Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bílstjórinn látinn Maðurinn sem var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys í Langadal í gærkvöldi er látinn. Samkvæmt vakthafandi lækni á slysadeild Landspítlans var maðurinn úrskurðaður látinn skömmu eftir komuna á spítalann. Hann var á fertugsaldri. 28.12.2010 07:31
Fjölskylda slapp vel þegar bíllinn valt í Súðavíkurhlíð Fjögurra manna fjölskylda slapp vel þegar bíll þeirra valt á veginum um Súðavíkurhlíð. Stórgrýti hafði fallið á veginn og þegar ökumaðurinn reyndi að sveigja hjá því missti hann stjórn á bílnum sem fór eina veltu ofan vegar. Hjón voru í bílnum ásamt börnum sínum tveim, sex mánaða og þriggja ára. 28.12.2010 07:23
Áttavilltur maður kveikti í rusli á Selfossi Einn maður gistir fangageymslur lögreglunnar á Selfossi en hann hafði verið með mikil læti fyrir sjúkrahús bæjarins. Að sögn lögreglu virtist maðurinn undir áhrifum, áttavilltur og ruglaður. Hann kveikti meðal annars í laufblöðum og rusli við inngang sjúkrahússins og þegar lögregla kom á vettvang streittist hann á móti og slóst við lögreglumennina. Þeir höfðu þó betur og verður maðurinn yfirheyrður síðar í dag þegar hann nær áttum. 28.12.2010 07:22
Tveir í haldi grunaðir um líkamsárás Mikið gekk á í höfuðborginni í nótt miðað við að um aðfaranótt þriðjudags hafi verið að ræða. Um klukkan háltólf var líkamsárás gerð í miðbænum og situr einn í fangageymslu grunaður um aðild að henni en nokkrir aðilar réðust að fólki með þeim afleiðingum að einn er mögulega kjálkabrotinn. 28.12.2010 07:16
Þjóðvegur eitt opnaður eftir alvarlegt bílslys Þjóðvegur eitt um Langadal hefur opnaður til vesturs og á næstu mínútum ætti að vera hægt að opna til austurs. Vegurinn lokaðist vegna alvarlegs umferðarslyss á áttunda tímanum í gærkvöldi. 28.12.2010 07:02
Lilja íhugar að segja sig úr þingflokki VG Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, furðar sig á viðbrögðum flokksforystunnar við hjásetu hennar, Atla Gíslasonar og Ásmundar Einars Daðasonar, við afgreiðslu fjárlaga fyrr í mánuðinum. Hún telur þau hörð og ekki til sátta fallin. Vísar hún til skrifa Árna Þórs Sigurðssonar, starfandi formanns þingflokksins, og Steingríms J. Sigfússonar formanns. Hún segir að svo kunni að fara að í það minnsta hún segi sig úr þingflokknum. 28.12.2010 06:00
Segja mikilvægt að ræða peningamálin ASÍ og Samtök atvinnulífsins eru sammála um að umræða um nýja peningamálastefnu, sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, hóf í Fréttablaðinu í gær, sé afar mikilvæg. Forsvarsmenn samtakanna eru sammála um að botn verði að fá í umræðu um gjaldmiðlamálin. 28.12.2010 06:00
Verðlaunanýyrði varð til í eldgosinu Orð sem sprottið er upp úr gosinu í Eyjafjallajökli í vor hefur verið valið nýyrði ársins í Noregi. Orðið er „askefast“ eða „öskufastur“ og haft yfir þá sem komast hvorki lönd né strönd vegna loftmengunar af völdum eldfjallaösku. 28.12.2010 06:00
Eitur mælist í mjólk vegna sorpbrennslu Mengun frá sorpbrennslustöðinni Funa á Ísafirði varð til þess að mjólk frá lögbýli í nágrenni stöðvarinnar var innkölluð og framleiðsla stöðvuð að kröfu Matvælastofnunar (MAST). Bæjaryfirvöld á Ísafirði hafa ákveðið að sorpbrennslu í stöðinni verði hætt en mengaðan reyk hefur lagt frá sorpbrennslunni árum saman. 28.12.2010 06:00
