Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gengu brattar hlíðar vegna skipsstrands Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal ásamt björgunarskipinu Verði voru kallaðar út um hálf ellefu í morgun eftir að hjálparbeiðni barst frá bát sem strandaði skammt utan við Tálknafjörð nánar tiltekið við Mölvík. 9.6.2011 13:00
Eldur í spónaverksmiðju - starfsmenn björguðu deginum Eldur kviknaði í spónaverksmiðju í Hveragerði í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni vantað ekki eldsmatinn og því talsverð hætta á ferð. 9.6.2011 12:46
Sendinefnd ESB á Íslandi opnar nýja heimasíðu Sendinefnd ESB á Íslandi hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.esb.is. Heimasíðan, sem bæði er á íslensku og ensku, hefur meðal annars að geyma upplýsingar um tengsl Íslands og ESB, aðildarumsókn Íslands að ESB og aðildarferli, helstu verkefni og stefnumál ESB og hlutverk og skipulag sendinefndarinnar. Á síðunni birtast reglulega fréttir af vettvangi ESB og einnig er hægt að nálgast bæklinga og annað upplýsingaefni um ESB. 9.6.2011 12:39
Mjólkurbændurnir njóta víst ríkisstyrkja Bændurnir sem standa að baki fyrirtækinu Vesturmjólk og boða virka samkeppni án ríkisstyrkja njóta sjálfir ríkisstyrkja þegar þeir selja Mjólkursamsalinu afurðir sínar Í tilkynningu frá félaginu kom fram að Vesturmjólk væri í reynd eini sjálfstæði mjólkurframleiðandinn á landinu og starfaði án allra ríkisstyrkja. Fyrirtækið er eigu þriggja kúabænada á Vesturlandi, þeirra Bjarna Bærings Bjarnasonar, Jóhannesar Kristinssonar og Axels Oddssonar. 9.6.2011 12:09
Einn maður og eitt atkvæði Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar um kjördæmaskipan og þingkosningar leggur til talsverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis og vill að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt líkt og þjóðfundur lagði mikla áherslu á. Allar nefndir ráðs kynna tillögur um breytingar á stjórnarskránni á 12. ráðsfundi í dag. 9.6.2011 12:08
Réttað yfir Khat-mönnum Aðalmeðferð í máli fjögurra karlmanna ákærðir hafa verið fyrir innflutning á 60 kílóum af khat fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þrír mannanna játa sök en efnið átti að senda til Bandaríkjanna og Kanada. 9.6.2011 12:03
Verulega dregur úr unglingadrykkju Verulega hefur dregið úr áfengisdrykkju ungmenna á síðustu árum. Um fjórðungur fimmtán til sextán ára barna hefur orðið drukkinn. Þetta kemur fram í niðurstöðum Evrópsku vímuefnarannsóknarinnar sem nær til fimmtán Evrópulanda og er framkvæmd á fjögurra ára fresti. Könnunin sýnir að stórlega hefur dregið úr áfengisneyslu fimmtán og sextán ára unglinga á Íslandi. 9.6.2011 12:03
Ferðamenn festa sig ítrekað á hálendinu Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur staðið í ströngu þessa vikuna en þeir hafa þurft að aðstoða erlenda ferðamenn á hálendinu á hverjum degi síðan aðfaranótt mánudags. 9.6.2011 11:38
Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin á morgun Pylsuvagn verður formlega opnaður við Hvalfjarðargöngin klukkan tólf á morgun. "Þá dreg ég upp og verð til klukkan átta," segir Arnþór Gylfi Árnason, pylsuáhugamaður með meiru. Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna. "Þetta er staður þar sem margir stoppa til að rétta úr sér. Nú getur fólk stoppað og fengið sér pulsu eða almennilegt kaffi," segir Arnþór. Í pylsuvagninum, eða pylsubílnum réttara sagt, verður einnig boðið upp á það helsta sem fæst í almennri vegasjoppu, svo sem sælgæti, gos og ís. "Ég er búinn að prufukeyra hann, búinn að mæta á planið og selja pulsur. Það gekk bara vel," segir Arnþór. Sumir viðskiptavinanna vissu að fyrirhugað var að opna þarna pylsuvagn en öðrum kom það skemmtilega á óvart að fá rjúkandi pylsu við Hvalfjörðinn. Arnþór er bæði búinn að mæta til prufu um helgi og á virkum dögum, og segir hann söluna hafa verið ívið meiri um helgina. Þegar fram dregur stefnir hann á að vera einnig með miðnæturopnun, sér í lagi um helgar, og hafa þá jafnvel opið frá ellefu til þrjú. "Það er oft ótrúlega mikil umferð þarna á þessum tíma," segir Arnþór sem er búsettur í Borgarnesi og er öllum hnútum kunnugur í nágrenninu. Þar sem stundum vill gusta um planið sem pylsuvagninn verður á hefur hann þegar sett sig í samband við listamann sem er að útbúa listaverk til að hafa þar, og þjónar verkið þá einnig því hlutverki að skýla viðskiptavinum fyrir vindum. Arnþór vill þó ekkert gefa meira upp um listaverkið. "Það er leyndarmál," segir hann. Samkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Gylfi hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu. 9.6.2011 11:30
Aðeins sex lögðu ólöglega Laugardalnum - ökumenn til fyrirmyndar Ökumenn í Laugardal brugðust jákvæðir við þeim tilmælum lögreglu að nýta bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu á meðan landsleik Íslands og Danmörku stóð þann 4. júní síðastliðinn. Lögreglan jók eftirlit í Laugardalnum, greip inn í ef einhverjir gerðu sig líklega til að leggja ólöglega og leiðbeindi ökumönnum í laus stæði. Einungis þurfti að sekta sex ökutæki vegna ólöglegarar lagningar og er það mikil framför frá því ástandi sem þarna hefur ríkt þegar stórviðburðir hafa verið í Laugardalshöllinni. Í kvöld, fimmtudaginn 9. júní, verður stórhljómsveitin Eagles með tónleika í Laugardalshöllinni og er búist við 10.00 tónleikagestum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill af því tilefni góðfúslega ítreka þau tilmæli til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta bílastæðin á svæðinu í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð. 9.6.2011 11:18
Listasprengja í miðbænum á morgun Á morgun, föstudaginn 10. júní, munu listahópar á vegum Hins Hússins halda út á götur Reykjavíkur og standa fyrir ýmsum uppákomum til að lífga upp á sumarið. Um er að ræða sjálfstæð verkefni ungs listafólks sem starfar með stuðningi Hins Hússins í sumar. 9.6.2011 11:02
Eagles buðu starfsfólki Nings á tónleikana "Þeir komu hingað í gærkvöldi og fengu sér bland af heilsuréttum og nýjan kjúklingarétt,“ segir Hilmar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Nings, en rokkgoðin úr Eagles fengu sér að borða á veitingastaðnum á Suðurlandsbraut í gærkvöldi ásamt fylgdarliði. Rokkararnir voru svo ánægðir með matinn að þeir buðu öllu starfsfólki á tónleikana sem verða í Laugardalshöllinni í kvöld. 9.6.2011 10:51
