Fleiri fréttir

Hótar að fara fram á gjaldþrot Framsóknar

Sýslumaðurinn í Reykjavík gerði árangurslaust fjárnám hjá Framsóknarflokknum í Reykjavík á mánudaginn fyrir viku að kröfu JCDecaux á Íslandi, sem á og rekur velflest strætóskýli í Reykjavík.

Dómari bíður eftir sérstökum

Sex milljarða skaðabótamál slitastjórnar Glitnis, kennt við félagið Aurum Holding, á hendur stjórnendum bankans er nú í biðstöðu fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómari vill vita hvað kemur út úr rannsókn sérstaks saksóknara á málinu áður en lengra verður haldið.

Neikvætt viðhorf til asískra kvenna algengt

Lítilsvirðing í garð asískra kvenna er áberandi í íslenskum fjölmiðlum, bókmenntum og kvikmyndum. Þetta er niðurstaða rannsóknar Cynthiu Trililani, meistaranema í menntunarfræðum í Háskóla Íslands. Í viðtali við Fréttablaðið segir Cynthia að Íslendingar séu gjarnir á að alhæfa um asískar konur. Hún kveðst tala út frá eigin reynslu og vinkvenna sinna.

200 milljarða króna sveifla í sjávarútvegi

Reikna má með að eigið fé sjávarútvegsins hafi verið um 100 milljarðar um áramótin og stefnir í að það nái 140 milljörðum í lok þessa árs, að mati Steingríms J. Sigfússonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Það er viðsnúningur um 200 milljarða frá árslokum 2008 þegar það var neikvætt um 60 milljarða.

Þjóðin fái að kjósa um stjórnarskrána

Drög stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verða borin undir þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum í sumar verði þingsályktunartillaga þess efnis samþykkt í dag.

Meirihlutinn tjáði sig ekki

Borgarfulltrúar meirihluta Besta flokksins og Samfylkingar vildu ekki tjá sig um verkefnisfjármögnun Hverahlíðarvirkjunar á fundi borgarstjórnar í gær.

Hrekkjalómur gerði á sig af hræðslu

Fjölskyldufaðir var í gær fundinn sekur um frelsissviptingu í Héraðsdómi Reykjavíkur og gert að greiða ellefu ára dreng hundrað þúsund krónur í bætur fyrir að valda honum miklu andlegu áfalli í janúar 2010. Drengurinn, þá níu ára, gerði dyraat heima hjá manninum að kvöldi til ásamt vini sínum. Maðurinn bar við yfirheyrslu hjá lögreglu að hann hafi verið orðinn langþreyttur á reglubundnu dyraati heima hjá sér undanfarna þrjá mánuði. Hann hafi því hlaupið út á sokkaleistunum, staðráðinn í að hafa hendur í hári pörupiltanna.

Tekist á um frávísun á hluta málsins

Tekist var á um frávísunarkröfu á atriði sem Guðlaugur Sigmundsson og eiginkona hans bættu við meiðyrðamálsókn sína á hendur Teiti Atlasyni kennara í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag.

Hver maður borðar 10 kíló

Landsmenn borðuðu samtals 3.134 tonn af nautakjöti á síðasta ári samkvæmt samantekt Landssambands kúabænda. Það þýðir að hver Íslendingur borðaði að meðaltali tæp tíu kíló af nautakjöti á árinu.

Með fjóra bása í Kolaportinu

Fjölskylduhjálp Íslands verður með fjóra sölubása í Kolaportinu fyrstu þrjár helgarnar í mars. Tugir sjálfboðaliða munu selja þar notaðan og nýjan fatnað til styrktar starfinu.

Afhentu 38.000 undirskriftir

Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna (HH) fundaði með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á mánudag. Þar voru honum afhentar tæplega 38.000 undirskriftir til stuðnings kröfunni um leiðréttingu á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnám verðtryggingar eða þjóðaratkvæðagreiðslu þar um.

Helmingi fleiri ferðamenn

Árið 2011 komu rúmlega helmingi fleiri ferðamenn til Ísafjarðar heldur en árið 2008. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar vann fyrir Markaðsstofu Vestfjarða og greint er frá á vef Bæjarins besta.

