Fleiri fréttir

Hundrað hæstu fá svipuð laun og 2004

Eitt hundrað tekjuhæstu einstaklingar í landinu höfðu að meðaltali fimm milljónir króna í launatekjur á mánuði árið 2009. Tekjur þeirra eru nú svipaðar og á árunum 2004 og 2005 en innan við helmingur þess sem þær voru árið 2007 þegar þær voru 11,2 milljónir króna á mánuði að meðaltali.

Gylfa skorti tíma til að kynna sér málið

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segist ekki hafa haft nægan tíma að kynna sér feril minnisblaðamálsins þegar hann sagði í Kastljósþætti RÚV, 10. ágúst, að þann 1. júlí hefði hann ekki vitað af vinnu Seðlabankans um lögmæti gengistryggingar.

Gegn ofbeldi og misnotkun

kirkjur á Íslandi munu á næstunni lýsa því sameiginlega yfir að þær taki afstöðu gegn misnotkun og ofbeldi í hvaða mynd sem er.

Engin paradísarheimt undir Helgafelli

Gert var ráð fyrir stórri íbúðabyggð í frjósömu landbúnaðarlandi ofan við Álafosskvosina fyrir fjórum árum. Nú er þar búið í þremur nýjum húsum og einni blokk. Köngulóarvefir hanga í nokkrum auðum húsum. Slysahætta fyrir börn, segja íbúar sem aka fram hjá grunnum húsa á hverjum degi. Fyrirtækið sem sá um skipulag og sölu lóða á svæðinu á nú í viðræðum við lánardrottin. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson fór með Gunnari V. Andréssyni ljósmyndara um hverfið.

Hagnast um 1,3 milljarða króna

Eimskip hagnaðist um 7,5 milljónir evra, jafnvirði 1,3 milljarða króna, á fyrri helmingi ársins. Þar af nam hagnaðurinn á öðrum ársfjórðungi 12,2 milljónum evra. Þetta er umfram væntingar.

Gefið nafn á menningarnótt

Jón Gnarr borgarstjóri gefur Klambratúni nafn sitt að nýju á menningarnótt. Á menningarnótt kl. 15 mun Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpa nýtt fræðsluskilti eða menningarmerkingu á íslensku og ensku um sögu Klambratúns um leið og hann gefur því sitt gamla nafn að nýju í stað Miklatúns eins og það var látið heita árið 1964.

Friðlandið mun verða stækkað

Umhverfisráðherra hefur tilkynnt að stækka eigi friðlandið í Þjórsárverum og fagnar Landvernd ákvörðuninni.

Verðmunur á skólabókum mikill

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á nýjum og notuðum skólabókum fyrir framhaldsskólanema í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í fyrradag. Griffill var oftast með lægsta verðið á nýjum bókum í könnuninni en Penninn-Eymundsson var oftast með lægsta verðið á notuðum bókum. Mál og menning var oftast með hæsta verðið á nýjum bókum en Office 1 oftast með hæsta verðið á notuðum bókum.

Lokað fyrir lán vegna Búðarhálsvirkjunar

Fjárfestingarbanki Evrópu lokaði í júlí á lán til Landsvirkjunar vegna framkvæmda við Búðarhálsvirkjun. Frá þessu er greint í Viðskiptablaðinu í gær og er ástæðan sögð sú að ekki hefur enn fengist botn í Icesavedeilu Íslendinga við Breta og Hollendinga.

Toyota á Íslandi styrkir Salinn

Toyota á Íslandi verður aðalstyrktaraðili Salarins, tónlistarhúss Kópavogs, næstu tvö árin samkvæmt nýjum samningi.

Metfjórðungur hjá Atlantic

Hagnaður af rekstri færeyska olíufélagsins Atlantic Petr­oleum var 35,8 milljónir danskra króna eða jafngildi 738 milljóna íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi. Þetta er mesti hagnaður á einum ársfjórðungi hjá Atlantic Petroleum frá stofnun fyrirtækisins árið 1998.

Dregur úr lækkun íbúðaverðs

Dregið hefur verulega úr verðlækkunum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum og hefur hann glæðst það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra. Þó má reikna með að verð haldi áfram að lækka. Þetta kemur fram í Peningamálum, ársfjórðungsriti Seðlabankans.

Framhaldsskólar að hefja störf

Framhaldsskólar landsins eru flestir að hefja störf aftur þessa dagana eftir sumarfrí. Í Menntaskólanum í Reykjavík, Verslunarskólanum, Iðnskóla Hafnarfjarðar og Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ fór fram skólasetning í gær en Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Tækniskólinn verða settir í dag.

Ráðning rædd í næstu viku

Ráðning nýs framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs var ekki tekin fyrir á fundi stjórnar sjóðsins í gær. Annar stjórnarfundur verður hins vegar haldinn í næstu viku þar sem ráðning nýs forstjóra er á dagskrá.

