Fleiri fréttir

Perlan farin til Landeyjahafnar

Dýpkunarskipið Perlan lagði nú fyrir hádegi af stað til Landeyjahafnar og hefur vinnu við dýpkun innsiglingarinnar um leið og það kemur á staðinn, eða um miðnætti í kvöld. Gera má ráð fyrir að þessi lota taki nokkurn tíma en ölduhæð ræður mestu þar um. Veður við suðurströndina hefur verið rysjótt eins og jafnan á haust og vetrarmánuðum en Perlan verður til taks svo lengi sem þörf krefur.

Jóhanna boðuð á þjóðfund

Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, var boðið á þjóðfundinn sem verður haldinn í Laugardalshöllinni von bráðar. Fundurinn mun endurskoða stjórnarkrá Íslands.

Fleiri fremja sjálfsvíg en deyja í bílslysum

„Ungmenni gera sér oft ekki grein fyrir endanleikanum sem felst í því að taka eigið líf. Það er alltaf hægt að fá nýtt líf í tölvuleikjum. Við höfum heyrt frá krökkum sem var bjargað á síðustu stundu að þau eru ákaflega þakklát og segjast ekki skilja hvað þau hafi verið að hugsa," segir Salbjörg Bjarnadóttir, verkefnisstjóri Þjóðar gegn þunglyndi.

Guðni Th.: Erfitt að draga fyrrverandi ráðherra fyrir Landsdóm

Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, segir að erfitt geti reynst að draga fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, fyrir Landsdóm vegna gjörða í aðdraganda bankahrunsins. Ákæruefni geti ekki verið almenn, heldur þurfi að negla niður saknæmar athafnir.

Landhelgisgæslan leigir þriðju þyrluna

Ríkisstjórnin samþykkti tillögur Ögmundar Jónassonar, dómsmálaráðherra, á fundi sínum í morgun, um að leigð verði þriðja þyrlan til björgunarstarfa fyrir Landhelgisgæsluna. Þetta þýðir að þá yrðu ávallt tvær áhafnir til taks.

Alvarlegur misbrestur varð á að tilkynna um vinnuslys

Alvarlegur misbrestur virðist hafa orðið á að tilkynna réttum aðilum um alvarlegt vinnuslys sem varð á kjúklingabitastað KFC í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír starfsmenn staðarins brenndust og liggur einn þeirra á gjörgæsludeild.

Lögreglan óskar eftir aðstoð við að finna brennuvarga

Lögreglan biðlar til almennings að aðstoða við að upplýsa íkveikju í Landakotsskóla síðastliðið miðvikudagskvöld. Þar var kveikt í garðbekk við bakhurð skólans. Lögregla segir ljóst að talsvert hafi þurft af eldfimu efni til að tendra eldinn þar sem bekkurinn var regnblautur fyrir.

Vinnuslys: Brenndist illa á KFC

Ungur starfsmaður á kjúklingastaðnum KFC í Kópavogi liggur á gjörgæsludeild eftir að heitavatnskútur sprakk þar skömmu eftir lokun í gærkvöldi og hann brenndist í andliti, á brjósti og höndum. Hann verður líklega úrskrifaður á aðra deild í dag, að sögn læknis.

Fæðingamet slegið - rúmlega fimm þúsund börn

Árið 2009 fæddust 5.027 börn hérlendis, 2.561 drengur og 2.466 stúlkur. Það eru 192 fleiri börn en ári áður, en þá fæddust hér 4.835 börn. Aldrei áður hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári. Áður fæddust flest börn árið 1960 þegar 4.916 börn fæddust og árið 1959 þegar 4.837 börn litu dagsins ljós.

Tryggvi Þór: Lág laun þingmanna leiða til spillingar

Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, trúir því staðfastlega að skaðinn af efnahagshruninu hefði verið minni ef ríkisstjórnin hefði farið að ráðleggingum hans á sínum tíma. „Ég benti ráðamönnum á að ef hin svokallaða Glitnisleið yrði farin þá myndi það skapa Dominoáhrif og kerfið myndi hrynja."

Innbrot í fyrirtæki í austurborginni

Brotist var inn í fyrirtæki í austurborginni í nótt og þaðan stolið bíl. Ekki er vitað hversu lengi þjófurinn hafði ekið honum, þegar hann lenti í árekstri við annan bíl í Höfðahverfi undir morgun.

Svikahnappur kemur upp um 39 svindlara

Upp hefur komist um 39 svindlara á síðustu tveimur mánuðum fyrir tilstilli tilkynningahnapps um bótasvik á heimasíðu Tryggingastofnunar (TR). Hnappnum var komið fyrir á síðunni fyrir ári síðan en frá 1. júlí í ár hafa 63 ábendingar um bótasvik borist. Af þeim reyndust 39 mál réttmæt og voru send til frekari skoðunar eða aðgerða.

