Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meintum mannræningjum sleppt úr haldi Konunum tveimur sem voru handteknar fyrir meinta frelsissviptingu í dag hefur verið sleppt úr haldi lögreglunnar. 30.9.2010 23:26
Geir á forsíðu Wikipedia-alfræðiritsins Ákvörðun Alþingis um að ákæra Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur vakið heimsathygli. Meðal annars má finna mynd af Geir og greinarstúf á alfræðisíðunni Wikipedia.org í dag. 30.9.2010 23:15
Tvær konur handteknar fyrir mannrán í Kópavogi Tvær konur á þrítugsaldrinum voru handteknar í dag grunaðar um að hafa svipt rúmlega tvítugri konu frelsi sínu. Þá eru þær einnig grunaðar um að hafa beitt hana líkamlegu ofbeldi. 30.9.2010 19:34
Jarðhitinn sparaði 67 milljarða króna í fyrra Nýting jarðvarma til húshitunar sparar íslenska þjóðarbúinu 50 til 80 milljarða króna á ári, sem annars færu til olíukaupa. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Orkustofnunar. 30.9.2010 19:00
Konur lemja karla líka Þó nokkur fjöldi karla á Íslandi býr við líkamlegt ofbeldi að hálfu eiginkvenna sinna. Heimilsofbeldi gegn körlum er hins vegar falið vandamál sem verður að rannsaka betur. Þetta segir dósent í félagsfræði. 30.9.2010 18:39
Skiptar skoðanir um endurkomu Björgvins Skiptar skoðanir eru innan þingflokks Samfylkingarinnar um endurkomu Björgvin G. Sigurðsson á þing. Þrír þingmenn flokksins greiddu atkvæði með ákæru á hendur þessum flokksbróður sínum. 30.9.2010 18:34
Myndir sýna nýja öskurák við gíginn Myndir af toppgíg Eyjafjallajökuls, sem virðast sýna að ný aska hafi komið úr gígnum og fallið á jökulinn, hafa vakið forvitni jarðvísindamanna. Þeir vilja þó ekki skýra fyrirbærið með því að eldvirkni sé enn í gangi. 30.9.2010 18:30
AGS telur að það verði ekkert mál fyrir Ísland að borga 600 milljarða Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði á það ríka áherslu að frystingu nauðungaruppboða yrði aflétt í lok októbermánaðar. Þetta staðfestir yfirmaður sendinefndar sjóðsins. Þá hefur hann engar áhyggjur af því að íslenska ríkið muni eiga í erfiðleikum með að greiða niður 600 milljarða króna lán á næstu árum. 30.9.2010 18:30
Lyfjaverð frumlyfja á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna Samkvæmt nýjustu verðkönnun Lyfjagreiðslunefndar sem birt var í dag 30. september, kemur fram að meðalverð 40 veltuhæstu lyfjanna (miðað við sömu lyf og voru veltuhæst í síðustu lyfjakönnun) er lægra á Íslandi en meðaltal á Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Danmörku. 30.9.2010 17:47
Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ungum skátum Ungur karlmaður var dæmdur í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í skátunum. Sjálfur var maðurinn, sem var sautján ára þegar hann framdi brotin, leiðeinandi á námskeiði í skátunum. 30.9.2010 17:38
Eik banki fallinn Danski tryggingasjóðurinn Finansiel Stabilitet hefur tekið yfir starfssemi færeyska bankans Eik. Dönsk yfirvöld neituðu bankanum um lengri frest til þess að afla hlutafjár og því ljóst að bankinn er fallinn. 30.9.2010 19:00
Pólverji framseldur þrátt fyrir að eiga konu og barn hér á landi Hæstiréttur staðfesti framsal pólsks manns til Póllands en hann er eftirlýstur þar fyrir fjársvik. 30.9.2010 17:57
Nýr formaður SUF leggur áherslu á atvinnumál Það þarf hugarfarsbreytingu í þá átt að fengist verði við atvinnuvanda ungs fólks með sértækum lausnum, segir Sigurjón Norberg Kjærnested, sem var kjörinn formaður Sambands ungra framsóknarmanna, um helgina. Sigurjón segir að til að fást við vandann þurfi að setja meira fjármagn í nýsköpun. 30.9.2010 16:43
Ætla að selja 50 þúsund slaufur til 15. október Krabbameinsfélag Íslands ætlar að selja 50 þúsund bleikar slaufur fram til 15. október næstkomandi. 30.9.2010 16:17
Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 250 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. 30.9.2010 15:24
Jóhanna bauð Obama til Íslands Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur með formlegum hætti boðið forseta Bandaríkjanna, Barack Obama að sækja Ísland heim til að efla enn frekar góð samskipti landanna. 30.9.2010 15:04