Minni kostnaður vegna ferðalaga Dregið hefur úr heildarkostnaði fjármálaráðuneytisins vegna utanlandsferða starfsmanna ráðuneytisins og flestra undirstofnana. Kostnaður ráðuneytisins vegna ferðanna auk dagpeninga var um 26 milljónir árið 2007 og um 30 milljónir árið eftir. 2009 og 2010 nam kostnaðurinn 21-22 milljónum. 9.6.2011 10:47
Sendir danska ferðamenn til Íslands Íslensk kona sem búsett er í Danmörku hefur stofnað ferðaskrifstofuna Islandsrejser þar í landi og býður nú íslandsþyrstum Dönum upp á fjölbreytta ferðamöguleika vilji þeir heimsækja heimahaga hennar. Hún segir starfsemina ganga eins og í sögu en einu erfiðleikarnir virðist felast í skorti á dönskumælandi fólki í íslenskum ferðaiðnaði. 9.6.2011 10:13
Ráðherra vísar þingmanni á netið Þýðingu á sáttmálum Evrópusambandsins í heild sinni er lokið og má finna á vef utanríkisráðuneytisins. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fram fari sérstök kynning á þeim. Þetta kemur fram í svari Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Svarið er stutt en þar vísar Össur Vigdísi á tvo tengla. Annars vegar á vef utanríkisráðuneytisins og undirsíðu ráðuneytisins vegna umsóknar Íslands um aðild að ESB. 9.6.2011 10:04
Deilt á bæjarfulltrúa í stríði um götuskilti „Það er óþolandi að bæjarfulltrúi geti að sínum geðþótta kallað út starfsmenn bæjarins á laugardegi til að rífa niður skilti frá samkeppnisaðilum,“ segir Tryggvi Sveinbjörnsson, eigandi FAB Travel á Akureyri. 9.6.2011 10:00
Útboð á viðhaldi fasteigna ríkisins - tækifæri fyrir verktaka Viðhald á fasteignum ríkisins um allt land verður boðið út á næstunni. Um er að ræða tækifæri fyrir verktaka að komast í rammasamning ríkisins um viðhaldsþjónustu. Nýtt rammasamningsútboð á þjónustu verktaka í iðnaði nær til viðhaldsverkefna á fasteignum ríkisins um allt land. Útboðið tekur til fjölda iðngreina og þjónustuaðila, svo sem blikksmiða og annarra málmiðnaðarmanna, málara, múrara, pípulagningamanna, rafiðnaðarmanna og trésmiða. Sú breyting hefur verið gerð frá síðasta útboði að nú er boðið út á landsvísu í stað eingöngu á höfuðborgarsvæðinu áður og þjónustu dúkara og skrúðgarðyrkjumanna hefur verið bætt við þannig að samningurinn ætti að geta þjónað þörfum ríkisins um viðhald jafnt á fasteignum sem lóðum. Viðhaldsverk í iðnaði, það er þjónusta iðnaðarmanna á fasteignum ríkisins eru boðin út með það að leiðarljósi að auka úrval á þjónustu fyrir ríkið og gefa nýjum aðilum kost á að bjóða fram þjónustu sína, öllum til hagsbóta. Ríkiskaup hafa nú þegar kynnt útboðið fyrir fjölmörgum iðn- og meistarafélögum. Áhugasamir bjóðendur geta haft samband við Ríkiskaup og fengið leiðbeiningar í tilboðsgerð sem auðveldar þátttakendum að gera sín tilboð sem best úr garði. Í tilkynningu frá Ríkiskaupum er lögð áhersla að verktakar kynni sér útboðið, tímafresti og útboðsgögn vel og vandi tilboðsgerðina þar sem ógilt tilboð eða það að bjóða alls ekki þýðir að viðkomandi verði ekki með í þessum samningi sem gerður er til tveggja ára. Útboðið er auglýst á vef Ríkiskaupa www.rikiskaup.is <http://www.rikiskaup.is> og þar geta bjóðendur sótt útboðslýsingu og nálgast allar upplýsingar um útboðið á útboðstíma. 9.6.2011 09:53