Hótaði leigjanda handrukkun

Rúmlega sextugur karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness til að greiða hundrað þúsund krónur eftir að hann hafði hótað kvenkyns fyrrum leigjanda sínum „nútíma innheimtuaðgerðum“ greiddi konan ekki skuld sína.

Greiddi 400 þúsund fyrir viðgerð á spíssum

Fleiri ósáttir Land Cruiser-eigendur hafa komið fram í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins í gær um meinta galla í Land Cruiser 120 bifreiðum. Þar sagði Aubert Högnason frá samskiptum sínum við Toyota á Íslandi varðandi

Þriðja hrunið er í nánd segir Vilhjálmur

„Það þarf að hætta að slátra köttum en fara á fullt í að veiða mýs,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og varar við afleiðingum þess að fyrrverandi ráðherrar verði ákærðir fyrir vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins.

Gætu fengið 120 milljarða

Sjö lífeyrissjóðir og breskur einkaframtakssjóður hafa lagt fram tilboð í danska fyrirtækja- og fjárfestingarbankann FIH.

Uppvísir að stórtæku svindli

Skipstjórar sex skoskra skipa hafa viður-kennt fyrir hæstarétti í Glasgow að hafa veitt og landað ólöglega tugum þúsunda tonna af makríl og síld að verðmæti 2,7 milljarðar króna. Einn skipstjóranna er varaformaður Samtaka skoskra uppsjávarveiðimanna (SPFA). Eins og kunnugt er hafa samtökin

Horft aftur til fortíðar í veiði

Nú stendur til að endurvekja grásleppuútgerð í Grímsstaðavör við Ægissíðu í Reykjavík. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu í menningarmálanefnd árið 2006 um endurvakningu útgerðarinnar og friðun grásleppuskúranna, þegar stóð til að jafna þá við jörðu.

Vilja fá féð til ríkisskólanna

Stúdentaráð Háskóla Íslands gagnrýnir stjórnvöld harðlega í nýrri skýrslu um fyrirhugaðan niðurskurð á fjárlögum til skólans. Í skýrslunni eru stjórnvöld sögð ekki hafa leitað allra leiða til að koma í veg fyrir boðaðan niðurskurð sem verður samtals fimmtán til 25 prósent næstu þrjú árin.

Nokkur frumvörp afgreidd á lokametrunum

Nokkur stjórnarfrumvörp hafa verið afgreidd til nefnda og þriðju umræðu á Alþingi í fyrradag og í gær. Reyna á að afgreiða þau sem lög frá þinginu áður en því verður slitið í lok næstu viku.

Segja færeysk skip fá helmingi hærra verð fyrir makríl

Skipverjar á Faxa RE fullyrða í skipabloggi sínu að færeyska skipið Fagraberg hafi fengið helmingi hærra verð fyrir landaðan makríl hjá Ísfélaginu í Vestmannaeyjum en íslensk skip fá fyrir sinn afla. Þessu hafnar verksmiðjustjóri Ísfélagsins. Hann segir að færeysk skip séu þó almennt mun betri en þau íslensku og skili betra hráefni. Það sé stór þáttur í verðmyndun aflans.

Stúlkan fannst heil á húfi

Stúlka sem björgunarsveitir leituðu að í dag fannst heil á húfi laust fyrir klukkan sex. Hún var þá stödd í Hinu húsinu en hafði læst sig inni á baðherbergi og komst ekki út. Talið er að hún hafi verið þar í dágóða stund. Starfsmaður í Hinu húsinu sá bakpoka stúlkunnar á staðnum og kannaði í kjöfarið málið og fann stúlkuna. Um 60 björgunarsveitamenn voru komnir til leitar þegar að stúlkan fannst.

Leita að stúlku í Grafarvogi og Breiðholti

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út til leitar að 17 ára stúlku sem saknað er í Grafarvogi í Reykjavík. Stúlkan var á leið frá heimili sínu til skóla í morgun þegar að hún týndist. Hún er með Downs heilkenni.

Feministar fagna afstöðu Jóns gegn klámi

Femínistafélag Íslands fagnar því að Jón Gnarr borgarstjóri skuli taka skýra afstöðu gegn klámi og skilji skaðsemi þess samkvæmt tilkynningu sem félagið sendi frá sér.

Vilja upplýsingafulltrúa bótaþega

Borgarafundur um fátækt á Íslandi sem haldinn var í gærkvöldi í ráðhúsi Reykjavíkur leggur til að stofnuð verði staða Upplýsingafulltrúa bótaþega.

