Fleiri fréttir

Engin leynd yfir tölvupósti

Aðallögfræðingur Seðlabankans, Sigríður Logadóttir, segir að engin fyrirvari hafi verið gerður um notkun viðskiptaráðuneytisins á tölvupósti sem hún sendi lögfræðingi ráðuneytisins, en hann fjallaði um heimild til gengistryggingar lána og var endursögn á minnisblaði Sigríðar sama efnis.

Spaugstofan kostaði 81 milljón

Spaugstofan kostaði Ríkisútvarpið 81 milljón í hitteðfyrra samkvæmt tölum sem komu fram í sundurliðuðu svari Katrínar Jakobsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í vetur.

Þarf að auka öryggi á Geysissvæðinu

„Maður á náttúrlega að passa þetta lítil börn. Það liggur alveg fyrir því að það er þarna hiti sem vellur upp úr allskonar holum," segir Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógarbyggðar. Geysir í Haukadal er í Bláskógarbyggð en þar slasaðist tveggja ára gömul telpa í gær þegar að hún datt í heitt vatn sem hafði fallið úr hvernum Strokki.

Berst með kjafti og klóm til að viðhalda menningarstarfi

„Ég er staðfastur í því og viss umað það verður einhver flugeldasýning í gangi," segir Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi og formaður menningar- og ferðamálaráðs, um flugeldasýninguna sem venjulegast markar endalok

Katrín: HM málið skoðað í ráðuneytinu

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra ætlar að láta skoða hvort rétt sé að skylda Stöð 2 Sport til þess að sýna leiki á HM í handknattleik í opinni dagskrá. „Það er heimild til að setja reglugerð um viðburði sem eru í opinni dagkskrá," segir Katrín.

Telja að ráðherra hafi kippt fótunum undan rækjufyrirtækjum

Starfsmenn Byggðastofnunar eru þeirrar skoðunar að landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra hafi kippti fótunum undan rekstrargrundvelli nokkurra viðskiptavina stofnunarinnar þegar hann gerði veiðar á úthafsrækju frjálsar. Þessi ákvörðun gæti þýtt að Byggðastofnun þurfi að afskrifa 1,3 milljarða króna vegna lána til fjögurra fyrirtækja.

Hægist á fjölgun örorkulífeyrisþega

Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega á þessu ári miðað við það undanfarin ári. Með örorkulífeyrisþegum er átt við þá sem skráðir eru með 75% örorku eða meira. Þetta kemur fram á vef Samtaka atvinnulífsins.

Tólf teknir fyrir ölvunarakstur

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi.

Ráðherra greinir á um ágæti mjólkurfrumvarps

Fjármálaráðherra segist ósammála Samkeppniseftirlitinu um að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra sé skaðlegt samkeppni. Þá greinir efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra á um kosti frumvarpsins, en sá fyrrnefndi er sammála sjónarmiðum Samkeppniseftirlitsins.

Jóhanna lætur kanna hæfi Bjarnveigar vegna ummæla

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hyggst kanna meint vanhæfi Bjarnveigar Eiríksdóttur til setu í nefnd sem meta á lögmæti kaupa Magma Energy á eignarhlutum í HS Orku. Bjarnveig lýsti skoðun sinni á kaupunum í fjölmiðlum nokkrum vikum áður en hún var skipuð í nefndina.

Vill að ráðherra íhlutist um að HM verði í opinni dagskrá

Páll Magnússon útvarpsstjóri beinir því til Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra að hún íhlutist um að leiki íslenska handboltalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti verði að sýna í ólæstri dagskrá. Í dag var tilkynnt um að mótið verði sýnt á Stöð 2 Sport en ekki í Ríkissjónvarpinu eins og venjan hefur verið.

Dópaður undir stýri með barn í bílnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mann um helgina en hann hafði ekið undir áhrifum fíkniefna. Barn mannsins var í bílnum að því er fram kemur í tilkynningu en ökumaðurinn hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Alls voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna um helgina.

Leikskólaplássum fjölgað í Norðlingaholti

Þrjátíu ný leikskólapláss verða til í Norðlingaholti um miðjan september þegar opnuð verður ný deild við leikskólann Rauðhól að Sandavaði 7, en brýn þörf er í hverfinu fyrir leikskólapláss fyrir börn sem verða tveggja ára á árinu að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Fagna merkingu erfðabreytta matvæla

Neytendasamtökin fagna þeirri ákvörðun Jóns Bjarnasonar, landbúnaðarráðherra, ætlar að setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Reglugerðin mun kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum. Stuðst verður við samsvarandi reglur Norðmanna og mun ný reglugerð taka gildi fjótlega, með nauðsynlegum aðlögunartíma fyrir framleiðendur og söluaðila.