Barátta sem skilaði árangri

Niyamgiri-fjöllin, eða Fjöllin helgu, í Orissa-fylki við austurströnd Indlands eru auðug af báxíti, sem er grunnmálmgrýtið sem ál er unnið úr. Þar hefur breska námufyrirtækið Vedanta viljað grafa og eytt í það hátt í milljarði Bandaríkjadala nú þegar. En fjöllin eru heilög í augum Dongaria Kondh ættbálksins, sem telur 7.952 sálir og er einn af 62 ættbálkum á svæðinu. Óheft báxítvinnsla þar hefði að líkindum gjörbreytt lífsstíl Kondha og skemmt náttúrulegt vistkerfi þeirra.

Hrossapest geti smitast í menn

Grunur leikur á að hrossapestin, sem herjað hefur á hesta hér á landi undan­farið, smiti menn, hunda og ketti. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gær.

Fjögur útköll á fimmtán tímum

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út fjórum sinnum á tímabilinu frá klukkan sjö á mánudagkvöldið til klukkan tvö daginn eftir.

Kaflaskipt veiði sem af er ágúst

Síldveiðin hefur verið kaflaskipt eftir að veiðar hófust á ný hjá skipum HB Granda. Á heimasíðu fyrirtækisins segir að eftir frí um verslunarmannahelgina veiddist lítið en góðar torfur gáfu tímabundið góðan afla. Dálítið er af makríl í síldaraflanum en þegar Ingunn AK hætti veiðum var hún komin hátt í 200 mílur austur af Vopnafirði.

Atvinnuleysið var ofmetið

Gert er ráð fyrir að atvinnuleysi aukist í haust og vetur og fari hæst í níu prósent á fyrstu þremur mánuðum næsta árs. Þetta kemur fram í Peningamálum, ársfjórðungsriti Seðlabankans. Það kom út samhliða vaxtaákvörðun í gær.

1.800 mótmæla skipulagstillögu

Um 1.800 Akureyringar skrifuðu undir lista til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum á miðbæjarskipulagi bæjarins og hvetja bæjarstjórn til að varðveita götumynd við Hafnarstræti.

Eldur í álverinu í Straumsvík

Slökkvliðið frá tveimur slökkviliðstöðum á höfuðborgarsvæðinu takast á við eld í kjallara steypuskála í álverinu í Straumsvík. Samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins er aðkoman erfið og því hafa slökkvistörf gengið hægt.

Tryggvi Þór vildi slátra 2500 bankamönnum og Hreiðari Má

Tryggvi Þór Herbertsson, þá efnahagslegur ráðgjafi Geirs H. Haarde forsætisráðherra, sagði í júlí - ágúst árið 2008, að Davíð Oddsson væri ómögulegur seðlabankastjóri. Þetta kemur fram í skýrslu Björns Jóns Bragasonar um fall Landsbankans og má finna á vef Björgólfs Thors Björgólfssonar, btb.is.

Morðið í Hafnarfirði: Fjölskyldan biðlar til þjóðarinnar - myndband

Fjölskylda Hannesar Þórs Helgasonar sem fannst myrtur á heimili sínu um hádegisbil á sunnudag, biður alla þá sem einhverjar upplýsingar geta veitt um andlátið að hafa samband við lögreglu. Hún þakkar þann samhug sem hún hefur fundið fyrir í kjölfar þessa hræðilega atburðar.

Landspítalinn þjónustar sjúklinga frá Færeyjum

Landspítalinn hefur gert tímamótasamning um þjónustu við sjúklinga frá Færeyjum. Samkvæmt samningnum verður sjúklingum sem Færeyingar þurfa að senda til annarra landa alla jafna vísað til Landspítalans en til þessa hafa sjúklingar í Færeyjum aðallega verið sendir til Danmerkur og Svíþjóðar. Þetta er fyrsti samningurinn sem gerður er við annað land um alhliða sjúkrahúsþjónustu á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landspítalanum.

Dómari neitar að víkja sæti

Pétur Guðgeirsson, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, hefur hafnað kröfu fjögurra af níumenningunum, sem ákærðir eru fyrir árás gegn Alþingi, um að víkja sæti.

Sigurður enn í yfirheyrslum

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er enn í yfirheyrslum hjá sérstökum saksóknara samkvæmt upplýsingum Vísis. Þar hefur hann verið frá því klukkan níu í morgun, en tveggja klukkustunda langt hlé var tekið á yfirheyrslum í hádeginu.