Íslenskur sjómaður handtekinn í Kanada - ofurölvi á bar með tvo hnífa

Íslenskur sjómaður var handtekinn í bænum St. John á Nýfundnalandi í Kanada í gærkvöldi eftir að hann varð ofurölvi á bar þar í bæ og féll af stólnum sínum. Hann sýndi einnig af sér ógnandi hegðun gagnvart starfsmönnum barsins samkvæmt kanadíska fréttavefnum vocm.com.

Ögmundur: Þarf að fara varlega þegar auðmenn sveifla peningabúntum

"Við þurfum að fara varlega þegar auðmenn eru að veifa framan í okkur þykkum seðlabúntum,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, spurður út í eignarhald erlendra aðila og fjárfesta á íslensku landi í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Sveitarfélagið Norðurþing íhugar að kaupa jörðina Grímsstaði á Fjöllum með láni frá Huang Nubo og leigja honum hana síðan. Sveitarfélagið myndi þá eiga jörðina á móti ríkinu sem á fjórðungshlut.

Segja ríkisstjórnina reyna að vinna stuðning Hreyfingarinnar

Þingmenn tókust á um hvernig ætti að fara með frumvarp stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskránni á Alþingi í dag. Ríkisstjórnin var sökuð um að þrýsta málinu í gegn til að tryggja stuðning Hreyfingarinnar við stjórnina.

Fyrst Íslendinga til að ljúka doktorsprófi í músíkþerapíu

Valgerður Jónsdóttir lauk í nóvember síðastliðnum, fyrst Íslendinga, doktorsprófi í músíkþerapíu frá Álaborgarháskóla í Danmörku. Ritgerð hennar nefnist "Music-caring within the framework of early intervention. The lived experience of a group of mothers of young children with special needs, participating in a music therapy group“.

Flugstöðin orðin mikilvægasta vinnusvæði Suðurnesja

Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli og næsta nágrenni hennar eru orðin stærsta vinnusvæði Suðurnesja og skapa allt að fimmtánhundruð manns atvinnu. Lengi vel stóð Leifsstöð heldur einmana uppi á Miðnesheiði en á seinni árum hafa aðrar þjónustubyggingar sprottið upp við hlið hennar.

Skófar kom upp peningaskápaþjófa

Þrír karlar á þrítugsaldri hafa játað að hafa brotist inn á tveimur stöðum í austurborginni í fyrrinótt og stolið peningaskápum. Reyndar fóru þjófarnir tómhentir frá fyrri staðnum því ekki tókst þeim að opna peningaskápinn sem þar var að finna og eins reyndist hann vera of stór og þungur til að flytja á annan stað þar sem halda mætti verkinu áfram. Þrátt fyrir þetta neituðu mennirnir að gefast upp enda brotavilji þeirra mjög einbeittur. Þeir fóru því í beinu framhaldi og brutust inn hjá öðru fyrirtæki á svipuðum slóðum en þar var að finna tvo peningaskápa, öllu minni, sem mennirnir tóku með sér af vettvangi. Þessu næst var ekið á afvikinn stað og þar voru skáparnir brotnir upp en í þeim báðum var að finna reiðufé. Því var skipt bróðurlega á milli mannanna sem síðan héldu til síns heima.

Játar að hafa ætlað að flytja úrin úr landi

Marcin Tomasz Lech, sem er einn fjögurra Pólverja sem komu hingað til lands í október í fyrra til þess að ræna úraverslunina Michelsen við Laugaveg, játaði sinn þátt í ráninu fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ríkissaksóknari krefst fimm ára fangelsis yfir honum.

Tekist á um breytingar meirihlutans á tillögu Þórs Saari

Hart var tekist á um það á Alþingi í dag hvort breytingartillaga meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, á þingsályktunartillögu Þórs Saari um meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga, sé svo mikil að um nýja tillögu sé í raun að ræða. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tóku málið upp áður en tillagan var tekin til annarar umræðu í dag. Meðal annars var gagnrýnt að ekki sé fyrir hendi kostnaðargreining í málinu.

Ópið fer á uppboð

Eintak af málverkinu Ópið eftir Edvard Munch fer á uppboð seinna á árinu. Talið er að málverkið fari á 80 milljón dollara eða um tíu milljarða króna.

