Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikilvægt að veita fjármagn til bólusetningar gegn leghálskrabbameini Forstjóri Krabbameinsfélagsins segir mikilvægt að Alþingi hafi ákveðið að veita fjármagni til að bólusetja tólf ára stúlkur gegn leghálskrabbameini. Byrjað verður að bólusetja næsta sumar. 25.12.2010 19:00
Meirihlutinn af tækjunum fenginn að gjöf Landspítalinn hefur fengið gjafir sem hlaupa á mörg hundruð milljónum króna í ár. Forstjóri spítalans kann velunnurun spítalans bestu þakkir, en segir áhyggjuefni að þurfa að treysta á gjafir við rekstur spítalans. 25.12.2010 19:00
Fjölmargir fóru í kirkju á aðfangadag Fjölmennt var í kirkjum landsins í gærdag og er prestar sammála um að sjaldan hafi eins margir sótt guðþjónustu á aðfangadag. 25.12.2010 18:45
Manndrápstilraun í Bústaðarhverfi: Vildu á aðra milljón í "sekt" Skotárásin í Ásgarði í gær var tilraun til manndráps, að mati lögreglunnar. Fjölskyldufaðirinn sem varð fyrir árásinni segir börn sín hafa verið lögð í lífshættu. Fjórir menn voru úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald, en dómari féllst ekki á varðhald yfir manninum sem grunaður er um að hafa skipulagt árásina. 25.12.2010 18:20
Jarðskjálfti upp á 3 á richter á Reykjanesi Jarðskjálfti upp á 3 á richter varð austur af Keili á Reykjanesi nú um fimm leytið. Í kjölfarið fylgdu nokkrir minni skjálftar upp á 1 á richter. 25.12.2010 18:07
Óvíst hvort Herjólfur kemst til Þorlákshafnar Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á morgun, annan í jólum, þar sem veðurspá er afar slæm. Fyrsta ferð frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:30. 25.12.2010 17:28
Stormviðvörun - ekkert ferðaveður í kvöld og nótt Það verður vonskuveður á landinu í nótt og á morgun, og ekkert ferðaveður. Spáð er mikilli úrkomu á suðaustanverðu landinu. Víða stormi og roki í nótt og á morgun. 25.12.2010 15:48
Fjórir karlmenn úrskurðaðir í 10 daga gæsluvarðhald Fjórir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í 10 daga gæsluvarðhald vegna skotárásar í Fossvogi í gærmorgun. Farið var fram á gæsluvarðhald yfir fimm mönnum, en dómari féllst ekki á gæsluvarðhald yfir einum þeirra. 25.12.2010 14:51
Jón Gnarr óskar gleðilegra jóla sem Svarthöfði Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, hefur látið inn jólakveðju á Facebook. Þar óskar hann Íslendingum gleðilegra og kærleiksríkra jóla. 25.12.2010 14:40
Aftansöngurinn í Grafarvogskirkju í heild sinni Séra Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, fór fyrir aftansöngnum í Grafarvogskirkju í gær. Hann gagnrýndi meðal annars harðlega fyrirætlanir mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar um aðskilnað leikskóla- og grunnaskólastarfs annars vegar og kirkjulegs starfs hinsvegar sem boðaður hefur verið. 25.12.2010 13:47
Flugmenn Icelandair mokuðu snjóinn burt Íslenska forsetafrúin skrifaði stuttan pistil um dugnað íslenskra flugmanna í erlendan vefmiðil á aðfangadag. 25.12.2010 13:31
Vilja viðskiptabann á Ísland Alþjóðasamtök um vernd hvala- og höfrunga hvetja bandarísk stjórnvöld til að koma á viðskiptabanni við Íslendinga vegna hvalveiða. Á þessu ári fluttu Íslendingar út 880 tonn af hvalkjöti til Noregs, Færeyja og Japan. 25.12.2010 12:45
