Fleiri fréttir

Handtekinn fyrir að skilja barn eftir í bíl

Íslenskur fjölskyldufaðir var handtekinn í Bandaríkjunum fyrir að skilja tveggja ára dóttur sína eftir sofandi í bíl í steikjandi hita. Hann kom heim í gærmorgun eftir að hafa verið í farbanni í New Jersey í þrjár vikur. Fréttastofa RÚV greindi frá málinu í gær. Foreldrar stúlkunnar skildu hana eftir í bílnum á meðan þau fóru inn í verslun, ásamt eldri börnum sínum. Þegar þau komu út var búið að kalla til lögreglu enda ólöglegt að skilja börn eftir í bílum í Bandaríkjunum. Alls hafa 22 bandarísk börn dáið úr hita í bílnum það sem af er þessu ári en í síðasta mánuði fór hitinn yfir 40 stig á þessu svæði. Í samtali við RÚV segir fjölskyldufaðirnn að heimska og hugsunarleysi hafi ráðið því að stúlkan var skilin eftir. Hann vildi annars ekki veita fréttastofu viðtal. Honum var sleppt úr fangelsi sama dag og hann var handtekinn gegn því að hann skildi vegabréf sitt eftir. Móðirin fékk að fara aftur til Íslands með börnin eftir viðtal við barnaverndaryfirvöld. "Íslenski sendiherrann beitti sér í málinu og lýsti því í bréfi hvernig alsiða væri á Íslandi að láta lítil börn sofa úti á almannafæri, í barnavögnum og bílum. Niðurstaðan varð sú að saksóknari bauð föðurnum að láta málið niður falla ef hann játaði á sig ósæmilega hegðun á almannafæri og greiddi sekt," segir á vef RÚV.

Auðgunar- og hegningarlagabrotum fjölgar

Hegningarlaga- og auðgunarbrotum fer fjölgandi milli ára, samkvæmt ársskýrslu Ríkislögreglustjóra fyrir árið 2010. Kynferðisbrotum, manndrápum og líkamsmeiðingum fer hinsvegar fækkandi.

Þrjár nauðganir til lögreglunnar

Þrjú nauðgunarmál hafa borist á borð kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í kjölfar síðustu verslunarmannahelgar. Öll atvikin áttu sér stað á höfuðborgarsvæðinu og konurnar fóru allar á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi fyrir þolendur kynferðisofbeldis.

Bubbi hefur selt fleiri en 320 þúsund plötur

„Ég held að það sé hægt að fullyrða að þetta sé einstakur árangur," segir Eiður Arnarsson, útgáfustjóri Senu og stjórnarmaður í félagi hljómplötuframleiðenda.

Tvær vikur í leikskólaverkfall

Virkja þarf verkfallsnefnd leikskólakennara því að öðru óbreyttu eru tæpar tvær vikur uns þeir leggja niður vinnu, eftir að fundi í kjaradeilu kennaranna og sveitarfélaganna lauk í Karphúsinu í gær, án samkomulags.

Dularfullt hitamál í Laugardalnum

Dularfullur reykur fór að stíga upp úr jörðinni skammt frá nýju Laugardalshöllinni laust fyrir miðnætti og kallaði lögregla út starfsmann frá Orkuveitunni, ef heitavatnsleiðsla væri ef til vill farin að leka.

Nemendur í Kvikmyndaskólanum skora á Jóhönnu

Hópur nemenda úr Kvikmyndaskóla Íslands ætlar að mæta á tröppur stjórnarráðsins klukkan hálf níu til að afhenda forsætisráðherra áskorun um að gera tafarlaust viðunandi samning við skólann og tryggja þannig rekstur hans.

Ekki lagt til að hækka matarskattinn

Ekki var tilkynnt um hækkun á virðisaukaskatti á matvæli, að loknum sameiginlegum þingflokksfundi stjórnarflokkanna í gærkvöldi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur meðal annars skoðað þann möguleika til að stoppa upp í fyrirsjáanlegt fjárlagagat á næsta ári.

