Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Catalína Ncogo: Áverkar tilheyra vændi Íslenskur sölumaður fasteigna var sýknaður af ákæru um kaup á vændi þrátt fyrir að vændiskona sem starfaði í sama vændishúsi hafi í dómssal borið vitni um að maðurinn hafi veitt samstarfskonu hennar áverka og að hún hafi séð manninn greiða fyrir vændi. Stúlkan sem maðurinn keypti aðgang að var farin úr landi þegar málið rataði fyrir dómsstóla og því enginn sem gat vitnað um það „beint" að hann hafi keypt vændi, eins og það er orðað í dómnum. 17.11.2010 09:03
Umferðartafir við Mjóddina vegna áreksturs Gríðarlegar umferðartafir eru á Reykjanesbrautinni á milli Kópavogs og Reykjavíkur vegna minniháttar umferðarslyss sem varð í nágrenni við Mjóddina nú í morgun. Nokkur bílaröð hefur myndast þar sem ökumenn eru á leið frá Kópavoginum og inn í borgina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur sjúkrabíll verið kallaður á staðinn en slys á fólki eru ekki alvarleg. 17.11.2010 08:28
Bensín komið yfir 200 krónur Bensín fór aftur yfir 200 í gær, þegar öll olíufélögin hækkuðu verð á bensínlítranum um tvær krónur. Verð í sjálfsafgreiðslu á stórum stöðvum losar nú 200 krónur, en er umþaðbil tveimur krónum ódýrara á ómönnuðu stöðvunum. 17.11.2010 07:03
Jólaaðstoð 2010 Úthlutun verður með þeim hætti að við skráningu fær viðkomandi upplýsingar um hvenær hægt er að koma til að sækja vörurnar að Skútuvogi 3, dagana 20. til 22. desember. 17.11.2010 06:00
Hunsa tilmæli um úrbætur Dong Fang Salon – nudd- og snyrtistofa hefur fengið áminningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur eftir að hafa ekki orðið við ítrekuðum kröfum um úrbætur vegna brota á reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum í rekstri sundlaugarinnar á Hótel Loftleiðum. 17.11.2010 06:00
Milljarðakaup á verðlausu skuldabréfi ein ástæða húsleita Gjaldeyrissjóður á vegum Glitnis keypti verðlaust skuldabréf af Saga Capital á rúman milljarð eftir bankahrun. Þetta er meðal þess sem liggur til grundvallar húsleitum og yfirheyrslum Sérstaks saksóknara í allan gærdag. 17.11.2010 06:00
Ráðherrar fá athafnateygju Allir ráðherrar landsins, ásamt bæjarstjórum, rektorum háskóla og stjórnendum fjölmargra fyrirtækja, hafa nú fengið Athafnateygju Innovit að gjöf í tilefni athafnavikunnar sem stendur nú yfir. 17.11.2010 06:00
Hægt að semja en pólitíkin ræður Lárus Blöndal hæstaréttarlögmaður var tilnefndur af stjórnarandstöðunni í Icesave-samninganefndina. Hann hefur haldið formönnum stjórnarandstöðuflokkanna upplýstum um framvindu viðræðnanna en segir ekkert stórvægilegt hafa gerst í málinu síðustu daga, hvorki gagnvart erlendu viðsemjendunum né á innanlandsvettvangi. 17.11.2010 06:00
Ætla að brenna skíðaskála KR Bera á eld að gömlum skíðaskála KR í Skálafelli. Ætlunin er að nota tækifærið til æfinga fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins. Byggingarfulltrúi frestaði afgreiðslu málsins í gær þar sem ekki lá fyrir umsögn Minjasafns Reykjavíkur. 17.11.2010 06:00
Segir lífeyrissjóðina fegra kostnaðartölur Lífeyrissjóðirnir fegra kostnaðartölur sínar með því að reikna umsýslukostnað vegna fjárfestinga erlendis ekki inn í rekstrarkostnað, segir Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í VR. Hann segist áætla að rekstrarkostnaður allra íslensku lífeyrissjóðanna í fyrra hafi verið á níunda milljarð króna. 17.11.2010 06:00
Ólafur sofandi í öndunarvél Ólafur Þórðarson tónlistarmaður liggur enn alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir að sonur hans veitti honum alvarlega áverka á sunnudag. Að sögn læknis á Landspítalanum í gærkvöldi er líðan Ólafs óbreytt frá því á sunnudag. Honum er enn haldið sofandi í öndunarvél. 17.11.2010 06:00
Eitt alstærsta verkefnið „Þetta er ein sú allra stærsta sem við höfum farið í,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, um aðgerðina í gær. 17.11.2010 06:00