Von á ákærum eftir áramót Sérstakur saksóknari hefur nú tæp áttatíu mál til rannsóknar og hefur þeim fjölgað mjög á þessu ári. „Síðan er slatti af kærum sem við vitum af á leiðinni frá Fjármálaeftirlitinu og víðar,“ segir Ólafur Þór Hauksson. Búið er að taka skýrslur af á þriðja hundrað manns frá því að embættið var sett á laggirnar. 28.12.2010 05:00
Fiskveiðiárið gefur forskot Norðmenn verða af verulegum verðmætum fyrir sjávarafurðir sínar og gætu lært af Íslendingum hvernig á að hlusta eftir þörfum markaðarins. Þetta segir Yannick Forget-Dugaret, forstjóri stærsta framleiðanda og dreifingaraðila ferskra sjávarafurða í Frakklandi. Fyrirtæki hans Pomona, sem er með höfuðstöðvar í Boulogne, rekur 18 dreifingarstöðvar þar í landi. 28.12.2010 04:00
Áfram fylgst með fjármálum sveitarstjórnarmál Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) mun ekki aðhafast frekar vegna fjármála Kópavogsbæjar. Þetta kemur fram í bréfi EFS til bæjarstjórnar dagsettu 17. desember síðastliðinn. 28.12.2010 03:00
Neyðarástand vegna hríðar Neyðarástand ríkti á dönsku eyjunni Borgundarhólma í gær sökum gríðarlegs fannfergis sem lamaði þar allar samgöngur. 28.12.2010 02:00
Óttast kostnað af sumarhúsum Meirihluti bæjarstjórnar Stykkishólms hefur samþykkt að skipulagt verði svæði fyrir frístundahús við Arnarborg, norðaustan við svæði sem Skipavík hefur til umráða. Lóðirnar eiga að vera til almennrar úthlutunar. 28.12.2010 01:45
Þjóðvegur 1 lokaður við Húnaver vegna umferðaróhapps Þjóðvegi eitt er lokað við Húnaver í Húnavatnssýslu. Þetta kom fram í fréttum RÚV í kvöld. Flutningabíll virðist hafa lent í árekstri og lokar fyrir veginn. Lögreglan á Blönduósi var upptekin á vettvangi og gat ekki rætt við fjölmiðla vegna málsins. 27.12.2010 19:41
Hjón á sjötugsaldri klemmdu þjófinn í glugganum Hjónum á sjötugsaldri brá heldur betur í brún þegar að þau komu heim til sín um tvöleytið í dag. Í þann mund sem þau komu inn í íbúð sína í Reykjavík er þar ókunnugur maður inni sem var búinn að tína til hluti í íbúðinni. 27.12.2010 16:12
Dýpkunarskipinu seinkar til Landeyjahafnar Til stóð að Scandia, dýpkunarskip Íslenska Gámafélagsins, ætti að hefja vinnu við dýpkun í Landeyjahöfn í byrjun janúar 2011. Skipið átti að fara í skoðun hjá Siglingastofnun í Danmörku þann 15. desember en vegna tafa á viðgerð þurfti að seinka skoðun og fékk skipið ekki úthlutað nýrri skoðun fyrr en 10. janúar. Því er ljóst að skipið kemur ekki til vinnu fyrr en um miðjan janúar. 27.12.2010 14:31
Skallaði mann fyrir framan lögregluna Verið er að yfirheyra strák um tvítugt sem skallaði annan mann um þrjú leytið í nótt. Atvikið átti sér stað á bílastæði við Eyrarveg á Selfossi en lögregla fékk tilkynningu um að tveir hópar ættu í einhverjum útistöðum. 27.12.2010 14:05
Einhverjir lagðir í einelti í Áramótaskaupinu Þeir sem hafa verið áberandi í íslensku samfélagi í ár geta farið að skjálfa á beinunum. Í það minnsta játar leikstjóri Áramótaskaupsins því að einhverjir verið lagðir í einelti, þegar hann er spurður út í málið. „Já, það er alltaf tekið á einhverjum. Þeir sem hafa verið fyndnastir á árinu, þeir fá mest," segir Gunnar Björn Guðmundsson, leikstjóri Áramótaskaupsins. 27.12.2010 13:30
Óvissustigi aflétt á Austurlandi Óvissustigi vegna flóðahættu á Austurlandi hefur verið aflétt. Ekki er vitað til þess að þar hafi orðið flóð eða krapastíflur en mikið óveður var um tíma, segir í tilkynningu frá Almannavörnum. 27.12.2010 12:47
Árið 2010 eitt það hlýjasta frá því mælingar hófust Árið sem er að líða er eitt það hlýjasta frá því mælingar hófust hér á landi. Átta sinnum mældist mánaðarhiti yfir meðaltali og sumarið var óvenju gott 27.12.2010 12:43
