Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Efast um krónuna til langs tíma Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður VG, segir að krónan verði gjaldmiðill Íslendinga næstu árin. Hann telur hins vegar að miklar breytingar verði á myntkerfi í heiminum í framtíðinni og ekki sé sjálfgefið að Íslendingar verði með krónuna til langs tíma. 20.3.2011 11:23
Samstöðufundur fyrir Rottweilertíkina Meira en 500 manns sýna Rottweilertíkinni Christal stuðning á fésbókarsíðu sem stofnuð var til að vekja athygli á málstað hennar. Dýravinir hafa efnt til mótmæla í Garðheimum í dag til að krefjast þess að tíkin fái að halda lífi. Christel komst í fréttirnar um daginn eftir að hún beit gestkomandi í húsi í Hveragerði þar sem hún var bundin fyrir utan húsið. Eftir það tók dýraeftirlitsmaður hana í vörslu sína og héraðsdýralæknir metur stöðuna svo að lóga beri tíkinni. 20.3.2011 09:36
Einn fluttur á slysadeild eftir bílveltu Jeppi valt á Gaulverjabæjarvegi rétt fyrir klukkan fimm í nótt. Fimm voru í bílnum og var einn fluttur með minniháttar meiðsl á sjúkrahús til aðhlynningar. Lögreglan segir að slæm aksturskilyrði hafi verið á veginum þegar slysið varð, hálka og snjór, og sennilega megi rekja óhappið til þess. 20.3.2011 09:19
Eldur á bifreiðaverkstæði Töluverður eldur kom upp í bifreiðarverkstæði á Smiðjuvegi um sexleytið í morgun. Eldurinn kviknaði í bíl sem var inni á verkstæðinu og náði að læsa sig í þaki á húsinu þannig að rjúfa þurfti hluta af þakinu. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu tók allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu þátt í slökkvistarfinu. 20.3.2011 06:43
Skuggahverfi í milljónasta veldi Þótt veldisstærðarmunur sé á Íslandi og Kína segir Andri Snær Magnason sláandi líkindi á milli landanna. Óli Kristján Ármannsson tók Andra tali, en hann sótti Kína heim í fyrsta sinn í byrjun þessa mánaðar. Honum var boðið á bókmenntahátíð, flutti erindi um hagbóluna íslensku og færði grunnskólabörnum í Sichuan-héraði Ópal. Hann gæti vel hugsað sér að búa í Kína. 19.3.2011 22:00
Gott að fá næði til að hugsa Hilmir Snær Guðnason er einn afkastamesti leikari Íslands. Um þessar mundir er hann við æfingar á ruslóperunni Strýhærða Pétri en hann fer með hlutverk sögumanns í þessu óvenjulega verki. Hann gaf sér tíma til að hitta Sigríði Björgu Tómasdóttur yfir kaffibolla einn hráslagalegan morgun í vikunni og sagði henni frá starfi, leik og skáldsögunni í skúffunni. 19.3.2011 20:45
Fálkasetur stofnað í Ásbyrgi Fálkasetur Íslands hefur verið stofnað í Ásbyrgi. Stofnendur telja þennan tignarlega fugl skipa sérstakan sess, hann hafi verið í skjaldarmerki Íslands og talinn konungsdjásn. Það eru Vatnajökulsþjóðgarður, Náttúrustofa Norðausturlands, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga og samtökin Fuglastígur á Norðausturlandi sem standa að Fálkasetrinu og verður það til húsa í þjóðgarðsmiðstöðinni í Ásbyrgi, Gljúfrastofu. 19.3.2011 19:11
Segir orð Valtýs fráleitar dylgjur Forsætisráðherra segir ríkissaksóknara fara með fráleitar dylgjur og hvetur hann til að draga orð sín um afskipti hennar af ákæruvaldinu til baka. 19.3.2011 18:53
Vilja að hagræðingarhugmyndir í skólum verði endurskoðaðar Foreldrar leik- og grunnskólabarna í Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi skora á borgarstjórn Reykjavíkur að endurskoða fyrirhuguð sameiningar- og breytingaráform í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum borgarinnar. Þetta kemur fram í ályktun opins fundar sem haldinn var um málið í Réttarholtsskóla í dag. 19.3.2011 17:05