Nítján ára grunaður um nærri 70 innbrot Nítján ára piltur er grunaður um að hafa framið að minnsta kosti á sjöunda tug innbrota í sumarhús auk annarra brota á þessu ári. 17.11.2010 06:00
Helstu fjárfestar geirans verða viðstaddir Íslenska sprotafyrirtækið ReMake Electric er komið í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja um grænar hátæknilausnir, Cleantech Open Global Ideas Competition. Keppnin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og er Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri ReMake, nú staddur í Kísildalnum í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum að kynna hugmyndir fyrirtækisins. Úrslitin eru hluti af alþjóðlegu athafnavikunni. 17.11.2010 06:00
Ekki gott ástand fyrir Icesave „Ég held að ein af ástæðunum fyrir því að það hefur lítið til þessa máls spurst síðustu vikurnar sé pólitíska ástandið á Íslandi,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. 17.11.2010 06:00
Gamla fólkið verði ekki sent í burtu „Ég er mjög bjartsýnn á að fundin verði lausn og fullviss um að Sundabúð verði ekki lokað.“ 17.11.2010 06:00
Hafa sjálfstraust til að meta hvað tókst vel og hvað miður Verkfræðingafélag Íslands vinnur að endurskoðun siðareglna sinna svo að þær endurspegli betur kröfur breyttra tíma til starfsins. „Eftir því sem verkefni verkfræðinga hafa orðið fjölbreyttari og þjóðfélagið flóknara hefur þörfin aukist fyrir einfaldar, almennar reglur sem gætu þjónað sem almennur siðlegur hornsteinn fyrir öll störf sem verkfræðingar takast á við í krafti menntunar sinnar,“ segir Jóhanna Harpa Árnadóttir, formaður Verkfræðingafélagsins. „Það hefur mikið breyst í vinnuumhverfi verkfræðinga, bæði með tölvuvæðingu og rafrænni upplýsingamiðlun. Eins má nefna uppgang og hrun bankakerfisins.“ 17.11.2010 06:00
Tíu dagar milli tunnutæminga Fulltrúar meirihluta umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur leggja til að frá og með áramótum verði sorp sótt á tíu daga fresti í stað þess að vera sótt á sjö daga fresti. Það sé í samræmi við sorphirðu hjá öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. 17.11.2010 06:00
Borgarstjórnin öll rauðnefjuð Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, og aðrir í borgarstjórn keyptu í gær fyrstu rauðu nefin sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna selur til styrktar bágstöddum börnum um allan heim. 17.11.2010 06:00
Hjálparþurfi fólki fjölgar Nær öruggt er talið að mun fleiri muni leita á náðir hjálparstofnana og félagasamtaka fyrir þessi jól en þau síðustu. Þetta kom fram á fundi sem haldinn var í gær til kynningar á átakinu Jólaaðstoð 2010. 17.11.2010 06:00
Þarf að fjölga heimilislæknum um 20 til 30 Fulltrúar fjögurra stærstu þingflokkanna gáfu til kynna við umræður á Alþingi í gær að þeir styddu það að sérfræðiþjónusta í heilbrigðiskerfinu yrði endurskipulögð og aðgangur að ódýrri þjónustu takmarkaður með einhvers konar tilvísunarkerfi. 17.11.2010 06:00
Sveik út peninga með stolnum greiðslukortanúmerum Karlmaður um tvítugt var handtekinn fyrr í mánuðinum, grunaður um að hafa komist yfir á annað þúsund greiðslukortanúmer og notað þau til þess að svíkja út fé. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fer með rannsókn málsins. Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn segist í samtali við Vísi ekki geta sagt til um hversu mikið fé maðurinn sveik út. Þó sé víst að ekki sé um verulegar fjárhæðir að tefla. 16.11.2010 16:39
Yfirlýsing frá Stoðum hf Stoðir hf. hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segjast vilja leiðrétta misskilning sem rekja megi til tilkynningar sérstaks saksóknara um húsleitir sem fram fóru í dag. 16.11.2010 16:19