Tveir verktakar í ráðuneyti Jóns Tveir verktakar eru starfandi í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, að því er fram kemur í svari Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn Vigdís Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. Hún beindi samskonar fyrirspurnum til annarra ráðherra í síðasta mánuði. Svör hafa borist frá Jóni og Árna Páli Árnasyni, efnahags- og viðskiptaráðherra. 9.6.2011 09:40
Hundrað störf í viðbót hjá Kópavogsbæ - 710 ungmenni fá vinnu Um hundrað ungmenni í Kópavogi frá átján ára aldri fá vinnu við skógræktarverkefni í bænum í sumar en það er liður í atvinnuátaki Kópavogsbæjar, Skógræktarfélags Íslands, Skógræktarfélags Kópavogs og Vinnumálastofnunar. Þar með getur bærinn ráðið mun fleiri ungmenni til starfa í sumar en áður var ráðgert. Öll þau ungmenni, sem var synjað um sumarvinnu en sóttu síðan um í atvinnuátakinu, voru ráðin. Alls fá því um 710 ungmenni í Kópavogi vinnu hjá bænum í sumar. Samkvæmt tilkynningu frá Kópavogsbæ var samningur um verkefnið undirritaður í Guðmundarlundi í Kópavogi í gær af þeim Guðrúnu Pálsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, Magnúsi Gunnarssyni, formanni Skógræktarfélags Íslands og Braga Michaelssyni,formanni Skógræktarfélags Kópavogs. Ungmennin munu starfa á svæðum Skógræktarfélags Kópavogs, meðal annars við gróðursetningu, uppgræðslu, hreinsun og fleira. Vinnunni er skipt í tvö tímabil. Fyrri hópurinn hóf störf í fyrradag og starfar í fimm vikur en þá tekur síðari hópurinn við sem mun starfa í jafn langan tíma. Vinnutíminn er frá átta til hálf fjögur á daginn. 9.6.2011 09:20
Barnarverndarstofa ekki ástæða breytinga Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu (BVS), segir umræðu um hert eftirlit með meðferðarstofnunum ekki tengjast BVS beint. Innra eftirlit BVS hafi aldrei verið gagnrýnt, heldur bendir hann á að Árbótarmálið og Götusmiðjan séu dæmi um að kerfið skili góðum árangri. „Við erum mjög stolt af því að hafa gripið inn í starfsemi þeirra,“ segir hann. 9.6.2011 09:00
Kalt vor og klakabönd á þingi Forystumenn stjórnar og stjórnarandstöðu voru ekki sammála um margt í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í gær. Eitt gátu þeir þó komið sér saman um: Að nú um stundir væri kalt á Íslandi. 9.6.2011 09:00
Bæjarstjórn Grindavíkur ályktar gegn minna kvótafrumvarpinu Bæjarstjórn Grindavíkur gagnrýnir þau vinnubrögð Alþingis vegna minna kvótafrumvarpsins svonefnda. Bæjarstjórnin fundaði í gær og samþykkti ályktun þar sem skorað er á Alþingi að keyra ekki svo viðkvæmt og umdeilt mál í gegnum þingið á síðustu klukkustundunum í ágreiningi, heldur gefa sér meiri tíma til að ná almennri sátt um málið. „Flutningur veiðiheimilda í byggðakvóta og strandveiði frá Grindavík mun hafa mjög neikvæð áhrif á atvinnustig í bæjarfélaginu. Fleiri tugir starfa munu glatast verði breytingarnar að veruleika. Atvinnuástand á Suðurnesjum er vel þekkt og má samfélagið ekki við því að höggin verði skörð í þá atvinnuvegi sem þó standa styrkum stoðum á svæðinu og skapa hundruði starfa. Bæjarstjórn Grindavíkur skorar á Alþingi Íslendinga að vega ekki að hagsmunum sjávarbyggða með þessum hætti, heldur hafa það að markmiði við endurskoðun þeirra reglna sem gilda í sjávarútvegi að þær styrki sjávarútveginn í heild sinni," segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Grindavíkur. 9.6.2011 08:54
