Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Loðnuvertíðin fer óvenjuhægt af stað Loðnuvertíðin fer óvenju hægt af stað, en hún hófst um næstsíðustu mánaðamót. Fyrst voru skipin upptekin við makríl- og síldveiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum. Síðan kom þrálát norðan bræla þannig að skipin gátu ekki veitt, og síðustu daga hafa skipin verið að fá smá slatta norðaustur af Horni, en loðnan hefur verið svo smá að búið er að loka veiðisvæðinu. 7.11.2011 07:25
Ekki fleiri íþróttahús fyrr en hin fullnýtast Ný íþróttamannvirki með mikla afkastagetu á ekki að byggja á höfuðborgarsvæðinu fyrr en sveitarfélögin á svæðinu hafa komið sér saman um staðsetninguna. Þetta er ein tillagna sameiginlegs starfshóps sveitarfélaganna. 7.11.2011 07:00
Tímamót í aðgangi að rannsóknagögnum Gögn og upplýsingar úr Íslensku kosningarannsókninni, yfirgripsmikilli rannsókn á kosninga- og stjórnmálahegðun Íslendinga allt frá alþingiskosningunum árið 1983, eru nú aðgengilegar á vef Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands (HÍ) www.fel.hi.is. 7.11.2011 06:00
Má ekki hækka stjarnfræðilega „Spurningin er hvar sársaukamörkin liggja,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um tillögu um verulega hækkun gjalds fyrir stakar ferðir í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu. Hugmyndin er að ferðamenn og aðrir sem ekki búa á svæðinu greiði stærri hluta af kostnaði við rekstur sundstaða. 7.11.2011 06:00
Snúa baki við einkavæðingu Yfir eitt hundrað orkufyrirtæki í Þýskalandi, sem áður höfðu verið einkavædd, hafa verið keypt til baka til hins opinbera. Þá hafa verið stofnuð 44 ný opinber orkufyrirtæki frá árinu 2007, eins og kemur fram í grein á heimasíðu Evrópusamtaka stéttarfélaga á opinberum vinnumarkaði (EPSU). 7.11.2011 04:00
Klónaræktun í Grasagarðinum Grasagarður Reykjavíkur og Erfðanefnd landbúnaðarins hafa gert með sér samning um að Grasagarðurinn varðveiti safn rabarbaraklóna sem lengi hafa verið í ræktun á Íslandi. Með undirritun samningsins er plöntunum tryggður vaxtarstaður til framtíðar, segir í tilkynningu. Erfðanefnd landbúnaðarins leggur áherslu á að leita eftir samstarfi við grasagarða og 7.11.2011 03:15
Barist um rjómakökur og jólaskraut Hringskonur héldu í dag sinn árlega jólabasar en hann er afrakstur ársvinnu félagskvenna og helst fjáröflun Hringsins. Það varð uppi fótur og fit þegar basarinn var opnaður og barist um rjómakökur og jólaskraut. Jólabasar Hringsins er ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna en Hringskonur hefja undirbúning í janúar og hittast vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Það voru þó nokkrir búnir að safnast saman fyrir utan salinn á Grand Hótel í dag áður en basarinn opnaði til að vera viss um að næla sér í sína uppáhaldshluti. 6.11.2011 22:30
Risageit IKEA risin Ikea á Íslandi hefur reist rúmlega sex metra háu sænsku jólageitina Jevle en geitin er algengt jólaskraut í Svíðþjóð. Hún er reist á aðaltorgi bæjarins Jevle í upphafi aðventu, ár hvert. Örlög íslensku geitarinnar urðu þau sömu í fyrra og þeirrar sænsku hafa oft orðið í gegnum tíðina, en Brennivargar brenndu hana til grunna. Stjórnendur Ikea á Íslandi segjast hins vegar ekki óttast að það sama gerist í ár. 6.11.2011 22:30
