Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
82 prósent vilja taka Guðmundar- og Geirfinnsmálið aftur upp 82 prósent landsmanna eru frekar eða mjög sammála því að dómstólar taki aftur upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Um 55 prósent eru mjög sammála því að málið verðið tekið aftur upp og um 27 prósent eru frekar sammála því. 19.10.2011 10:13
Ekkert varð úr jarðskjálftahrinu Ekkert varð úr jarðskjálftahrinu, sem hófst um 34 kílómetra norður af Siglufirði fyrir hádegi í gær. Þá mældust þrír skjálftar vel yfir þrjá á Richter, sá snaprasti var þrír komma sex. 19.10.2011 08:04
Segir forstjóra Landsvirkjunar tvísaga Forstjóri Landsvirkjunar er tvísaga og pólitísk fingraför fjármálaráðherra af stjórn Landsvirkjunar eru greinileg, segir í ályktun Framsóknarfélags Þingeyinga, í tilefni þess að Alcoa er hætt við að byggja álver að Bakka við Húsavík. 19.10.2011 07:49
Verkfall hjá Hafrannsókn hefur staðið í þrjár vikur Verkfall undirmanna á Hafrannsóknaskipunum hefur nú staðið í þrjár vikur og virðist vera alveg í hnút því nýr fundur hefur ekki verið boðaður. 19.10.2011 07:41
Unnið úr ábendingum varðandi ránið Rannsóknadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er nú að vinna úr ýmsum ábendingum sem henni bárust í gær varðandi ránið í úraverslun Michelsens við Laugaveg á mánudagsmorgun, en lögregla gefur ekki upp hvort einhver hefur verið yfirheyrður. 19.10.2011 07:26
Flugfeyjur aftur að samningaborðinu hjá Ríkissáttasemjara Nýskipuð samninganefnd flugfreyja hjá Icelandair hefur verið boðuð til fundar við fulltrúa félagsins hjá Ríkissáttasemjara klukkan níu fyrir hádegi. 19.10.2011 07:19
Biðlisti í fangelsi styttist með aukinni samfélagsþjónustu Alls bíða 368 eftir afplánun refsivistar, samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fundi allsherjar- og menntamálanefnd með Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær. Ráðherra segir að með því að fara eftir lögum sem Alþingi samþykkti um fullnustu refsingu sé hægt að fækka um 100 á biðlistanum. 19.10.2011 06:30
Algjört minnisleysi í dómsal Ákæruvaldið krefst átján mánaða fangelsis yfir tveimur síbrotamönnum, sem ákærðir eru fyrir vopnað rán. Mennirnir tilheyra svokölluðu Árnesgengi, en meðlimir þess voru ákærðir í sjötíu liðum eftir að hafa farið ránshendi um landið árið 2006. Þá er krafist sex til níu mánaða fangelsis yfir konu sem ákærð er fyrir hlutdeild í ráninu. Fólkið er ákært fyrir að færa mann nauðugan, með því að ógna honum með hnífum, á heimili hans og ræna þar tækjum og munum að verðmæti um tvær milljónir króna. 19.10.2011 06:30
Hráki í gervigrasinu sýkir sár íþróttafólks Mörg dæmi eru um að íþróttaiðkendur hafi fengið sýkingar í sár eftir að hafa dottið í gervigrasið í íþróttahúsinu Boganum á Akureyri. Ástæðan liggur í því að gervigrasið hefur ekki verið sótthreinsað eða þrifið frá því að húsið var opnað fyrir átta árum. Nú hefur verið brugðist við vandanum í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra. Sigfús Ólafur Helgason, formaður íþróttafélagsins Þórs og umsjónarmaður í Boganum, benti á þetta vandamál í viðtali við N4 Sjónvarp á mánudagskvöld. 19.10.2011 06:00
Biskup ákærður fyrir þöggun Dr. Fortune minntist á málþinginu á kaþólskan biskup í Kansas sem var ákærður síðastliðinn föstudag fyrir að hylma yfir presti í sókn sinni sem var með hundruð barnaklámsmynda á tölvu sinni. Biskupinn, Robert Finn, er sakaður um að hafa brugðist skyldu sinni gagnvart börnum. 19.10.2011 06:00
Bæjarstjóra sagt upp störfum Eirnýju Valsdóttur, bæjarstjóra Voga á Vatnsleysuströnd, hefur verið sagt upp störfum og Anna Hulda Friðriksdóttir skrifstofustjóri hefur tekið við störfum um tímasakir. Þetta segir í tilkynningu frá bæjarfélaginu. 19.10.2011 05:00
