Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Samþykktu risahöfn og alþjóðaflugvöll á Langanesi Nýtt aðalskipulag, sem gerir ráð fyrir risahöfn í Gunnólfsvík og alþjóðaflugvelli á Langanesi, var samþykkt á fundi sveitarstjórnar Langanesbyggðar á Þórshöfn í gærkvöldi. Fimm hreppsnefndarmenn samþykktu nýja aðalskipulagið í heild sinni en tveir greiddu atkvæði á móti, að sögn Gunnólfs Lárussonar sveitarstjóra. 18.3.2011 10:20
Opið í Hlíðarfjalli í dag Í dag verður skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opið frá klukkan tíu til sjö í kvöld. Í morgun var sjös stiga frost í fjallinu, vindur mældist sjö metrar á sekúndu og sólin skín. 18.3.2011 09:55
Mottudagurinn í dag - karlmennskan ræður för Árvekniátakið Mottumars stendur nú sem hæst og í dag er sjálfur Mottudagurinn. Í tilefni af því hvetur Krabbameinsfélagið alla landsmenn, konur og karla, til að halda upp á daginn með því að leyfa karlmennskunni að skína sem aldrei fyrr. Á Mottudaginn er ráð að skarta öllum mögulegum karlmennskutáknum. "Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag og hvetjum vini, vandamenn og samstarfsfélaga að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef vinnan tæki sig saman og efndi til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn! " segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu. Krabbameinsfélagið hvetur konur jafnt sem karla til að taka þátt í átakinu en Mottudagurinn er liður í Mottumars, árvekni- og fjáröflunarmánaðar Krabbameinsfélags Íslands sem er tileinkaður baráttunni gegn krabbameini hjá körlum. Félagið hvetur ennfremur alla karlmenn til að sýna samstöðu og safna yfirvaraskeggi og um leið að safna áheitum á vefsíðunni www.mottumars.is <http://www.mottumars.is>. 18.3.2011 08:59
Grásleppukarlar loksins að komast á sjó Grásleppubátarnir eru nú loks að komast á sjó eftir þrálátar brælur, en mikill hugur er í grásleppukörlum eftir gjöfula vertíð í fyrra. 18.3.2011 07:29
Mennirnir á svarta bílnum ekki hættir Tveir menn á svörtum bíl reyndu að lokka tvo drengi upp í bílinn í Engjahverfi í Grafarvogi á miðvikudag. Staðgengill skólastjóra í Engjaskóla sendi foreldrum nemenda tilkynningu um þetta í gær og bað þá um að vera vel á varðbergi. 18.3.2011 07:00
Hafnar 500 milljóna boði í brunareitshús Áætlað er að framkvæmdum við uppbyggingu á Laugavegi 4 og 6 og á brunareitnum svokallaða við Lækjartorg ljúki á næstu vikum. Í apríl verða húsin á Laugavegi tilbúin og byggingarnar á brunareitnum í maí. 18.3.2011 07:00
Fimm lögreglubílar eltu ölvaðan og dópaðan ökumann Lögreglumönnum á fimm lögreglubílum tóks um eitt leitið í nótt að stöðva ölvaðan og dópaðan ökumann í Ártúnsbrekkunni í Reykjavík, eftir að hann hafði ekið háskalega um Háaleiltishverfið. 18.3.2011 06:58
Ráðuneyti í vanskilum vegna samninga Innanríkisráðuneytið er eina ráðuneytið sem er í vanskilum við Ríkisendurskoðun, sem kallaði eftir öllum þjónustusamningum ráðuneytanna í desember. 18.3.2011 06:30
Traust á Jóhönnu fellur úr 64 í 17 prósent Verulega hefur dregið úr trausti almennings á Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra og Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra samkvæmt skoðanakönnun MMR. 18.3.2011 06:15
Belgingur fylgist með hamfarasvæðum Íslenski veðurspávefurinn Belgingur hefur síðastliðna viku reiknað veðurspár í þéttu neti fyrir átakasvæði í Tripólí, höfuðborg Líbíu, og hamfarasvæðið við Fukushima-kjarnorkuverið í Japan. 18.3.2011 06:00