Vinnur gegn hagsmunum bænda og neytenda

Neytendasamtökin fullyrða að mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra vinni gegn hagsmunum bænda og neytenda. Verði frumvarpið samþykkt verður einokun fest í sessi að mati samtakanna og því vilja þau að frumvarpið verði fellt á Alþingi.

Jón vanhæfur til að skipa í embætti skrifstofustjóra

Forsætisráðherra hefur skipað Rögnu Árnadóttur dóms- og mannréttindaráðherra í stað Jóns Bjarnasonar til þess að taka ákvörðun um skipun í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.

Kertafleyting á Akureyri

Samstarfshópur um frið stendur fyrir kertafleytingu á Akureyri næstkomandi fimmtudagskvöld til að minnast þess að 65 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á japönsku borgirnar Hirosima og Nagasaki. Athöfnin verður haldin við Minjasafnstjörnina á Akureyri og hefst klukkan 22. Ávarp flytur Björn Þorláksson, bæjarlistamaður Akureyrar.

Fleygðu fimmhundruð plastgítörum yfir Heklu

Margt hefur á daga Þristsins, DC3 flugvélar Þristavina drifið þá áratugi sem vélin hefur verið á flugi en sennilega hefur hún aldrei farið í eins skrítið verkefni og á dögunum. Afraksturinn má nú sjá á Youtube og fleiri netsíðum en um er að ræða auglýsingu frá tölvuleikjaframleiðanda.

Spaugstofan hættir: Hefðu viljað kveðja áhorfendur

Spaugstofan verður ekki áfram á dagskrá Sjónvarpsins í haust vegna boðaðs niðurskurðar stjórnvalda á tekjum RÚV. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Páli Magnússyni útvarpsstjóra á vef RÚV. Karl Ágúst Úlfsson einn meðlima Spaugstofunnar segir að það hafi legið í loftinu í nokkurn tíma að þátturinn yrði lagður niður. Hann er staddur erlendis og fékk fréttirnir í hádeginu.

Sigruðu í alþjóðlegri kórakeppni í Rússlandi

Flensborgarkórinn, kór útskrifaðra nemenda frá Flensborgarskólanum, keppti í alþjóðlegri kórakeppni í Sankti Pétursborg í Rússlandi sem lauk fyrir helgi. Kórnum var boðin þátttaka og keppti í flokki blandaðra kóra sem var stærsti flokkurinn og vann fyrstu verðlaun í þeim flokki. Magnús Þorkelsson, skólastjóri Flensborgarskólans, segir í tilkynningu mikla viðurkenningu fólgna í þessum árangri.

Erfðabreytt matvæli verði merkt sérstaklega

Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, hyggst setja reglugerð um merkingu erfðabreyttra matvæla. Að því er fram kemur í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu mun reglugerðin kveða á um skyldu til að merkja sérstaklega allar matvörur sem seldar eru hér á landi og innihalda hráefni úr erfðabreyttum lífverum.

Sjálfstæðismenn styðja mjólkurfrumvarp

Annar fulltrúa Sjálfstæðisflokks í landbúnaðarnefnd segist standa við stuðning sinn við mjólkurfrumvarp landbúnaðarráðherra, en hinn segir gagnrýni á frumvarpið sem fram hefur komið ekki eiga rétt á sér. Báðir eru þeir þó sammála um að landbúnaðarnefnd þurfi að fara yfir málið í ljósi gagnrýninnar og útiloka ekki að frumvarpið taki breytingum.

„Skrýtin vinnubrögð“

„Þetta er ekki fagleg nálgun en við ætlum ekki að dragast inn í þessa umræðu. Þeir sem eru að stýra borginni verða að taka þessar ákvarðanir og standa og falla með þeim en það er ekki hægt að segja annað en að þetta eru skrýtin vinnubrögð,“ segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, um dagbókarfærslu Jóns Gnarr borgarstjóra.

Sömu mælikvarðar verði notaðir um alla í nefndinni

Það er eðlilegt að hæfi allra í nefnd forsætisráðherra um Magma-málið séu metin út frá sömu mælikvörðum, segja heimildarmenn fréttastofu, sérfræðingar í stjórnsýslunni sem ekki vilja láta nafns síns getið. Sveinn Margeirsson tekur ekki sæti í nefndinni vegna vanhæfis.

Slys við Geysi: Skjót viðbrögð fyrrverandi sjúkraflutningamanns

Skjót viðbrögð fyrrverandi sjúkraflutningamanns urðu til þess að tveggja ára stúlka, sem brenndist alvarlega við Geysi í gær, fékk rétta aðhlynningu strax eftir slysið. Hún liggur nú á gjörgæsludeild Landsspítalans. Ríkið á svæðið þar sem slysið varð, en það er ekki á ábyrgð neins ráðuneytis eða stofnunar.

