Fleiri fréttir

Lög um hópmálssókn samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í gær lög sem gerir mögulegt að hefja hópmálsókn fyrir dómi. Ef þrír aðilar eða fleiri eiga kröfur á hendur sama aðila, geta þeir samkvæmt lögunum stofnað málsóknarfélag, sem fer með sameiginlegar kröfur þeirra.

Neytendasamtökin fagna lögum um hópmálsóknir

Neytendasamtökin fagna því að Alþingi hafi loksins samþykkt lög um hópmálsókn en samtökin hafa hvatt til slíkrar lagasetningar um árabil. Samtökin sendu erindi til dómsmálaráðherra árin 2006 og 2008 þar sem þau hvöttu til þess að slík lög yrðu sett.

Samband Jóns og Össurar eins og erfitt hjónaband

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kvaddi sér hljóðs á þingi í dag til þess að ræða heilsufar Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Sigmundi finnst Össur hafa haft allt á hornum sér síðustu daga og að hann hafi ráðist að þingmönnum „á alla kanta að minnsta tilefni.“

Hætt við gullleit á Austurlandi

Ástralska jarðefnarannsóknarfyrirtækið, Platina Resources Ltd., hefur dregið umsókn sína um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi til baka. Þetta kemur fram á heimasíðu Orkustofnunnar.

BHM: Tekið undir orð nýs ráðherra

Stjórn BHM, bandalags háskólamanna, tekur heils hugar undir þau orð nýskipaðs heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðherra, Guðbjarts Hannessonar sem höfð eru eftir honum í viðtali við Fréttablaðið þann 4. september 2010, að móta þurfi heildstæða stefnu og sýn í opinberri þjónustu og að ekki verði skorið niður með flötum hætti í þeim sparnaðaraðgerðum sem framundan eru.

Mikil aukning á sortuæxlum rakin til ljósabekkja

Talið er sennilegt að mikil aukning á sortuæxlum í húð hér á landi síðustu áratugi stafi einkum af notkun ljósabekkja, en einnig að hluta til af sólarlandaferðum. Um málið er fjallað í septemberhefti tímaritsins American Journal of Epidemiology. Aðalhöfundur greinarinnar er franski faraldsfræðingurinn Philippe Autier, en meðal annarra höfunda eru Íslendingar sem starfa hjá Krabbameinsskránni, Geislavörnum, Landspítalanum og Háskóla Íslands.

„Birgitta er atvinnustjórnmálamaður og einstæð móðir“

„Birgitta Jónsdóttir er ekki hluti af Wikileaks. Ég hef ekki talað við hana í marga mánuði. Ég talaði við hana fyrst árið 2009. Hún er atvinnustjórnmálamaður og einstæð móðir á Íslandi," sagði Julian Assange, forsrpakki Wikileaks, í viðtali við Fox News um Birgittu Jónsdóttur, þingmann Heyfingarinnar.

Formaður velferðarráðs: Klám er gróft ofbeldi

Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, er einn þeirra fjölmörgu sem finnst ekki við hæfi að Jón Gnarr borgarstjóri hafi haft klámnotkun sína í flimtingum í viðtali við franskan fréttamann. „Það er ekki á hverjum degi sem maður getur sagst vera sammála Sóley Tómasdóttur og Hönnu Birnu í sama málinu - sú stund er runnin upp !," segir Hrannar Björn á Facebook-síðu sinni.

Viðtal við Jenis: Fólkið vill að konan sé heima, ekki í pólitík

Jenis av Rana, maðurinn sem ekki vill sitja til borðs með lesbískum forsætisráðherra Íslands, er formaður hins kristilega Miðflokks í Færeyjum. Klemens Ólafur Þrastarson, blaðamaður Fréttablaðsins, ræddi við hann í ágúst í fyrra vegna fréttaskýringa sem hann gerði í tilefni kreppuláns Færeyinga. Hér á eftir fer að mestu óbirt viðtal við þingmanninn, þar sem hann segir samkynhneigð vera í mótsögn við Biblíuna og að ESB sé óguðlegur félagsskapur. Einnig ræðir hann um þátttöku kvenna í stjórnmálum, og segir að Færeyingar myndu ekki höndla lesbískan lögmann. Hann segir að Íslendingar eigi að snúa sér til Herra Guðs og býðst til að hjálpa til við að stofna kristilegan flokk á Íslandi.

Meirihluti stjórnar VR styður Ragnar áfram

„Eftir mjög snarpar umræður um málið varð niðurstaðan sú að Ragnar Önundarson nýtur trausts meirihluta stjórnar VR til áframhaldandi starfa fyrir félagsmenn VR,“ segir Bjarki Steingrímsson, stjórnarmaður í VR. Á stjórnarfundi í gær lagði hann fram tillögu um að Ragnar Önundarsonar myndi víkja úr ábyrgðarstöðum sem hann gegnir fyrir hönd félagsins sem varformaður stjórnar lífeyrissjóðs verslunarmanna og sem stjórnarmaður í Framtakssjóði Íslands.

