Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslenskum nemum í Bandaríkjunum fjölgaði Íslenskum nemendum við háskóla í Bandaríkjunum fjölgaði um 6,5% á síðasta skólaári miðað við árið þar á undan. 18.11.2010 10:01
Sjö ára stelpur vildu fá lánaða hunda til að „bíta krakka“ Eigandi tveggja Schafer-hunda hefur áhyggjur af því að fólk sé að lána börnum hundana sína og leyfa þeim að fara einum með þá út í göngutúr. Hún segist nýverið hafa fengið beiðni frá ókunnugum sjö ára stelpum sem vildu fara út með hundana hennar en þegar hún spurðist nánar fyrir ætluðu stelpurnar að siga hundunum á önnur börn. 18.11.2010 09:58
Dagblöðum fækkað úr fimm í tvö Dagblöðum á Íslandi hefur fækkað úr fimm í tvö frá árinu 1995 og hafa ekki verið færri síðan á öðrum áratug síðustu aldar. Í gögnum frá Hagstofunni kemur fram að vikublöðum hefur líka nokkuð fækkað á síðustu árum, eða úr 25 þegar best hefur látið í 21 í fyrra. 18.11.2010 09:27
Gríðarleg umferðarteppa á Miklubrautinni Gríðarleg umferðarteppa var í Ártúnsbrekkunni og Miklubraut nú í morgun og varð til þess að fjöldi manns komst of seint á áfangastað. 18.11.2010 09:24
Fá bara ýsu í netin en eiga ekki kvóta Smábátasjómenn frá Hólmavík og Drangsnesi við Húnaflóa geta ekki lengur róið til þorskveiða, þar sem þeir fá nánast ekkert nema ýsu, en þeir eiga ekki ýsukvóta og ómögulegt er að fá hann leigðan. 18.11.2010 08:30
Stálu flatskjá í Þverholti Brotist var inn í fyrirtæki við Þverholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið stórum flatskjá og einhverju fleiru. Þjófavarnakerfi fór í gang en þjófarnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang skömmu síðar. Þeir virðast hafa verið eldsnöggir á vettvangi og að öllum líkindum komist undan á bíl. 18.11.2010 07:53
Herjólfur snarsnérist í hafnarmynninu Rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskip, ásamt sérfræðingum, ætlar í dag að fara yfir það með skipstjóra ferjunnar, hvað olli því að skipið snar snérist og sló flötu fyrir þegar alda kom undir það í hafnarmynninu að Landeyjahöfn í gærmorgun. 18.11.2010 07:29
Ráðuneytið vill dýrara húsnæði Heilbrigðisráðuneytið vill að ný sameinuð stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins verði til húsa í gömlu Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg. 18.11.2010 07:00
Tekinn með lítra af amfetamínvökva Tæplega fertugur karlmaður er nú fyrir héraðsdómi, ákærður fyrir að hafa reynt að smygla til landsins rúmlega einum lítra af amfetamínvökva. Úr því magni hefði mátt framleiða rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni hér. 18.11.2010 06:00
Gagnrýna hækkun eldsneytisverðs og vilja rök Olíufélögin hækka eldsneytisverð á meðan heimsmarkaðsverð á olíu lækkar. Lítrinn kostar nú um 200 krónur hvar sem er á landinu. Neytendasamtökin og FÍB gagnrýna hækkanir og vilja sjá rökin fyrir þeim. 18.11.2010 06:00
Presturinn hitti eldri borgarana Auka á samstarf á milli kirkju og eldri borgara í Stykkishólmi. Samkvæmt tillögu þjónustuhóps aldraðra á íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins að koma á þessu aukna samstarfi sem sagt er geta verið af margvíslegum toga. 18.11.2010 06:00
Nýjar leiðir með aukningu vatnsrennslis Háskólinn í Reykjavík (HR), Innovit og Landsvirkjun halda hádegisfund í húsnæði HR í dag um nýsköpun í orkugeiranum. Fundurinn er haldinn í tilefni Alþjóðlegu athafnavikunnar. 18.11.2010 06:00
Fjárdráttur úr sjóðum starfsmannafélags Tæplega fertug kona hefur verið dæmd í héraðsdómi í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að draga sér tæplega eina milljón króna úr sjóði starfsmannafélags Íbúðalánasjóðs. Konan gegndi starfi formanns starfsmannafélagins þegar þetta gerðist. 18.11.2010 06:00