Upprennandi hljóðfærasnillingar fluttu Mahler Ungir og efnilegir hljóðfæraleikarar fengu að láta ljós sitt skína í dag á árlegum tónleikum ungsveitar Sinfóníuhljómsveitarinnar. Ungsveitin er ungliðasveit Sinfóníuhljómsveitarinnar og þurfa unmenni úr tónlistarskólum landsins þurfa að standast prufuspil og æfa síðan í nokkrar vikur fram að tónleikum. Krakkarnir voru að undirbúa sig fyrir tónleikana þegar fréttastofa leit við í dag og 6.11.2011 22:00
Fornar gersemar á heimilum landsins Þjóðminjasafnið bauð í dag almenningi að koma með gamla gripi til greiningar hjá sérfræðingum safnsins. Greiningardagurinn var vel sóttur og komu þar margir góðir gripir í ljós. Til dæmis mátti sjá silfur súpuskeið frá átjánhundruð fjörutiu og fimm, útskorna taflmenn frá nítjándu öld og gamlan stokk sem áður geymdi barnaleikföng. Safnið segir greiningardaga bæði fróðlega fyrir gesti safnsins sem og starfsfólk. Með því gefist tækifæri til að sjá marga og áhugaverða gripi sem leynist á heimilum landsins. 6.11.2011 21:30
Íslendingur flækist inn í vörumerkjadeilu Apple Tæknirisinn Apple hefur hótað því að fara í mál við barnakaffihús í Þýskalandi þar sem forsvarsmönnum Apple þóttu vörumerkin vera of lík. Kaffihúsaeigandi í Reykjavík segir vörumerkið hins vegar sláandi líkt sínu. Barnakaffihúsið Apfelkind var opnað í Bonn í vor. Eigandinn sótti um einkaleyfi á vörumerkinu og leið ekki nema mánuður þar til Apple lét frá sér heyra. 6.11.2011 21:00
Urðu fyrir þrýstingi stjórnmálamanna Stjórnmálamenn reyndu ítrekað að hafa áhrif á fréttaflutning fréttastofu Stöðvar 2 á fyrstu árum stöðvarinnar. Ráðherrar beittu sér fyrir því að einstakir fréttamenn yrðu reknir fyrir óþægilegan fréttaflutning. Þetta kemur fram í þættinum Ljósvakavíkingar sem sýndur verður í opinni dagskrá strax á eftir fréttum í kvöld. Í þættinum sem gerður er í tilefni af 25 ára afmæli Stöðvar 2 er meðal annars rætt við þá Jón Óttar Ragnarsson og Hans Kristján Árnason stofnefnur Stöðvar 2 um fyrstu ár fréttastofunnar og þann titring sem hún olli sérstaklega á meðal stjórnmálamanna sem margir hverjir vildu hafa áhrif á störf hennar og stefnu. 6.11.2011 20:30
Herjólfur siglir frá Þorlákshöfn á morgun Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar mánudaginn 7. nóv. sökum þess að ölduspá fyrir Landeyjahöfn er óhagstæð. Gert er ráð fyrir því að siglt verði frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30 og frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15. Athygli er þó vakin á því að aðstæður geti breyst hratt og við þeim verður brugðist. Verði einhverjar breytingar á áætlun verða þær tilkynntar á morgun. Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi. 6.11.2011 20:09
Krefjast snjóframleiðslu í Bláfjöll Skíðaráð Reykjavíkur hefur skorað á Reykjavíkurborg, ÍTR og þau stjórnvöld önnur sem koma að rekstri skíðasvæða borgarinnar að koma strax upp snjóframleiðslukerfi. Ráðið segir almenning orðið langþreyttan á því að ekki sé búið að koma upp snjóframleiðslukerfum á skíðasvæðum í Bláfjöllum og Skálafelli og bendir á að skíðafólki sé stórlega mismunað í samanburði við aðrar íþróttagreinar þegar kemur að uppbyggingu á íþróttamannvirkjum. 6.11.2011 20:04