María ósátt við að hætta Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður Leikfélags Akureyrar, LA, telur að uppsögn Maríu Sigurðardóttur leikhússtjóra hafi verið gerð í fullri sátt við hana. María sendi frá sér yfirlýsingu til fjölmiðla í fyrradag þar sem fram kemur meðal annars að hún sé ósátt við að fá ekki að ljúka leikárinu. Þá segir hún að fjárhagsvandræðum leikfélagsins hafi verið haldið leyndum fyrir stjórn og leikhússtjóra, þó að útlit sé fyrir að þar sé um að kenna þekkingarskorti og reynsluleysi fremur en ásetningi. 19.10.2011 04:00
Gerðardómi frestað á ný Gerðardómi í deilum Norðuráls og HS orku hefur verið frestað fram í miðjan næsta mánuð. Deilan snýst um verð á orku frá fyrirtækinu, en fyrirtækin hafa tekist á fyrir gerðardómi í Svíþjóð. 19.10.2011 04:00
Í lífshættu eftir hrottalega árás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær og fyrradag fjóra menn sem grunaðir eru um að hafa gengið svo í skrokk á manni að hann var í lífshættu eftir misþyrmingarnar. 19.10.2011 11:00
Sjalfboðaliðar aðstoða börn við heimanám og lesa fyrir aldraða Einn af mörgum sjálfboðaliðum Rauða krossins segir það hafa gefið sér tilgang að sinna starfinu. Hann aðstoðar í hverri viku börn við heimanám og les úr bókum fyrir aldraða. 18.10.2011 21:37
Embættismenn eigi að geta átt samskipti við forsetann Embættismenn forsætisráðuneytisins eiga að geta haft samskipti við embætti forseta Íslands án þess að þau samskipti verði túlkuð sem íhlutun í starf forseta. Þetta segir í bréfi sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sendi Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands. 18.10.2011 19:49
Asnaeyru rædd á Alþingi í dag Ákvörðun Alcoa að hætta við álver á Bakka varð tilefni snarpra orðaskipta á Alþingi í dag þar sem þingmenn ríkisstjórnarinnar tókust á um það við stjórnarandstöðuna hver hefði dregið hvern á asnaeyrunum í málinu. 18.10.2011 17:00
Höfði opinn almenningi Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að Höfði við Borgartún verði hafður almenningi til sýnis með reglubundnum hætti. Útbúið verði efni, miðað við þarfir ferðamanna, með upplýsingum um sögu hússins þar sem hlutverki þess í fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Sovétríkjanna árið 1986 verði m.a. gerð góð skil. Sérstök áhersla verði lögð á að vernda húsið og láta það halda svipmóti sínu og virðuleika þrátt fyrir aukna notkun. Innheimtur verði aðgangseyrir, sem standa skal undir kostnaði. 18.10.2011 16:42
Ólafur Ragnar: Málatilbúnaður Jóhönnu rakalaus tilraun til íhlutunar Í bréfi sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sendi Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á síðasta ári, segir að tilhneiging forystumanna ríkisstjórna á undanförnum árum og áratugum að fara út fyrir eðlileg valdmörk sín. 18.10.2011 16:31
Guðrún Ebba þarf ekki að fyrirgefa föður sínum - Erindið í heild sinni Guðrún Ebba Ólafsdóttir finnur ekki lengur hjá sér þörf til að fyrirgefa föður sínum sem misnotaði hana kynferðislega. Hún gerði lengi þá kröfu til sín að hún fyrigæfi honum, því það væri í samræmi við hið guðlega orð. 18.10.2011 15:36
Hefur þú séð Nubiu Silvu? Lögreglan á Hvolsvelli lýsir eftir Nubiu Silva 15 ára stúlku. Nubia er um 160 cm á hæð, dökkhærð og grannvaxin. Nubia fór frá heimili sínu þann 11. október síðastliðinn. Ekki er vitað með vissu hvernig hún er klædd en lögreglan hefur upplýsingar um að hún sé á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir Nubiu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110. 18.10.2011 15:05
Blóðugur innbrotsþjófur staðinn að verki Innbrotsþjófur var staðinn að verki við að brjótast inn á hárgreiðslustofu á Grensásveginum í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir inni á hárgreiðslustofunni en starfsfólk var ekki mætt til vinnu þegar maðurinn braust þar inn. Hann skar sig á hönd þegar hann braut gler til að komast inn á stofuna og var því blóðugur þegar lögreglumenn komu á staðinn. Maðurinn, sem er góðkunningi lögreglunnar, var í annarlegu ástandi og verður yfirheyrður síðar í dag þegar víman er runnin af honum. 18.10.2011 14:50