Kæra útgáfu leyfis frá Orkustofnun

Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sent iðnaðarráðuneytinu kæru vegna útgáfu rannsóknarleyfa í Grændal í Ölfusi. Leyfið var gefið út 10. maí og hefur sætt mikilli gagnrýni, þar með talið frá iðnaðarráðherra sem fór fram á munnlegan rökstuðning fyrir veitingunni.

Hækkun vasksins í skoðun

Meðal þeirra leiða sem eru til skoðunar til að auka tekjuöflun ríkisins er að koma á einu virðisaukaskattþrepi. Þingmannanefnd á vegum stjórnarflokkanna hefur skoðað hvaða leiðir séu færar í aukinni tekjuöflun. Hún hefur meðal annars tekið vaskinn til skoðunar. Nefndin hefur fundað undanfarna daga og seinnipartinn í gær var haldinn fundur með formönnum stjórnarflokkanna. Að því loknu var haldinn sameiginlegur þingflokksfundur stjórnarflokkanna.

Jarðvarmi nýttur við saltgerð

Hópur frumkvöðla hefur endurvakið aldagamla framleiðsluaðferð í nýstofnuðu saltvinnslufyrirtæki á Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi. „Við notum jarðvarma. Aðferðin er sú umhverfisvænsta sem völ er á því aðrir nota gas eða brenna eldiviði,“ segir Garðar Stefánsson, sem er einn eigenda fyrirtækisins Saltverk Reykjaness.

Kjarnorkuárása á Japan minnst

Kertum verður fleytt í kvöld til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárása Bandaríkjanna á japönsku borgirnarHiroshima og Nagasaki. Í Reykjavík fer athöfnin fram við Tjörnina og hefst klukkan 22.30. Borgarstjóri mun flytja ávarp. Á Akureyri verður kertum fleytt á tjörninni við Minjasafnið. Áki Sebastian Frostason flytur ávarp.

Í Póllandi eru fæstir erlendir

Einungis 0,1% íbúa Póllands eru útlendingar. Þetta er lægsta hlutfall allra EES-ríkja sem hafa viðlíka tölur á takteinum fyrir árið 2010. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá Hagstofu ESB.

Tveir grunaðir um laxveiði í sjó

Fiskistofa hefur á undanförnum vikum lagt hald á að minnsta kosti ellefu ólögleg net í sjó. Þar af að minnsta kosti fjögur laxanet sem tekin voru upp í Skagafirði í síðustu viku. Það mál er til rannsóknar, að sögn lögreglu, en tveir menn liggja undir grun um notkun þeirra. Laxanet eru ólögleg og liggur há sekt við notkun þeirra.

Nubia Silva fundin

Nubia Silva sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir um helgina er fundin og er heil á húfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Sigmundur Davíð: Ríkisstjórnin ræðir að hækka matarskatt

"Í dag fékk ég staðfest eftir mjög áreiðanlegum heimildum að það sé raunverulega til umræðu í fullri alvöru innan ríkisstjórnarinnar að hækka virðisaukaskatt á matvæli," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins, í pistli sem birtist á heimasíðu hans í kvöld.

Mótmæla á náttfötunum

Nemendur í Kvikmyndaskóla Íslands, bæði núverandi og fyrrverandi, nýnemar, kennarar, starfsfólk og velunnarar skólans ætla að mæta í náttfötum og „snooz-a" alla virka daga milli klukkan 14 og 16 þar til málefni skólans hafa verið leyst.

Enn hætta á verkfalli

Enn er hætta á verkfalli meðal leikskólakennara mánudaginn 22. ágúst næstkomandi. Fulltrúar leikskólakennara og sveitarfélaga funduðu síðdegis í dag í húsnæði ríkissáttasemjara.

Larry King aflýst í Hörpunni

Hætt hefur verið sýningu þáttastjórnandans heimsfræga Larry King, sem hafði áætlað að heimsækja Ísland föstudaginn 23. september næstkomandi. Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stóð að baki viðburðinum, segir ástæðuna vera dræma miðasölu.

