Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kofi Annan væntanlegur til Sýrlands Andspyrnuhópar í Sýrlandi eru afar óánægðir með hugmyndir Kofi Annans, sendiherra Arababandalagsins í Sýrlandi, varðandi pólitíska lausn á átökunum í landinu. 9.3.2012 14:47
Ólafur og Dorrit heimsækja Holmenkollen Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú hafa þekkst boð Haraldar Noregskonungs og Sonju drottningar um að vera nú um helgina gestir konungshjónanna á Holmenkollen skíðahátíðinni. Í tilkynningu frá embættinu segir að Holmenkollen hátíðin ssé einn helsti skíðaviðburður Noregs og fjölsóttur af almenningi enda fara þar fram Heimsleikar í norrænum greinum, svo sem í göngu og stökki. Holmenkollen hefur löngum verið miðstöð skíðaíþróttarinnar í Noregi. 9.3.2012 14:36
Reyna að lokka lækna til Þórshafnar "Auðugar veiðilendur á sjó, landi og í ám og vötnum eru í næsta nágrenni, auk þess sem góð sundlaug, gott íþróttahús, líkamsræktarstöð og útivistarsvæði við húsvegginn,“ segir meðal annars um starfshlunnindi, í atvinnuauglýsingu á Starfatorgi Stjórnarráðsins. 9.3.2012 14:31
Tólf ára á skellinöðrum og hjálmlausir ofan í kaupið Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni tvo unga drengi sem óku um á skellinöðrum í umdæminu. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að piltarnir voru einungis tólf ára og hjálmlausir ofan í kaupið. 9.3.2012 14:27
Menn í jakkafötum "eins og úlfahjarðir" Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbanka Íslands, sagði fyrir Landsdómi í dag að margir hafi sýnt eignum Landsbankans áhuga, eftir að skilanefndin tók til starfa. Hann sagði að margir "menn í jakkafötum" hefðu farið um eins og "úlfahjarðir" og viljað kaupa eignir bankans á slikk. 9.3.2012 14:26
Sturla viðtal: Erlendir bankamenn báru ekkert traust til Kaupþings Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri fjárstýringar- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands, gaf skýrslu fyrir dómi í Landsdómi í morgun. Þorbjörn Þórðarson fréttamaður fékk einkaviðtal við Sturlu að lokinni skýrslutöku þar sem hann skýrði ýmis atriði sem hann bar fyrir dómi. 9.3.2012 13:40
Fallist á gæsluvarðhald til 4. apríl Farið hefur verið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir Guðgeiri Guðmundssyni sem stakk framkvæmdastjóra Lagastoðar og særði lífshættulega á mánudaginn var. Féllst dómari við héraðsdóm á þá kröfu lögreglu. Guðgeir var upphaflega úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna en nú fer lögregla fram á áframhaldandi varðhald á grundvelli almannahagsmuna. 9.3.2012 13:16
Ari Trausti íhugar framboð til forseta Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og rithöfundur, íhugar nú forsetaframboð af alvöru. "Ég reikna með því að taka ákvörðun öðru hvorum megin við páska," segir hann í samtali við Fréttatímann í dag en segist jafnframt vera að íhuga málið alvarlega. 9.3.2012 13:04
Jón Guðni: Reyndum allt til þess að afla fjár Jón Guðni Ómarsson, f. starfsmaður fjárstýringar Glitnis og nú framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandsbanka, sagði fyrir Landsdómi í morgun að starfsmenn Glitnis hefðu reynt allt til þess að styrkja fjármögnun bankans og afla nýs lánsfjár, á árinu 2008. 9.3.2012 12:44
Fjórtán ára á ofsahraða: Vistuð á viðeigandi stofnun 14 ára stúlka, sem ók bíl á ofsa hraða á flótta undan lögreglunni laust fyrir miðnætti, og hafnaði loks á ljósastaur við Sæbraut, reyndist hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Hún hefur verið vistuð á viðeigandi stofnun. 9.3.2012 12:14
Fagnar hugmyndum um yfirtöku á álversverkefninu Forseti bæjarstjórnar Norðurþings fagnar hugmyndum svissneska álfyrirtækisins Klesch um að fá að taka yfir álverksverkefni Alcoa. Fyrirtækið vill reisa meðalstórt álver við Húsavík og segist geta hafið rekstur innan tveggja ára frá undirritun samninga. 9.3.2012 12:11