Ákæruvaldið láti orð ráðherra ekki hafa áhrif Sigurður Líndal, fyrrverandi prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, segir að saksóknarar eigi ekki að þurfa að láta ummæli ráðherra hafa nein áhrif á sig. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sagði í gær að Jóhanna hefði haft óbein áhrif á ákæruvaldið með ummælum sínum meðal annars um handtökur útrásarvíkinga og í máli nímenninganna. 19.3.2011 16:25
Safna fyrir heimilislausa í kvöld Tónleikar verða haldnir í Háskólabíó til styrktar Kaffistofu Samhjálpar í kvöld klukkan átta. Tugir manna koma á kaffistofuna á hverjum degi til að fá sér kaffisopa að vild og meðlæti. Flestir hafa gestir kaffistofunnar verið 130 á einum degi. Í fyrra fékk Kaffistofan 45 þúsund heimsóknir. 19.3.2011 16:03
Ásakanir ríkissaksóknara svakalega þungar Ásakanir Valtýs Sigurðssonar ríkissaksóknara um að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefði haft bein áhrif á ákæruvaldið eru svakalega þungar, segir Vigdís Hauksdóttir, fulltrúi Framsóknarflokksins í allsherjarnefnd Alþingis. 19.3.2011 13:26
Opnuðu Air d'Islande í París Opnunarhóf menningarhátíðarinnar Air d'Islande fór fram í sendiherrabústað Íslands í París í gærkvöldi. 19.3.2011 13:00
Orð innanríkisráðherra umdeild „Við vorum rænd," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á málstofu um rannsókn og saksókn efnahagsbrota og stöðu ákæruvaldsins í gær, en þar vísaði ráðherrann til bankahrunsins. 19.3.2011 12:03
Flýði menn á leigubíl Sjö ára stúlka flýði tvo menn á dökkum bíl með Taxa merki á toppnum í Hjaltabakka á fimmtudaginn í Neðra-Breiðholti í Reykjavík. Að sögn móður stúlkunnar flýði stúlkan mennina tvo sem keyrðu fram og til baka, brostu til hennar og bökkuðu síðan að henni en þá hljóp hún burt og faldi sig bak við blokk. Síðan kom annar mannanna með hendur fyrir aftan bak gangandi á eftir stúlkunni fyrir aftan blokkina þangað sem hún flýði og reyndi að ná tali af henni en hún hafði vit á því að forða sér. Mennirnir voru dökkhærðir miðað við lýsingar stúlkunnar. 19.3.2011 10:28
Opið í Bláfjöllum í dag Það verður opið í Bláfjöllum í dag frá tíu til fimm. Þessa stundina er vindstyrkurinn þar um 5 metrar á sekúndu og frostið ein gráða, snjómugga, og alskýjað. Þá er opið í dag frá klukkan tíu til fjögur í Hlíðafjalli. Þar er átta gráðu frost, fimm metrar á sekúndu og snjókoma. 19.3.2011 09:23
Ég var í Wuhan segir Gunnar Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins, hefur lagt fram fyrirspurn í bæjarráði Kópavogs um það hvort Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri, hafi þegið boð Landsbankans á fótboltaleik í London. 19.3.2011 08:00
Friðarsúla fyrir Japan í neyð Kveikt verður á friðarsúlu japönsku listakonunnar Yoko Ono í Viðey annað kvöld á vorjafndægrum. Ferðin til Viðeyjar á morgun er tileinkuð fórnarlömbum hamfaranna í Japan að því er segir á vef Reykjavíkurborgar. 19.3.2011 07:00
Bera ekki nægilegt traust til réttarkerfis Þolendur kynferðisofbeldis og stuðningssamtök þeirra bera ekki nægilegt traust til réttarkerfisins og brýnt er að á þeim vanda sé tekið. Þetta sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra á fundi ríkissaksóknara og Ákærendafélags Íslands í Þjóðminjasafninu í gær. 19.3.2011 04:00
Suðurnesjamenn áhyggjufullir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra minntist ekki á álver í Helguvík þegar hún taldi upp fyrirhugaðar stórframkvæmdir hér á landi á Alþingi í vikunni. Vakti ræða Jóhönnu áhyggjur á Suðurnesjum. 19.3.2011 04:00
