grófarhúsinu en starfsmenn safnsins hafa unnið ötullega að undirbúningi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Hinu íslenska glæpafélagi. 21.6.2012 10:13
Jarðskjálftavirkni jókst lítillega í Kötlu Jarðskjálftavirkni í Kötlu jókst í nótt, á tímabilinu eitt til fimm, og urðu þá á bilinu 25 til 30 skjálftar samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftafræðingi Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir voru allir smáskjálftar, en þeir mældust allt að 1,5 stig. Skjálftafræðingur á Veðurstofunni segir að hrinan í nótt þurfi ekki að vera neinn sérstakur fyrirboði fyrir hlaup eða eldgos því að hrinur sem þessar hafi mælst af og til frá því í júlí í fyrra. 21.6.2012 09:45
Þrír laumufarþegar teknir í Sundahöfn í nótt Rétt fyrir klukkan 3 í nótt tilkynntu starfsmenn Securitas um þrjá menn af erlendu bergi á lokuðu athafnasvæði við Sundahöfn. Þeir gerðu tilraun til að komast um borð í skip sem þar lá við festar og koma sér þannig yfir hafið til fyrirheitna landsins, Ameríku. 21.6.2012 07:41
Skotvopn fundust þegar kannabisræktun var stöðvuð Skotvopn, og önnur vopn fundust í húsnæði, þar sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var að stöðva kannabisræktun í gærkvöldi. 21.6.2012 07:38
Karlmaður réðist tvisvar á lögreglumenn Karlmaður í annarlegu ástandi réðst í gærkvöldi á tvo lögregluþjóna, sem ætluðu að hafa tal af honum, sló annan þeirra og klóraði til blóðs. 21.6.2012 07:31
Suðurstrandarvegur verður sá snjóþyngsti SV-lands Suðurstrandarvegur, sem verður formlega opnaður í dag, verður snjóþyngsti vegur á Suðvesturlandi, að mati ónefnds sérfræðings í mannvirkjagerð. 21.6.2012 06:44
Mál Wikileaks tekið fyrir í dag Fyrsta dómsmál Wikileaks gegn kreditkortafyrirtækjum verður flutt í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 21.6.2012 05:00
Eldur laus í nýbyggingu við Bergstaðastræti Að ganga klukkan fjögur í nótt logaði eldur í stigahúsi nýbyggingar við Bergstaðastræti. Borgari sem átti leið hjá gerði lögreglu viðvart og gerði tilraun til að slökkva eldinn með vatnsfötu og náði þannig að tefja útbreiðslu eldsins þar til lögregla og slökkvilið kom á vettvang. 21.6.2012 07:56
Seglskúta í vandræðum komst til Eyja í nótt Seglskútan Strýta, sem lenti í vandræðum út af suðurströndinni í gær þegar aðal seglið rifnaði og vélin fór ekki gang, komst fyrir eigin vélarafli og seglabúnaði til Vestmannaeyja upp úr klukkan tvö í nótt. 21.6.2012 07:08
Eldur í ruslagámi undir fjölbýlishúsi Eldur var kveiktur í plastruslagámi í bílageymslu undir fjölbýlishúsi í Hamraborg í Kópavogi um þrjú leitið í nótt. Slökkviliðið var kallað á vettvang og slökkti eldinn, en þá var gámurinn ónýtur. 21.6.2012 06:58
Kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum Litskrúðugar eldglæringar stigu til himins við undirleik mikilla sprenginga og hverskonar ýlfra, þegar sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar kveiktu í fjórum tonnum af flugeldum og tertum í sandgrifju við Stapafell á Reykjanesi í gær. 21.6.2012 06:50