Vilhelm: Deutsche Bank stöðvaði lán "með öllum ráðum“ Vilhelm Þorsteinsson, f. forstöðumaður fjárstýringar Glitnis, sagði fyrir Landsdómi í dag að stór hópur starfsmanna Glitnis hefði unnið að því fram eftir öllu ári 2008 að tryggja fjármögnun bankans. Hann sagði að lánalína frá þýska risabankanum Deutsche Bank hefði reynst ótryggari en talið hefði verið að lokum, þar sem litið hefði verið á hana sem neyðarlánalínu sem mögulegt væri að grípa til í erfiðri stöðu. "Þegar við gengum á bankann, um hvers vegna það gengi ekki [að draga á línuna innsk. blm.] þá fengum við þau svör að bankinn myndi gera allt til þess að koma í veg fyrir að þetta gengi eftir,“ sagði Vilhelm. 9.3.2012 11:06
Segist hafa kynnt hugmyndir um minnkun bankakerfisins Tryggvi Þór Herbertsson var með víðtækar hugmyndir um sameiningar í bankakerfinu til þess að minnka efnahagsreikning þeirra og draga úr kostnaði. Fyrir Landsdómi í dag sagðist Tryggvi hafa kynnt hugmyndirnar fyrir Geir Haarde, þáverandi forsætisráðherra, þá þegar. 9.3.2012 10:49
Iceland Express flýgur frá Akureyri og Egilsstöðum Iceland Express mun fljúga vikulega milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í júlí og fram í ágúst. Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrsta flugið verði frá Akureyri síðdegis mánuaginn 2. júlí og hefst miðasala í dag. 9.3.2012 10:23
Yfirtakan á Glitni myndi fella alla bankana Tryggvi Þór Herbertsson, fyrrverandi efnahagsráðgjafi Geirs Haarde, segir að sér hafi hugnast sú leið Seðlabankans að taka yfir 75% hlut í Glitni mjög illa. Stoðir, einn helsti eigandi Glitnis, færi þá á hausinn og af stað færi bolti sem myndi fella alla bankana. 9.3.2012 10:00
Kaupþing var rúið trausti Kaupþing var gersamlega rúið trausti á alþjóðlegum mörkuðum í febrúar 2008. Þetta sagði Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans í vitnastúku í Landsdómi í dag. Sturla segir ráðgjafa hjá JP Morgan hafa sagt að StoreBrand, sem var í eigu íslenskra aðila, væri undirverðlagt um 35 prósent eingöngu vegna þess að StoreBrand væri í eigu íslenskra aðila sem nytu ekki trausts. 9.3.2012 09:29
Fimmti dagur aðalmeðferðarinnar Fimmti dagur réttarhaldanna er hafinn í Landsdómi í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík. Sturla Pálsson framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans er fyrstur í vitnastúku. Á eftir honum kemur svo Tryggvi Þór Herbertsson alþingismaður en hann var efnahagsráðgjafi Geirs Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, á árinu 2008. 9.3.2012 09:07
Þór og Margrét biðjast afsökunar Þingmennirnir Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir úr Hreyfingunni hafa sent frá sér afsökunarbeiðni en ummæli þeirra í tengslum við lífshættulega árás á framkvæmdastjóra Lagastoðar á dögunum hafa vakið hörð viðbrögð. Í yfirlýsingunni biðjast þau afsökunar hafi þau sært þá þau sem nú eigi sárt að binda vegna málsins, það hafi ekki verið ætlunin. Yfirlýsing Þórs og Margrétar fer hér á eftir: 9.3.2012 09:06
Þrír á slysadeild eftir slys á Álftanesvegi Þrír voru fluttir á slysadeild í morgun eftir umferðarslys á Álftanesvegi. Fimm sjúkrabílar voru sendir á staðinn ásamt tækjabíl frá Slökkviliðinu en beita þurfti klippum til þess að ná einum farþeganna úr bílnum. Óljóst er um tildrög slyssins og ekki enn ljóst hvort um fleiri en einn bíl hafi verið að ræða. Þegar þetta er skrifað er fólkið að koma á slysadeild Landspítalans en útkallið kom klukkan 8 30. 9.3.2012 09:00
Íslenskar konur búnar að ná körlunum í drykkjunni Hlutfall bindindiskvenna á Íslandi hefur lækkað úr 45 prósentum í fimm prósent síðan árið 1975. Lítill munur er á drykkju kynjanna hér á landi. Hlutfall kvenna á Vogi hefur hækkað mikið á síðustu árum. 9.3.2012 09:00
Varðstjóri berst gegn hindrunum á Dalvegi Aðalvarðstjóri segir áformaðar breytingar á Dalvegi munu hindra lögregluna og ógna öryggi borgaranna. Bæjarstjórinn í Kópavogi segist undrandi og biður um að sjá gögn sem „sérfræðingar séu væntanlega búnir að vinna fyrir lögregluna“. 9.3.2012 08:15