Stjörnulögmaður og ritstjóri rífast á Facebook Reynir Traustason, ritstjóri DV, sagði Svein Andra Sveinsson hæstaréttarlögmann vera endaþarm íslenskrar lögmennsku á facebook síðu hans í dag. Snörp orðaskipti urðu á milli þeirra tveggja eftir að Sveinn Andri Sveinsson gagnrýndi leiðara sem birtist í DV í gær eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur. 30.9.2010 14:44
Ætla að sniðganga guðsþjónustu við þingsetningu Þingmenn Hreyfingarinnar ætla ekki að vera viðstödd guðsþjónustu þegar að Alþingi verður sett á morgun. Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segist í samtali við Vísi, gera ráð fyrir að hún, Þór Saari og Margrét Tryggvadóttir muni verða fyrir utan Alþingishúsið á meðan að guðsþjónustan fer fram. Hún vonast til að fleiri þingmenn sláist í hóp þeirra. 30.9.2010 14:18
Stjórnsýsluskóli stjórnarráðsins settur Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra setti Stjórnsýsluskóla stjórnarráðsins í morgun í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Á fyrsta námskeiðið voru mættir um 50 nýliðar úr 10 ráðuneytum. Þegar forsætisráðherra hafði ávarpað nýja starfsmenn í stjórnarráðinu var haldið upp á Bifröst þar sem við tók fræðsla um ýmsa þætti í starfi ráðuneytanna. 30.9.2010 14:15
Saksóknari í máli Geirs ekki fundinn Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur enn ekki fengið fréttir af því hvern Atlanefndin svokallaða hyggst tilnefna sem saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. 30.9.2010 13:02
Segja aðstæður kvenna í fangelsum mun verri en karla Aðstæður kvenfanga hér á landi eru mun lakari en karlfanga, að því er Kvenréttindafélag Íslands og Vernd - fangahjálp telja. Í sameiginlegri ályktun frá þeim segja þau að fyrir það fyrsta sé einungis eitt fangelsi í boði fyrir kvenfanga, Kvennafangelsið í Kópavogi, þar sem þrengsli séu mikil. 30.9.2010 12:16
Samstarfi Íslands við AGS lýkur í ágúst Stefnt er að því að samstarfi Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ljúki á réttum tíma í ágúst á næsta ári þrátt fyrir tafir á endurskoðun efnahagsáætlana. 30.9.2010 12:07
Hefur ekki tekið ákvörðun um áfrýjun Ellert Sævarsson hefur enn ekki ákveðið hvort að hann muni áfrýja sextán ára fangelsisdómi sem hann hlaut á dögunum. Ellert var fundinn sekur um að hafa orðið manni að bana í Reykjanesbæ í vor. Samkvæmt lögum um meðferð sakamála hefur hann um það bil fjórar vikur til að áfrýja dómnum. 30.9.2010 11:25
Fjárlagafrumvarpi dreift eftir þingsetningu á morgun Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö á morgun. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö. 30.9.2010 10:50
Úthafsrækjustofninn enn lítill Úthafsrækjustofninn mælist enn lítill og er veiðistofnsvísitalan svipuð og hún hefur verið síðustu fjögur ár, að sögn Hafrannsóknarstofnunnar sem nýlega lauk árlegri stofnmælingu sinni á rækjunni. 30.9.2010 09:55
Krefjast allir frávísunar í máli sérstaks saksóknara Lögmenn allra sakborninganna þriggja í Exeter málinu svokallaða kröfðust frávísunar á málinu við fyrirtöku þess í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 30.9.2010 09:54
Vél Iceland Express lenti í Portúgal með veikan farþega Flugvél Iceland Express, sem var á leið til Tenerife varð að lenda í Lissabon í Portúgal skömmu eftir miðnætti í nótt með veikan farþega. Hann veiktist á leiðinni og ákvað flugstjórinn að taka enga áhættu og koma manninum sem fyrst undir læknis hendur. Vegna tafa af þessu verður einvher röskun á flugi félagsins fram eftir degi. 30.9.2010 08:04
Exeter málið tekið fyrir i dag Til stendur að fyrirtaka í Exeter málinu svokallaða fari fram í Héraðsdómi Reykjavikur á tíunda tímanum í dag, samkvæmt dagskrá á vef dómsins. Málið er það eina sem sérstakur saksóknari hefur ákært í enn sem komið er. 30.9.2010 07:00
Þingið gefur sér tvö ár til lagaúrbóta Alþingi hefur ákveðið að ráðast í umfangsmikla endurskoðun á lögum sem gilda um málaflokka er snertu hrunið. Ekki er til áætlun um hvernig standa á að verkinu. Þó eining sé um áformin má telja ólíklegt að sátt verði um leiðir. 30.9.2010 06:00
TR krefur erfingjana um ofgreiddan lífeyri „Þetta er einfaldlega svívirðilegt,“ segir Guðrún Lilja Benjamínsdóttir um greiðsluáskorun sem henni barst frá Tryggingastofnun ríkisins í síðustu viku. 30.9.2010 06:00