Ánægð með þrjátíu ára stjórnmálaferil Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist sátt við þrjátíu ára feril sinn í stjórnmálum þegar hún horfir yfir farinn veg, en á morgun heldur hún utan til New York og þaðan til Kabúl þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna í Afganistan. Ingibjörg Sólrún fyrrverandi utanríkisráðherra heldur utan til New York á morgun og mun í næstunni funda með starfsfólki Sameinuðu þjóðanna. Hún mun svo um næstu helgi flytja til Kabúl, þar sem hún verður yfirmaður jafnréttisstofnunar UN Women í Afganistan. 6.11.2011 19:30
Búið að lagfæra fjarskiptakerfið Viðgerð er lokið á bilun sem kom upp í stofnkefi Mílu á norðausturlandi fyrr í dag. Um bilun í örbylgjubúnaði var að ræða. Því er nú fjarskiptasamband komið á á svæðinu, en helst urðu íbúar Kópaskers og Raufarhafnar orðið fyrir barðinu á biluninni. 6.11.2011 19:03
Skuggaleg aukning á sölu lyfja Sala á tauga og geðlyfjum hefur þrefaldast á síðustu tveimur áratugum en heimilislæknir óttast að það sé of auðvelt að endurnýja lyfseðla. Svefnlyfin nái aldrei að hreinsast alveg úr líkamanum daginn eftir og valdi oft truflaðri hugsun sem geti reynst hættulegt. Íslendingar nota tæplega helmingi meira af tauga og geðlyfjum en Svíar samkvæmt nýlegri skýrslu velferðarráðuneytisins. Þá eru þessi lyf meira en fjórðungur af lyfjakostnaði hér á landi og hefur sala á þeim þrefaldast á síðustu tveimur áratugum þar með talið sala á svefnlyfjum. 6.11.2011 18:48
Alma ekki með stýrisblað Kafarar frá Fáskrúðsfirði athuguðu flutningaskipið Ölmu í dag og í ljós kom að stýrisblað skipsins vantar með öllu. Það hefur að öllum líkindum dottið af þegar skipið var að sigla burt frá Hornafjarðarhöfn í fyrri nótt. Garðar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Nesskipa, sem er umboðsaðili Ölmu hér á landi, segir það ráðist eftir helgi hvert framhaldið verður. 6.11.2011 18:30
Hálkublettir víða á fjallvegum Spáð er éljum á fjallvegum suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt, en slydduéljum á láglendi. Undir morgun er hætt við ísingu á vegum, einkum á Suðurlandsundirlendinu, höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. En einnig í Borgarfirði, Dölum, við Breiðafjörð og á sunnanverðum Vestfjörðum. Hálkublettir eru víða á fjallvegum. Krapasnjór er á Möðrudalsöræfum á Austurlandi. 6.11.2011 18:19
Gámur fauk út á haf - myndband Gámur fauk á haf út í óveðrinu á Stöðvarfirði í morgun. Um er að ræða 40 feta frystigám. Björgvin Valur Guðmundsson, íbúi á Stöðvarfirði náði atvikinu á myndband. Myndbandið má nálgast á þessari síðu: http://vimeo.com/31675022 Gámurinn fýkur eftir rúma eina mínútu og tíu sekúndur af myndbandinu. 6.11.2011 16:26
Ánægja með fundaferð Hönnu Birnu Hanna Birna Kristjánsdóttir átti fund með flokksmönnum sínum á Ísafirði í gær. Fundurinn er upphaf fundaferðar þar sem Hanna Birna ætlar sér að ferðast um landið og ræða um framboð sitt til formanns Sjálfstæðisflokksins við flokksmenn sína. Halldór Halldórsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar skipulagði fundinn. Hann sagði fólk almennt mjög ánægt með fundinn. "Það sem stóð helst uppúr hjá fólki eftir fundinn var hversu vel Hanna Birna var inni í málum," sagði Halldór og bætti við að fólk teldið það mikinn styrk fyrir flokkinn að fá að velja milli tveggja glæsilegra formannsefna. Halldór er sjálfur stuðningsmaður Hönnu Birnu. 6.11.2011 16:14
