Fleiri fréttir

Tekist á við öskufallið

Svartamyrkur hefur verið í morgun vegna öskufalls á svæðinu milli Mýrdalssands og Skeiðar-ár-sands og er allt athafnalíf þar meira og minna lamað af þeim sökum. Kristján Már Unnarsson fréttamaður Stöðvar 2 er á Kirkjubæjarklaustri og hann ræddi við Eygló Kristjánsdóttur sveitarstjóra Skaftárhrepps og Adolf Árnason, lögregluvarðstjóra á Kirkjubæjarklaustri.

Caribou tónleikar aftur á dagskrá

Hljómleikum kanadísku sveitarinnar Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í gær hefur verið frestað til 28. júní. Eins og greint var frá í gær kom eldgosið í veg fyrir að liðsmenn kæmust til landsins. Miði á tónleikana í gær mun gilda á nýja dagsetningu en þeir miðakaupendur sem ekki geta notað miða sinn á tónleikana í júní fá endurgreiðslu með því að hafa samband við midi.is í síma 540-7800. Að sögn skipuleggjenda verða miðar endurgreiddir til og með mánudeginum 30. maí.

Veginum lokað frá Höfn og til Djúpavogs

Óveður er og ekkert ferðafæri á milli Hafnar og Djúpavogs. Að sögn lögreglunnar á Höfn hafa ökumenn verið missa framrúður úr bílum sínum í veðurhamnum og einn ökumaður missti allar rúður úr bíl sínum við Hvalnesskriður. Mikið sandfok er á þessu svæði og því er fólki ráðið frá því að vera þarna á ferðinni eins og er.

Ráðherrar ætla á gossvæðið

Ráðherrar í ríkisstjórn Íslands ætla að fara á gossvæðið og kynna sér aðstæður um leið og samgönguleiðir opnast. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Vestmannaeyjar: Fólki ráðlagt að halda sig inni

Þar sem spáð er áframhaldandi Norð- og norðaustanlægum áttum næstu tvo daga eru líkur á áframhaldandi öskufalli í Vestmannaeyjum frá eldsumbrotunum í Grímsvötnum samkvæmt tilkynningu frá Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja.

Krafturinn í eldgosinu svipaður og í gær

Hæð gosmakkarins úr eldgosinu í Grímsvötnum hefur rokkað frá 8 til 10 kílómetrum í morgun en í gær var hann 10 til 15 kílómetra hár. Á laugardagskvöld þegar gosið byrjaði náði gosmökkurinn 20 kílómetra upp í loftið.

Loftgæðamælir í borginni bilaður

Unnið er að viðgerðum á svifriksmæli sem mælir loftgæði í borginni. Niðurstöður mælinga er almennt hægt að nálgast á vef Reykjavíkurborgar en sem stendur koma þar aðeins upp villuboð. Þegar fréttastofa hafði samband við Reykjavíkurborg fengust þau svör að ekki væri vitað um ástæðu þessa en unnið væri að því að koma mælinum í lag. Fjöldi fólk notar mælinn til að fá upplýsingar um loftgæðin, meðal annars starfsfólk grunnskóla og leikskóla þegar mat er lagt á hvort börn séu látin út að sofa og hvort þau fara út að leika.

Barinn í höfuðið með járnstöngum - fíkniefnatengd árás

Þrír menn réðust inn á heimili við Presthúsabraut á Akranesi á föstudagskvöldið og börðu húsráðanda með járnstöngum, meðal annars í höfuðið. Ung kona sem einnig var á staðnum var sömuleiðis barin. Lögregla var kölluð á staðinn um klukkan hálf tíu á föstudagskvöldið. Húsráðandinn og konan voru flutt á sjúkrahús til skoðunar, og maðurinn lagður inn til frekari rannsóknar. Tveir menn voru fljótlega handteknir vegna málsins og sá þriðji um hádegi á laugardag. Þeir voru yfirheyrðir og játuðu verknaðinn. Allir höfðu þeir verið vopnaðir járnbareflum sem þeir notuð við að berja á húsráðandanum. Ástæða árásarinnar er á reiki, en mun vera tengd fíkniefnum. Árásarmennirnir voru allir látnir lausir á laugardagskvöld eftir skýrslutökur og er málið talið upplýst

Úrslitaleikurinn sýndur í 3D í Smárabíó

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar sem fer fram á laugardaginn verður sýndur í hágæða þrívídd í Smárabíó. Þetta er í fyrsta skiptið á Íslandi sem slík útsending fer fram. Það er Smárabíó sem stendur yfir útsendingunni í samstarfi við Stöð 2 Sport.