Ekki fleiri leitað til Stígamóta í átján ár Átján leituðu til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra. Gerendur voru í þremur tilvikum fjórir eða fleiri. Ný mál voru 313 talsins og fleiri hafa ekki leitað til samtakanna síðan árið 1994. 50 manns eru í viðtölum þar vegna vændis og kláms. 9.3.2012 08:00
Gæsluvarðhald rennur út í dag Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manni, sem veitti starfsmanni lögmannsstofu lífshættulega áverka á mánudagsmorgun rennur út í dag, en sterklega er búist við að lögregla krefjist framlengingar á gæsluvarðhaldinu. 9.3.2012 07:30
Fjölmörg umferðaróhöpp vegna hálku en engin alvarleg slys Þrátt fyrir fjölmörg umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu og víðar á Suðvesturlandi í gærkvöldi og fram á nótt, sem rakin eru til mikillar hálku, slasaðist engin alvarlega. 9.3.2012 07:25
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs frá Eyjum til Þorlákshafnar fellur niður vegna mikillar ölduhæðar á siglingaleiðinni. Horfur eru ekki góðar um að hægt verði að fara síðari ferðina í dag, en það skýrist um eða upp úr hádegi. 9.3.2012 07:18
Fjórtán ára stúlka ók bíl á ofsahraða á flótta frá lögreglunni Lögreglumenn segja það mikla mildi að fjórtán ára stúlka skildi ekki slasast alvarlega eða valda öðrum í umferðinni fjörtjóni, þegar hún ók bíl á ofsa hraða á vegrið á milli akbrauta á Sæbraut, reif það niður á nokkrum kafla uns bíllinn stöðvaðist á ljósastaur. 9.3.2012 07:00
Magntollar en ekki verðtollar Landbúnaðarráðherra verður skylt að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur þegar sýnt þykir að ekki verði nægjanlegt framboð á viðkomandi vöru á innanlandsmarkaði. Miða á við magntolla við úthlutun en ekki verðtolla. 9.3.2012 07:00
Bíll út af í Þrengslunum Árekstur varð á Hellisheiðinni og bíl var ekið út af í Þrengslunum á tíunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi sluppu allir farþegar og ökumenn í bílunum þremur ómeiddir. Mikil hálka er á vegum víða um land og eru ökumenn hvattir til þess að aka varlega. 8.3.2012 22:10
Mikil hálka í höfuðborginni Mikil hálka er á vegum höfuðborgarinnar. Lögreglan vill koma þeim skilaboðum til ökumanna að gæta sérstakrar varúðar vegna hálkunnar. 8.3.2012 21:33
Úraræningjar verða framseldir til Íslands Tveir Pólverjar sem flúðu land eftir úraránið í verslun Michelsen á Laugavegi í október á síðasta ári verða framseldir til Íslands en þeir voru handteknir í Sviss í lok síðasta mánaðar. 8.3.2012 19:53
Kaupþingsforstjóri skaut fast á seðlabankastjóra í rafmögnuðu lofti Andrúmsloftið var rafmagnað þegar Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings gaf skýrslu fyrir Landsdómi í dag. Hann gagnrýndi starfsmenn seðlabankans fyrir dómi fyrir þversagnir í orðum og athöfnum. 8.3.2012 19:30
Flokkspólitísk rammaáætlun lifir ekki af ríkisstjórnina Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að rammaáætlun muni ekki lifa af þessa ríkisstjórn ef niðurstaðan verði flokkspólitísk. Forstjóri álversins í Straumsvík talar um pólitískan skollaleik. 8.3.2012 19:20
Átak þarf í gerð viðbragðáætlunar „Við erum náttúrlega stödd á miðri leið í langri vegferð, það er ekki eins og við séum að byrja á núllpunkti. Almannavarnir voru settar í gang árið 1963 og það er búið að gera gríðarlega mikið síðan," segir Reynir Víðisson, hjá Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra. Ný skýrsla kom út í dag um Almannavarnir á Íslandi. 8.3.2012 18:45
Vill reisa álver á Húsavík á tveimur árum Svissneska álfyrirtækið Klesch vill reisa meðalstórt álver með hraði við Húsavík og hefur formlega óskað eftir því við stjórnvöld að fá að taka yfir álversverkefni Alcoa. Klesch segist geta hafið rekstur innan tveggja ára frá undirritun samninga. 8.3.2012 18:38
