Innlent

Jarðskjálftavirkni jókst lítillega í Kötlu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jarðskjálftavirkni í Kötlu jókst í nótt, á tímabilinu eitt til fimm, og urðu þá á bilinu 25 til 30 skjálftar samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftafræðingi Veðurstofu Íslands. Skjálftarnir voru allir smáskjálftar, en þeir mældust allt að 1,5 stig. Skjálftafræðingur á Veðurstofunni segir að hrinan í nótt þurfi ekki að vera neinn sérstakur fyrirboði fyrir hlaup eða eldgos því að hrinur sem þessar hafi mælst af og til frá því í júlí í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×