Stálu glænýjum heimilistækjum Bífræfnir þjófar létu greipar sópa í nýju hesthúsi við Fluguskeið í Sörlahverfinu við Kaldárselsveg aðfaranótt miðvikudags. Meðal þess sem þjófarnir höfðu á brott með sér eru glæný og ónotuð heimilistæki. 18.3.2011 05:30
Fá sólpall og heitan pott í lóðarkaupum Akraneskaupstaður hyggst taka tilboði hjónanna Haralds Sturlaugssonar útgerðarmanns og Ingibjargar Pálmadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, og kaupa 1.200 fermetra lóðarhluta þeirra á útvistarsvæðinu á Breið. Hjónin ætla að nota andvirðið til þess að reisa sólpall fyrir almenning. 18.3.2011 05:00
Treysta Evrópusambandinu betur en Alþingi Íslendingar treysta alþjóðlegum stofnunum eins og ESB og Sameinuðu þjóðunum mun betur en eigin stjórnvöldum. 18.3.2011 04:30
Draumurinn rættist Langþráður draumur Tryggva Jóns Jónatanssonar, fimmtán ára stráks frá Akureyri, rættist um síðustu helgi. Hann heimsótti Old Trafford, heimavöll uppáhaldsfótboltaliðsins síns, Manchester United. Og ekki nóg með það því United lagði Arsenal að velli og að leik loknum heilsaði markvörður United, Edwin van der Sar, upp á Tryggva. 18.3.2011 04:00
Alþjóðasamfélagið hefur brugðist Þingmenn úr öllum flokkum lýstu miklum áhyggjum af ástandi mála í Líbíu í utandagskrárumræðu í gær. 18.3.2011 02:00
Loðnukavíar í regnbogans litum á Raufarhöfn Kavíar úr loðnuhrognum í öllum regnbogans litum er nú framleiddur á Raufarhöfn, til að selja á sushi-veitingastaði í Evrópu og Bandaríkjunum. 17.3.2011 19:15
Hafna ósk ríkisstjórnarinnar um friðlýsingu Gjástykkis Sveitarfélögin þrjú, sem Gjástykki er í, hafna öll ósk ríkisstjórnarinnar um algera friðlýsingu. Oddviti Mývetninga kveðst ekki hafa orðið var við að heimamenn vilji friðlýsa svæðið. 17.3.2011 19:00
SH: Skora á þingmenn að samþykkja kjarnorkulaust Íslands Samtök hernaðarandstæðinga vilja að Alþingi bindi í lög fortakslaust bann við umferð kjarnorkuvopna á Íslandi. Í ályktun sem miðstjórn samtakanna sendi frá sér segir að kjarnorkuváin í Fukushima í Japan minnna á hættuna á slysum eða óhöppum sem geta orðið, þá ekki síst kjarnorkukafbáta. 17.3.2011 18:12
Spenna hjá Amazon: Frábært tækifæri fyrir íslenska sagnahefð Útgáfufyrirtækið Amazon Crossing telur að viðskiptavinir sínir eigi eftir að njóta þess að lesa íslenskar bókmenntir. Tíu íslenskar bækur koma út á vegum þess á næsta ári. 17.3.2011 17:30
Styttist í að efnahagsbrotadeildir verði sameinaðar Gerð frumvarps um sameiningu efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og Sérstaks saksóknara er á lokastigi í innanríkisráðuneytinu, segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra. Hún segist ekki geta upplýst um það núna hvenær sameiningin mun taka gildi. Þó hefur verið rætt um mitt næsta ár í þessu samhengi. 17.3.2011 17:26
Enn ekkert vitað hvað olli áverkunum Enn hafa engar vísbendingar fundist um hvað olli því að kona fannst með alvarlega áverka í bifreið við Einholt í Reykjavík þann 27. febrúar. 17.3.2011 16:14
Vinsældir forsetans aukast Flestir bera mikið traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, ef marka má nýja könnun sem MMR gerði á trausti til stjórnmálamanna. Um 41,7% treysta Ólafi Ragnari og eykst traustið mikið frá síðustu könnun sem gerð var í maí 2010. Þá sögðust um 26,7% treysta honum. 17.3.2011 14:59