Siglt verður frá Landeyjahöfn Herjólfur siglir þriðju og síðustu ferð dagsins til Landeyjahafnar. Ákveðið hefur verið að sigla þriðju og síðustu ferð Herjólfs frá Eyjum kl 15:30 til Landeyjahafnar. Áætluð brottför frá Landeyjahöfn er kl. 19:00 í kvöld. 6.11.2011 15:36
TF-LÍF sækir slasaðan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LÍF er nú á leið að sækja slasaðan skipverja út í skip sem statt er vestan við Vestmannaeyjar. Gæslunni barst aðstoðarbeiðni frá flutningaskipinu Brúarfossi laust eftir klukkan tvö í dag. Þyrlan sem var á leið til Reykjavíkur eftir að hafa tekið þátt í björgunaraðgerðum á flutningaskipinu Ölmu í gær, gerði lykkju á leið sína og mun nú sækja manninn og flytja hann til Reykjavíkur. Reiknað er með að hún komi um fjögur leytið til borgarinnar. 6.11.2011 15:33
Truflanir á fjarskiptasambandi á Norð-Austurlandi Bilun kom upp á stofnkerfi Mílu á Norð-Austurlandi. Undirbúningur að viðgerð er hafinn. Ekki er enn vitað nákvæmlega í hverju bilunin felst, en bilanagreining stendur yfir. Bilunin mun bitna á fjarskiptasambandi á svæðinu, jafnt farsímum sem heimasímum, enda selur Míla þjónustu sína til fyrirtækja eins og Vodafone og Símans, sem selja svo þjónustuna áfram. 6.11.2011 13:57
Leita að rödd Benedikts Gröndal Bókaútgáfan Crymogea leitar nú að karlmanni sem gæti túlkað rödd Benedikts Gröndal. Sá sem fyrir valinu verður mun lesa lýsingar Benedikts á íslenskum fuglum. Hugmyndin er sú að upptökurnar verði notaðar sem viðbót sem fylgi með stafrænni útgáfu af einu helsta verki hans, Íslenskum fuglum. Þá verður hún einnig notuð í auglýsingar. 6.11.2011 13:26
Tryggvi Þór spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, spyr hver tilgangurinn sé með framboði Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins og segir að sagan sýnir að hún geti ekki náð betri árangri í kosningum en sitjandi formaður. 6.11.2011 13:13
Vignir fljótastur íslenskra "járnkarla“ Tólf Íslendingar luku í gær heilum Járnkarli eða Ironman í Florida í Bandaríkjunum. Ekki tókst að slá Íslandsmet en gríðarleg íslensk stemmning myndaðist við endamarkið. Vignir Þór Sverrisson var fyrstur Íslendinganna í mark á 9 klst og 37 mín eftir að hafa lokið 3,8 kílómetra sjósundi, 180 kílómetrum á hjóli og heilu maraþoni eða 42,2 kílómetrum hlaupandi. 6.11.2011 12:59
Jólabasar á Grand Hótel Hinn árlegi jólabasar Hringsins verður haldinn á Grand Hóteli í dag. Jólabasarinn er afrakstur ársvinnu félagskvenna en Hringskonur hefja ávallt undirbúning í janúar og hittast svo vikulega allt árið til að föndra, sauma og prjóna. Allur ágóði rennur til góðra málefna Hringsins. Basarinn hefst klukkan 13 en þar verða til sölu hannyrðir, jólaskraut, jólakort og kökur að hætti Hringskvenna. 6.11.2011 12:52