Meirihluti stórverslana lokaður í dag Meirihluti stórverslana er lokaður í dag, jóladag. Matvöruverslunin Pétursbúð á Ránargötu er opin frá klukkan ellefu til fjögur síðdegis. 25.12.2010 12:00
Skotárás í Bústaðarhverfi: Ung börn á heimilinu Grunur leikur á að skotárásin í Ásgarði í Bústaðarhverfinu í gærmorgun tengist handrukkun en á heimilinu eru hjón með ung börn. Sex voru handteknir og fimm gistu fangageymslur vegna málsins og hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir þeim. 25.12.2010 11:54
Sóttu fyrirbura og bráðveikan sjúkling til Grænlands Sjúkraflugvél Mýflugs, TF-MYX, fór í gær til Nuuk á vesturströnd Grænlands að sækja bráðveikan sjúkling. Ásamt flugmönnum Mýflugs var læknir og sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði Akureyrar um borð. 25.12.2010 11:39
Þriggja bíla árekstur - ökumaður undir áhrifum fíkniefna Þriggja bíla árekstur varð í Kópavoginum í gærkvöldi. Engin slasaðist alvarlega en tveir bílar eru óökufærir eftir áreksturinn. 25.12.2010 10:11
Gekk á milli húsa og reyndi að brjótast inn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann um sexleytið í morgun sem var að ganga á milli húsa í austurhluta Reykjavíkur og var að reyna að spenna upp glugga. 25.12.2010 10:06
Vill ekki verða þræll í Nepal Lífi mínu er hreinlega lokið ef ég fer aftur heim. Þar bíða mín gamlir karlar og ömurlegar aðstæður – í raun bara þrældómur,“ segir Priyanka Thapa, 22 ára gamall Nepalbúi sem búið hefur á Íslandi síðastliðið ár. 24.12.2010 07:00
Fljúga til Nuuk til að sækja sjúkling Þessa stundina er sjúkraflugvél Mýflugs, TF-MYX, að leggja af stað frá Akureyri áleiðis til á Nuuk á vesturströnd Grænlands að sækja bráðveikan sjúkling. Ásamt flugmönnum Mýflugs eru læknir frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og sjúkraflutningamaður frá Slökkviliði Akureyrar um borð í vélinni. 24.12.2010 12:28
Handrukkaramál í Fossvogi Umfangsmikil lögregluaðgerð stendur yfir á Bústaðarveginum, nærri Landspítalanum, þessa stundina. Fjöldi lögreglumanna er á staðnum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er um handrukkaramál að ræða en ekki fengust frekari upplýsingar um málavöxtu. Fjöldi lögreglubíla er á staðnum og sjúkrabíll. 24.12.2010 12:17
Landspítalanum berast gjafir fyrir hundruð milljóna Landspítalinn er að miklu leyti orðinn háður gjöfum félagasamtaka, fyrirtækja og einstaklinga til að hægt sé að viðhalda og endurnýja tæki og búnað spítalans, segir Björn Zoëga, forstjóri spítalans á vef hans. 24.12.2010 10:59
Aftansöngur í beinni á Stöð 2 og Vísi Búist er við því að tugþúsundir manna sæki helgihald yfir jólahátíðina. Á milli sex og sjö hundruð helgistundir verða á vegum þjóðkirkjunnar um allt land um jól og áramót, auk þess sem messur verða á sjúkrahúsum, dvalarheimilum og víðar. 24.12.2010 10:01
Gríðarlega hvasst undir Eyjafjöllum Gríðarlega hvasst hefur verið undir Eyjafjöllum undanfarna klukkutíma og hefur vindstyrkurinn farið upp í allt að 35-40 metra á sekúndu í mestu hviðunum. Lögreglumaður á Hvolsvelli sem fréttastofa talaði við segir að sér sé ekki kunnugt um tjón af völdum óveðursins. Hins vegar sé töluvert grjót í fjallinu og við það sem geti fokið. Því sé rétt fyrir ökumenn að hafa varan á og fylgjast með upplýsingum á vef Vegagerðarinnar áður en það ákveður að ferðast. 24.12.2010 09:52
