Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný könnun MMR: Mikil andstaða við veggjöld Mikill meirihluti landsmanna er andvígur því að sett verði veggjöld til að fjármagna nýframkvæmdir í samgöngumálum. Lítill munur á afstöðu fólks eftir búsetu. Andstaðan við veggjöld mest á meðal Sjálfstæðismanna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR. 20.1.2011 13:03
Segja Strætó-loforð svikin Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins bókuðu á fundi borgarráðsfundi í morgun gegn ákvörðun meirihlutans að skerða þjónustu Strætó bs. Þar segir Sjálfstæðisflokkurinn að það sé ljóst að með þessari ákvörðun svíkji meirihlutinn loforð við kjósendur. 20.1.2011 12:38
Bjarni vissi ekkert um tölvuna í Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir það rangt að hann hafi vitað af tölvu í húsakynnum Alþingis. Tölvan fannst í febrúar á síðasta ári. Morgunblaðið greinir frá því í dag að grunur leiki á að tölvuþrjótar á vegum uppljóstrunarvefsíðunnar Wikileaks hafi komið tölvunni fyrir þar sem hún fannst. 20.1.2011 12:09
Sérstakur saksóknari handtók fjóra í morgun Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á málefnum Landsbankans í morgun. Einn hinna handteknu er Jón Þorsteinn Oddleifsson, fyrrverandi forstöðumanni fjárstýringar í Landsbankanum, 20.1.2011 11:58
Ragnar Aðalsteinsson - mál níumenningana á sér pólitískar rætur "Það kom mér á óvart þegar ég hlustaði á ræðu saksóknara hversu lítillar hlutlægni gætti þar," sagði Ragnar Aðalsteinsson, verjandi fjögurra af níu sakborningum í níumenningamálinu svokallaða. Munnlegur málflutningur fer nú fram og gagnrýndi Ragnar réttinn harðlega og sagði brot hafa verið framin á skjólstæðingum sínum. 20.1.2011 11:33
Afturvirkur niðurskurður „stórmál“ hjá Reykhólahreppi Reykhólahreppi barst á föstudag tölvupóstur frá fjármálaráðuneyti þess efnis, að vegna efnahagserfiðleika ríkissjóðs hafi stjórnvöld þurft að minnka umsvif og lækka fjárveitingar sem ætlaðar eru til reksturs öldrunarheimila. 20.1.2011 11:31
Fyrrverandi forstöðumaður hjá Landsbankanum handtekinn Jón Þorsteinn Oddleifsson var handtekinn í morgun á sama tíma og sérstakur saksóknari gerði húsleit hjá Seðlabankanum, MP banka og ALMC sem áður var Straumur. Jón var áður forstöðumaður fjárstýringar í Landsbankanum. Rannsókn sérstaks saksóknara í dag miðar að því að afla gagna vegna upplýsinga sem komu fram við rannsókn á Landsbankamálinu. 20.1.2011 11:25
Hagræðingarkrafa til Strætó ekki meiri en annarra viðkvæmrar þjónustu Niðurstaða meirihlutans í Borgarstjórn Reykjavíkur er að hagræðingarkrafa til Strætó Bs. sé ekki meiri en í annarri viðkvæmri þjónustu, svo sem leikskólum og grunnskólum. Því eru ekki forsendur til að draga samþykkta fjárhagsáætlun til baka. Þetta kemur fram í bókun Besta flokksins og Samfylkingar frá fundi borgarráðs í morgun. 20.1.2011 11:14
Húsleit í Seðlabanka tengist föllnu viðskiptabönkunum Húsleit sérstaks saksóknara í Seðlabankanum tengist rannsókn á föllnum viðskiptabönkum, samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. 20.1.2011 11:09
Óvíst hvort húsleit beinist að starfsemi MP Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP banka, staðfesti við fréttastofu í morgun að húsleit hefði verið framkvæmd í höfuðstöðvum bankans. Að sögn Gunnars Karl mættu lögreglumenn frá embætti sérstaks saksóknara laust eftir klukkan tíu í morgun. 20.1.2011 10:58
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur vissu af tölvunni „Mér finnst skrýtið að mér hafi ekki verið sagt frá þessu, enda fannst tölvan í herberginu við hliðina á mér,“ segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, um dularfulla tölvu sem fannst í skrifstofuhúsnæði á vegum Alþingis við Austurvöll. Birgitta segir engn hafa sagt þingmönnum Hreyfingarinnar frá tölvunni né hafi formaður eða þingmenn Vinstri grænna verið látnir vita. 20.1.2011 10:53