Piltur kærir kynferðisbrot Tæplega tvítugur piltur hefur lagt fram kæru á hendur nær fimmtugum manni, sem situr nú í gæsluvarðhaldi vegna meintra kynferðisbrota gegn börnum, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær. Rannsókn lögreglu beinist að því hvort meintir brotaþolar séu fleiri en þessi eini piltur, en sterkur grunur leikur á að svo sé og að þeir séu af báðum kynjum. 18.11.2010 06:00
700 Íslendingar gætu misst námsstyrki Áætlanir stjórnarflokkanna í Danmörku um að afnema námsmannastyrki, svokallaða SU-styrki, til erlendra ríkisborgara gætu haft veruleg áhrif á afkomu margra Íslendinga sem sækja þar menntun. 18.11.2010 06:00
Fréttaskýring: Yfirlýsingagleði sýnir vanda evruríkjanna Evrópulönd sem hafa evru sem gjaldmiðil sendu í vikunni frá sér yfirlýsingu vegna stöðu Írlands og áréttuðu vilja sinn til að styðja við landið í skuldavanda þess, allt til að tryggja fjármálastöðugleika í evrulöndunum. 18.11.2010 06:00
Stolið úr sjóðum frímúrarastúku Sextugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að draga sér ríflega sex milljónir króna úr sjóðum Frímúrarastúkunnar Draupnis á Húsavík, meðan hann gengdi þar stöðu féhirðis. Féð notaði maðurinn í eigin neyslu. Fjárdrátturinn átti sér stað á árunum 2001 til 2009. Sjóðir stúkunnar sem hann dró sér fé úr voru á þremur bankareikningum. 18.11.2010 06:00
Biðja Ögmund að styðja ECA Bæjarráð Garðs lýsir yfir stuðningi við ECA-flugþjónustuverkefnið og skorar á Ögmund Jónasson samgönguráðherra að veita því brautargengi. Það muni stuðla að fjölbreytni í atvinnusköpun á Suðurnesjum og nýta verðmæti sem liggi í aðstöðunni á Keflavíkurflugvelli. 18.11.2010 06:00
Sósíalistar og stórkapítalistar hafa náð sátt um tvö verkefni „Sósíalistarnir hafa náð saman við stórkapítalistana um tvö verkefni sem þeir vilja vinna að samtímis,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Annars vegar að koma skuldum gjaldþrota banka yfir á íslenskan almenning og hins vegar að koma í veg fyrir að íslenskur almenningur fái leiðrétt stökkbreytt lán sín í íslensku bönkunum.“ 18.11.2010 06:00
Vindmyllur raunhæfur kostur: Best að virkja á Suðurlandi Suðurlandsundirlendið virðist vera það landsvæði sem hentar hvað best fyrir vindrafstöð hér á landi. Eru þetta niðurstöður rannsóknarhóps sem Landsvirkjun setti nýverið af stað til þess að kanna hvernig undirbúa mætti uppsetningu og rekstur vindrafstöðva á Íslandi. 18.11.2010 06:00
Rammar fara í endurvinnslu Þrátt fyrir alla þá fjölmörgu sexstrendinga sem áttu að þekja tónlistarhúsið Hörpu og reyndust gallaðir stefnir stjórn félagsins Totusar ohf., fasteignafélagsins sem reisir tónlistarhúsið, á að opna Hörpu á tilsettum tíma í vor. 18.11.2010 05:00
Hendrikka segir Ted Turner hrifinn af Íslandi ,,Við ræddum um kynni hans af Íslandi og um góðgerðasamtökin Kids Parliament" sagði Hendrikka Waage þegar hún var spurð að því hvað bar á góma í samskiptum hennar og Teds Turner, stofnanda CNN, í boði hjá honum í New York nýlega. ,,Ted Turner hefur komið til Íslands og var ákaflega hrifin af landinu. Hann er núna á leið til Grænlands," sagði Hendrikka. 17.11.2010 21:24
Mikilvægara en krónur og aurar Það að vera þátttakandi í samfélaginu er mikilvægara en krónur og aurar. Þetta segir framkvæmdastjóri starfsendurhæfingasjóðs. Hann segir hættu á því að fólk einangrist stundi það ekki ekki vinnu. 17.11.2010 20:47
Íslenskir Indjánar Líklegt er að fyrsta konan úr röðum frumbyggja Ameríku hafi komið til Evrópu fyrir tíma Kristófers Kólumbusar. Hún bjó hér á landi og um 350 íslendingar geta rakið ættir sínar í beinan kvenlegg til hennar. Þetta sýnir ný rannsókn Íslenskrar Erfðagreiningar. 17.11.2010 20:33