Fjöldi fólks vitjar leiða látinna ættingja Búast má við því að fjöldi fólks vitji leiða látinna ættingja í kirkjugörðum í dag, venju samkvæmt. 24.12.2010 09:44
Priyanka orðin ein af fjölskyldunni Konan mín á tvö börn úr fyrra sambandi með Nepala. Sjálfur á ég tvö börn af fyrra sambandi og svo eru börn bróður konunnar að miklu leyti hjá okkur líka, þannig að allt í allt eru þetta fimm til sex börn sem eru á heimilinu hverju sinni,“ segir Þórólfur Gunnarsson, framkvæmdastjóri hjá Sagasystem. 24.12.2010 09:30
Innbrot á þremur stöðum Brotist var inn á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Brotist var inn í fyrirtæki á Smiðjuvegi um miðja nótt, en ekki er sjáanlegt að neinu hafi verið stolið öðru en útvarpstæki. Lögreglan segir að þjófavarnarkerfi hafi farið í gang og það virðist hafa fælt þjófana í burtu. 24.12.2010 09:16
Verðmæti fíkniefnanna nemur tugum milljóna Ætla má að verðmæti fíkniefna, sem tollverðir á Keflavíkurflugvelli, fundu í fórum Íslendings í fyrrakvöld hlaupi á tugum milljóna króna. 24.12.2010 09:00
Skap-Ofsi til ákæruvaldsins Mál málningarslettumannsins sem kallað hefur sig Skap-Ofsa er komið til ákæruvalds lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar verður tekin ákvörðun um hvort maðurinn verður ákærður fyrir eignaspjöll eður ei. 24.12.2010 08:00
Nemendur afar ósáttir við vinnubrögðin Nemendum á útstillingabraut í Iðnskólanum í Hafnarfirði hefur verið tilkynnt bréflega að nám í greininni verði fellt niður frá og með áramótum. 24.12.2010 08:00
Missti allt sitt á einum degi Hundurinn Spotti, sem dvalið hefur á fósturheimili Dýrahjálpar frá því í ágúst, missti allt sem hann átti á einum degi. Tík sem var á heimili með honum, ári eldri en hann og besti félagi fékk krabbamein þegar flytja átti þau tvö á fósturheimilið. Það varð því að svæfa hana og sama dag varð Spotti að sjá á bak eiganda sínum frá upphafi og heimili sínu, því eigandinn þurfti að flytja til foreldra sinna, þar sem ekki var hægt að hafa hunda. 24.12.2010 07:30
Jólasnjórinn staldrar stutt við Jólasnjórinn mun sennilega ekki staldra lengi við þar sem veðurspá gerir ráð fyrir hlýnandi veðri næstu daga. 24.12.2010 07:00
Ljósmyndakeppni Fréttablaðsins: Fékk myndavél í verðlaun Sveinn Bjarki Brynjarsson, sextán ára ljósmyndari úr Árbæ, tók við verðlaunum fyrir bestu ljósmyndina af tunglmyrkvanum fyrr í vikunni í gær. Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, afhenti Sveini verðlaunin, myndavél, í húsakynnum Fréttablaðsins. 24.12.2010 06:00
Fréttaskýring: Mörg úrræði gegn vanlíðan um jólin Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem glíma við andleg eða tilfinningaleg vandamál um jólin? 24.12.2010 06:00
Reykur úr kjallaraíbúð í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna reyks sem kom út frá kjallaraíbúð í miðbæ Hafnarfjarðar. Tveir slökkviliðsbílar og einn sjúkrabíll voru sendir á staðinn. 23.12.2010 22:31