Þrír opnaðir en engum lokað Formlegar viðræður hefjast um þrjá samningskafla á fimmtu ríkjaráðstefnu Íslands og ESB á föstudag. 15 kaflar hafa þegar verið opnaðir. Ólíklegt að köflum verði lokað. Átta kaflar opnir eftir ríkjaráðstefnuna. 21.6.2012 06:30
Unga fólkið heldur uppi vinnslu Full starfsemi verður í fiskiðjuverum HB Granda í Reykjavík og á Akranesi í sumar. Á meðan starfsfólk fiskiðjuveranna er í sumarleyfum standa skólanemar vaktina. 21.6.2012 06:00
Styrkurinn forsenda verkefnisins Háskólafélag Suðurlands fær 90 milljóna króna IPA-styrk til að koma upp Kötlu-jarðvangi og vinna þróunaráætlun fyrir Eyjafjallajökulssvæðið. Hafist verður handa í sumar, verkefnisstjóri ráðinn og einn til tveir starfsmenn til að sinna gerð fræðsluverkefnis. Heimamenn verða síðan ráðnir í uppsetningu fræðsluskilta og fleira. Til að setja 90 milljóna króna styrkinn í samhengi fékk háskólafélagið hálfa milljón króna úr ríkissjóði árið 2012. 21.6.2012 06:00
Tveir milljarðar í IPA-styrki Sjö verkefni eru í startholunum eftir að Alþingi samþykkti frumvarp um IPA-styrki frá Evrópusambandinu. Alls koma tæpir 2 milljarðar króna inn í hagkerfið. Matvælaeftirlit og jarðvangur á meðal verkefna. 21.6.2012 06:00
Solveig kjörin vígslubiskup Solveig Lára Guðmundsdóttir hefur verið valin vígslubiskup á Hólum. Atkvæði voru talin í síðari umferð kosninga til embættisins í gær. 21.6.2012 05:30
Messunni lauk á tilsettum tíma Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur vísar ásökunum á bug um að dagskrá á Austurvelli á 17. júní hafi riðlast vegna þess hversu snemma guðsþjónustu í Dómkirkjunni lauk. Henni hafi aðeins lokið fjórum mínútum fyrr en áætlað var. 21.6.2012 05:00
Samfélag frá víkingaöld fundið „Við sjáum allavega eina smiðju ef ekki tvær, en einnig kolagrafir og járnbræðsluofna,“ segir Vala Garðarsdóttir, uppgraftarstjóri á Alþingisreitnum sem er á horni Tjarnargötu og Kirkjustrætis. Þar hefur frá árinu 2008 verið grafið eftir fornminjum á sumrin. 21.6.2012 05:00
Nýjar íslenskar koma í verslanir 10. júlí Íslenskar kartöflur hafa verið ófáanlegar í búðum landsins síðan í apríl. Orsökin er gríðarlegur uppskerubrestur síðasta sumar, þegar kartöflubændur í Eyjafirði og Þykkvabæ töpuðu um 30 til 40 prósentum af uppskeru sinni. 21.6.2012 05:00
Flugfélagið nú í farsímanum Vefsíður Flugfélags Íslands eru nú virkar í snjallsímum. Á síðunum er hægt að bóka flug, sjá komur og brottfarir flugvéla og áætlun flugfélagsins. Einnig er hægt að skoða allar upplýsingar um vörur og þjónustu. 21.6.2012 04:30
Krónan styrkst síðustu daga Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst nokkuð síðustu daga eftir að hafa staðið nokkurn veginn í stað síðan í byrjun maí. Hefur krónan ekki verið jafn sterk og um þessar mundir frá miðjum janúar. 21.6.2012 04:30
Gaf gömul hjól og býður fjölskyldunni til útlanda Alls söfnuðust um 500 reiðhjól í hjólasöfnun Barnaheilla — Save the Children á Íslandi og WOW Cyclothons. Ung stúlka var vinningshafi söfnunarinnar en hún gaf tvö hjól og getur nú boðið fjölskyldu sinni til útlanda. 20.6.2012 21:30
Fjórir bílar lentu saman Beita þurfti klippum til að ná ökumanni í bifreið eftir að fjórir lentu saman á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar klukkan átta í kvöld. 20.6.2012 21:16