Deilurnar um Þorláksbúð að leysast Kirkjuráð hefur ákveðið að gera engar athugasemdir við endurbyggingu fornaldarkirkjunnar Þorláksbúðar í Skálholti en staðsetning kirkjunnar hefur verið gagnrýnd. Biskup sat hjá við afgreiðslu málsins. Málið hefur átt sér langan aðdraganda en síðasta sumar var ráðist í framkvæmdir við að endurhlaða Þorláksbúð kennda við Þorlák biskup helga. Það er Þorláksbúðarfélagið undir forystu Árna Johnsen sem stendur fyrir framkvæmdunum og var það mikið hugðarefni séra Sigurðar heitins Sigurðarsonar fyrrum vígslubiskups í Skálholti. Í sumar kom hins vegar fram gagnrýni á framkvæmdina til dæmis hvað varðar staðsetningu hússins, það er nálægð við Skálholtskirkju en reisa á Þorláksbúð uppvið útvegg kirkjunnar. 6.11.2011 12:42
Herjólfur frá Landeyjahöfn Herjólfur sigldi til Landeyjahafnar í morgun og mun sigla frá Landeyjahöfn kl. 12:00 Nú hefur verið ákv. að sigla aðra ferð til Landeyjahafnar kl. 13:00 frá Eyjum og 14:00 frá Landeyjahöfn. Vegna ölduspár og dýpt í höfninni á háfjöru er óvíst um hvort þriðja og síðasta ferð dagsins verði til Landeyjahafnar. 6.11.2011 12:21
Landeyjahöfn „ekki neitt vandræðabarn“ Í útvarpsþættinum Á Sprengisandi ræddu þingmenn um kjördæmapot og hvað í því hugtaki fælist. Sigurjón M. Egilsson, þáttarstjórnandi, rifjaði upp að fyrir 20 árum þegar hann starfaði á þinginu hafi almenningur gjarna hringt í landsbyggðarþingmenn og beðið þá að ýta á eftir sínum persónulegu málum á þinginu. Hann spurði hvort það viðgengist ennþá? Það tóku gestir Sigurjóns alveg fyrir, en gestirnir voru Tryggi Þór Herbertsson, Kristján Möller og Eygló Harðardóttir. 6.11.2011 10:57
Hálka víða um land Og samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni eru hálkublettir á Hellisheiði og Sandskeiði. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði en á Vestfjörðum eru hálkublettir á öllum helstu leiðum. Þá er hálka á Gemlufallsheiði og Hálfdáni. Á Norðurlandivestra er hálka frá Staðarskála í Gljúfurá eins á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Á Norðausturlandi eru hálkublettir á Öxnadalsheiði, Hólasandi, Mývatnsöræfum og mjög víða í Eyjarfirði og sömuleiðis í Víkurskarði og í Mývatnssveit. Austurlandi eru hálkublettir á Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og á Öxi. 6.11.2011 10:12
Alma komin í höfn Togskipið Haffel dró flutningaskipið Ölmu að bryggju í Fáskrúðsfirði laust fyrir klukkan hálffjögur í nótt. Upphaflega stefndi Hoffellið á að draga Ölmu í var í Reyðarfirði en í gærkvöld og nótt tók að hvessa meðfram austurströnd landsins. Skipstjórinn á Hoffelli óskaði því eftir að draga Ölmu inn á Fáskrúðsfjörð í staðinn. Alma missti stýrisblað sitt í gær og landhelgisgæslan var kölluð út í umfangsmiklar björgunarðagerðir sem tvö varðskip og tvær þyrlur tóku þátt í. Togskipið Hoffel dró hins vegar ölmu að landi. Laust fyrir klukkan fjögur í nótt heyrðist svo bljúgt þakkarskeyti ölmu til Hoffellsins í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. 6.11.2011 10:00
Lokaði skemmtistað - handtók hnífamann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af gleðskap í heimahúsi í Kópavogi um klukkan sex í morgun. Slagsmál höfðu brotist út en lögreglu tókst að stilla til friðar án þess að handtaka neinn. Þá lokaði lögrelgan skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt þar sem staðurinn var ekki með tilskilin leyfi. Tveir voru teknir fyrir ölvunarakstur í höfuðborginni í nótt. Lögreglan á Akureyri lokaði tvo menn inni í nótt fyrir ölvun, óspektir og leiðindi. Þá voru tveir teknir fyrir fíkniefnaakstur. Að öðru leyti fór nóttin ágætlega fram, þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum. 6.11.2011 09:57