Steingrímur: Hafði engin afskipti af ákvörðun stjórnar FME

Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, gerði Steingrími J. Sigfússyni, efnahags- og viðskiptaráðherra, grein fyrir uppsagnarferli Gunnars Þ. Andersen á fundi í síðustu viku. Steingrímur segir að fundurinn hafi einungis verið í upplýsingaskyni og að hann hafi ekki haf afskipti af ákvörðun stjórnarinnar. Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Steingrím um fundinn í óundirbúnum fyrirspurnum í dag. Steingrímur sagði í fréttum Stöðvar 2 á sunnudaginn að hann hefði frétt af uppsögn Gunnars Þ. Andersen í fjölmiðlum á föstudaginn en samkvæmt svari Steingríms á Alþingi í dag fundaði hann með stjórninni í sömu viku. Samkvæmt Steingrími var tilgangur fundarins með stjórn FME verið að greina honum og öðrum starfsmönnum í ráðuneytinu frá stöðu mála. Þar hafi honum verið tjáð að þetta ferli hafi verið í gangi í nokkurn tíma og verið væri að afla gagna frá lögmönnum. Þá hafi honum verið tjáð að þegar niðurstaða væri komin í málið yrði rætt við Gunnar og reynt að leysa málið. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af uppsögn forstjórans. Í svari sínu til Gunnars Braga undirstrikaði hann að Fjármálaeftirlitið væri sjálfstæð stofnun og færi með sín mál. "Ég fullyrði það að í þessum samskiptum okkar hefur algjörlega verið farið eftir því,“ sagði Steingrímur.

Ekkert nammi í Mosó fyrr en eftir hálf tvö

Öskudagurinn er á morgun og þá tíðkast víða að krakkar gangi á milli fyrirtækja og fái sælgæti eða aðra umbun fyrir söng. Í tilkynningu frá skólastjórnendum í Mosfellsbæ er bent á að þar í bæ sé kennsla í skólum til klukkan 13:20 á öskudag. Því séu börn sem komi fyrir þann tíma í fyrirtæki líklegast að skrópa í skólanum eða þá úr öðrum sveitarfélögum. Þeim tilmælum er því beint til fyrirtækja að þau gefi krökkum ekki sælgæti fyrr en eftir að skóla lýkur.

Steinunn Ólína ætlar ekki í forsetaframboð

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands en hún segist hafa velt því fyrir sér af alvöru og einlægni síðustu mánuði. Steinunn Ólína gaf það einnig í skyn í fjölmiðlum að hún myndi bjóða sig fram til embættisins. Á Facebook-síðu sinni segist hún líta svo á að hún hafi ekki tækifæri til að gegna embættinu að svo stöddu en hún telji nauðsynlegt að kraftmikil og réttsýn manneskja taki við lyklunum að Bessastöðum og virki forsetaembættið til góðra verka.

Fimm mánaða fangelsi fyrir að tala í síma undir stýri

Kona var dæmd fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Konan stal vörum fyrir rúmlega ellefu þúsund krónur úr tveimur verslunum í Reykjavík og talaði farsíma undir stýri án þess að nota handfrjálsan búnað. Konan játaði brot sín en með þeim rauf hún skilorðsbundin dóm frá árinu 2010 fyrir þjófnað. Dómara þótti því fimm mánaða fangelsi hæfileg refsing.

Frestur í ljósmyndasamkeppni Evrópustofu framlengdur

Ljósmyndasamkeppni Evrópustofu stendur nú yfir en þema keppninnar er Ísland og Evrópa. Í tilkynningu frá Evrópustofu segir að skilafrestur hafi nú verið framlengdur til 6. mars en óskað er eftir myndum sem sýna hvernig Evrópa og Evrópusambandið birtast okkur í daglegu lífi og umhverfi.

Lögregla stöðvaði bjórkvöld sem fór úr böndunum

Bjórkvöld í framhaldsskólum hafa löngum verið vinsæl en um síðustu helgi stöðvaði lögreglan eina slíka samkomu í Reykjavík. Þegar lögreglan kom á staðinn voru þar inni 2 - 300 ungmenni og mörg hver undir áhrifum áfengis. Framhaldsskólanemar eru fæstir orðnir tvítugir og því er ólöglegt að veita þeim áfengi.