Tíu þúsund trassar: Ríkisskattstjóri undirbýr aðgerðir Fleiri en tíu þúsund fyrirtæki eiga eftir að skila ársreikningi til ársreikningaskrár, en ríkisskattstjóri segir sum fyrirtæki hafa trassað skilin svo árum skipti. Hann skorar á fyrirtæki að gera bragarbót á og boðar aðgerðir á næstu mánuðum. 27.12.2010 12:40
Ruddist inn á heimili Karlmaðurinn ruddist á heimili í Hrunamannahreppi í óþökk húsráðanda í gærkvöld. Lögreglu- og sjúkralið var sent á vettvang. 27.12.2010 11:27
Læsa póstkössum til að koma í veg fyrir skemmdarverk Íslandspóstur ætlar læsa póstkössum sem eru staðsettir utanhúss á höfuðborgarsvæðinu nú yfir áramótin. Þetta hefur verið gerst síðastliðin ár vegna ítrekaðra skemmdarverka sem unnin eru á póstkössum á þessum árstíma. 27.12.2010 11:17
Íslensk fjölskylda hélt jól með Obama Íslensk kona, Arnheiður Hlín Guðmundsdóttir, maður hennar og tvö börn hittu Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, og eiginkonu hans á Hawaí um helgina. Þar var haldið jólahlaðborð fyrir bandaríska hermenn sem eru starfandi á Hawaí en eiginmaður Arnheiðar er bandarískur og starfar fyrir herinn á Hawaí. 27.12.2010 10:17
Íslenskur bakari gerir það gott í Gimli Kleinur, laufabrauð, kransakaka og rúgbrauð úr bakarínu Reykjavik Cafe hafa sannarlega slegið í gegn hjá íbúum Gimli í Manitobafylki í Kanada. Birgir Róbertsson bakari er einn af þeim sem ákvað að leita tækifæranna í nýju landi og flutti til Kanada í júní 2009. Bakaríið opnaði hann í apríl og hafa viðskiptin sannarlega blómstrað. 27.12.2010 10:13
„Lítur út fyrir að Ísland sé hinn fullkomni staður fyrir glæpi" „Ég vona að þú skammist þín," skrifar Aríel Jóhann Árnason, 21 árs námsmaður og nýbakaður faðir, í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir frá því að á Þorláksmessu hafi hann farið í Kringluna og þar hafi veskinu hans verið stolið. Öryggismyndavélar náðu mynd af þjófinum, sem Aríel segir vera konu í hvítri úlpu. 27.12.2010 10:12
Flugeldasala hefst á morgun Um átta til níu þúsund sjálfboðaliðar á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar munu taka þátt í að selja flugelda fyrir þessi áramót en sölustaðir opna á morgun. 27.12.2010 09:28
Langt í að Herjólfur komist í Landeyjahöfn Allt að mánuður eða meira gæti liðið þar til Herjólfur getur aftur siglt til Landeyjahafnar, að því er Sigurður Áss Grétarsson hjá Siglingastofnun segir í viðtali við blaðið Fréttir í Vestmannaeyjum. 27.12.2010 08:40
Ekið á hross við Hrepphóla Ekið var á hest á þjóðveginum við Hrepphóla í uppsveitum Árnessýslu undir morgun. Ökumaðurinn, sem slapp ómeiddur, óskaði eftir aðstoð lögreglunnar á Selfossi, þar sem hesturinn var mikið slasaður. 27.12.2010 08:04
Erill hjá lögreglu í borginni og á Selfossi Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna skemmtanahalds í nótt en hvergi dró þó til alvarlegra tíðinda og engin líkamsárás var kærð. 27.12.2010 08:01
Sólheimadeilan gæti fengið farsælan endi Forsvarsmenn Sólheima í Grímsnesi og Sveitarfélagsins Árborgar munu funda um stöðu Sólheima á morgun. Á fundinum mun koma í ljós hvort vilji er til þess af beggja hálfu að halda rekstrinum óbreyttum áfram. 27.12.2010 07:30
Þjóðvegurinn opnaður - vatnavextir á Sandskeiði Þjóðvegur-eitt, við Seljalandsá, skammt frá Markarfljóti, var opnaður í nótt að viðgerð lokinni, en hann rofnaði í vatnavöxtum við brúnna í gær. 27.12.2010 07:21
