Fleiri fréttir

Sex fluttir á slysadeild

Sex voru fluttir á slysaedeild í þremur sjúkrabílum eftir harðan árekstur á Kringlumýrarbrautinni rétt eftir klukkan tólf í dag. Svo virðist sem ekið hafi verið bilaðan bíl sem var kyrrstæður á veginum. Farþegar sem voru inni í bílnum biðu eftir aðstoð þegar bíll keyrði aftan á hann á miklum hraða.

Kringlumýrarbraut lokuð vegna umferðarslyss

Umferðarslys varð á Kringlumýrarbraut, leið norður við Fossvog rétt eftir klukkan tólf í dag. Svo virðist sem ekið hafi verið á bilaðan bíl sem var kyrrstæður. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er búið að flytja tvo á slysadeild og gert er ráð fyrir að fjórir aðrir verði einnig fluttir á slysadeild. Ekki liggur fyrir hvort alvarleg meiðsl hafi orðið á fólki. Kringlumýrarbrautin verður lokuð í einhvern tíma á meðan lögregla og sjúkralið vinna á vettvangi. Ekki vitað í hvað langan tíma lokað verður

Í öndunarvél eftir reiðhjólaslys á Dalvegi

Líðan hjólreiðamannsins sem varð fyrir gámaflutningabíl á Dalvegi á miðvikudaginn er óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild Landspítalans. Maðurinn er alvarlega slasaður og er haldið sofandi í öndunarvél.

Jóhanna verður sjálfkjörin formaður

Jóhanna Sigurðardóttir verður sjálfkjörin formaður Samfylkingarinnar á Landsfundi flokksins sem nú er haldin í Valsheimilinu að Hlíðarenda.

Ætluðu að keyra yfir göngubrú á pallbíl - enduðu ofan í Læknum

Tveir ölvaðir karlmenn um tvítugt voru handteknir í Hafnarfirði um klukkan þrjú í nótt. Þeir ákváðu að keyra yfir trégöngubrú á jeppa-pallbíl við Lækinn í Hafnarfirði en það tókst ekki betur til en svo að þeir veltu bílnum með þeim afleiðingum að handrið brotnaði og bíllinn endaði ofan í Læknum.

Tvisvar á hjartadeild og hætti í Hagaskóla

„Hjartað fór úr takti því álagið var gríðarlegt og ég endaði tvisvar inni á hjartadeild,“ segir Þröstur Harðarson, fyrrverandi matreiðslumaður í Hagaskóla til sex ára. Þröstur hefur séð um skólamötuneyti í á annan áratug. Hann hætti í Hagaskóla í fyrrahaust þegar hann var að hefja sjöunda veturinn sinn þar. Að sögn Þrastar jókst álagið í mötuneytinu gríðarlega þegar skólastjórinn stytti matarhléið í hálftíma veturinn 2008 til 2009. Eins bættist við framreiðsla á hafragraut á morgnana.

Kærleiksmaraþon á morgun

Hin árlega Vinavika á Vopnafirði nær hápunkti á morgun með Kærleiksmaraþoni Æskulýðsfélags Hofsprestakalls. Hátíðahöldin hafa staðið frá síðustu helgi með ýmsum uppákomum undir forystu unglinga í Æskulýðsfélagi kirkjunnar. Markmið vikunnar er að bæjarbúar og gestir sýni sínar bestu hliðar með því að brosa, vera jákvæð og hjálpa öðrum. Kærleiksmaraþoninu lýkur svo með Vinamessu í Vopnafjarðarkirkju þar sem æskulýðsfélagið tekur lagið, og um kvöldið verður flugeldasýning.

KÍ sakað um að misfara með vísindasjóð

Starfsmenn Kennarasambands Íslands (KÍ) hafa ítrekað brotið bókhaldslög við umsýslu Vísindasjóðs Félags framhaldsskólakennara og Félags stjórnenda í framhaldsskólum. Þetta fullyrðir stjórn sjóðsins, sem hefur nú svipt Kennarasambandið forræði á sjóðnum og tekið hann í sína vörslu eftir níu mánaða deilur.

Jákvæður andi í viðræðum

Samningafundi um makrílveiðar, sem hófst á miðvikudag, lauk í London í gær. Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslands, segir að fundurinn hafi verið jákvæður og verður viðræðunum haldið áfram í næstu viku.

Fjölbreytilegar framtíðarsýnir

Fimm hugmyndir voru í gær valdar úr 102 tillögum sem þær áhugaverðustu um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum.

Aðgerðir bera árangur

Nýjar reglur um útgáfu lyfjaskírteina, til að hindra að einstaklingar gætu fengið ávísun á lyf frá mörgum læknum, hafa borið merkjanlegan árangur til að draga úr misnotkun metýlfenidat-lyfja eins og Ritalins og Concerta.