Afhentu LSH hágæslubúnað Taugalækningadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss hefur fengið góða gjöf þar sem MND-félagið, Parkinsonsamtökin, MG-félagið og Heilaheill afhentu deildinni tækjabúnað. Um er að ræða hágæslubúnað sem eykur fagmennsku og öryggi á deildinni, eins og segir í fréttatilkynningu. 19.3.2011 04:00
Málum sérstaks saksóknara fjölgar enn Níu mál komu inn á borð sérstaks saksóknara í síðustu viku. Heildarfjöldi mála er þar með orðinn 119 en þar af teljast 89 virk. Talan mun að öllum líkindum halda áfram að hækka á næstu misserum en tugir mála eru til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu. Þetta var meðal þess sem kom fram á fundi embættis ríkissaksóknara og Ákærendafélagsins í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins í gær. Rætt var um stöðu embættis sérstaks saksóknara og framtíð efnahagsbrotarannsókna á Íslandi. 19.3.2011 03:30
Aðgerðaáætlun í burðarliðnum Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti á miðvikudag fyrir þingsályktunartillögu um menntun og atvinnusköpun ungs fólks. Flutningsmenn ásamt Skúla eru fjórtán þingmenn allra flokka. 19.3.2011 03:15
Kópavogur greiðir málskostnað vegna einkamáls Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt að greiða málskostnað vegna einkamáls þriggja bæjarfulltrúa úr bæjarsjóði. Hópur bæjarbúa hefur ráðið lögfræðing og hyggst kæra málið ef niðurstaðan verður staðfest í bæjarstjórn. 18.3.2011 18:47
Flóknar "alvöruviðræður" við Alcoa um Bakka Lausafjárstaða Landsvirkjunar hefur aldrei verið sterkari. Forstjórinn segir að áherslan verði nú á Þingeyjarsýslur og staðfestir að samningaviðræður standi yfir við Alcoa. 18.3.2011 18:15
Þjóðvegurinn lokaður milli Stóru Tjarna og Kross Vegna ófærðar, óveðurs og umferðaróhappa er þjóðvegur 1 við Ljósavatn, milli Stóru Tjarna og Kross, lokaður og verður það líklega allt til hálf átta. Þarna hafa orðið í það minnsta þrjú umferðaróhöpp. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni urðu slys á fólki en ekki er vitað hve alvarleg. 18.3.2011 18:11
Fara til Bandaríkjanna í staðgöngumæðrun Að minnsta kosti tvö nýleg dæmi eru um að íslensk pör hafi eignast börn með aðstoð bandarískra staðgöngumæðra. Í Fréttatímanum kemur fram að pörin komu með tvö börn hvort til landsins. Annað parið er skráð sem foreldrar barnanna á bandarísku fæðingavottorði. Það greiddi um 20 milljónir króna fyrir staðgönguna. Þá greinir Fréttatíminn frá því að Nokkur íslensk pör undirbúa för til Bandaríkjanna þar sem þau hyggjast eignast börn með þessum hætti. 18.3.2011 17:55
Kynnt framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á Útboðsþingi Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, kynnti framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar á Útboðsþingi í dag. Áætlunin gerir ráð fyrir að 6,5 milljörðum verði varið í nýframkvæmdir og stærri viðhaldsverkefni. Í máli Dags kom fram að við forgangsröðun verkefna hefði verið horft til þess að framkvæmdir væru vinnuaflsfrekar og jafnframt að þær hefðu sem minnst áhrif til hækkunar á rekstrarkostnaði Reykjavíkurborgar. Einnig var horft til þeirra framkvæmda sem líklegt er að leiði af sér auknar tekjur í framtíðinni. Dagur kynnti einnig Framkvæmdasjá, en þar má finna nánari upplýsingar um framkvæmdir Reykjavíkurborgar. 18.3.2011 17:41
Engar uppsagnir á leikskólum Reykjavíkur um þessi mánaðamót Það verða engar uppsagnir um næstu mánaðamót, segir Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri Leikskólasviðs. Vegna áformaðra hagræðingaraðgerða á Leikskólasviði má búast við því að segja þurfi upp starfsmönnum. Hagræðingaraðgerðirnar hafa hins vegar ekki verið samþykktar á æðstu stöðum í borgarkerfinu. 18.3.2011 17:32