Enginn skóli á Kirkjubæjarklaustri alla vikuna

„Ég er ekki mjög bjartsýnn á framhaldið, það er bara kolniðamyrkur hérna og ég sé varla ljósastaurana hérna fyrir utan skólann,“ segir Kjartan Kjartansson, skólastjóri í Kirkjubæjarskóla sem er grunnskóli fyrir nemendur í 1. til 10. bekk á Kirkjubæjarklaustri.

Öskufall í Grímsey

Íbúar Grímseyjar á Norðurlandi hafa orðið varir við öskufall í bænum. Þar er jörðin hvít eftir kalt veður undanfarna daga en að sögn heimamanns, sem fréttastofa ræddi við, liggur grá slikja yfir snjónum sem er augljóslega afleiðingar öskufalls.

Aukaflug til London og Kaupmannahafnar

Iceland Express flýgur á alla áfangastaði sína eftir hádegi í dag um leið og Keflavíkurflugvöllur verður opnaður. Flognar verða aukaferðir til Kaupmannahafnar og London. Farþegar sem eiga bókað flug með félaginu eru beðnir að fylgjast vel með, því áætlun getur breyst með stuttum fyrirvara.

Kolniðamyrkur á Kirkjubæjarklaustri: Ótrúlega furðuleg tilfinning

"Ég held að enginn geri sér grein fyrir því hvernig það er að lenda í þessu, þetta er rosaleg upplifun,“ segir Guðmundur Vignir Steinsson, sem rekur N1 og Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri. Kolniðamyrkur er nú á Kirkjubæjarklaustri en mikil aska hefur fallið til jarðar eftir að eldgosið hófst í Grímsvötnum á laugardagskvöld.

Aukaflug til Norðurlandanna

Icelandair hefur bætt við þremur aukaflugum við áður kynnta áætlun sína í kvöld. Flogið verður til Kaupmannahafnar og Osló kl. 20.45 og til Stokkhólms um miðnætti. Jafnframt verður flogið frá þessum borgum í nótt til Keflavíkur. Í tilkynningu frá Icelandair segir að þessi flug hafi verið sett upp til þess að koma til móts við þá farþega sem ekki komust leiðar sinnar vegna aflýstra fluga á síðasta sólarhringnum. Sérstök athygli er vakin á því að breytingar á tímasetningum og áætlun getur orðið með stuttum fyrirvara og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum og komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum.

Strandaglópar í myrkrinu - nær ekki í Icelandair

"Þetta er alveg ferlegt,“ segir Finnur Kristinsson, sem er strandaglópur í Bergen í Noregi en hann átti að fljúga heim til Íslands eftir hádegi í gær. Búið er að loka lofthelgi Íslands vegna eldgossins í Grímsvötnum. Finnur er hinsvegar afar óánægður með Icelandair sem virðist ekki sinna strandaglópunum í Noregi.

Keflavíkurflugvöllur opnar síðdegis - Icelandair flýgur

Icelandair mun hefja flug samkvæmt áætlun síðdegis í dag eftir að hafa þurft að aflýsa öllu flugi í rúman sólarhring, og bætir við aukaflugum. Gert er ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði opnaður fyrir flugumferð síðdegis og að áætlað flug Icelandair frá Evrópuborgum til landsins í dag verði í nokkurri seinkun og sömuleiðis flug frá landinu til Norður Ameríku.

Veginum að Freysnesi lokað - athugað með innanlandsflug klukkan 17

Ákveðið hefur verið að loka veginum frá Vík í Mýrdal að Freysnesi. Skyggni á svæðinu er mjög slæmt, 4 metrar en fréttir hafa borist af öskufalli allt frá höfuðborgarsvæðinu að Tröllaskaga á norð-austanverðu landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð Almannavarna. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir norðlægum áttum 23. maí, 10-18 m/s, hvassast með A-ströndinni. Slydda eða snjókoma NA- og A-lands, slydduél eða él á norðvestaverðu landinu, en annars úrkomulaust. Búast má við talsverðu öskufalli allvíða suðaustanlands og einnig má gera ráð fyrir öskufalli austantil á Suðurlandi fram eftir degi. Flugi innanlands hefur verið aflýst fram eftir degi en athuga á með flug kl. 17:00. Í fyrstu öskusýnum hefur ekki greinst mikið af efnum, þar með talin flúor, en askan er glerkennd og getur haft særandi áhrif á slímhimnur í öndunarfærum, meltingarfærum og augum skepna. Mikilvægt er að forða skepnum undan öskufalli og hýsa þær eða flytja annað ef mögulegt er. Tryggja þarf skepnum á útigangi hreint drykkjarvatn og gefa þeim gott fóður vel og oft. Íbúum á öskufallssvæðum er bent á leiðbeiningar um viðbrögð við öskufalli sem finna má á heimasíðum Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlitsins.