Formaður Heimdallar hættir

Árni Helgason, formaður Heimdallar, gefur ekki kost á sér til endurkjörs á aðalfundi félagsins sem haldinn verður þann 15. september. Til fundarins hefur verið boðað í Valhöll.

Snarræði lögreglu og nágranna bjargaði miklu

Slökkviliðsmenn segja að það sé snarræði lögreglu og nágranna að þakka að ekki fór verr, þegar eldur kviknaði í klæðningu utan á Landakotsskóla í Reykjavík um níu leitið í gærkvöldi.

Segir meirihluta fyrir því að kalla Landsdóm saman

Morgunblaðið hefur það eftir heimildum, sem blaðið metur áreiðanlegar, að meirihluti hafi myndast fyrir því, í nefnd sem Alþingi skipaði til að fara yfir rannasóknarskýrslu Alþingis, að Landsdómur verði kallaður saman.

Þyrla LHG sótti slasaðan gangnamann

Gangnamaðurinn, sem féll af hestbaki og slasaðist í svonefndum Fjörðum, austan við Eyjafjörð um níu leitið í gærkvöldi, komst undir læknishendur um miðnætti, þegar þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með hann við sjúkrahúsið á Akureyri.

Sjóðsfélagar endurgreiði ekki

Nýju bankarnir, eða þeir sem högnuðust á kaupum á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna, gætu þurft að greiða ríkinu til baka þá fjárhæð sem varið var til kaupanna. „Viðskiptavinir þeirra, fólkið sem lagði fé sitt í sjóðina þarf hins vegar ekki að greiða neitt,“ segir Per Sanderud, forseti Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í samtali við Fréttablaðið.

Makríll mun dreifðari en fyrr

Makríll er mun dreifðari og göngur hans við Ísland teygja sig lengra til vesturs en áður hefur sést. Þetta staðfesta niðurstöður úr vistfræðirannsóknum í kringum Ísland, Færeyjar og í Norska hafinu í júlí og ágúst.

Skella skollaeyrum við meintum galla

Toyotaeigandi sakar Toyota á Íslandi um að bregðast ekki við meintum galla í Land Cruiser bifreiðum. Aubert Högnason segist hafa farið með bifreið sonar síns, af gerðinni Land Cruiser 120, í smurningu hjá

Lög um hópmálsóknir samþykkt

Alþingi Alþingi samþykkti í gær lög um hópmálsóknir og tóku þau þegar gildi. Allir viðstaddir þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt.

Fyrrverandi skólastjóri dró sér fé frá skólanum

Ríkissaksóknari hefur ákært fyrrverandi skólastjóra grunnskólans á Tálknafirði fyrir Héraðsdómi Vestfjarða fyrir fjárdrátt og brot í starfi. Skólastjóranum fyrrverandi er gefið að sök að hafa dregið sér rúmlega eina og hálfa milljón króna af fjármunum skólans.

Vill ekkert segja fyrr en að lestri loknum

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra vill ekkert tjá sig um einstök efnisatriði nýútkominnar skýrslu starfshóps um endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins. Í viðtali Fréttablaðsins við ráðherra kom ekki fram hvenær hann telur ástæðu til að tjá sig þar sem hann hefur ekki kynnt sér skýrsluna til hlítar.

Borgin ætti ekki að mismuna börnum

Reykjavíkurborg niðurgreiðir ekki mat í einkaskólunum Ísaksskóla og Landakotsskóla. Foreldrar barna í þessum skólum borga því 11.700 krónur á mánuði fyrir fæði barna sinna, í stað þeirra 5.000 króna sem greiða þarf í skólum sem borgin rekur.

Þyrla kölluð út vegna hestaslyss

Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið í Þorgeirsfjörð. Grunur leikur á að maður hafi fallið af hestbaki og þótti ráðlegt að óska eftir aðstoð þyrlunnar.

Þétt setinn bekkur í Ráðhúsinu

Hann er þétt setinn bekkurinn í Ráðhúsinu í kvöld. Þar fer fram borgarafundur um fátækt sem BÓT, aðgerðahópur um bætt samfélag, stendur fyrir.

Töluverðar skemmdir við Landakotsskóla

Töluverðar skemmdir urðu á tréverki fyrir utan Landakotsskóla þegar eldur kviknaði þar á níunda tímanum í kvöld þannig að nokkurn reyk lagði frá húsinu. Útlit er fyrir að þarna hafi verið kveikt í. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sendi fyrst allar sínar stöðvar á staðinn en síðar kom í ljós að skemmdirnar voru minni en mönnum sýndist í upphafi og því voru allar stöðvar afturkallaðar nema ein.