Um sextíu prósent landsmanna vilja forvirkar rannsóknarheimildir Meirihluti landsmanna er hlynntur því að lögreglan fái forvirkar rannsóknarheimildir samkvæmt könnun MMR. Nokkur munur er á afstöðu eftir kyni, aldri, tekjum og stjórnmálaflokkum. 18.3.2011 16:38
Styttist í opnun Hörpu Nú styttist í að Harpan verði opnuð en opnunarhátíð tónlistarhússins verður 13. maí næstkomandi. Iðnaðarmenn keppast nú við að leggja lokahönd á verkið og Björn Sigurðsson myndatökumaður Stöðvar 2 heimsótti húsið á dögunum og tók meðfylgjandi myndir. 18.3.2011 16:13
Síbrotamaður dæmdur í níu mánaða fangelsi Karlmaður var dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir ýmis hegningar- og umferðarlagabrot og þá var hann sviptur ökuréttindum ævilangt. 18.3.2011 16:09
Íslendingar styrkja Japani um 10 milljónir Íslensk stjórnvöld munu veita 10 milljónum króna til neyðaraðstoðar í Japan að tillögu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra sem hann kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun. Í Japan ríkir neyðarástand af völdum jarðskjálftans og flóðbylgjunnar sem gekk á land hinn 11. mars síðastliðinn. Áætlað er að um 430 þúsund manns hafi misst heimili sín eða verið flutt á brott vegna hættu á geislavirkni. Fólkið hefst við í neyðarskýlum og bráðabirgðahúsnæði. Framlag stjórnvalda mun renna til Rauða krossins í Japan samkvæmt tilmælum japanskra stjórnvalda þar að lútandi, ýmist í gegnum Rauða kross félögin í hlutaðeigandi ríkjum eða beint til japanska Rauða krossins. Utanríkisráðuneytið hefur átt samráð við Rauða kross Íslands og mun framlagið renna til fjársöfnunar RKÍ til styrktar hjálparstarfinu. Samkvæmt ósk japanskra stjórnvalda samhæfir Evrópusambandið aðgerðir sem miða að því að senda hjálpargögn á hamfarasvæðið. Utanríkisráðuneytið, með aðstoð almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, er í tengslum við vöktunarmiðstöð ESB en Ísland hefur átt aðild að því samstarfi frá árinu 2002. Ráðuneytið mun áfram fylgjast grannt með þróun mála í Japan og ákvörðun um frekari framlög verður tekin eftir því sem þörf fyrir neyðaraðstoð verður skýrari. 18.3.2011 15:25
Tólf milljónir í neyðaraðstoð til Líbíu Íslensk stjórnvöld munu veita 12 milljónum króna til alþjóðlegrar neyðaraðstoðar í Líbíu samkvæmt ákvörðun Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. „Neyðarástand ríkir í landinu og tugir þúsunda flóttamanna hafa farið yfir landamærin frá Líbíu til Egyptalands og Túnis,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. 18.3.2011 15:16
Umtalsverðar skemmdir á Laxárvirkjun Laxárvirkjun tvö í Suður-Þingeyjarsýslu hefur verið stöðvuð eftir að grjót komst inn í vatnshjól virkjunarinnar og olli umtalsverðum skemmdum. Landsvirkjun segir að verið sé að meta ástandið og ákvörðun um viðgerð verður tekin í framhaldi en ekki sé ljóst hvenær stöðin kemst aftur í rekstur. 18.3.2011 15:03
BSRB: Minnisblaði ASÍ og SA harðlega mótmælt Stjórn BSRB mótmælir harðlega innihaldi minnisblaðs ASÍ og SA um stöðu lífeyrismála. Stjórnin segir að í minnisblaðinu, sem dagsett er 25. febrúar síðastliðinn, komi fram hugmyndir um skerðingu lífeyrisréttinda opinberra starfsmanna. Í ályktun stjórnar sem samþykkt var í dag er þessum áherslum er hafnað og ASÍ átalið fyrir að einbeita sér ekki að hagsmunabaráttu fyrir eigin félaga frekar en að berjast fyrir réttindaskerðingu hjá félögum annarra launþegasamtaka. „Það er umhugsunarefni á hvaða vegferð launabaráttan er þegar slík vinnubrögð eru viðhöfð.“ 18.3.2011 14:40