Friðarsinnar fleyta kertum á Tjörninni

Friðarsinnar munu koma saman við Tjörnina í Reykjavík á morgun og fleyta kertum í minningu fórnalamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí, þann 6. og 9. ágúst 1945.

Sextán umferðaróhöpp á Selfossi í vikunni

Sextán umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Selfossi í vikunni og urðu slys á fólki í fjórum þeirra. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Selfossi.

Þingfesting í Heiðmerkurmáli

Þingfesting fer fram á morgun í máli manns sem varð barnsmóður sinni að bana í Heiðmörk. Maðurinn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, er ósakhæfur að mati geðlækna. Hann var handtekinn við Landspítalann í Fossvogi í maí. Þangað hafði hann keyrt með lík barnsmóður sinnar í farangursgeymlu bílsins og gaf sig fram. Móðir mannsins segir kerfið hafa brugðist syni sínum, en hann var útskrifaður af geðdeild skömmu áður. Þingfestingin fer fram í Héraðsdómi Reykjaness.

Lækkun á heimsmarkaðsverði gæti skilað sér heim á næstu vikum

Magnús Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1, segir mögulegt að bensínverð á Íslandi lækki á næstu vikum, en lækkun hefur orðið á bensíni á heimsmarkaði undanfarna daga auk þess sem verðið á Bandaríkjadalnum hefur lækkað úr um 118 krónum í rúmar 115 krónur á síðustu tveimur vikum.

Taka við notuðum reiðfatnaði á Keflavíkurflugvelli

Til að auðvelda hestamönnum að uppfylla reglur vegna smitvarna hefur Landssamband hestamannafélaga fyrir hönd félagasamtaka hestamennskunnar, nú samið við Fatahreinsunina Fönn um að taka við notuðum reiðfatnaði í rauða hliðinu á Keflavíkurflugvelli og skila fullhreinsuðum til eiganda fáum dögum síðar. Á síðasta ári kom upp alvarlegur faraldur smitandi hósta í íslenska hrossastofninum af völdum bakteríusýkingu sem ekki er álitinn mikill skaðvaldur erlendis. Sá atburður sýndi glögglega hversu viðkvæmur íslenski hrossastofninn er fyrir smitsjúkdómum. Þrátt fyrir þetta áfall er íslenski hrossastofninn enn laus við alvarlegustu smitsjúkdómana og mikilvægt er að viðhalda þeirri góðu stöðu með öflugum smitvörnum. Samkvæmt gildandi lögum og reglum er óheimilt að flytja inn notaðan reiðfatnað til landsins nema að undangenginni hreinsun og sótthreinsun samkvæmt reglum Matvælastofnunar.

Nubia enn týnd

Stúlkan sem lögreglan á Hvolsvelli lýsti eftir er enn ófundin. Hún heitir Nubia Silva, er fimmtán ára gömul og búsett á Hvolsvelli. Ekki er vitað um ferðir hennar síðan að kvöldi 5. ágúst síðastliðinn. Nubia Silva er er tæpir 160 sentimetrar á hæð, grannvaxin með dökkt sítt hár. Ekki vitað með vissu hvernig hún var klædd. Talið er að Nubia Silva sé á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hafa orðið varir eða vita um ferðir Nubiu Silva, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488 4110.

Össur: Evrópa þarf að eiga stefnumót við veruleikann

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, segir að langvarandi frost á erlendum mörkuðum geti haft áhrif á viðskiptakjör Íslendinga. Ísland sé hins vegar betur í stakk búið en önnur ríki til að takast á við erfiðleika.

Umboðsmanni Alþingis berst kvörtun vegna aðgerðarleysis FME

Stjórnmálahreyfingin Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis og beðið embættið að úrskurða um hvort fjármálaráðherra hafi farið að lögum við stofnun, rekstur og niðurlagningu Spkef sparisjóðs og stofnun, rekstur og sölu Byrs banka.