Konur búa til karlrembusvín Feigð, tíunda skáldsaga Stefáns Mána , er komin í bókabúðir. Þar er höfundur á kunnuglegum slóðum - í myrkraheimunum sem heilla hann meira en sumar og sóleyjar. Stefán Máni sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur meðal annars frá aðalpersónunni Herði Grímssyni, sem höfundurinn sjálfur er yfir sig heillaður af. Svo mjög að hann hefur tryggt honum sess í næstu bók líka. 5.11.2011 21:05
Herramenn þakklátir fyrir fjárstuðning Þrír framtakssamir piltar stefna að því að gefa út 64 blaðsíðna leiðarvísi fyrir herramenn fyrir jólin. Útgáfuna fjármagna þeir á frumlegan hátt sem þeir kalla hópfjármögnun. Á tveimur vikum hafa safnast 250 þúsund krónur með framlögum almennings. Bókin mun bera heitið Litla herramennskukverið. Með henni vill Kristinn Árni Lár Sigfússon, sem skrifar bókina, berja inn í samlanda sína fágaða og "séntilmannlega" framkomu. 5.11.2011 20:38
Stefnir í að Þorláksbúð verði reist Kirkjuráð mun ekki standa því í vegi að Þorláksbúð í Skálholti verði endurgerð. Þetta var ákveðið á fundi ráðsins á miðvikudaginn var. Þorláksbúð á að vera eftirlíking af hinni fornu búð, reist á tóftum hennar og skal standa nærri Skálholtskirkju.Miklar deilur hafa verið um byggingu búðarinnar að undanförnu, enda vilja menn meina að hún muni skyggja á Skálholtsdómkirkjuna.Nú liggur hins vegar fyrir að byggingarleyfi verður gefið út, enda ákvað ráðið með atkvæðagreiðslu að gera ekki athugasemdir við bygginguna. Þess er vert að geta að biskup sat hjá við atkvæðagreiðsluna. 5.11.2011 16:59
Enn hlýtur Eldfjall verðlaun Theódór Júlíusson var í fyrrinótt útnefndur besti leikarinn á kvikmyndahátíð í Sao Paulo fyrir leik sinn í Eldfjalli, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar. Þetta er í annað sinn sem hann er verðlaunaður sérstaklega, en áður hafði kvikmyndahátíð Evrasíu í Kazakhstan veitt honum fyrstu verðlaun fyrir hlutverk sitt í myndinni. Sýning Eldfjalls í Sau Paulo markaði frumsýningu myndarinnar í S-Ameríku. Eldfjall hefur hlotið dæmalaust góðar viðtökur og unnið til allnokkurra verðlauna. Fyrir viku hlaut Eldfjall aðalverðlaunin í Valladolid. Þá hlaut hún fyrir hálfum mánuði aðalverðlaunin, Gullna úlfinn, á kvikmyndahátíðinni í Montréal. Og helgina þar á undan hlaut hún silfurverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Chicago. 5.11.2011 15:46
Leyfum hænsnahald í borginni Betri Reykjavík er nýr samráðsvefur höfuðborgarbúa, þar sem þeir geta lagt fram hugmyndir um málefni borgarinnar og haft með því bein áhrif á ákvarðanatöku. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skoðaði nokkrar af á fjórða hundrað tillagna á vefnum. Reykjavíkurborg tók um mánaðamótin sextán tillögur til umfjöllunar af vefnum Betri Reykjavík, www.betrireykjavik.is, eins og hún hafði skuldbundið sig til. 5.11.2011 15:33
Þór lagður af stað til björgunar Ennþá er unnið að því að koma upp dráttartaug milli togskipsins Hoffells og flutningaskipsins Ölmu. Búist er við því að þær tilraunir beri árangur á næstu stundum. Mikið hvassviðri er á svæðinu, og meðan tauginni hefur ekki verið komið fyrir rekur flutningaskipið stjórlaust utan við landið. Varðskipið Þór hefur verið sent af stað til að taka þátt í björgunaraðgerðum. Siglingin er hins vegar nokkuð löng og ekki er gert ráð fyrir því að Þór komi á svæðið fyrr en klukkan sex í fyrramálið. 5.11.2011 14:53