Björgólfur Thor gerir athugasemd við fréttaflutning

Björgólfur Thor Björgólfsson, fjárfestir, gerir athugasemdir við frétt Vísis frá því í gær um eignarhald hans á Landsbankanum og félagið Givenshire Equities sem skráð er á Kýpur. Fréttastofan stendur við fréttina. Hins vegar skal tekið fram að í útgáfu á fréttinni sem birtist á Vísi urðu þau mistök að orðið „tengdra aðila“ vantaði þegar vísað var til lánveitinga til Björgólfs Thors upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Akraneskaupstaður skilar hagnaði

Akraneskaupstaður hefur birt rekstraruppgjör fyrir fyrstu sjö mánuði ársins. Þar kemur fram að bæjarfélagið skilar 212 milljónum króna í hagnað á tímabilinu í stað 33,5 milljóna króna taps eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Keypti sér orkídeu og fann kakkalakka

„Ég frétti af þessu í gær,“ segir Þórarinn H. Ævarsson, framkvæmdastjóri Ikea, en viðskiptavinur hafði samband við verslunina vegna kakkalakka sem fundust inn á heimili hans.

Björn Zoëga skipaður forstjóri Landspítalans

Björn Zoëga, starfandi forstjóri Landspítala, hefur verið skipaður forstjóri Landspítala frá og með 1. október nk. Guðbjartur Hannesson, heilbrigðis- og félags- og tryggingamálaráðherra, tilkynnti í dag um þessa ákvörðun sína og var tilkynning um þetta birt á heimasíður ráðuneytisins.

Áfram óeðlileg tengsl milli viðskipta og stjórnmála

„Nýsamþykkt lög gera hvorki ráð fyrir að rofin verði óeðlileg tengsl á milli viðskipta og stjórnmála né að jafnræðis verði gætt við úthlutun opinberra fjármuna. Stjórnmálasamtök og stjórnmálamenn munu áfram geta tekið við peningum frá fyrirtækjum. Þá verður flokkum og flokksmönnum heimilt að taka við peningum frá einstaklingum án þess að upplýst verði í öllum tilfellum um viðkomandi styrkveitendur."

Lög um fjármál flokka samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í dag breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda. Flutningsmenn voru formenn flokkanna á þingi að undanskildum Hreyfingunni.

Jón Gnarr: Klám er dýrslegt og ógeðfellt

Jón Gnarr borgarstjóri harmar mjög umræðuna sem hefur skapast um orð hans um klámnotkun sem hann lét falla í viðtali við frönsku fréttastofuna AFP. „Ég var að grínast," segir Jón og bendir á að um leið og hann hafði sleppt orðinu hafi hann sérstaklega tekið fram að þetta hefði verið grín. Því næst sagðist hann aðallega nota netið til að fara á Facebook og „gúggla."

Suðurnesjamorðið: Grét þegar hann lýsti morðinu

Það var rafmagnað andrúmsloft í morðréttarhöldunum yfir Ellerti Sævarssyni sem hefur játað að hafa orðið Hauki Sigurðssyni að bana í byrjun maí. Aðstandendur Hauks sátu á fyrsta bekk Héraðsdóms Reykjaness í fullsetnum réttarsal.

Manndrápið framið að ástæðulausu

Ellert Sævarsson segist ekki vita hvað varð til þess að hann varð Hauki Sigurðssyni að bana í Reykjanesbæ 8. maí síðastliðinn. Aðalmeðferð fór fram í máli Ellerts í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Þar kom meðal annars fram að Ellert hafi orðið Hauki að bana með steinhellu sem vóg tólf kíló.

Kynfæragötun aldrei vinsælli

Kynfæragötun tröllríður nú tískustraumum í líkamsgötun, en ávinningurinn af henni ku felast í meiri ánægju kvenna í ástalífinu. „Stelpur elska naflagöt, og gat í tungu er enn hæstmóðins, en langmest aukning er í kynfæragötun kvenna. Þá er settur lóðréttur pinni í gat ofan við snípinn sem eykur kynferðislegan unað,“ segir Seselía Guðmundsdóttir, gatari hjá Tattoo og skarti á Hverfisgötu, spurð um helstu tískustrauma í líkamsgötun.

Reykjavík gæti orðið Græna borgin

Jón Gnarr borgarstjóri segir að Reykjavík eigi góða möguleika á að verða Græna borgin í Evrópu en hann sat fyrir svörum sérstakrar dómnefndar í Brussel í gær. Tvær evrópskar borgir verða valdar í október til að bera titilinn European Green Capital eða Græna borgin í Evrópu árin 2012 og 2013.

Sjá næstu 50 fréttir