Hola myndaðist í jörðinni á Selfossi

Hola myndaðist í götunni við Víðivelli á Selfossi í gær. Ekki er útilokað að um sé að ræða síðbúin eftirköst jarðskjálftans sem var á svæðinu árið 2008. "Krakkarnir okkar fundu holuna í gær. Þá var hún miklu minni en stækkaði eftir því leið á daginn," segir Sæunn Ósk Kristinsdóttir, íbúi við Víðivelli 10. Götunni var lokað fyrir umferð í gær og holan girt af til að koma í veg fyrir slys. Fulltrúar frá Árborg komu og skoðuðu holuna í morgun. Gatið í malbikinu er um hálfur meter í þvermál en undir því er stærra holrúm, líklega um tveir fermetrar. Jón Tryggvi Guðmundsson, tæki- og veitustjóri Árborgar, segir að holan verði skoðuð frekar í dag. Þá verður fráveitulögnin við götuna mynduð til að kanna hvort laus jarðefni hafi farið inn í skolplögn. Þó hefur ekki verið orðið vart við neina tregðu í lögnunum. Jón Tryggvi segir of snemmt að fullyrða um ástæður þess að holan myndast. "Það geta verið fleiri en ein ástæða fyrir jarðsiginu," segir hann. Að sögn Sæunnar Óskar er nokkuð langt síðan íbúar við götuna urðu varir við hálfgerða dæld í malbikinu. "Þetta var svona eins og öfug hraðahindrum," segir hún. Jarðskjálftinn 2008 var mjög öflugur og þurfti í kjölfar hans að rífa nokkur hús sem voru gjörónýt. Þar á meðal var húsið við Víðivelli 12 rifið, sem stóð skammt frá þar sem holan myndaðist. Tveir suðurlandsskjálftar riðu yfir samtímis í maí 2008. Þeir voru um 6,3 stig á Richter og fundust svo fjarri upptökunum sem á Ísafirði.

Búist við umferðartöfum á Miklubraut

Búast má við töfum á Miklubraut í dag og næstu daga. Unnið er að malbikun Miklubrautar frá Grensásvegi að Melatorgi og gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 11. ágúst. Ein akrein er lokuð í einu og búast má við umferðarstöfum vegna þessa á Miklubraut.

Efnahagsbrotadeild sameinast embætti sérstaks sakskóknara

Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og embætti sérstaks saksóknara sameinast þann 1. september, samkvæmt lögum nr. 82/2011 sem þá taka gildi. Við gildistöku laganna flyst rannsókn mála er undir efnahagsbrotadeild heyra og ákæruvald og þar með sókn þeirra mála sem þegar sæta ákærumeðferð fyrir dómstólum af hálfu ríkislögreglustjóra frá embætti ríkislögreglustjóra til embættis sérstaks saksóknara. Til viðbótar þeim starfsmönnum sem á undanförnum árum hafa flust frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara flytjast 14 stöðugildi til sérstaks saksóknara við þessi tímamót. Fjárveitingar til efnahagsbrotadeildar færast einnig frá ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og nema þær alls um 124 milljóna króna á ársgrundvelli. Ríkislögreglustjóri mun áfram annast móttöku tilkynninga á grundvelli laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnum hryðjuverka. Í formála nýútgefinnar ársskýrslu embættis ríkislögreglustjóra skrifar Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri af þessu tilefni: „Ég hef lengi talað fyrir því að sett verði á fót sérstök eining til að fara með mál er varða efnahagsbrot og að hlutverk ýmissa ríkisstofnana á því sviði verði endurskoðað. Við bankahrunið lagði ég til við Björn Bjarnason, þáverandi dómsmálaráðherra, að stofnað yrði sérstakt embætti til að fara með mál sem vörðuðu hrunið. Á fyrsta fundi okkar Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra lagði ég áherslu á að næsta skref yrði að færa verkefni efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra til sérstaks saksóknara og að hafinn yrði undirbúningur að framtíðarskipan málaflokksins. Nú liggur þetta fyrir. Verkefni efnahagsbrotadeildar færast til sérstaks saksóknara hinn 1. september nk. Gert er ráð fyrir að samhliða þeirri breytingu verði skipuð nefnd til að endurskoða skipulag og tilhögun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum og gera tillögur að heildarskipulagi til framtíðar. Þessari breytingu samfara færist ákæruvald frá ríkislögreglustjóra. Þar með lýkur þýðingarmiklu brautryðjendastarfi embættisins. Um árabil hef ég einnig hvatt til þess að skilja tollstjórn og sýslumannsverkefni frá lögreglustjórn. Mikilvæg skref hafa verið stigin í þessa átt og nú liggur fyrir Alþingi frumvarp innanríkisráðherra um aðskilnað sýslumanns­verkefna frá lögreglustjórum og fækkun og stækkun lögregluliða. Jafnframt hef ég lagt á það áherslu að rétt sé að skilja ákæruvald frá lögreglustjórn. Við brottflutning ákæruvalds frá ríkislögreglustjóra er eðlilegt að sú skipan nái til allra lögreglustjóra landsins og að ákæruvaldið verði alfarið á ábyrgð ríkissaksóknara. Sú breyting myndi án efa efla tiltrú almennings á ákæruvaldinu og bæta meðferð sakamála."