Facebook-leikur Vísis: Jólaáskrift að Stöð 2, HM-áskrift að Stöð 2 Sport og fleira Facebook-leikur Vísis hélt áfram í dag. Þá var sunnudagsbrunch á Nauthóli Bistro í verðlaun og var Facebook-vinurinn Ágúst Guðmundsson dreginn úr pottinum. 17.11.2010 19:53
Jón Ásgeir yfirheyrður „kannski seinna" Ekki hafa verið teknar skýrslur af neinum stórlöxum í Glitnis-málinu, aðeins starfsmönnum bankans. Fyrrverandi stjórnarformenn hafa ekki verið yfirheyrðir. Jón Ásgeir hefur ekki verið yfirheyrður, bauð fram aðstoð sína við rannsóknina í gær en var neitað en fékk þau svör að hann yrði kannski yfirheyrður. 17.11.2010 18:56
Rannsókn Íslendinga á eldgosunum vekur heimsathygli Eldgosin í vor á Fimmvörðuhálsi og í toppgíg Eyjafjallajökuls voru í raun tvö eldgos og það fyrra hleypti hinu síðara af stað. Þetta eru niðurstöður íslenskra vísindamanna sem eitt virtasta vísindatímarit heims, Nature, birtir á forsíðu á morgun, en þær eru taldar varpa nýju ljósi á hegðun eldfjalla sem sjaldan gjósa á jörðinni. 17.11.2010 18:52
Nágranninn kom í veg fyrir innbrot Íbúi við Baðsvelli í Grindavík kom líklega í veg fyrir að brotist var inn hjá nágranna hans í morgun. Nágranninn varð var við grunsamlegar mannaferðir í götunni og hringdi á lögregluna. 17.11.2010 17:40
Engin þoka í Bláfjöllum - opið til níu Þrátt fyrir að þoka liggi nú yfir höfuðborginni svo varla sést á milli ljósastaura er fínasta veður í Bláfjöllum. Að sögn framkvæmdastjóra skíðasvæðisins er opið til klukkan 21 í kvöld. Þar er bjartviðri, logn og frábært færi. 17.11.2010 16:21
Margt býr í þokunni Sú þoka sem nú liggur yfir höfuðborgarsvæðinu kemur meðal annars til vegna sérstakrar lagskiptingar lofthitans. Í Reykjavík er hitinn við jörðina um frostmark en í nokkurra metra hæð hefur hitinn hins vegar víða náð fjórum gráðum. Vegna þessa pressast kalda loftið niður og þokan myndast úr rakanum. 17.11.2010 15:54
Regnbogamaðurinn heimsækir menntskælinga í kvöld Til landsins er kominn hinn víðfrægi Paul Louis Vasquez eða „Rainbow Man" en til stendur að gera hann að verndara nemendafélags Menntaskólans Hraðbrautar í kvöld. Eins og sjá má á myndinni verður mikið við haft og hafa nemendur meðal annars blásið upp 1100 blöðrur í öllum regnbogans litum og hengt upp. 17.11.2010 15:48
Þurfti að lenda í Keflavík vegna þoku Flugvél á vegum Flugfélags Íslands sem var að koma frá Akureyri síðdegis þurfti að lenda í Keflavík í stað þess að lenda á Reykjavíkurflugvelli vegna þoku. Að öðru leyti hefur flug gengið fyrir sig samkvæmt venju i dag. Allar vélar sem áætlað var að færu frá Reykjavík í dag hafa komist í loftið. Gert er ráð fyrir að flugvélar frá Kulusuk, Ísafirði og Egilsstöðum lendi í Reykjavík um fimmleytið en sú áætlun gæti mögulega raskast. 17.11.2010 15:46
Lilja vill keyra frumvarp um vaxtaþak hratt í gegnum þingið Lilja Mósesdóttir, þingkona VG og formaður viðskiptanefndar lýsti því yfir í dag að hún bæri boðin og búin til þess að keyra hratt í gegnum þingið frumvarp um vexti og verðtyggingu. Með lögunum yrði þak sett á vexti íbúðalána þannig að þeir verði aðeins um þrjú prósent. 17.11.2010 15:04
Hundruð milljóna lækkun á framlögum til lögreglunnar Frá árinu 2007 hafa fjárframlög til lögreglunnar á Íslandi verið skorin niður um 380 milljónir króna, sagði Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi í dag. 17.11.2010 14:52
Styrktu Lyngás um milljón í minningu Fanneyjar Eddu Samstarfsfélagar foreldra Fanneyjar Eddu Frímannsdóttur heitinnar, tæplega þriggja ára stúlku sem lést fyrr á þessu ári úr taugahrörnunarsjúkdómi, afhentu Lyngási ríflega eina milljón króna í morgun. Fénu söfnuðu þeir með sölu á laginu „Ljós í myrkri" sem sungið er af Páli Óskari. Höfundur lagsins er Gunnar Guðmundsson og textasmiður er Vignir Örn Guðnason, en þeir starfa báðir með foreldrum Fanneyjar Eddu hjá Flugfélagi Íslands. Lagið er enn til sölu. 17.11.2010 14:47