Vitnaleiðslum lokið í Baugsmáli Vitnaleiðslum í skattahluta Baugsmálsins lauk nú rétt eftir klukkan tvö í dag. Alls voru níu vitni leidd fyrir dóminn. Þar af voru fimm fyrir hádegi en fjögur nú eftir hádegi. Þeirra á meðal var Anna Þórðardóttir endurskoðandi, sem meðal annars annaðist skattframtöl fyrir Tryggva Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Baugs, á árunum 2000 til ársins 2002. 18.10.2011 14:31
Snörp jarðskjálftahrina norður af Siglufirði Snörp skjálftahrina varð norður af Siglufirði frá klukkan tíu í morgun til hálf tólf. Nokkrir skjálftar um þrír að stærð mældust á svæðinu en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er ekki óalgengt að skjálftar mælist á þessu svæði. Engar tilkynningar hafa borist frá fólki um að skjálftarnir hafi fundist. 18.10.2011 13:31
Segir pólitík hafa ráðið úrslitum um brotthvarf Alcoa Það er pólítísk niðurstaða sem veldur því að Alcoa hættir við álver á Húsavík, að mati forseta bæjarstjórnar Norðurþings, sem segir þetta afleiðingu af stefnu núverandi ríkisstjórnar. 18.10.2011 12:53
Michelsen býður eina milljón króna í fundarlaun Frank Michelsen, eigandi úra- og skargripaverslunarinnar sem rænd var í gær, býður fundarlaun hverjum þeim sem geta gefið upplýsingar um ránið. Komi vísbending sem leiði til þess að málið verði upplýst og ránsfengurinn endurheimtur, fær sá hinn sami milljón króna fundarlaun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá eigandanum. 18.10.2011 12:20
Jón Ásgeir skipti sér ekki af skattskilunum Stefán Hilmarsson, sem var endurskoðandi fyrir fjárfestingafélagið Gaum og Baug þegar félögin voru stofnuð, segist hafa séð um skattskýrslugerð fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson persónulega á þeim tíma líka. Stefán bar vitni við aðalmeðferð skattahluta Baugsmálsins í morgun. Stefán sagði að hann og Ragnar Þórhallsson hafi annast framtalsgerð fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson saman. Jón Ásgeir hafi ekki sjálfur skipt sér af þeirri framtalsgerð. 18.10.2011 12:11
Lögreglan braut ekki lög við innkaup ,,Ég hef sannfærst um að embætti ríkislögreglustjóra hafi farið að lögum í innkaupum sínum. Sú mynd sem dregin hefur verið upp í fjölmiðlum af embættinu er ómakleg og röng. Hins vegar eru þessi mál almennt ekki í nógu góðum farvegi og því eru tilteknir þættir þeirra teknir til sérstakrar skoðunar," segir Ögmundur Jónasson innanríkisáðherra, í tilkynningu frá Innanríkisráðuneytinu, um innkaup ríkislögreglustjóra á tólum og tækjum fyrir lögregluna. 18.10.2011 11:42
Vopnað rán á Laugavegi: Þekkir þú manninn á myndinni? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn manna sem frömdu vopnað rán í úraverslun á Laugavegi í Reykjavík á ellefta tímanum í gærmorgun. 18.10.2011 11:04
Sautján ára stúlka framvísaði fölsuðum skilríkjum á veitingastað Það var mikið að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina en nokkuð var um útköll vegna ölvunaróláta. 18.10.2011 10:57
Fjögur og hálft tonn af hamborgurum seldust á 24 tímum "Já, ég held að ég verði bara að vera heiðarlegur og segja að þetta fór fram úr okkar björtustu vonum," segir Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa.is sem seldu yfir 40 þúsund hamborgara frá Metró á vefsíðu sinni í gær. Tilboðið var í gangi í 24 klukkutíma en með því var hægt að kaupa ostborgara á 99 krónur í staðinn fyrir 350 krónur. 18.10.2011 10:28
Veist þú um Ólaf Þóri? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ólafi Þóri Guðjónssyni, 16 ára. Ólafur er grannvaxinn og 175 sm á hæð. Ekki er vitað um klæðaburð hans en síðast er vitað um ferðir hans í Kópavogi þann 7 október síðastliðinn. Lögreglan telur líklegt að hann geti verið á Selfossi og eru þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Ólafs eru beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. 18.10.2011 10:19
Ræningjarnir enn ófundnir Ræningjarnir þrír, sem létu greipar sópa um úraverslum Michelsen við Laugaveg í Reykjavík í gærmorgun eru enn ófundnir, eftir því sem fréttastofan kemst næst. 18.10.2011 08:07