Klámiðnaðurinn boðar verkfall í mars

Klámmyndaframleiðendur í Los Angeles í Bandaríkjunum hafa boðað verkfall í næsta mánuði þegar nýjar reglur um getnaðarvarnir í kvikmyndum taka gildi.

Um sextíu þúsund krónum stolið úr peningaskáp

Lögreglan í Vestmannaeyjum rannsakar nú þjófnað úr peningaskáp í Pósthúsi bæjarins. Um sextíu þúsund krónur er að ræða en lögreglan vill ekki gefa upp hvort skápurinn hafi verið læstur eða ekki. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en málið er í rannsókn hjá lögreglu.

Hassmolar í heimahúsi

Lögregla á Akranesi framkvæmdi húsleit í heimahúsi í vikunni þar sem nokkrir hassmolar fundust. Húsráðandi gekkst við að eiga molana. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að nokkrir umráðmenn ökutækja hafi fengið sektarboð vegna ólöglegrar lagningar og þá voru einnig skráningarnúmer tekin af nokkrum ökutækjum vegna þess að þau voru ótryggð auk þess sem sum þeirra höfðu ekki verið færð til skoðunar um langan tíma.

Segja að lögreglan gangi gegn tilmælum Ögmundar

Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent kvörtun til Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra vegna ákvörðunar embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að taka ekki við kvörtunum vegna vörslusviptinga fjármálafyrirtækja.

Nýfæddar stúlkur geta vænst þess að lifa lengur en drengir

Árið 2011 létust 1.985 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 998 karlar og 987 konur. Dánartíðni var 6,2 látnir á hverja 1.000 íbúa og lækkaði lítillega frá árinu 2010. Þetta kemur fram á vef hagstofunnar. Þar segir einnig að á síðasta ári gátu nýfæddir drengir hér á landi vænst þess að ná að meðaltali 79,9 árum í aldri en stúlkur 83,6 árum. Þá var ungbarnadauði á Íslandi 0,9 börn af hverjum 1000 lifandi fæddum á síðasta ári en var 2,2 börn af hverjum 1000 lifandi fæddum árið 2010.

Byrjað að fjarlægja PIP púða

Skurðaðgerðir vegna brottnáms PIP brjóstapúða hófust á Landspítalanum í gærmorgun. Talið er að um 440 konur hér á landi séu með púðana, en af þeim fengu 393 bréf frá velferðarráðuneytinu þar sem boðið var að láta fjarlægja púðana úr þeim á Landspítalanum. Nýir sílíkonpúðar verða ekki settir í konurnar í sömu aðgerð.

Telur frumvarpið of flókið til að setja í þjóðaratkvæði

Skúli Magnússon, dósent við lagadeild HÍ og ritari EFTA-dómstólsins, segir stjórnarskrárfrumvarp stjórnlagaráðs of fjölþætt til að hægt sé að bera það í einu lagi undir þjóðina til samþykkis eða synjunar. Þarna séu einfaldlega of mörg flókin og stefnumótandi atriði tekin saman á einn stað til að hægt sé að ætlast til þess með sanngirni að þeim verði svarað af eða á.

Kom að þjófum á heimili sínu

Húsráðanda í íbúð í Hraunbæ í Reykjavík var illa brugðið þegar hann kom heim til sín í gærkvöldi, því þar voru tveir óboðnir gestir í óða önn að sanka að sér verðmætum úr íbúðinni.

Bílþjófnaður í Eyjum

Tilkynnt var um bílþjófnað í Vestmannaeyjum í gærmorgun og fann lögreglan bílinn fyrir utan íbúðarhús.

Annasamt ár hjá ríkissáttasemjara

Alls 63 kjaradeilum var vísað til ríkissáttasemjara á árinu 2011. Aðeins einu sinni hefur fleiri málum verið vísað til embættisins á einu ári.

HH segir sýslumenn standa í ólöglegum aðgerðum

Hagsmunasamtök heimilanna (HH) telja, í ljósi nýgengins Hæstaréttardókms um ólögmæti vaxtaútreikninga gengistryggðra lána, að sýslumenn sem framkvæmt hafa fjárnám, nauðungarsölur og gjaldþrotaúrskurði á grundvelli slíkra ólögmætra útreikninga, hafi tekið sér dómsvald á meðan réttaróvissa ríkti.

Sjá næstu 50 fréttir