Stúdentar framkvæmdu gjörninga á Austurvelli Stúdentaráð Háskóla Íslands afhjúpaði í dag „táknrænan söfnunarbauk“ á Austurvelli í dag, á alþjóðlegum baráttudegi stúdenta. Um var að ræða lið í herferð stúdentaráðs gegn niðurskurði í fjárframlögum til menntakerfisins. Stúdentar söfnuðust saman á Austurvelli og afhentu þingmönnum afrit af skýrslu SHÍ um leið og einskonar gjörningur var framkvæmdur eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði. 17.11.2010 14:28
Fjölmargir Íslendingar komnir af indíána Fyrsti Ameríkaninn sem kom til Evrópu fyrir eitt þúsund árum síðan var líklegast kona sem var rænt og flutt til Íslands. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum DeCode þar sem gen úr áttatíu Íslendingum voru rannsökuð. Sagt er frá rannsókninni í Daily mail en niðurstöður hennar verða birtar í tímaritinu American Journal of Physical Anthropology. 17.11.2010 13:53
Hlauparar minntir á endurskinsmerkin Lögreglan vill beina þeim tilmælum til þeirra sem stunda útihlaup á höfuðborgarsvæðinu að nota endurskinsmerki. Að hennar sögn hefur það verið áberandi í vetur hversu endurskinsmerki eru lítið notuð hjá mörgum hlaupurum þó á ferð séu í myrkri eða við umferðargötur. Stórhætta hefur skapast af þessum sökum. 17.11.2010 13:42
Karl grunaður um kynferðislega misnotkun Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í gæsluvarðhald. Maðurinn er grunaður um kynferðislega misnotkun á börnum. 17.11.2010 13:18
Grunur um hlutdeild Saga í meintum brotum Glitnis Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka, hefur réttarstöðu sakbornings í Glitnismálinu, en meðal þess sem liggur til grundvallar húsleitunum í gær er grunur um hlutdeild fyrirtækisins í meintum brotum Glitnis banka. 17.11.2010 12:15
Rjúpnaveiðieftirlit úr þyrlu Landhelgisgæslunnar Lögreglan kemst yfir mun stærra svæði og fær betri yfirsýn yfir rjúpnaveiðilendur þegar hún nýtur aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar. Arnar Geir Magnússon, lögreglumaður á Ólafsvík, fékk að fljóta með TF-Líf í gæsluferð á laugardag og hefur umhverfisráðuneytið látið útbúa myndband úr ferðinni þar sem einnit er rætt við Arnar Geir, sem og Auðunn F. Kristinsson, yfirstýrimann hjá Landhelgisgæslunni. Myndbandið má skoða með því að smella á tengilinn hér að ofan. 17.11.2010 12:14
Stórlaxar í Glitnismáli mæta til yfirheyrslu - engin lög um skuggastjórnun Ekki er útilokað að fyrrverandi hluthafar Glitnis og æðstu stjórnendur verði kallaðir til yfirheyrslu á næstunni í tengslum við rannsókn Glitnismálsins. Ekki hefur verið krafist gæsluvarðhalds yfir neinum í tengslum við rannsóknina. 17.11.2010 12:09
Öll lífsýni í manndrápsmálinu ónothæf Niðurstöður úr lífsýnarannsóknum sem sendar voru til Svíþjóðar í manndrápsmálinu reyndust allar ónothæfar. Auk játningar hefur ákæruvaldið fótspor á vettvangi auk þess sem bíll sakbornings þekkist á myndbandsupptöku og mun ríkissaksóknari gefa út ákæru fyrir helgi. 17.11.2010 12:00
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar Herjólfur siglir ekki meira á Landeyjahöfn í dag, en fer þess í stað á Þorlákshöfn klukkan 15:15 og til baka klukkan 18:45. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Þar kemur líka fram að spár hafa breyst þannig að miklar líkur eru á að siglt verði á Þorlákshöfn á morgun líka. 17.11.2010 11:41
Verja 1600 milljónum vegna húsnæðisvanda framhaldsskóla Alls verður 1600 milljónum króna varið til þess að leysa húsnæðisvanda þriggja framhaldsskóla á tímabilinu 2011 til 2014. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaðherra, og Jón Gnarr borgarstjóri skrifuðu í dag undir yfirlýsingu þessa efnis. 17.11.2010 11:34