Borgarstjóri ánægður með lögregluna Jón Gnarr, borgarstjóri, sat í lögreglubíl í nótt og fylgdist með störfum lögreglunnar á helgarvakt. Á facebook-síðu sinni, Dagbók borgarstjóra, segir hann frá þolinmæði lögreglumanna og náungakærleika. "Fékk að hanga með í lögreglubíl í nótt. Það var merkileg lífsreynsla. Löggan á hrós og virðingu skilda fyrir sitt merkilega og oft erfiða starf. Ég varð vitni að ótrúlegri þolinmæði við fulla rugludalla, fagmennsku og kurteysi við úrlausn vandamála og almenna hlýju og náungakærleika sérstaklega gagnvart því fólki sem minnst sín má í samfélaginu og er utangarðs. Annars virtist fólk bara almennt glatt og sátt. Sýnum lögreglunni virðingu og stuðning! Takk fyrir mig." sagði hann á síðunni. 5.11.2011 13:49
Hvetja sem flesta til að tjalda á Austurvelli Mótmælendur sem kalla hreyfingu sína Occupy Reykjavík, og kenna sig þannig við hina sístækkandi bandarísku hreyfingu Occupy Wall Street, gistu í tjöldum á Austurvelli í nótt. Mótmælendurnir hafa nú fengið leyfi yfirvalda til að tjalda á svæðinu, en eftir því sem fréttastofa kemst næst er það í fyrsta sinn sem nokkur fær leyfi til að tjalda á Austurvelli. 5.11.2011 13:22
Bændur engir dýraníðingar "Mjög ómakleg umræða hefur verið í fjölmiðlum undanfarið vegna hreindýra sem hafa verið að flækjast og festast í girðingum síðustu vikur í landi Flateyjar á Mýrum," skrifar Grétar Már Þorkelsson fyrir hönd Búnaðarsambands Suðurlands. Í pistli sínum réttir Grétar sitt framlag fram í umræðuna sem hefur að hans mati helst snúist um að bændur eigi sök á málunum og standi á sama um dýrin. Í pistlinum dregur Grétar fram aðrar hliðar málsins. 5.11.2011 13:06
Dráttartaugin slitnaði - Þór í jómfrúarútkallið Dráttartaug á milli togskipsins Hoffells og Ölmu, hundrað metra flutningaskips frá Kýpur, slitnaði nú laust fyrir hádegi eftir að Landhelgisgæslan kom því til bjargar í nótt. Stýrisbúnaður skipsins bilaði og gæslan var því kölluð út í umfangsmiklar björgunaraðgerðir. Í þeim var Þór sendur í jómfrúarútkallið sitt. 5.11.2011 12:08
Skipi bjargað við Hornafjörð Í nótt barst Landhelgisgæslunni aðstoðarbeiðni frá Birni, dráttarbátnum á Höfn í Hornafirði vegna flutningaskipsins Ölmu, sem er um hundrað metra langt skip, skráð á Kýpur. Alma óskaði eftir aðstoð þegar í ljós koma að stýri skipsins virkaði ekki þegar dráttarbáturinn aðstoðaði skipið út fyrir Ósinn á Hornafirði. Lóðsinn tók skipið í tog og óskaði samstundis eftir allri aðstoð. Ingibjörg, björgunarskip Landsbjargar á Hornafirði og togskipið Hoffell voru þá kölluð til. Einnig voru dráttarbátarnir á Reyðafirði og Vestmannaeyjum settir í viðbragðsstöðu. Þyrlur gæslunnar voru einnig kallaðar út og Þór er í viðbragðsstöðu. Vindar tóku að snúast í SV hvassviðri nú í morgunsárið og því var nauðsynlegt að koma skipinu austur fyrir stokksnes. Um kl. sex var komin dráttartaug á milli Ölmu og Hoffells og þá var hættuástandi aflýst. Björgunarskipum var jafnframt snúið til hafnar. Flutningaskipið verður nú dregið í var í Berufirði eða Reyðarfirði. 5.11.2011 10:11