Götum í miðborginni lokað vegna kvikmyndatöku

Umferð um Fríkirkjuveg og Skothúsveg verður stöðvuð á milli klukkan 13 og 15 í dag vegna kvikmyndatöku. Í tilkynningu hvetur Umferðarstofa ökumenn til að fara ekki inn í íbúðarhverfi miðborgarinnar, til að komast framhjá lokuninni, heldur finna sér frekar leið um stofnbrautir.

Þuklarar geta unnið hrútasæði

Íslandsmeistaramót í hrútadómum verður haldið í áttunda sinn næstkomandi laugardag í í Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Um kvöldið fer síðan fram hið landsþekkta Þuklaraball í félagsheimilinu á Hólmavík með sveiflukónginum Geirmundi Valtýssyni.

Makríll upp í landsteinum víða um landið

Makríll spókaði sig í þúsunda tali rétt við sjávarmálið á Langasandi á Akranesi í gær og talið er að makríll hafi líka verið á ferð þegar fiskitorfa óð á Pollinum við Akureyri um helgina.

Krossárhetjan lífgaði mann við á bensínstöð

Hinn tvítugi björgunarsveitarmaður, Ásmundur Þór Kristmundsson, sem óð út í Krossá á sunnudag og bjargaði tveimur frönskum ferðamönnum sem þar sátu fastir, hefur áður komið manni til bjargar. Að sögn ömmu hans má hann ekkert aumt sjá og finnst sjálfsagt að hjálpa fólki í neyð.

Norskir ferðamenn eyða mestu á Íslandi

Ferðamenn sem komið hafa til Íslands í ár eyða minna en þeir sem komu síðastliðin tvö ár. Þetta segir Helgi Hrannar Jónsson, framkvæmdastjóri Global Blue, sem annast Tax Free á Íslandi.

Vilja ekki sjá hvalveiðarnar

„Ég hélt að þetta væri grín,“ segir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar, sem býður upp á hvalaskoðun á Faxaflóa. Fréttablaðið greindi frá því í gær að hvalveiðimenn í Kópavogi ætli að bjóða upp á hvalaskoðun á hvalveiðibátum samhliða hvalveiðum.

Mynd um gosið sýnd daglega

Stuttmynd um eldgosið í Eyjafjallajökli er nú sýnd daglega í verbúð við gömlu höfnina í Reykjavík.

Þjónusta aukin í niðurskurði

Samgöngur Miðaverð venjulegrar ferðar með Herjólfi lækkaði úr um 3.000 krónum í 1.000 þegar farið var að sigla frá Landeyjahöfn. Það var gert samkvæmt ákvörðun samgönguráðuneytis, en ekki af því að kostnaðurinn hefði lækkað svo mjög, að sögn Guðmundar Nikulássonar hjá Eimskip.

Veltur á vægi Icesave-málsins

Flækist Icesave-málið ekki fyrir þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og íslenskra stjórnvalda er hugsanlegt að stíga einhver skref í afnámi gjaldeyrishafta. Þetta er mat Más Guðmundssonar seðlabankastjóra.

Tvö hundruð iðka íþróttina

Íslandsmótið í hafnabolta hófst í gær og lýkur á föstudag. Tvö lið keppa sín á milli, Hafna- og mjúkboltafélag Reykjavíkur og lið áhugamanna. Fyrra liðið fór með sigur af hólmi á fyrsta degi, 1-0.

Íbúar kjósi um það sama og í mars 2007

Álfyrirtækið Rio Tinto Alcan segist vilja auka við starfsemi sína hér á landi. Þetta kemur fram í svarbréfi félagsins til bæjaryfirvalda í Hafnarfirði.

Breytir engu fyrir Bjarna Ben

Formaður Sjálfstæðisflokks, Bjarni Benediktsson, segir að orð Adolfs Guðmundssonar, formanns LÍÚ, um að Íslendingar eigi að reyna að ná sem bestum samningi við Evrópusambandið, breyti engu fyrir flokkinn, sem hafi komist að annarri niðurstöðu.

Fjöldi fólks við Reykjavíkurtjörn

Mikill fjöldi fólks kom saman við Reykjavíkurtjörn í kvöld til að minnast þess að 65 ár eru liðin frá því að kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hirosima og Nagasaki.

Litla telpan komin á gjörgæslu

Litla telpan sem brenndist þegar að hún hrasaði ofan í heitt vatn við Strokk á Geysissvæðinu í Haukadal er kominn af slysadeild á gjörgæsludeild Landspítalans, samkvæmt upplýsingum frá lækni á slysadeild sem Vísir talaði við.

Tveggja ára telpa féll í hver

Tveggja ára telpa brenndist illa þegar að hún féll ofan í heitan hver við Strokk sem er á svæði Geysis í Haukadal síðdegis í dag.

Sjá næstu 50 fréttir