Innlent

Grunur um hlutdeild Saga í meintum brotum Glitnis

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka.
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka, hefur réttarstöðu sakbornings í Glitnismálinu, en meðal þess sem liggur til grundvallar húsleitunum í gær er grunur um hlutdeild fyrirtækisins í meintum brotum Glitnis banka.

Meðal þess sem sérstakur saksóknari rannsakar eru kaup sjóðs á vegum Glitnis, GLB FX, á skuldabréfi af Saga Capital fyrir milljarð króna eftir bankahrunið. Útgefandi skuldabréfsins var Stím en það var til komið vegna láns frá Saga Capital til félagsins. Þetta er eina málið af þeim fimm sem nefnd eru í tilkynningu frá sérstökum saksóknara sem ekki hefur verið fjallað um áður en það sem hleypti rannsókninni af stað var kæra frá Fjármálaeftirlitinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Samkvæmt samningi sem liggja fyrir um kaupin á skuldabréfinu var hann gerður gerður 18. ágúst 2008 og var framvirkur til 19. nóvember sama ár. Engin gögn hafa fundist um gerð samningsins í ágúst. Hins vegar eru til bréfasamskipti frá Saga Capital til FME frá 10. september 2008 þar sem vísað er í skuldabréfið.

Skilja ekki hvers vegna verðlaust félag gaf út skuldabréf

Samkvæmt heimildum fréttastofu vefst það fyrir rannsakendum hvers vegna Stím ehf. gaf út skuldabréf og það skuldabréf keypt af Glitni á milljarð króna í ágúst 2008 því rekstur Stím ehf. er saga samfellds taprekstrar. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þáttur Saga Capital rannsakaður með hliðsjón af hlutdeild í meintum brotum Glitnis banka og annarra í Stím-málinu, en grunur leikur á að lánveitingar til Stím og hlutabréfakaup fyrirtækisins í Glitni banka og FL Group hafi verið sýndarviðskipti og þar með markaðsmisnotkun.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Fjárfestingarbanka, áður Saga Capital, var yfiheyrður eftir húsleit hjá fyrirtækinu í gær. Þeim sem mæta til skýrslutöku hjá lögreglu er ávallt gerð grein fyrir því við upphaf skýrslutöku hvaða réttarstöðu þeir hafi við rannsóknina. Þorvaldur Lúðvík virtist ekki vita hvaða réttarstöðu hann hefði þegar fréttastofa tók við hann viðtal í gær.



„Ég er ekki alveg klár til að skýra frá því"


Hvaða réttarstöðu hefurðu í málinu? „Ég er ekki alveg klár til að skýra frá því, en ég fór og við gerum okkar besta til að upplýsa hvað við höfum vitneskju um."

Þú mættir í skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara var þér sagt þar að þú værir vitni í málinu eða grunaður? „Nei, ég mætti þarna með lögmanni mínum og við sögðum það sem ég veit um málið, sem er afskaplega lítið," sagði Þorvaldur Lúðvík. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Þorvaldur Lúðvík stöðu sakbornings við rannsókn málsins.

Saga Fjárfestingarbanki sendi sérstaka tilkynningu til fjölmiðla í gær þar sem segir að rannsókn sérstaks saksóknara beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka, heldur sé verið að leita gagna sem hugsanlega liggja hjá bankanum og tengjast málinu.


Tengdar fréttir

Þorvaldur Lúðvík yfirheyrður

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga fjárfestingarbanka, er einn þeirra sem hefur verið yfirheyrður í morgun í Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Handtökurnar tengjast Stím málinu

Sérstakur saksóknari hefur handtekið menn í tengslum við rannsóknina á Glitnismálinu, samkvæmt heimildum fréttastofu.

Sérstakur rannsakar lán til Baugs, FS-38 og Landic auk Stím

Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á lánveitingum Glitnis og viðskiptum með hlutabréf fóru fram húsleitir á ýmsum stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Nánar tiltekið eru til rannsóknar eftirgreind mál:

Saga Fjárfestingarbanki: Rannsóknin tengist ekki bankanum

Saga Fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar Sérstaks saksóknara, en húsleit var gerð á skrifstofum bankans á Akureyri og í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að bankinn hafi frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans fólki við rannsóknina og að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari hafi staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×