Dró sér tæpar 18 milljónir frá Íslenskri getspá Fyrrverandi umsjónarmaður sölukassa fyrir lottó og íþróttagetraunir var í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að draga sér tæpar 18 milljónir króna úr kössunum. Maðurinn starfaði í Happahúsinu í Kringlunni þar sem hann hafði umsjón með sölukössum fyrir Íslenska getspá. Féð dró maðurinn sér á um tveggja mánaða tímabili frá 9. ágúst til 4. október 2008. 16.11.2010 15:42
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki Frumvarpi Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki var dreift á Alþingi í dag. Ráðherra gerir ráð fyrir að með frumvarpinu sé hægt að afla ríkinu einum milljarði króna í viðbótartekjur. 16.11.2010 15:29
Játaði þjófnað á sígarettum og skiptimynt Búið er að upplýsa tvö innbrot í hraðbúðina á Hellissandi sem framin voru í síðasta mánuði. Úr hraðbúðinni voru meðal annars stolið sígarettum, skiptimynd og áfyllingarkortum fyrir síma. Eftir að nýjar upplýsingar bárust í málinu voru tveir menn, búsettir í Ólafsvík, handteknir 4. nóvember. Játaði annar þeirra bæði innbrotin og segist hann hafa verið einn að verki. Málin teljast því upplýst. 16.11.2010 14:37
"Vötn öll skulu renna sem að fornu hafa runnið" Ákvörðun um að færa ósa Markarfljóts kann að stangast við vatnalög, frá árinu 1923. "Vötn öll skulu renna sem að fornu hafa runnið," er lykilákvæði vatnalaga en í 7. grein er lagt bann við því að breyta vatnsbotni, straumstefnu eða vatnsmagni, hvort sem það verður að fullu og öllu eða um ákveðinn tíma, nema fyrir liggi sérstakt leyfi iðnaðarráðherra eða lagaheimild frá Alþingi. 16.11.2010 14:37
Heimsfrægt tónskáld viðstatt tónleika með eigin verkum Hið heimsfræga breska tónskáld Sir John Tavener er komið hingað til lands til að vera við útgáfutónleika Kammerkórs Suðurlands, sem haldnir verða í Kristskirkju í Landakoti í kvöld. Kammerkór Suðurlands ásamt einsöngvurunum Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur, Hrólfi Sæmundssyni, Margréti Stefánsdóttur, breska bassasöngvaranum Adrian Peacock og kammersveit flytur verk eftir Sir John Tavener af nýútkomnum diski sínum, IEPO ONEIPO - Heilagur draumur. 16.11.2010 14:30
Saga Fjárfestingarbanki: Rannsóknin tengist ekki bankanum Saga Fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar Sérstaks saksóknara, en húsleit var gerð á skrifstofum bankans á Akureyri og í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að bankinn hafi frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans fólki við rannsóknina og að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari hafi staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka. 16.11.2010 14:12
Þorvaldur Lúðvík yfirheyrður Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga fjárfestingarbanka, er einn þeirra sem hefur verið yfirheyrður í morgun í Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. 16.11.2010 13:57
Handtökurnar tengjast Stím málinu Sérstakur saksóknari hefur handtekið menn í tengslum við rannsóknina á Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu. 16.11.2010 13:03
Sérstakur saksóknari með umfangsmiklar aðgerðir vegna Glitnis Umfangsmiklar aðgerðir sérstaks saksóknara vegna Glitnis standa yfir þessa stundina víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. 16.11.2010 12:53
Ákvörðun um færslu Markarfljóts veldur uppnámi Ákvörðun samgönguráðherra í gær að færa ósa Markarfljóts um tvo kílómetra olli uppnámi í stjórnkerfinu í morgun. Umhverfisráðuneytið spurðist fyrir um hvort framkvæmdin þyrfti að fara í umhverfismat og sveitarstjóri Rangárþings eystra boðaði til skyndifundar en hann bendir á að leita þurfi samþykkis fjögurra landeigenda. 16.11.2010 12:07
Búast við að 4500 fjölskyldur þiggi jólaaðstoð Talið er að rúmlega 4500 fjölskyldur muni leita sér aðstoðar fyrir jól, hjá fjórum af helstu hjálparsamtökum landsins. 16.11.2010 12:03