Húsleitir hjá Seðlabanka, Straumi og MP - handtökur gerðar Sérstakur saksóknari hefur gert húsleitir í dag. Samkvæmt upplýsingum Vísis tengist rannsóknin MP banka, Straumi og Seðlabankanum. Sérstakur saksóknari vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið þegar að Vísir hafði samband við hann í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hafa handtökur verið gerðar í tengslum við rannsóknina. 20.1.2011 10:46
Skerðing á þjónustu Strætó staðfest í borgarráði Meirihluti Besta flokks og Samfylkingar felldi tillögu Vinstri grænna um að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu Strætó bs á borgarráðsfundi í dag þrátt fyrir að allmargir fulltrúar Besta flokksins, þar með talinn borgarstjórinn sjálfur hefðu fullyrt að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að tryggja óbreytta þjónustu. 20.1.2011 10:25
Eygló ósátt við aðkomu ríkisins að Sjóvá „Eins og við sjáum á athugasemdum ESA þá virðist vera að okkur bar engin skylda til að standa í þessu, og þarna er í raun verið að yfirfæra skuldir sem hefðu lent á þeim sem voru með tryggingar hjá Sjóvá, yfir á alla skattgreiðendur," segir segir Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. 20.1.2011 10:15
Saksóknari líkti níumenningum við pólskt glæpagengi Lára V. Júlíusdóttur, settur ríkissaksóknari, segir að árás níumenningana hafa verið fyrirframskipulögð og öryggi Alþingis hafri verið stefnt í hættu. Hún vísaði í Keilufellsmálið, þar sem hópur Pólverja réðust vopnaðir hnífum, sleggjum og hömrum inn í hús og misþyrmdu húsráðendum, máli sínu til stuðnings. 20.1.2011 10:11
Tekist á um forystusætið í VR Það verður tekist á um leiðtogastólinn hjá VR á næstunni. Kosið verður um formennsku í félaginu í mars. Lúðvík Lúðvíksson tilkynnti um framboð sitt í gær en áður hafði Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur tilkynnt um framboð. 20.1.2011 09:52
Telur of erfitt að segja upp ríkisstarfsmönnum Full ástæða er til að breyta lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna til að auðvelda forstöðumönnum ríkisstofnana að segja upp starfsmönnum, að mati Ríkisendurskoðunar. 20.1.2011 09:00
Rannsaka rusl við strendur landsins Umhverfisráðuneytið, í samráði við Umhverfisstofnun, aflar nú upplýsinga um rusl og úrgang á ströndum hér við land og um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til við hreinsun stranda á undanförnum árum. Í þeim tilgangi hefur ráðuneytið sent öllum sveitarfélögum sem eiga land að hafi bréf þar sem þau eru beðin um að leggja mat á það hvort rusl á ströndum sé útbreytt vandamál innan sveitarfélagsins og hvort það ógni lífríki hafs og stranda, heilsu manna eða hafi önnur neikvæð áhrif á notkun strandarinnar. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins. 20.1.2011 08:46
Njósnatölva fannst á þingi - hafa Wikileaks grunaða Dularfull tölva fannst í húsnæði á vegum Alþingis í febrúar á síðasta ári sem grunur leikur á að hafi haft þann tilgang að brjótast inn í tölvur þingmanna og tölvukerfi Alþingis. Morgunblaðið greinir frá því að starfsmenn Alþingis hafi kallað lögregluna á höfuðborgarsvæðinu á sinn fund í febrúar í fyrra, eftir að fartölva fannst í auðu herbergi í húsnæði á vegum Alþingis við Austurstræti. 20.1.2011 08:39
Peningakassinn verðmætari en innihaldið Innbrot var framið í verslun í miðborginni í nótt og þaðan stolið sjóðsvél, eða peningakassa, í heilu lagi. Talið er að í honum hafi verið um það bil tíu þúsund krónur í skiptimynt, en kassinn er margfalt þess virði. Þjófurinn spennti upp hurð og komst þannig inn. Hann er ófundinn. 20.1.2011 08:04