Fjölmenni á borgarafundi í Hveragerði Fjölmenni var á borgarafundi í Hveragerði í gærkvöldi þar sem jarðvísindamenn og talsmenn Orkuveitu Reykjavíkur fjölluðum um skjálftavirkni, sem orðið hefur vegna niðurdælingu á vatni frá Hellisheiðarvirkjun. 18.10.2011 07:55
Lagði sig í hættu við að stela miklu af klósettpappír Kona á miðjum aldri virðist hafa lagt sig í nokkra hættu í nánast mannskaðaroki í gærkvöldi, við að stela miklu af klósettpappír úr stórum flutningavagni, sem fauk aftan úr dráttarbíl undir Ingólfsfjalli í gærmorgun. 18.10.2011 07:48
Verulega dregur úr vindi víðast hvar Verulega dró úr vindi víðast hvar á landinu undir morgun nema enn er hvasst sumstaðar suðaustan- og austanlands. 18.10.2011 07:25
Ræddi ekki mál Guðrúnar Ebbu „Því miður hafa verið og eru menn sem skreyta sig skikkju kristinnar trúar til að svala ofbeldisfýsn og valdalosta, eins og dæmin sanna. Það er ekki allt geðfellt sem sjá má í ásjónu trúarinnar,“ sagði Karl Sigurbjörnsson biskup í predikun sinni í Reyðarfjarðarkirkju á sunnudag. 18.10.2011 07:00
Nýtir reynslu sína af hármissi á nýrri stofu Sigríður Einarsdóttir hárgreiðslumeistari hefur opnað hárgreiðslustofu þar sem áhersla er lögð á alhliða þjónustu við konur sem misst hafa hárið vegna krabbameinsmeðferðar. Sigríður hefur sjálf glímt við bráðahvítblæði og þekkir hármissinn af eigin raun. 18.10.2011 07:00
Saga íslensku kirkjunnar því miður ekki einsdæmi Hin langa saga íslensku kirkjunnar og tengsl hennar við kynferðisbrot er, eins og flestir vita, ekki einsdæmi og mörg önnur lönd hafi svipaðar sögur að segja af leiðtogum innan sinna kirkna. Þetta segir Dr. Marie M. Fortune, prestur og stofnandi FaithTrust Institute. 18.10.2011 06:00
Krafa um að dælingu verði hætt Hvergerðingar krefjast þess að niðurdælingu jarðhitavökva frá Hellisheiðarvirkjun verði hætt, sagði Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, í viðtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. Hún var þá stödd á fjölmennum íbúafundi á Hótel Örk sem Orkuveita Reykjavíkur efndi til. Tilefnið eru skjálftahrinur síðustu vikna sem hafa valdið íbúum í Hveragerði óþægindum og ugg. 18.10.2011 06:00
Fortíðin lifnaði við á Íslandsviku í Sóltúni „Það er ótrúlega gefandi og gaman að bregða svona á leik," segir Anna Birna Jensdóttir, forstöðumaður Hjúkrunarheimilisins Sóltúns, þar sem Íslenskir dagar voru á dagskrá í síðustu viku. 18.10.2011 05:00
Tveir kaflar samningsins líklega kláraðir á morgun Búist er við að tveimur köflum í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið verði lokað strax eftir að þeir verða opnaðir á ríkjaráðstefnu sambandsins á miðvikudag. Þetta segir Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands. 18.10.2011 04:00
Alcoa nýtti ekki forskotið á aðra Viðbrögð Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra við yfirlýsingu Alcoa í gær eru að ákvörðunin hafi ekki komið sér á óvart. Ákvörðunin skýri línurnar og nú sé að ljúka viðræðum við önnur fyrirtæki sem áhuga hafa á að nýta orkuna til atvinnuuppbyggingar. Hún telur ekki aðalatriði hvaða fyrirtæki það verður svo lengi sem regluverkinu í landinu sé fylgt, umhverfismál séu í hávegum höfð og störf skapist fyrir fólkið á svæðinu. 18.10.2011 03:15
Kort af leið ræningjanna - Þaulskipulagðir á þremur bílum Þrír grímuklæddir menn vopnaðir byssum rændu fokdýrum Rolex-úrum úr verslun Michelsen úrsmiða í gær. Frank Michelsen segist viss um að skoti hafi verið hleypt af. Ránið var þaulskipulagt og svo virðist sem ræningjarnir hafi notast við þrjá stolna bíla. 18.10.2011 11:15
Vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um Atlantshafsbandalagið Allir þingmenn VG, nema Steingrímur J. Sigfússon formaður og Jón Bjarnason, vilja að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu fari fram. Samkvæmt þingsályktunartillögunni, sem þingmennirnir hafa lagt fram ásamt Birgittu Jónsdóttur og Atla Gíslasyni vilja þau að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram fyrir mitt næsta ár. 17.10.2011 21:17