Brasilísk kona fær ekki að búa hjá eiginmanninum

Mál Dayana Alves frá Brasilíu verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Dayana hefur búið hér á landi í meira en tvö ár. Útlendingastofnun ætlar hins vegar ekki að veita henni dvalarleyfi og hyggst vísa henni úr landi.

Eldur kviknaði í Landakotsskóla

Eldur kviknaði við Landakotsskóla nú á níunda tímanum í kvöld. Í fyrstu var talið að um mikinn eld væri að ræða og voru allar stöðvar á höfuðborgarsvæðinu ræstar út. Síðar kom í ljós að eldurinn var minniháttar og var því mest allt slökkviliðið afturkallað.

Háskólasjóður hefur rýrnað

Háskólasjóður hefur rýrnað mjög að undanförnu. Ástæðan er sú að lengi vel rann hluti tekjuskatts þeirra skattgreiðenda sem standa utan trúfélaga til Háskóla Íslands. Árið 2009 var hins vegar gerð breyting á og nú heldur ríkissjóður peningunum sem áður rann í sérstakan Háskólasjóð.

Íslensk kona höfundur fyrsta biskupsins í skák

„Íslandssagan er að breytast,“ segir Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur, sem telur að fornir taflmenn sem geymdir eru í breska þjóðminjasafninu, hafi verið skornir út hér á landi, úr rostungstönnum frá Grænlandi. Það muni breyta hugmyndum manna um íslenskar miðaldir. Guðmundur telur sig líka hver bjó mennina til.

Ók á öðru hundraði á Sæbraut

Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að hraðakstri á Sæbraut í Reykjavík um miðjan dag í gær. Bíll hans mældist á 128 km hraða á móts við Kirkjusand. Maðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur viðkomandi áður gerst sekur um umferðarlagabrot.

Hvetja foreldra til að ganga í skólann með börnunum

Ögmundur Jónasson, samgönguráðherra, setti átakið „Göngum í skólann“ í morgun að viðstöddum nemendum úr Fossvogsskóla í Reykjavík og Snælandsskóla í Kópavogi. Þetta er í fjórða sinn sem átakið fer fram og hefur það þann tilgang að hvetja nemendur og foreldra til að ganga eða hjóla í skóla.

Verkfall vélstjóra: Ákvörðun samninganefndar mótmælt

Félag Vélstjóra- og málmtæknimanna mótmælir ákvörðun samninganefndar ríkisins um að skip á vegum Hafrannsóknastofnunar fái að ljúka fyrirfram skipulögðum leiðangri sínum áður en til verkfalls vélstjóra kemur. Vélstjórar á skipum stofnunarinnar samþykktu þann 25. ágúst s.l. að boða til vinnustöðvunar sem hæfist á miðnætti föstudaginn 10. september.

Lögreglan styrkir Stellu Líf

„Ég er afskaplega þakklátur fyrir þennan stuðning en það er ómetanlegt að eiga góða að," segir lögreglumaðurinn Hermann Páll Traustason en samstarfsfélagar hans hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu færðu honum að gjöf 600 þúsund krónur á dögunum samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu lögreglunnar.

Ríkisendurskoðun ítrekar þriggja ára gamlar ábendingar

Ríkisendurskoðun hefur ítrekað þrjár af fimm ábendingum sem stofnunin setti fram í skýrslu um sameiningu St. Jósepsspítala og Sólvangs árið 2007. Aðeins tvær hafa verið framkvæmdar að fullu að því er segir á heimasíðu stofnunarinnar.

Aukið eftirlit með farsímanotkun ökumanna

Lögreglan mun á næstu vikum leggja sérstaka áherslu á eftirlit með farsímanotkun ökumanna án handfrjálss búnaðar og notkun stefnuljósa. Þá mun lögreglan fylgjast með og gera athugasemdir við þá ökumenn sem ekki eru með tvö skráningarmerki á ökutækjum sínum eins og reglur segja til um eða skráningarmerkin ógreinileg einhverra hluta vegna. Ökumenn geta búist við sektum og að verða boðaðir með ökutæki sín til skoðunar séu þessi atriði ekki í lagi.

Búið að aftengja duflið - sprengjan var heil

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru búnir að aftengja tundurdufl sem festist í veiðarfærum togbátsins Skinney snemma í morgun. Duflið reyndist vera 225 kíló en hvelletta og forsprengja vorur enn til staðar en óvíst hvort raunveruleg hætta hafi verið til staðar.

Sjá næstu 50 fréttir