Höfuðpaurinn talinn hafa hirt féð sem svikið var út Steingrímur Þór Ólafsson, sem handtekinn var í Venesúela á mánudag, er grunaður um að hafa fengið í hendur þær 270 milljónir króna, sem sviknar voru út í virðisaukaskattsmálinu, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Rannsókn lögreglu beinist meðal annars að því hvort hann hafi skipulagt fjársvikin. 30.9.2010 05:45
Gagnrýni og hótun-um ESB vísað á bug sjávarútvegur Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands í makrílviðræðunum, vísar gagnrýni og hótunum Maríu Damanaki, sjávarútvegsstjóra ESB, vegna makrílveiða Íslendinga alfarið á bug. Tómas segir Ísland reiðubúið til þess að leggja sitt af mörkum til þess að samkomulag takist um makrílveiðar en jafnframt sé ljóst að hótanir um aðgerðir á borð við uppsögn óskyldra samninga á milli Íslands og ESB séu ekki til þess fallnar að stuðla að lausn málsins. 30.9.2010 05:15
Þriðju endurskoðun lokið hjá stjórn AGS Þriðja endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) var tekin fyrir og samþykkt í stjórn sjóðsins í gær. 30.9.2010 05:15
Urðu frá að hverfa í gær „Það er erfitt að gera nokkrar áætlanir þar sem hernámsveldi stjórnar ferðum fólks og jafnvel duttlungar byssufólksins ráða," segir Sveinn Rúnar Hauksson læknir, sem varð að hverfa frá landamærum Gasa-svæðisins í gær ásamt hópi Íslendinga, sem hugðust færa fötluðum íbúum þar gervifætur. 30.9.2010 05:15
Atkvæðagreiðslan mun draga dilk á eftir sér: Aukin harka í pólitíkinni Í kortunum er stormasamur vetur í stjórnmálunum. Sjálfstæðisflokkurinn mun veita ríkisstjórninni óvægna stjórnarandstöðu og samstarf stjórnarflokkanna verður stirt. 30.9.2010 05:00
Forsetaþotan fyllt af góðgæti utanríkisverslun Viktor F. Janúkóvitsj, nýkjörinn forseti Úkraínu, gerði stuttan stans á Keflavíkurflugvelli nýlega er hann var á heimleið frá leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í New York. 30.9.2010 04:45
Yfir milljón tonn í lögsögunni Hafrannsóknastofnun hefur endurmetið magn makríls út frá gögnum sem fengust í rannsóknaleiðangri í sumar. Endurmatið sýnir að meira var af makríl á rannsóknasvæðinu í kringum Ísland, Færeyjar og í Noregshafi en fyrra mat benti til. 30.9.2010 04:15
Atli bjóst ekki við ákærum Stjórnmál Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar um rannsóknarskýrsluna, undrast reiði sjálfstæðismanna vegna ákærunnar á hendur Geir H. Haarde og segir hana vekja upp spurningar hvort búið hafi verið að semja um aðra niðurstöðu fyrirfram. 30.9.2010 04:00
Kjötframleiðendur rannsakaðir áfram Máli Haga og átta kjötframleiðenda, sem fyrirtækið hefur játað að hafa haft ólöglegt samráð við um verðlagningu á kjöti, er ekki lokið, að sögn Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins. 30.9.2010 03:45
Braust inn til barnsmóður sinnar Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjaness rúmlega fertugan karlmann fyrir húsbrot, líkamsárás, eignaspjöll og fleiri brot. 30.9.2010 03:30
Lýst eftir Andrési Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Andrési Tómassyni, 41 árs, en ekkert er vitað um ferðir hans frá síðastliðnum föstudegi, 24. september. 29.9.2010 20:09
Frank Hvam segir Jón Gnarr halda óvanalega langar ræður Nokkrir af þekktustu grínurum Norðurlandanna verða með uppistand á kvöldstund með Frímanni Gunnarssyni. Meðal þeirra sem fram koma eru borgarstjóri Reykjavíkur og hinn danski Frank Hvam sem segir Jón Gnarr bera titilinn með rentu þar sem hann sé farinn að halda óvenju langar ræður. Guðný Helga kíkti í Háskólabíó þar sem undirbúningur var í hámarki. 29.9.2010 19:01
Ingibjörg Sólrún: Mér finnst þetta dapurlegt Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakar forystu Vinstri grænna um pólitíska ofsóknir í Landsdómsmálinu og segir að ákærunar standist ekki lög. 29.9.2010 18:35
Steingrímur bauð í sumarbústað tengdó Geir Haarde, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur upplýst að Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, reyndi eftir kosningarnar 2007 að koma á fundi um ríkisstjórnarmyndun flokkanna. Á þeim tíma sagði Steingrímur hins vegar á Stöð 2 að Vinstri grænir lytu hinum formlegu reglum um stjórnarmyndun og leiðinlegur svipur væri á öðru. 29.9.2010 18:45
Einar K.: „Svona vinnubrögð, þau eru geymd en ekki gleymd“ Það stefnir í átakavetur á Alþingi eftir atkvæðagreiðsluna í gær. Sjálfstæðismenn eru ævareiðir út í Samfylkinguna og saka þingmenn hennar um loddaraskap. 29.9.2010 18:44