Boðar víðtækt samráð um nýja peningamálastefnu Boðað verður til viðtæks samráðs og umræðu um mörkun nýrrar peningamálastefnu, skrifar Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, í grein í Fréttablaðinu í dag. 27.12.2010 07:00
Þrjú innbrot í nótt Þrjú innbrot voru framin á höfuðborgarsvæðinu í nótt, tvö í heimahús og eitt í geymsluhúsnæði. Auk þess var þjófnaður kærður á veitingahúsi. 27.12.2010 06:58
Spá mildu veðri um áramótin Útlit er fyrir fremur milt veður á landinu öllu um áramótin. Spár gera ráð fyrir hægri suð-vestanátt og fremur hlýju veðri, segir Haraldur Eiríksson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. 27.12.2010 06:00
Jólatrjám stolið: Finna sárin í skóginum á hverju ári Nokkuð hefur borið á því undanfarin ár að fólk hefur tekið jólatré ófrjálsri hendi í Hnausaskógi í Þorskafirði. Umsjónarmenn Skóga hafa boðið íbúum Reykhólahrepps að koma í Hnausaskóg þegar þeir vilja og njóta þess sem skógurinn hefur að bjóða, til að mynda að tína ber, sveppi og njóta náttúrunnar, en skógarhögg hefur ekki verið eitt af þeim atriðum. 27.12.2010 06:00
Nýr stjórnmálaflokkur að fæðast Unnið er að stofnun nýs stjórnmálaflokks hægra megin við miðju sem ber vinnuheitið Norræni borgaraflokkurinn. Flokkurinn sækir sér fyrirmyndir til hægriflokka á Norðurlöndunum og í Mið-Evrópu. 27.12.2010 05:30
Gæslan þarf þriðju þyrluna til að geta sinnt starfi sínu Nýgert samkomulag ríkja Norðurskautsráðsins um skipulag leitar- og björgunar á hafsvæðinu umhverfis Ísland breytir litlu í áætlunum Landhelgisgæslunnar að sögn Hrafnhildar Brynju Stefánsdóttur, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar. Hún segir að vitað sé að samningurinn feli í sér ábyrgð á umfangsmiklu svæði en þarfagreining Gæslunnar frá árinu 2007, varðandi tækjakost til að sinna hlutverki sínu, sé enn í gildi. 27.12.2010 05:00
Skipinu fagnað með flugeldum Fjölmenni var á bryggjunni í Vestmannaeyjum að morgni aðfangadags til að taka á móti Þórunni Sveinsdóttur VE-401, nýju togskipi útgerðarfélagsins Óss ehf., þegar hún sigldi inn í heimahöfn í fyrsta skipti. 27.12.2010 03:00
Stjórnin minnt á sóknaráætlun Bæjarráð Grindavíkurbæjar mótmælir hugmyndum um vegatolla á Reykjanesbraut og segir auknar álögur í formi vegatolla munu hafa verulega neikvæð áhrif á búsetu, atvinnustig, fasteignaverð og fyrirtæki á Suðurnesjum. 27.12.2010 02:00
Þjóðvegur eitt lokaður vegna skemmda á brúnni yfir Seljalandsá Vegna vatnavaxta og skemmda á brúnni yfir Seljalandsá, í nágrenni Markarfljóts, er þjóðvegur eitt lokaður eins og er, meðan verið er að kanna skemmdir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra. 26.12.2010 16:24
Flogið til Bíldudals - Ísafjarðarflugi aflýst Flugfélagið Ernir flaug frá Reykjavíkurflugvelli til Bíldudals í dag en það er eina innanlandsflugið sem af er degi. Allt innanlandsflug Flugfélags Íslands hefur legið niðri í dag vegna vonskuveðurs. 26.12.2010 13:40
Ekkert flug vegna háloftavinda og ísingar Innanlandsflug liggur niðri samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands. Ástæðan eru háloftavindar og ísing í lofti. 26.12.2010 11:56
Mældu 360 jarðskjálfta á einni viku - Sá stærsti 3,4 á richter Alls mældust 360 jarðskjálftar í vikunni sem er að líða samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Skjálftahrina var við Krýsuvík í gær en stærsti skjálftinn sem mældist þar var 3,2 á richter. 26.12.2010 10:48