Herjólfur fer til Þorlákshafnar á aðfangadag Herjólfur siglir á aðfangadag eina ferð til Þorlákshafnar þar sem veðurspá er slæm fyrir Landeyjahöfn. 23.12.2010 21:35
Missti stjórn á bílnum og valt Bíll valt á gatnamótum Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar klukkan korter yfir níu í kvöld. Einn maður var í bílnum og komst hann sjálfur út úr honum. Ekki er talið að hann sé alvarlega slasaður en hann mun fara til læknisskoðunar til öryggis. 23.12.2010 21:31
Spyr hvort hjásetan hafi verið þvingunaraðgerð Árni Þór Sigurðsson, starfandi formaður þingflokks Vinstri grænna, spyr hvort hjáseta þriggja stjórnarþingmanna við afgreiðslu fjárlaga sé þvingunaraðgerð til að knýja ríkisstjórn og meirihluta hennar til að breyta um stefnu, í nýrri greinargerð sem fréttastofa hefur undir höndum 23.12.2010 18:37
Kveiktu í jólageitinni fyrir utan Ikea Margra áratuga gömul sænsk jólahefð barst til íslands í nótt en þá kveiktu brennuvargar í jólageitinni sem staðið hefur fyrir utan Ikea í tvo mánuði. Brennuvargarnir náðust en framkvæmdastjóri Ikea segist í jólaskapi og ætlar ekki að kæra brennuvargana ef þeir hreinsa til eftir sig. 23.12.2010 19:19
Slegist um málverk Mikil ásókn er í olíumálverk eftir Eggert Pétursson en það er nú í eigu þrotabús VBS fjárfestingabanka, sem hefur auglýst það til sölu. Verkið er metið á margar milljónir. 23.12.2010 19:04
Einkavæðing áfram í skoðun Áfram verður unnið að því að vinda ofan af einkavæðingu í orkugeiranum, segir þingmaður VG. Enginn afsláttur verði gefinn af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar. Gengið hefur verið að fullu frá kaupum Magma Energy á HS Orku. 23.12.2010 18:38
NATÓ aðmíráli var synjað um skoðunarferð i Höfða Reykjavíkurborg hafnaði ósk yfirmanns hjá NATÓ sem hér var í opinberum erindagjörðum um að fá að skoða Höfða. Jón Gnarr, borgarstjóri, var aldrei látinn vita, segir skrifstofustjóri borgarstjóra. 23.12.2010 18:27
Færri fengu aðstoð en í fyrra Í ár sóttu 4043 um jólaaðstoð fyrir jólin og 95% þeirra náðu í jólaaðstoð sína, eða 3845. Það eru færri heldur en í fyrra en þá náðu 3946 í aðstoðina, sem er 2,5% fækkun. Um 170 sóttu um aðstoð á Akureyri. 23.12.2010 18:00
Stefán Haukur hættir sem sendiherra Utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um breytingar á starfsstöðvum sendiherra í utanríkisþjónustunni. Stefán Haukur Jóhannesson, sem hefur verið sendiherra í Brussel frá árinu 2005, flyst heim til starfa í ráðuneytinu 15. janúar næstkomandi og heldur áfram að gegna starfi aðalsamningamanns Íslands í aðildarviðræðum við ESB. 23.12.2010 17:42
Vann 250 þúsund krónur í beinni útsendingu „Ég er svo aldeilis hissa, þakka þér kærlega fyrir,“ sagði Rósa Marta Guðnadóttir frá Eyrarbakka þegar Rúnar Róbertsson á Bylgjunni tilkynnti henni að hún hefði unnið 250 þúsund króna gjafabréf í Króuna. 23.12.2010 17:13
Missti af jarðarför föður síns vegna lagaflækja „Sigurinn er ekki í höfn. Jóel er enn þá vegabréfalaus,“ segir Einar Þór Færseth, sem er fastur ásamt konu sinni, Helgu Sveinsdóttur, úti í Indlandi, en fram kom í Fréttablaðinu síðustu helgi að þau hjónin eignuðust drenginn Jóel Færseth með aðstoð staðgöngumóður. 23.12.2010 16:28