Vopnaðist sporjárni til að drepa Tæplega þrítugur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa hótað fimm lögreglumönnum og lækni lífláti. Héraðsdómur Austurlands úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald til 22. júní. Hæstiréttur staðfesti úrskurðinn í gær. 9.6.2011 08:30
Ævintýraheimur að fæðast "Ég get fullyrt að völlurinn okkar verður hafður í hávegum af íslenskum kylfingum. Hér er að verða til ævintýraland fyrir golfáhugafólk,“ segir Páll Erlingsson, formaður Golfklúbbs Grindavíkur sem fagnar 30 ára afmæli í sumar. Nú hillir undir að teknar verði í notkun fimm nýjar holur og langþráður draumur um fullvaxta átján holu völl verði að veruleika hjá Grindvíkingum. 9.6.2011 08:00
Verulegur niðurskurður á grásleppuveiðum framundan Í miðjum fögnuði sjómanna með aukinn þorskkvóta á næsta fiskveiðiári, horfa grásleppusjómenn fram á verulegan niðurskurð í grásleppuveiðum á næstu vertíð. 9.6.2011 07:47
Evrópuþingmaður kallar Íslendinga sjóræningja Skoski Evrópuþingmaðurinn Struan Stevenson hefur gagnrýnt harðlega makrílveiðar Íslendinga og Færeyinga og segir að þjóðirnar tvær hagi sér eins og hverjir aðrir sjóræningjar þegar kemur að þessum veiðum. 9.6.2011 07:40
Sex fjölveiðiskip leita að makríl Að minnsta kosti sex íslensk fjölveiðiskip eru nú komin inn í færeysku lögsöguna að leita að makríl, en ekki hafa borist fréttir af árangri. 9.6.2011 07:29
Starfsmenn Norðuráls boðaðir á áríðandi fund Verkalýðsfélag Akraness hefur boðað starfsmenn Norðuráls á Grundartanga til áríðandi fundar í kvöld, eins og það er orðað. 9.6.2011 07:25
Enginn sáttafundur boðaður í deilu flugvirkja Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilu flugvirkja hjá Icelandair við Samtök atvinnulífsins og hófst annað skyndiverkfall flugvirkjanna klukkan sex í morgun og stendur í fjórar klukkusutndir. 9.6.2011 07:23
Áfram snjóar fyrir norðan Vaðlaheiðin, gengt Akureyri, gránaði niður í miðjar hlíðar í nótt og hitastigið í bænum fór niður í tvær gráður. 9.6.2011 07:16
Stefna VG harðlega gagnrýnd Stefna Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálum var harðlega gagnrýnd á Alþingi í gær í utandagskrárumræðu um stuðning Íslands við aðgerðir Nató í Líbíu. Athygli vakti að hvorki Steingrímur J. Sigfússon, formaður flokksins, né Ögmundur Jónasson, sem oft hefur tjáð sig um álíka efni, sáu ástæðu til að taka þátt í umræðunni. 9.6.2011 07:00
15 til 30% minni utanvegaakstur Vísbendingar eru um að aðgerðir stofnana á vegum umhverfisráðuneytisins til að draga úr utanvegaakstri hafi borið árangur, að því er segir í frétt á vef ráðuneytisins. 9.6.2011 07:00
Þorskkvóti aukinn merkjanlega vegna stækkandi stofns Hafrannsóknastofnunin leggur til að þorskkvóti verði aukinn úr 160 þúsund tonnum í 177 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári. Stofnunin kynnti í gær tillögur sínar um hámarksafla um þrjátíu fiskistofna á næsta fiskveiðiári. 9.6.2011 06:15
Engir fundir í kjaradeilunni Ríkissáttasemjari sá ekki ástæðu til að kalla samningamenn Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair saman til funda í gær. Kjaradeila þeirra í millum er því í hnút. 9.6.2011 06:00
Kynntu rafknúna jeppa í Hörpu Rafbílar þurfa ekki endilega að vera litlir og kraftlausir, að sögn forsvarsmanna Northern Lights Energy (NLE), sem kynntu rafknúna jeppa til sögunnar í tónlistarhúsinu Hörpu í gær. 9.6.2011 06:00