„Það verður engin hoppandi gleði“

„Það verður engin hoppandi gleði og örugglega mjög skiptar skoðanir,“ segir Steinar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna, um nýgert samkomulag við lögreglustjóra um álagsgreiðslur.

Samfélagsmiðlarnir að gjörbreyta lýðræðinu

Stöðufærslur á Facebook og myndskeið á YouTube eru að verða mikilvægari í alþjóðasamskiptum en ríkisstjórnir, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við CNN.

Nýr formaður Læknafélags Íslands

Þorbjörn Jónsson, sérfræðingur í ónæmisfræði, var kjörinn formaður Læknafélags Íslands til næstu tveggja ára á aðalfundi félagsins í dag. Birna Jónsdóttir röntgenlæknir gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Birna hefur verið formaður félagsins síðastliðin fjögur ár. Aðalfundur Læknafélagsins lýsti yfir stuðningi við að byggður verði nýr sameinaður Landspítali á einum stað í ályktun sinni. Auk þess samþykkti fundurinn fleiri ályktanir.

Lögreglan óskar eftir ábendingum vegna dýraníðs

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir ábendingum frá almenningi vegna rannsóknar misþyrmingu á hryssu í hesthúsi við Heimsenda í Kópavogi. Atvikið varð 18. október síðastliðinn.

Aðildarviðræðum verði lokið fyrir kosningar

Formaður Samfylkingarinnar segist ætla að ljúka aðildarviðræðum við ESB fyrir kosningar árið 2013. Til þess verks hafi flokkurinn verið kosinn. Landsfundur Samfylkingarinnar var settur síðdegis í dag.

Lýst eftir Davíð Má

Lögreglan á Sauðárkróki lýsir eftir Davíð Má Bjarnasyni. Hann er á 15 ára gamall og er um 175 sentimetrar á hæð. Davíð er þéttvaxinn, væntanlega klæddur í brúna úlpu með loðkraga, gallabuxur eða íþróttabuxur og svarta skó. Davíð er stuttklipptur með skollitað hár.

Leysibendar bannaðir án sérstaks leyfis frá Geislavörnum

Velferðarráðherra hefur sett reglugerð sem bannar notkun á öflugum leysibendum án leyfis frá Geislavörnum ríkisins og einnig ber að tilkynna Geislavörnum um innflutning þeirra. Reglugerðin er sett til að hindra slys líkt og dæmi eru um að hlotist hafi af gáleysislegri notkun leysibenda.

Óskað eftir vitnum að árekstri

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að árekstri sem varð á Vesturlandsvegi, rétt austan við Select, um sexleytið (eða 18.05-18.10) þriðjudaginn 18. október sl.

Nöfn systranna sem létust á Spáni

Konurnar sem fórust í bílslysinu á Alicante í gær hétu Erla Tryggvadóttir, f. 1929 og Svana Tryggvadóttir, f.1931. Þær voru systur.

Góðar hugmyndir verðlaunaðar

Dómnefnd sem skipuð var til að leggja mat á tillögur sem bárust í hugmyndaleit Þingvalla­nefndar, sem fram fór í sumar um framtíð þjóðgarðsins á Þingvöllum, greindi frá niðurstöðu sinni í dag. Alls bárust 102 tillögur frá 88 þátttakendum og veitti dómnefndin viðurkenningar fyrir 5 áhugaverðustu tillögurnar, sem jafnframt uppfylltu þau skilyrði sem nefndin setti. Afhending viðurkenninganna fór fram í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík en þar stendur nú yfir sýning á tillögunum sem bárust í hugmyndaleitinni. Höfundar tillagnanna sem dómnefndin veitti viðurkenningu fá hver um sig 200 þúsund krónur.

Dregið úr neyslu ofvirknilyfja fullorðinna

Eftir stöðuga aukningu á notkun metýlfenidat-lyfja, það er að segja ofvirknilyfja, frá árinu 2006, einkum meðal fullorðinna, hefur tekist að snúa þróuninni við með markvissum aðgerðum heilbrigðisyfirvalda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðaráðuneytinu.

Ólafur Ragnar og Dorrit heimsóttu Ground Zero

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku í morgun þátt í minningarathöfn á Ground Zero um þá sem létust í árásunum á Tvíburaturnana 11. september 2001. Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að auk forsetahjóna hafi Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning, Karl Gústav Svíakonungur og Silvía drottning, Tarja Halonen, forseti Finnlands og Friðrik krónprins Danmerkur og Mary krónprinsessa tekið þátt í athöfninni ásamt sendiherrum landanna og embættismönnum.

Segjast ekki umbera vændi - óska eftir viðræðum við Stóru systur

Eigendur vefsíðunnar einkamál.is, sem legið hefur undir ámæli frá aðgerðahópnum Stóru systur vegna meintra vændisauglýsinga, segja að vændi sé ekki liðið á síðunni. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að stórfé hafi verið kostað til að vinna gegn vændi með því að þróa hugbúnað og með því að vera með starfskrafta sem vinna við að yfirfara og leita uppi vændisauglýsingar. „Skiptir þá engu hvort viðkomandi býður eða leitar eftir vændi, lokað er á viðkomandi notendur."