Fréttaskýring: Norðlingaalda og neðri hluti Þjórsár munu valda deilum

Mun nást sátt um rammaáætlun? Unnið er að tillögu til þingsályktunar í iðnaðarráðuneytinu um hvernig kostir í rammaáætluninni verða flokkaðir. Um þrjá flokka er að ræða: virkjanakosti, verndunarkosti og biðkosti. Í síðastnefnda flokkinn falla þeir kostir sem ákveða á síðar hvernig verða nýttir; til verndunar eða virkjunar.

Þjófur staðinn að verki í Skipholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gómaði þjóf í Skipholti í Reykjavík í nótt þar sem hann var að brjótast inn í bíla. Hún fékk tilkynningu um grunsamlegt athæfi mannsins, og stóð hann að verki.

Fóru fjórar veltur en sluppu ómeidd

Erlend hjón, sem búsett eru hér á landi, sluppu ómeidd eftir að bíll þeirar fór útaf Þjórsárdalsvegi, í uppsveitum Árnessýslu í gærkvöldi, og valt fjórar heilar veltur.

Hlekktist á í lendingu í Fljótum

Þrír menn sluppu nær ómeiddir þegar lítilli flugvél þeirra hlekktist á í lendingu við Lambanes í Fljótum í gærkvöldi. Þeir fóru allir á heilsugæsluna á Sauðárkróki til skoðunar. Ekki er vitað um tildrög óhappsins, en vélin mun vera mikið skemmd. Rannsóknanefnd flugslysa mun að líkindum rannsaka málið.

Féll í götuna á Grafningsvegi og axlarbrotnaði

Bifhjólamaður slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu á Grafningsvegi í gærkvöldi og féll í götuna. Hann axlarbrotnaði í fallinu en hjólið þeyttist út fyrir veg, hafnaði þar á steini og er talið ónýtt. Engar vísbendingar eru um hraðakstur.

Banna böð í Laugarvatni vegna saurgerla

Vegna E. colimengunar sem uppgötvaðist í sumar hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bannað fólki að baða sig í Laugarvatni. Sveitarstjóri segir orsökina vera mengun úr holræsakerfi frá þéttbýlinu í kringum vatnið.

Hanna íbúðabyggð í Vilníus

THG Arkitektar fengu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína um hönnun og skipulag íbúðabyggðar í úthverfi Vilníus, höfuðborgar Litháens. „Fjárfestar í Vilníus komu að máli við okkur og báðu okkur um að taka þátt í þessari samkeppni,“ segir Ragnar Auðunn Birgisson, arkitekt hjá THG Arkitektum.

Vill flytja fleiri verkefni til sveitarfélag

„Ég er sannfærð um að því nær ákvörðunarvaldinu sem við erum, því markvissari verða áætlanirnar,“ segir Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, um fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um endurskoðun á hlutverki ríkisins.

Sjá næstu 50 fréttir