"Við erum þeirra óvinur" Karl Steinar Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að lögreglan sé aðal óvinur skipulagðra glæpagengja. Átak yfirvalda um að fjölga lögreglumönnum á síðasta ári hafi reynst vel og árangurinn sé góður. 8.3.2012 17:27
Þinghaldi lokið í dag Fjórða degi aðalmeðferðarinnar í máli Alþingis gegn Geir Haarde lauk um klukkan fjögur í dag. Dagurinn byrjaði á skýrslutökum yfir Jóni Þór Sturlusyni sem var aðstoðarmaður viðskiptaráðherra í hruninu Því næst kom Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins. 8.3.2012 16:57
Rolex-ræningjarnir fóru í sund eftir velheppnað rán Ástæðan fyrir því að Marcin Tomsz Lech tók að sér að keyra bíl í Michelsen-ráninu var einfaldlega sú að hann neytti ekki fíkniefna og sagðist vera góður ökumaður og ratvís í ókunnugum aðstæðum. Þetta kemur fram í dóminum yfir Marcin en dómari Héraðsdóms Reykjavíkur dæmdi hann í fimm ára óskilorðsbundið fangelsi í dag. Félagar hans, sem komust af landi brott áður en Marcin var handsamaður, rændu verslunina í október á síðasta ári. 8.3.2012 16:18
Hafði gríðarlegar áhyggjur af Icesave-reikningunum Ráðuneytisstjóra í samráðshópi um fjármálastöðugleika greindi á um það hvort ríkið bæri ábyrgð á tryggingasjóði innistæðueigenda sumarið 2008. Sjóðurinn sjálfur ber ábyrgð á Icesave-innistæðunum. 8.3.2012 16:01
Eignasala í Noregi hefði losað um 900 milljónir evra Allan tímann sem ég var stjórnarmaður Glitnis þá var upp á lagt að draga úr kostnaði og hagræða, sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, sem var stjórnarformaður Glitnis þegar bankinn hrundi. Hann sagði að þetta hefði verið gert með sölu eigna meðal annars og að segja upp 200 manns. Nánast hefði verið búið að ganga frá sölu eigna í Noregi til Nordea sem hefði losað um 900 milljónir evra. Það hefði ekki gengið eftir fall Lehman Brothers 15. september 2008. 8.3.2012 15:14
Júlíus Vífill: Yfirþyrmandi byggingamagn við Landspítalann Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins mótmæla fjórföldun núverandi byggingamagns við Landspítalann við Hringbraut. Þetta er meðal þess sem kom fram í bókun borgarfulltrúans Júlíus Vífils Ingvarsson sem situr í skipulagsráði en hann telur áætlað byggingarmagn á svæðinu yfirþyrmandi. 8.3.2012 14:46
Hreiðar Már neitaði að svara spurningum fréttamanna Hreiðar Már Sigurðsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings neitaði að tjá sig nokkuð um vitnisburð sinn fyrir Landsdómi þegar hann kom út úr réttarsalnum. Þrátt fyrir að gengið væri á hann um að tjá sig um vitnisburðinn svaraði hann engu. Hér má sjá þegar Hreiðar Már yfirgefur Landsdóm. 8.3.2012 14:45
Starfsmenn sérstaks saksóknara fylgdust með Hreiðari Starfsmenn Sérstaks saksóknara voru á meðal áhorfenda í Landsdómi þegar Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, bar vitni í dag. Þeir fóru út jafnskjótt og Hreiðar þegar hann hafði lokið við vitnisburð sinn. 8.3.2012 14:44
Kvennaflug til Glasgow Í dag var minnt á alþjóðlegan baráttudag kvenna, 8. mars, með því að í flugi Icelandair til og frá Glasgow var áhöfnin, - flugstjóri, flugmaður og flugfreyjur,- eingöngu skipuð konum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. 8.3.2012 14:31
Hreiðari heitt í hamsi "Mér bara blöskrar,“ sagði Hreiðar Már Sigurðsson um málflutning þeirra fulltrúa Seðlabankans sem hafa borið vitni í Landsdómi. 8.3.2012 13:59
Rolex ræningi í fimm ára fangelsi Marcin Tomasz Lech, einn fjögurra Pólverja sem komu hingað til lands í október í fyrra til þess að ræna úraverslunina Michelsen við Laugaveg, var í dag dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir þátt sinn í ráninu. Frá því dregst gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 27. október í fyrra. Þá er manninum gert að greiða tryggingafélaginu VÍS fjórtán milljónir króna og bíll sem hann ætlaði að nota til þess að koma þýfinu úr landi hefur verið gerður upptækur. 8.3.2012 13:43