Gosmökkurinn lækkar jafnt og þétt

Gosmökkurinn úr Grímsvötnum hefur lækkað jafnt og þétt í nótt og nær nú innan við tíu kílómetra hæð, en fór í hátt í tuttugu kílómetra hæð í fyrrinótt.

Gosórói í sauðkindum fyrir Grímsvatnagosið

„Þetta sauðfé er með ólíkindum harðgert og búið að standa af sér margan hvellinn,“ sagði Hannes Jónsson, bóndi á Hvoli í Fljótshverfi, er hann kom inn síðdegis í gær eftir að hafa vitjað kinda sinna þegar loksins rofaði til í öskufallinu frá Grímsvötnum.

Frumvarpið ávísun á áralangar deilur

Frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu getur ekki orðið grundvöllur að sátt um rekstrargrunn sjávarútvegsins. Þvert á móti mun það kalla fram áframhaldandi deilur á komandi árum og verða tilefni stöðugra breytinga á kerfinu. Þetta er mat Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fiskvinnslustöðva og Landssambands íslenskra útvegsmanna sem þó lýsa yfir samstarfsvilja við stjórnvöld.

Fer í leikfimi tvisvar í viku

Guðríður Guðbrandsdóttir, íbúi í Furugerði 1, er 105 ára í dag. Hún fæddist á Spágilsstöðum í Dalasýslu 23.05.1906, sú sjötta í röðinni af ellefu systkinum. Lengst af vann hún fyrir sér sem vinnukona, við hreingerningar og þvotta, auk þess að selja eigið prjónles.

Fundu tíu grömm af amfetamíni

Í gærkvöldi handtók lögreglan á Eskifirði ungan mann í Fjarðabyggð grunaðan um fíkniefnamisferli. Í fórum hans fundust fíkniefni. Vegna rannsóknar málsins var maðurinn vistaður í fangageymslu í nótt og leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Austurlands í morgun þar sem gerð var karfa um húsleit á heimili mannsins, sem var samþykkt.

Lítil hætta á hlaupi

Á annað hundrað lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum á gossvæðinu. Ástand á nærliggjandi bæjum er nokkuð gott miðað við aðstæður að sögn Almannavarna. Vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands segir litla hættu vera á hlaupi í Skeiðará vegna gossins.

Magnús Tumi: Ómögulegt að spá fyrir um framhaldið

Mikill sprengikraftur hefur verið í eldgosinu í Grímsvötnum og þétt öskufall allt frá Kirkjubæjarklaustri að Skeiðarársandi. Þegar mest lét þeyttust allt að 20 þúsund tonn af gosefni á sekúndu frá eldstöðinni. Goskrafturinn hefur ívið dvínað í dag, en jarðvísindamenn segja ómögulegt að spá fyrir um framhaldið.

Allur heimurinn forvitinn um gosið

Gosið í Grímsvötnum hefur vakið mikla athygli erlendis enda aðeins rúmt ár síðan flugsamgöngur lágu niðri í Evrópu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Reiðubúin ef allt fer á versta veg

Talsmenn flugfélaganna segja með öllu óljóst hvert tjón félaganna af gosinu er, en þeir hafa ekki orðið varir við miklar afbókanir. Þeir segja að hugsanlega verði hægt að fljúga til og frá landinu á morgun.

Mörg hótel hálftóm

Talsmaður ferðaþjónustunnar segir mikið í húfi að flug komist af stað sem fyrst. Nærri gosstöðvunum standi margir gististaðir hálftómir, og þar hafi menn þungar áhyggjur af framhaldinu.

Þykkt öskulag á Klaustri

Þykkt öskulag liggur yfir öllu á Kirkjubæjarklaustri. Myndatökumaður og fréttamaður Stöðvar 2 og Vísis sem eru þar telja að öskulagið geti verið um tveggja sentimetra þykkt. Egill Aðalsteinsson myndatökumaður tók þessa mynd af Nissan Sunny bifreið á Klaustri. Norðaustan átt er yfir landinu og því má búast við að Reykvíkingar verði eitthvað varir við öskufall í kvöld. Selfyssingar og Hvergerðingar eru þegar orðnir varir við öskuský.

Ferðamenn komnir í leitirnar

Ferðalangarnir fjórir sem björgunarsveitarmenn hófu að leita að í dag eru komnir í leitirnar. Ferðamennirnir fóru frá Höfn í Hornarfirði á tveimur bílum í morgun og var ekki vitað um ferðir þeirra. Komið hefur í ljós að þeir óku austur á firði þar sem þeir dvelja nú á Egilsstöðum.

Vísindamenn halda á Vatnajökul

Jarðvísindamenn eru á leið austur að Skálafellsjökli en þeir ætla ásamt liðsmönnum Hjálparsveitar skáta í Reykjavík að gossvæðinu í Grímsvötnum á Vatnajökli. Hópurinn fer á snjóbíl hjálparsveitarinnar sem ber heitið Boli. Boli hefur verið í biðstöðu þar sem jarðvísindamennirnir, sem eru þrír ásamt tæknimanni, hafa þurft að bíða af sér öskufall á Kirkjubæjarklaustri.