Yfirmaður í Arion sakaður um kynferðislega áreitni

"Bankinn lítur mál af þessum toga mjög alvarlegum augum,“ segir upplýsingafulltrúi Arion Banka, Haraldur Guðni Eiðsson, en þar hefur starfsmaður bankans farið í leyfi á meðan ásakanir á hendur honum um kynferðisáreitni á vinnustað eru skoðuð.

Bleika boðið í Hörpu

Krabbameinsfélag Ísland heldur Bleika boðið í Hörpu fimmtudaginn, 27. október. Þar mæta 1000 konur í fjölbreytta skemmtun – en margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar leggja sitt af mörkum til að gleðja gesti. Miðasala fer fram á vefnum bleikabodid.is og er verði haldið í lágmarki. Miðaverð er 1.200 krónur. Aðgöngumiða fylgir einnig happdrættismiði, en happdrættið er til styrktar Bleiku slaufunni og eru veglegir vinningar í boði.

Íbúar komi að endurhönnun Hofsvallagötu

Hofsvallagata var til umræðu í gærkvöldi á fjölmennum íbúafundi Hverfisráðs Vesturbæjar í gærkvöldi. Í tilkynningu frá hverfisráðinu segir að fundarmenn hafi verið einhuga um að bílaumferðin á götunni væri of hröð. Hraðinn ógni öryggi gangandi vegfarenda og geri götuna óvistlegri. Þá var bent á að gatan skeri í sundur skóla- og tómstundahverfi og rýrir að mati margra fundarmanna lífsgæðin í hverfinu.

Konurnar sem létust voru systur

Tvær íslenskar systur, báðar á níræðisaldri, biðu bana þegar bíll þeirra rakst á rútubíl skammt frá flugvellinum á Alicante á Spáni í gærkvöldi.

Lokað á Stóru systur á Einkamálum

Einkamál hefur lokað fyrir nokkra reikninga Stóru systur á vefnum eftir að hún sendi vændiskaupendum skilaboð um hvar þeir gætu leitað sér hjálpar. Talsmaður Einkamála segir að tölvukerfi vefsins loki reikningum fólks sem ítrekað sendir fjöldapósta.

Skattbyrðin færst yfir á hátekjufólk

Skattbyrði lágtekjufólks hefur í auknum mæli færst yfir á hátekjufólk í kjölfar breytinga á skattakerfinu. Þetta kemur fram í vefriti fjármálaráðuneytisins. Helmingur hjóna greiðir nú lægra hlutfall af tekjum sínum í tekjuskatt.

Þrennt handtekið vegna fíkniefnabrota

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 100 grömm af amfetamíni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um miðja vikuna.

Viðvörunarljósið bilaði - Kaupmannahafnarflug frestast

Flugvél Iceland Express á leið til Alicante á Spáni sem lenti vegna bilunar í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, fer frá Manchester til Alicante kl. 12:15 að íslenskum tíma samkvæmt tilkynningu frá ferðaskrifstofunni.

Páll Magnússon fundaði með Steingrími

Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríksins, fundaði með Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, þann 10. október síðastliðinn, þar sem ráðherrann kom sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn var haldinn fyrir milligöngu Þorsteins Þorsteinssonar, stjórnarformanns Bankasýslu ríkisins.

Aftur réttað yfir lögreglumanni vegna kynferðisbrots

Það er óalgengt að dómar fjölskipaðs héraðsdóms séu ómerktir og þeim snúið aftur í hérað eins og raunin varð þegar Hæstiréttur ómerkti sýknudóm yfir lögreglumanni á Norðvesturlandi, sem var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán ára gamalli stúlku. Slíkt er þó alls ekki einsdæmi.

Vill ræða um að setja þak á eignaréttinn

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor vill taka umræðu um hvort ekki þurfi að setja þak á eignarétt manna. Herdís var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi þá mótmælaöldu sem hófst á Wall Street og hefur breiðst út um hinn vestræna heim.

Stöðvuðu bát á ólöglegum veiðum út af Siglufirði

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar stóð línubát að meintum ólöglegum veiðum í lokuðu hólfi á Fljótagrunni, norðvestur af Siglufirði í gærkvöldi og var skipstjóranum gefin fyrirmæli um að hætta veiðum og halda til Siglufjarðar.

Skemmdarverk á Selfossi

Mikil skemmdarverk voru í nótt unnin á stórri vinnuvél, sem stóð við steypustöðina í útjaðri Selfoss.

Farþegar á leið til Alicante gistu í Manchester

Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Alicante á Spáni, varð að lenda í Manchester í Bretlandi í gærkvöldi, eftir að viðvörunarljós gaf til kynna að eldur væri laus í einu farangursrými vélarinnar.

Sjá næstu 50 fréttir