Stefnir DV - vill fimm milljónir í miskabætur Jón Snorri Snorrason, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hefur ákveðið að stefna DV vegna frétta blaðsins af gjaldþroti Siguplasts, þar sem Jón var stjórnarformaður. Blaðið hélt því meðal annars fram að Jón sætti lögreglurannsókn en hann segist hafa það staðfest frá ríkislögreglustjóra að það sé ekki rétt. 18.3.2011 14:09
Bæjarstjórnin komin með matsgerðina - hafa tíu daga til að taka afstöðu Fulltrúar í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar hafa fengið matsgerð tveggja dómkvaddra matsmanna sem komust að þeirri niðurstöðu að Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, hafi lagt Ólaf Melsted, fyrrum framkvæmdastjóra Tækni- og umhverfissviðs hjá bænum, í einelti. 18.3.2011 14:04
Marijúana útrýmir hassinu Samkvæmt tölum frá lögreglu hefur algjör viðsnúningur orðið í neyslu kannabisefna á síðustu árum. Á árunum 2001 til 2008 var meira tekið af hassi en marijúna. Á árunum 2009 og 2010 varð hinsvegar viðsnúningur og seinna árið var hald lagt á 27 kíló af maríjuana en fimmtán kíló af hassi. Enn virðist halla á hassið því á þessu ári hafa lögreglu- og tollayfirvöld lagt hald á 12.5 kíló af marijúana en aðeins 124 grömm af hassi. 18.3.2011 13:42
Áttræður á slysadeild eftir eld í fjölbýlishúsi Eldur kviknaði í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni um kvöldmatarleytið í gær en vel gekk að ráða niðurlögum hans. Karl um áttrætt býr í íbúðinni og var hann heima þegar eldurinn kom upp en maðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Nokkrar skemmdir urðu í eldhúsi íbúðarinnar en óljóst er með reykskemmdir. Eldsupptök eru ókunn. 18.3.2011 13:00
Fíkniefnasalar teknir í Breiðholti Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í Breiðholti í nótt eftir að lögreglan stöðvaði þar ökutæki. Hjá þeim fannst allnokkuð af fíkniefnum en mennirnir voru einnig með talsvert af peningum í fórum sínum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Þess má jafnframt geta að sá þeirra sem sat undir stýri hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. 18.3.2011 12:57
Eftirlýstur karlmaður gómaður við ölvunarakstur Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíknefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt en tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þetta voru tveir karlar, 40 og 55 ára, og ein kona, 17 ára. Öðrum karlinum var veitt eftirför um langan veg en viðkomandi reyndist einnig eftirlýstur fyrir aðrar sakir. 18.3.2011 12:53
Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í nótt. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabis. Tveir karlar um fimmtugt voru handteknir í þágu rannsóknarinnar. Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 18.3.2011 12:50
Öll rannsókn efnahagsbrota verður í nýrri stofnun Stefnt verður að því að öll rannsókn og saksókn efnahagsbrota á Íslandi verði sameinuð í nýja stofnun að norskri fyrirmynd, segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Fyrsti vísirinn að slíku er sameining efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og sérstaks saksóknara í september næstkomandi. 18.3.2011 12:24
Fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar segir sig úr flokknum Guðbrandur Einarsson, fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar og A-listans í Reykjanesbæ hefur sagt sig úr Samfylkingunni. Hann segir skoðanir sínar og flokksforystunnar ekki lengur fara saman og segir því skilið við flokkinn. 18.3.2011 12:13