Vatnajökull var svartur í dag

Hann var svartur Vatnajökullinn þegar Friðrik Þór Halldórsson myndatökumaður og Jónas Margeir Ingólfsson fréttamaður flugu yfir jökulinn í dag.

Öskuna leggur um allt á Kirkjubæjarklaustri

Það hefur verið ótrúlegt magn af ösku á Kirkjubæjarklaustri og í sveitum þar í kring vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fólki hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra vegna öskufallsins og huga vel að búfénaði. Umhverfisstofnun greindi frá því í dag að stofnunin hefur virkjað viðbúnaðarstöðu vegna gossins. Stefnt er að því að svifryksmælir verði kominn upp á Kirkjubæjarklaustri á morgun. Smelltu á "Horfa á myndskeið með frétt“ til að skoða myndir sem Gísli Berg tók í dag frá Kirkjubæjarklaustri.

Um 200 íþróttamenn komast ekki til landsins

Tæplega 200 erlendir gestir áttu að koma til Reykjavíkur í dag vegna Grunnskólamóts Höfuðborga Norðurlandanna. Keflavíkurflugvöllur lokaði eftir að eldgosið í Grímsvötnum hófst og því hafa gestirnir ekki komist til landsins í dag.

Ferðalangarnir komnir í leitirnar - aðrir fjórir týndir

Ferðalangarnir sem sagt var frá fyrr í dag og áttu að vera týndir á gossvæðinu eru í góðu yfirlæti á Gullfossi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Hinsvegar hafa nú borist fregnir af fjórum öðrum ferðalöngum sem ekki er vitað hvar eru staddir.

Fylgjast vel með heilsu fólks

Viðbragðsstjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu) hefur í dag verið í sambandi við stjórnendur heilsugæslustöðvanna á Kirkjubæjarklaustri, Vík og Rangárþingi. Í tilkynningu frá HSu segir að Læknar og hjúkrunarfræðingar séu á öllum stöðvunum til að sinna nauðsynlegri þjónustu í samstarfi við almannavarnarnir og fleiri.

Gosmökkurinn í 10 kílómetra hæð

Gosmökkurinn frá gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um tíu kílómetra hæð, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu Íslands. Mest var hæðin um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni. Gosmökkurinn mældist í 13-15 kílómetra hæð í hádeginu.

Ögmundur og Jóhanna heimsóttu samhæfingarmiðstöðina

"Það var mjög traustvekjandi að sjá hve vel smurð þessi vél er og samhæfir kraftarnir,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann fór, ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að skoða aðstæður í samhæfingamiðstöðinni í Skógarhlíð vegna eldgossins.

Lítið brot mála gegn lögreglu endar í dómi

Afar lítill hluti kæra almennings á hendur lögreglumönnum endar með dómsuppkvaðningu. Þetta sýna tölur yfir slík mál frá árunum 2005 til 2009. Fréttablaðið sagði frá því í vikunni að lögregluvarðstjóri hefði verið ákærður fyrir líkamsárás af gáleysi, en hann ók óvart á ungan mann sem hafði reynt að flýja undan honum á bíl með þeim afleiðingum að ungi maðurinn fótbrotnaði. Formaður Landssambands lögreglumanna og ritstjóri lögreglublaðsins hafa gagnrýnt málið og sagt að það sé erfitt fyrir lögreglumenn að sitja undir því að vera gerðir persónulega ábyrgir fyrir svona atvikum.

Bjarga búfénaði frá öskufallinu

Heimamenn hafa í dag verið að bjarga búfénaði í nágrenni við gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Þessi bóndi á Hörgslandi var að bjarga hestinum sínum þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara bar að garði fyrir stundu. Gríðarleg svifryksmengun er vegna öskufallsins.

Icelandair fellir niður flug á morgun

Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga í fyrramálið verður fellt niður vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum, sem hefur lokað fyrir flugumferð um Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða flug til Frankfurt, Parísar, Amsterdam, London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Osló, Bergen/Þrándheims, Stokkhólms og Helsinki. Áður hafði Icelandair aflýst öllu flugi síðdegis í dag.

Fjölmiðlamenn á Vatnajökli

Hópur fjölmiðlamanna fór með þyrlu á Vatnajökul í grennd við gosstöðvarnar í Grímsvötnum í dag. Þar á meðal var Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, sem myndaði það sem fyrir augun bar. Í myndasafninu sem fylgir þessari frétt má sjá gosstrókinn frá Grímsvötnum í bland við jökulinn.

Sjá næstu 50 fréttir