Fimmtán ára handtekin fyrir innbrot 15 ára piltur er nú vistaður á vegum lögreglunnar á Selfossi eftir að hann var handtekinn á Eyrarbakka í gærkvöldi vegna ráns sem hann framdi á Selfossi undir kvöld. 20.1.2011 08:00
Spara á 540 milljónir í skólum Reykjavíkur Draga á saman um helming í starfsemi bókasafna grunnskóla Reykjavíkur og skera niður námsráðgjöf um tíu prósent, samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun menntasviðs borgarinnar. Auk þess á að lækka viðbótarstjórnendakostnað um tíu prósent, sem og kostnað vegna matráða í mötuneytum, við ritara og umsjónarmenn húsnæðis. 20.1.2011 08:00
17 ára piltur í einangrun Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sautján ára pilti sem er grunaður um innbrot og þjófnað á töluverðum verðmætum í Reykjavík. Hann var handtekinn síðustu helgi og daginn eftir úrskurðaður í varðhald til föstudags. 20.1.2011 08:00
Ræningjar handteknir í nótt Tveir karlmenn um tvítugt frömdu rán í Bónus-vídeo við Smiðsbúð í Garðabæ undir miðnætti með því að hóta starfsstúlku með hnífi. 20.1.2011 07:56
Segir það sérkennilegt að Gunnar gagnrýni Hafsteinn Karlsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, hafnar gagnrýni Gunnars I. Birgissonar, bæjarfulltrúa og fyrrverandi bæjarstjóra, vegna veislu sem bæjarfulltrúar og nokkrir yfirmenn hjá bænum ásamt mökum sátu fyrir jól. 20.1.2011 07:00
Formaður segir starf á áætlun Róbert R. Spanó, formaður rannsóknarnefndar sem rannsaka á viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi, segir starf nefndarinnar vera á áætlun. 20.1.2011 06:00
Nemendur úr Verzló með hæstu einkunn Þeir nemendur Háskóla Íslands (HÍ) sem koma úr Verzlunarskólanum mældust með hæstu meðaleinkunn í úttekt HÍ á nemendum fimm framhaldsskóla síðustu þrjú ár. Skólaárið 2009 til 2010 var meðaleinkunn þeirra 4.115 nemenda úr Verzlunarskólanum 7,04. Nemendur frá Menntaskólanum Hraðbraut, sem voru 692 talsins, mældust með lægstu meðaleinkunnina, 6,35. 20.1.2011 06:00
Ólína segir kerfið vera að kyrkja byggðirnar „Það má ekki dragast lengur að koma á gagngerum breytingum á fiskveiðistjórn okkar, kerfið er að kyrkja byggðirnar,“ sagði Ólína Þorvarðardóttir, Samfylkingu, á Alþingi í gær. 20.1.2011 05:00
Fyrstu blokkirnar friðaðar Mennta og menningarmálaráðherra hefur friðað fjölbýlishús við Hringbraut 35 til 41 og 43 til 49 í Reykjavík að tillögu Húsafriðunarnefndar. 20.1.2011 04:00
Bandarísk fyrirtæki hirða neyðaraðstoð Óttast er að íbúar Haítí fái í sinn hlut einungis brotabrot af tugmilljarða aðstoð eftir jarðskjálftann þar fyrir rúmu ári. Prófessor gagnrýnir harðlega að bandarísk stórfyrirtæki hirði megnið af aðstoðinni. 20.1.2011 03:00
Stal snyrtitösku og klinki Snyrtitösku og klinki var stolið úr bíl í Reykjanesbæ í morgun. Bíllinn var ólæstur og hafði þjófurinn rótað talsvert í bílnum. En það sem hann hafði upp úr krafsinu var snyrtitaska og smá klink. Þjófurinn fannst ekki. 19.1.2011 23:11
Pilturinn fundinn - losaði sig við hnífinn Lögreglan á Selfossi fann 15 ára gamlan pilt, sem framdi vopnað rán á Selfossi í dag, innanbæjar á Eyrarbakka. Þar var pilturinn á rölti í bænum en ekki er vitað hvernig hann komst þangað, en grunur leikur á að hann hafi tekið strætó. 19.1.2011 21:57
Umboðsmaður Alþingis sendir forsætisráðherra tóninn Umboðsmaður Alþingis bendir forsætisráðherra á að stjórnvöld hafi haft tækifæri til aðhafast í Magma-málinu en sleppt því, í bréfi sem fréttastofa hefur undir höndum. Þá virðast hann draga það í efa að ríkisstjórnin viðhafi vandaða stjórnsýsluhætti. 19.1.2011 19:04