Seltjarnarnesbær braut persónuverndarlög Seltjarnarnesbær braut persónuverndarlög þegar starfsmenn bæjarskrifstofu áframsendu tölvupóst fyrrverandi starfsmanns á almennt netfang bæjarskrifstofanna. Póstur úr einkanetfangi hennar var sendur á postur@seltjarnarnes.is 17.3.2011 14:46
Lagastofnun gerir Icesave kynningarefni Alþingi samþykkti í dag að fela Lagastofnun Háskóla Íslands að gera hlutlaust og aðgengilegt kynningarefni um Icesave-samningana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sem verður haldin 9. apríl næstkomandi. Efnið verður sent öllum heimilum í landinu samhliða sérprentun laganna um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna. Kostnaður við kynninguna greiðist úr ríkissjóði. 17.3.2011 14:25
Latibær fer í alla breska skóla Bresk heilbrigðisyfirvöld ætla að nýta sér Latabæ til þess að vekja athygli á mikilvægi heilbrigðs lífstíls fyrir bresk börn. 17.3.2011 14:21
Foreldrar barna í Hólabrekkuskóla fordæma sameiningu Foreldrar barna í Hólabrekkuskóla í Reykjavík eru afar ósáttir við fyrirhugaða sameiningu skólans við Fellaskóla. Á fundi sem haldinn var um málið var samþykkt ályktun þar sem sameinigin er fordæmd. Þar er meðal annars bent á að gönguleið margra barna til skólans lengist til muna og að foreldrarnir hafi áhyggjur af yngstu börnunum á þessari löngu leið. 17.3.2011 13:03
Þingmenn eigi ekki að skipta sér af því hvar Landsvirkjun virkjar Landsvirkjun á að nýta orku þar sem viðskiptatækifæri eru og þingmenn eiga ekki að skipta sér af því hvar hún ber niður, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra á Alþingi í dag. 17.3.2011 11:09
Dýralæknir vill láta lóga Rottweiler tíkinni Héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis vill láta lóga Rottweiler-tík sem réðst á konu í Hveragerði í byrjun mánaðarins. Eigandi tíkarinnar er afar ósátt við þessa niðurstöðu þar sem hundurinn er "ekki hættulegur í daglegri umgengni" samkvæmt skapgerðarmati. 17.3.2011 11:01
Íslendingum á Tókýó svæðinu ráðlagt að halda suður á bóginn Utanríkisráðuneytið ræður Íslendingum frá ónauðsynlegum ferðalögum til Japan. Íslendingum sem staddir eru á Tókýó svæðinu eða þar fyrir norðan er einnig ráðlagt að flytja sig suður á bóginn. 17.3.2011 10:59
Brotist inn í fimm bíla í nótt Brotist var inn í fimm bíla í Reykjavík í nótt. Úr þeim var stolið meðal annars GPS-tækjum og fartölvum. Þjófarnir voru á ferðinni í miðborginni, vesturbænum og Skerjafirði. Lögreglan ítrekar fyrir fólki að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. 17.3.2011 10:50
Flutningabíll með mysu valt í Víkurskarði Stefnt er að þvi að ná stórum flutningabíl með tengivagni, sem valt út af veginum um Víkurskarð í gær, upp á veginn í dag. Bíllinn var á leið til Egilsstaða frá Akureyri með mysu. Ástæða þess að hann fór út af veginum er ókunn en stíf norðvestan átt var í gærdag á svæðinu, éljagangur og hálka. Bíllinn var með tengivagn og leikur grunur á að hann hafi mögulega runnið. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík var ökumaður einn í bílnu og er ekki vitað til þess að hann hafi slasast. Hann var þó fluttur til Akureyrar í gær til skoðunar. Flutningabíllinn liggur nú um 50 metra frá veginum, efst austan megin í Víkurskarði. Ekki er vitað hvort hann er í ökufæru ástandi en reiknað er með því að fulltrúar Mjólkursamsölunnar sjái um björgunaraðgerðirnar í dag, með aðstoð lögreglu ef þörf krefur. 17.3.2011 08:39
Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður skemmdi fjóra bíla Ölvaður, dópaður og próflaus ökumaður ók á jeppa sínum utan í fjóra kyrrstæða og mannlausa bíla við Hverfisgötu í Hafnarfirði um miðnætti, síðan á ljósastaur og stöðvaðist loks á rammgerum garðbekk. 17.3.2011 07:16