Áhrifin líklega mikil á smádýr Gróður mun víðast hvar ná sér á strik á láglendi þrátt fyrir verulegt öskufall vegna Grímsvatnagossins. Það mun þó fara eftir tíðarfari á komandi vikum, að mati Erlings Ólafssonar skordýrafræðings og Sigurðar H. Magnússonar gróðurvistfræðings, sem fóru í skoðunarferð fyrir Náttúrufræðistofnun um öskusvæðið í lok maí. Þeir könnuðu öskufall eftir gosið og gróður, smádýralíf og fuglalíf. 9.6.2011 06:00
127 milljarðar í skattaskuldum Heildarfjárhæð áfallina skatta í vanskilum í lok mars árið 2011 nam 127,1 milljarði króna. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigmunds Davíðs Gunnlaugssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. 9.6.2011 05:00
Ragna Árnadóttir formaður Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og skrifstofustjóri, er nýr formaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans. 9.6.2011 05:00
Bönd í blöðrum oft varasöm Bönd í blöðrum geta verið varasöm fyrir börn. Neytendastofa vill benda foreldrum á að nú þegar 17. júní og fleiri hátíðarhöld fara að ganga í garð, að huga vel að öryggi barna sinna. 9.6.2011 04:45
NATO með æfingu í Helguvík Hluti af varnaræfingu Atlantshafsbandalagsins, Norður-Víkingi, fór fram í höfninni í Helguvík í dag. Í verkefninu taka þátt um fjögur hundruð og fimmtíu manns frá Bandaríkjunum, Noregi, Danmörku og Íslandi. 8.6.2011 19:33
Neytendur geta brátt keypt mjólk utan "samráðshringja“ Íslenskir neytendur geta nú keypt sér jógúrt sem er framleidd utan við það sem Samkeppniseftirlitið kallar samráðshring mjólkuriðnaðarins, en fyrirtækið Vesturmjólk þiggur enga ríkisstyrki. Og brátt munu þeir geta keypt fituskerta mjólk sem er framleidd án allra styrkja. 8.6.2011 19:00
Læknar fái aðgang að upplýsingum um fíkniefnabakgrunn sjúklinga Landlæknir segir að verið sé að skoða möguleika á að læknar fái aðgang að upplýsingum um bakgrunn sjúklinga í fíkniefnaneyslu til að minnka framboð af rítalíni ávísað af læknum meðal fíkniefnaneytenda. 8.6.2011 18:45
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins: Það gengur friðarspillir laus á Alþingi Stjórnarandstaðan sakaði forsætisráðherra á Alþingi í dag um að koma í veg fyrir að sátt næðist um minna kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Málið var afgreitt með miklum ágreiningi úr sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd í morgun. 8.6.2011 18:37
Ferðaþjónustan hefur miklar áhyggjur af þróun mála Vinnustöðvun flugvirkja tafði brottfarir níu flugvéla Icelandair í morgun. Samskonar aðgerðir eru boðaðar í fyrramálið og verkfall vofir yfir síðar í mánuðinum. Ferðaþjónustan hefur miklar áhyggjur af þróun mála. 8.6.2011 18:36
Reiðhjólamaður datt af hjólinu á Reykjanesbraut Fjölmargir sjúkrabílar og lögreglubílar voru kallaðir að Vogaafleggjara á Reykjanesbrautinni nú fyrir stundu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var útkallið á þann veg að ekið hefði verið á reiðhjólamann og væri hann mikið slasaður. Þegar lögreglu- og sjúkraflutningamenn komu á staðinn reyndist reiðhjólamaðurinn einungis hafa dottið af hjólinu. Ekki var ekið á hann og er hann ekki talinn vera alvarlega slasaður. Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. 8.6.2011 18:24