"Ég hef gaman af því að reyna nýja hluti" Athafnamaðurinn Einar Bárðarson hefur ákveðið að sækjast eftir starfi bæjarstjóra í Garði. Einar er stórhuga um framtíð bæjarfélagsins og vill ólmur fá að leggja sitt af mörkum. 20.6.2012 21:00
Thick as a Brick flutt í heild sinni í Hörpu Ian Anderson, forsprakki hljómsveitarinnar Jethro Tull heldur tónleika í Hörpu í vikunni og flytur sitt frægasta verk í heild sinni. 20.6.2012 20:30
Galtómt Alþingi Þegar þingmenn voru að yfirgefa Alþingi í nótt á leið í sumarfrí mættu rafvirkjar og smiðir til að losa borð og aftengja tölvur til að undirbúa framkvæmdir á Alþingissalnum í sumar. 20.6.2012 20:00
Fyrsti vinningur gekk út Fyrsti vinningur í Víkingalottóinu gekk út í kvöld. Það var heppinn spilari í Noregi sem hreppti vinninginn. Hann fær því rúmlega 213 milljónir króna í vasann. 20.6.2012 19:39
Gömul Hitlers-vél í Reykjavík Þriggja hreyfla þýsk Junkers-flugvél frá stríðsárunum, samskonar og Hitler notaði sem einkavél, lenti á Reykjavíkurflugvelli nú undir kvöld í sögulegum leiðangri yfir Atlantshaf. 20.6.2012 19:15
Reiknar með að Einar "Boom" fari í skaðabótamál Fyrrverandi forsprakki Vítisengla var sýknaður í dag af líkamsárásarákæru. Hann hefur setið í hálft ár í gæsluvarðhaldi. Fjórir aðrir voru sakfelldir í málinu og fékk sú sem þyngstan dóminn hlaut, fjögurra og hálfs árs fangelsi. 20.6.2012 18:45
"Hennar hugsun var fyrst og fremst að bjarga pabba sínum" "Lífið - frá upphafi til enda - það er það sem maður hugsar um." Þetta segir Jón Karl Jónsson en hann féll útbyrðis á Borgarfirði fyrr í vikunni ásamt dóttur sinni. Hrein heppni réði því að feðgingin björguðust. Þau höfðu rekið úr fjörðinn í þó nokkurn tíma áður en þeim var bjargað. 20.6.2012 17:57
Andrea fékk þyngsta dóminn Andrea Unnarsdóttir fékk þyngsta dóminn af þeim sem voru ákærðir fyrir árás á konu á höfuðborgarsvæðinu skömmu fyrir jól. Þetta er fullyrt á fréttavef DV, en heimildir Vísis herma það sama. Dómurinn, sem mun vera um 120 blaðsíður, hefur ekki verið birtur á vef dómstólanna. 20.6.2012 17:36
Sluppu með skrekkinn eftir bílveltu Engin slys urðu á fólki þegar bíll valt í Lundarreykjadag fyrr í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi slapp fólkið með skrekkinn en bílinn fór á hvolf og hafnaði út í skurði. 20.6.2012 17:08
Tekur tíma að fá viðtal hjá Stígamótum Það getur tekið þó nokkurn tíma að fá viðtöl hjá Sígamótum. Anna Þóra Kristinsdóttir, starfskona Stígamóta, segir að biðin geti farið upp í tvær vikur í sumar vegna álags. 20.6.2012 16:15
Solveig Lára vígslubiskup á Hólum Solveig Lára Guðmundsdóttir verður vígslubiskup á Hólum, en atkvæði í síðar umferð kosninga til embættisins voru talin í dag. Tvö voru í kjöri í síðari umferð, sr. Kristján Björnsson og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Atkvæði féllu þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls var 181 á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða 96 %. Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild. 20.6.2012 16:02