Tvær konur sluppu lítið meiddar úr bílveltu Tvær ungar konur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt út af veginum á Svalbarðsströnd, skammt frá Akureyri í gærkvöldi. 17.3.2011 07:13
Björgunarsveitir aðstoða fólk í föstum bílum Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi og í nótt til að aðstoða fólk í föstum bílum á Austurlandi. Þar snjóaði mikið og blés. 17.3.2011 07:11
Milljarða skattsvik norskra útvegsmanna Norsk sjávarútvegsfyrirtæki hafa verið staðin að stórfelldum efnahagsbrotum sem nema um þremur milljörðum norskra króna á síðasta ári. Sú upphæð jafngildir rúmum sextíu milljörðum íslenskra króna. 17.3.2011 07:00
Undirbjó Japansferð í tvö ár en kemst hvergi „Mig langar mjög mikið að fara núna. Ég hef verið að búa mig undir þessa ferð í tæplega tvö ár,“ segir Stefán Þór Þorgeirsson, nemi við Menntaskólann í Reykjavík. 17.3.2011 07:00
Plast breitt yfir ótímabær hraðaskilti Skilti um hámarkshraða sem sett voru upp fyrr í vetur við nokkrar götur eru enn hulin með plasti. Að sögn Stefáns Finnssonar, yfirverkfræðings hjá umhverfis- og samgöngusviði, er ástæðan sú að formleg skilyrði fyrir breyttum hámarkshraða hafa ekki verið uppfyllt. 17.3.2011 06:45
Vilja svör um hagkvæmni Vaðlaheiðarganga Formaður samgöngunefndar Alþingis, Björn Valur Gíslason úr Vinstri grænum, hefur fallist á beiðni Marðar Árnasonar úr Samfylkingunni um sérstakan fund um fyrirhuguð Vaðlaheiðargöng. 17.3.2011 06:30
Hundrað bætast við á einum degi „Þetta er talsvert magn. Það er ekki víst hvort allir fá tölvurnar sem pöntuðu þær því við vitum ekki hvað margar koma til landsins,“ segir Bjarni Ákason, forstjóri Eplis, umboðsaðila Apple hér á landi. 17.3.2011 06:00
Stuðlað að nýliðun með leigukvótaþingi Notast verður við blandaða leið aflahlutdeildarkerfis og svokallaðs pottakerfis við stjórn fiskveiða, samkvæmt áformum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. 17.3.2011 05:45
Vísar jafnréttiskvörtun til flokkanna Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, vísar kvörtun Jafnréttisráðs um kynjahlutfall í landskjörstjórn til flokkanna. 17.3.2011 05:00
Rangt að ESB-reglugerð nýtist í aðildarviðræðum Sjávarútvegsráðuneytið segir að ákvæði í nýrri reglugerð ESB þar sem einstökum aðildarríkjum er heimilað að ákveða leyfilegt aflahámark fiskistofna feli í sér takmarkaða undanþágu frá meginreglum ESB. 17.3.2011 04:45
Ekki gengið að breyta launum handhafa Þó að laun forsetans hafi lækkað í ársbyrjun 2009 hafa laun handhafa forsetavalds haldist óbreytt fram að þessu. Sjaldgæft er að handhafarnir þurfi að sinna því starfi en þeir deila þó með sér forsetalaunum í fjarveru forseta. Þingmenn hafa tvívegis á nokkrum árum reynt að breyta þessu en ekki haft erindi sem erfiði. 17.3.2011 04:30
Yuriy Kuzubov fékk flest stig Sex skákmenn voru efstir og jafnir með sjö vinninga úr níu umferðum þegar MP Reykjavíkurskákmótinu lauk í gærkvöldi. Það voru þeir Yuriy Kuzubov, Ilya Nyzhnik og Vladmir Baklan frá Úkraínu, Pólverjinn Kamil Miton, Bosníumaðurinn Ivan Sokolov og Norðmaðurinn Jan Ludvig Hammer. 17.3.2011 04:00
140 hafa kosið utan kjörfundar Icesave Síðdegis í gær höfðu 140 manns greitt atkvæði utan kjörfundar um Icesave-málið á sýsluskrifstofum landsins. Af þeim voru 73 í Reykjavík. Utankjörfundur hófst í gærmorgun. 17.3.2011 04:00