„Það er alltaf von, ég ætla ekki að missa hana“ „Það fyrsta sem ég fékk að heyra þegar ég vaknaði aftur var: Þú ert ekkert að fara labba aftur,“ segir Pétur Kristján Guðmundsson sem féll fram af snjóhengju í Ausurríki á gamlárskvöld. 19.1.2011 20:51
Beljan Glæta spáir Noregi sigri Beljan Glæta frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi hefur ekki klikkað í spádómum sínum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð. Hún hefur spáð Íslandi sigri í öllum leikjum mótsins og það hefur allt gengið eftir enda er Ísland taplaust á mótinu. En nú hefur Glæta tekið aðra stefnu og spái Noregi sigri í leiknum gegn Íslandi á morgun. 19.1.2011 20:30
Skiptir um skoðanir á ESB reglulega Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík segir í dagbók sinni á Facebook að hann skipti reglulega um skoðanir á Evrópusambandinu reglulega en hann sat kynningarfund um ESB í dag. 19.1.2011 20:24
Leita áfram að 15 ára gömlum pilti sem framdi vopnað rán á Selfossi Leit stendur enn yfir af 15 ára gömlum pilti sem framdi vopnað rán í verslun Samkaupa á Selfossi klukkan hálf sex í dag. Verið er að leita á Selfossi sem og í nálægum bæjum, svo sem Eyrarbakka, Stokkseyri og Hveragerði. Pilturinn ógnaði afgreiðslustúlku með hníf. 19.1.2011 20:10
Finni og Dani unnu 47 milljónir í Víkingalottóinu Finni og Dani voru með allar tölur réttar í Víkingalottóinu í kvöld. Þeir fá sitthvorar 47 milljónirnar í vasann. Tveir Íslendingar voru með fjórar tölur réttar í röð og fá þeir 100 þúsund krónur hvor. 19.1.2011 20:00
Kemur vel til greina að taka hlutafélag af skrá Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, segir vel koma til greina að taka hlutafélag af skrá, skili menn ekki ársreikningum eins og mörg dæmi sýni. Það hefði í för með sér að eigendur félaganna bæru ótakmarkaða persónulega ábyrgð á rekstri og skuldum félaganna. 19.1.2011 19:19
Bréfberinn sleppti að bera út bréfin Um það bil þrjú hundruð manns í Grafarvogi fengu póst stimplaðan í sumar afhentan nú í vikunni ásamt afsökunarbréfi frá Íslandspósti. Starfsmaður Íslandspósts, sem nú hefur verið sagt upp, hafði sleppt því að bera út bréfin. 19.1.2011 19:10
Vopnað rán á Selfossi: Sýndi afgreiðslustúlku hníf Lögreglan á Selfossi leitar nú að manni sem framdi vopnað rán í verslun Samkaupa við Tryggvagötu á Selfossi klukkan hálf sex í dag. Þegar lögreglan fékk tilkynningu um ránið fór hún strax á vettvang en þá var ræninginn á bak og burt. 19.1.2011 18:58
Skilyrði Orkustofnunar gæti seinkað Reykjanesvirkjun Skilyrði sem Orkustofnun hefur sett fyrir stækkun Reykjanesvirkjunar eykur virkjunarkostnað og gæti seinkað framkvæmdum. Smíði álversins í Helguvík hangir á spýtunni. 19.1.2011 18:45
Sigurjón vísaði á forstjóra FME Forstjóri Fjármálaeftirlitsins sat í stjórn aflandsfélags sem hélt utan um kauprétti starfsmanna Landsbankans og hefur Sigurjón Þ. Árnason vísað á hann í skýrslutökum hjá embætti sérstaks saksóknara. 19.1.2011 18:44
Leggjast gegn staðgöngumæðrun Starfshópur heilbrigðisráðuneytisins um staðgöngumæðrun leggjst gegn því að staðgöngumæðrun yrði heimiluð hér á landi. Í sama streng tekur siðfræðiráð Læknafélagsins. Þrátt fyrir þetta hafa nokkrir þingmenn, tveir fyrrverandi heilbrigðisráðherrar þar á meðal, lagt til að hún verði heimiluð. Forstöðumaður Siðfræðistofnunar, segir að enn sé mörgum spurningum ósvarað um staðgöngumæðrun. 19.1.2011 18:42
Röktu spor innbrotsþjófsins Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í Árbæ í gærkvöld en sá hafði brotist inn í hús í hverfinu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu tók þjófurinn fartölvu, myndavél og skartgripi en hinum stolnu munum var komið aftur í réttar hendur. Þjófurinn skildi eftir spor utan við húsið sem voru rakin eftir allnokkurn spotta. 19.1.2011 16:27