Árni Páll mælir fyrir gengisfrumvarpinu í dag Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, mælir fyrir frumvarpi á Alþingi í dag vegna gengisdóma Hæstaréttar frá því í sumar og í haust. Með dómunum voru gengistryggð lán dæmd ólögmæt og þau ætti að gera upp í íslenskum krónum miðað við lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Íslands. Frumvarpinu er ætlað að tryggja jafnræði og sanngirni í garð lánþega óháð því hvernig gengið var frá lánasamningum i upphafi. 16.11.2010 12:00
Lögreglan óskar eftir vitnum að árekstri Yaris og Sonötu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Borgartúns í Reykjavík laust fyrir klukkan hálfellefu þriðjudagskvöldið 9. nóvember. 16.11.2010 11:57
Ákvörðun um ákæru á hendur Gunnari Rúnari tekin fyrir helgi Ríkissaksóknari þarf að taka ákvörðun um hvort ákæra verði gefin út á hendur Gunnari Rúnari Sigurþórssyni i síðasta lagi á föstudag. Gunnar Rúnar er grunaður um morð á Hannesi Þór Helgasyni í Hafnarfirði þann 15. ágúst síðastliðinn. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari segir að 16.11.2010 11:56
Niðurstaða í Icesave kemur Bjarna ekki á óvart Betri niðurstaða í Icesave málinu sem nú stefnir í kemur ekki á óvart, segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann hafi fylgst vel með samningaferlinu og orðiðáskynja að mikill árangur hafi náðst. 16.11.2010 11:56
Jólagjöfin í ár er íslensk lopapeysa Valinkunnir neyslufrömuðir sem Rannsóknasetur verslunarinnar fékk til liðs við sig hafa valið íslenska lopapeysu sem jólagjöf ársins 2010. Það er nú orðið árvisst að Rannsóknasetrið velji jólagjöf ársins. Á síðasta ári var „jákvæð upplifun," jólagjöf ársins 2009 var íslensk hönnun. Árin þar áður hafði kveðið við annan tón en árið 2007 var jólagjöf ársins GPS staðsetningartæki en árið 2006 var hún ávaxta- og grænmetispressa. 16.11.2010 11:26
Bókaþjóðin orðin nettengd Edda útgáfa hefur fyrst íslenskra útgáfna gert samning við Apple um dreifingu á rafrænum bókum. Eigendur iPad og iPhone geta nú nálgast fyrstu bókina á íslensku á rafrænu formi. Nýtist öðrum forlögum til að koma bókum sínum á netið. 16.11.2010 11:00
Ekki hægt að skipta ævisögum Jónínu og Björgvins Enginn skilaréttur er á ævisögum þeirra Jónínu Benediktsdóttur og Björgvins G. Sigurðssonar sem einungis eru seldar í verslunum N1. Viðskiptaráðuneytið hefur í samvinnu við Neytendasamtökin sett fram leiðbeinandi verklagsreglur um skilarétt en verslunum er í sjálfvald sett hvort þær fara eftir þeim. Það er því fullkomlega löglegt að meina viðskiptavinum að skipta ógallaðri vöru. „Fólk þarf að kaupa þessar bækur með þá staðreynd í huga að þeim er ekki hægt að skila. Við hvetjum fólk til að vera meðvitað um þetta. Það er í raun það eina sem við getum gert," segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. 16.11.2010 10:57
Leiðbeina aðstandendum geðsjúkra Aðstandendur geðsjúkra vita ekkert hvert þeir eiga að leita eftir stuðningi og ráðgjöf, segir Kristín Tómasdóttir ráðgjafi hjá Geðhjálp. 16.11.2010 10:47
Ella Dís er komin til meðvitundar Ella Dís opnaði augun seint í gær og er komin til meðvitundar. „Mér fannst hún samt ekki alveg þekkja mig en þetta er skref fram á við og ég vona svo og bið að framhaldið sé aðeins upp á við," segir Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar, sem lá meðvitundarlaus á Barnaspítala Hringsins. Eins og Vísir sagði frá í gær var ástand Ellu Dísar mjög alvarlegt en svo virðist sem líðan hennar sé betri í dag. 16.11.2010 10:41
Siðanefnd BÍ vísar kæru forseta ASÍ frá Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur vísað frá kæru Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, gegn fréttavefnum Eyjunni. 16.11.2010 09:46
Líðan Ólafs óbreytt Líðan tónlistarmannsins Ólafs Þórðarsonar var óbreytt, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á gjörgæsludeild sem Vísir talaði við í laust eftir klukkan níu í morgun. 16.11.2010 09:10