Elvar bestur í þuklinu | Myndir

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum var nýverið haldið í áttunda sinn á Ströndum og var það Bolvíkingurinn Elvar Stefánsson sem fór með sigur af hólmi í flokki vanra þuklara. Hann hefur keppt í þuklinu svo til frá upphafi og náði meðal annars öðru sæti árið 2005. Þrátt fyrir mikla rigningu hafa áhorfendur og keppendur aldrei áður verið fleiri, að því er fram kemur í tilkynningu.

Reykjavíkurborg kaupir Ísaksskóla

Borgarráð samþykkti í dag heimild Reykjavíkurborgar til þess að kaupa fasteignir Skóla Ísaks Jónssonar fyrir tæpar 292 milljónir króna. Kaupverðið er greitt með yfirtöku á áhvílandi skuldum sem nema tæplega 254 milljónum króna og fjármögnun nauðsynlegra viðhaldsframkvæmda

Björgólfur Thor: Icesave og Landsbankann ekki blórabögglar

„Það, að stjórnmálamenn kjósi nú að gera Icesave og Landsbankann að blóraböggli, er á engan hátt eðlilegt, einkum þegar haft er í huga að formleg ábyrgð íslenska ríkisins á Icesave skuldbindingum kom til eftir að ríkisvaldið tók yfir Landsbankann og stjórnmálamenn hófu bein afskipti að málefnum bankans," segir Björgólfur Thor Björgólfsson í ávarpi á vefsíðu sem opnaði í dag þar sem hann birtir gögn yfir öll hans viðskipti hér á landi aftur til ársins 2002.

Fá áheyrnarfulltrúa í nefndir

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkti á fundi sínum í gær tillögu bæjarfulltrúa Neslistans og Samfylkingarinnar um að framboðinn eigi þess kost að skipa áheyrnarfulltrúa í þær nefndir sem þau eiga ekki aðalfulltrúa. Þetta verður gert til reynslu í tæpt ár eða til 30. júní 2011.

Sigurður kominn aftur í yfirheyrslu

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, mætti til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara á Laugavegi klukkan tvö eftir hádegishlé. Sigurður Einarsson kom til landsins frá Bretlandi í gær og mætti svo til yfirheyrslu í morgunsárið. Interpol gaf út handtökuskipun á Sigurð í vor en hún var felld úr gildi í fyrradag.

Bassaleikari HAM aðstoðar Jón Gnarr tímabundið

S. Björn Blöndal varaborgarfulltrúi er aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra nú tímabundið á meðan Heiða Kristín Helgadóttir er í sumarfríi. S. Björn er framkvæmdastjóri Besta flokksins auk þess að vera bassaleikari hljómsveitarinnar HAM. Hann skipaði níunda sætið á lista Besta flokksins í vor og mun gegna starfinu til mánaðarmóta þegar að Heiða tekur aftur við starfinu.

Tillaga Hönnu Birnu um aukna samvinnu samþykkt

Tillaga Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, um aukna samvinnu og samráð borgarfulltrúa var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun. Þar er lagt til að sameiginlegir vinnufundir allra borgarfulltrúa verði fastur liður í starfsáætlun borgarstjórnar. Hanna Birna segir að tilgangur tillögunnar sé fyrst og síðast að bæta störf borgarstjórnar og tryggja góðar lausnir fyrir borgarbúa.

Gamli söluturninn fluttur aftur á Lækjatorg

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun flutning gamla söluturnsins sem nú stendur í Mæðragarðinum aftur á Lækjartorg þar sem hann mun lífga upp á ásýnd miðborgarinnar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar turninum

Rauði krossinn fjórfaldar neyðarbeiðni vegna flóðanna í Pakistan

Alþjóða Rauði krossinn fjórfaldaði í dag neyðarbeiðni sína vegna flóðanna í Pakistan og kallar nú eftir 8.2 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfsins. Neyðaraðstoð Rauða krossins og Rauða hálfmánans mun ná til um 900 þúsund íbúa á flóðasvæðunum.

Glæpamenn stálu flatskjá af gamalmennum

Eldri borgarar á Álftanesi urðu fyrir því óláni að á þriðjudagsmorgun var brotist inn í félagsaðstöðu þeirra og flatskjá sem var í þeirra eigu stolið. Guðrún Jónsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Álftanesi, segir að þetta sé tilfinnanlegt tjón fyrir þau. Sérstaklega í ljósi þess að staða sveitarfélagsins Álftaness sé það bágborin að engin tök séu á því að kaupa nýjan flatskjá.

Sigurður Einarsson: Góð samvinna milli manna

Hlé hefur verið gert á yfirheyrslu sérstaks saksóknara yfir Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, sem hófst í morgun. Um er að ræða um klukkustundarlangt hádegishlé. Þegar Sigurður yfirgaf húsnæði embættis sérstaks saksóknara ásamt lögmanni sínum vildi hann lítið ræða við fjölmiðla. Sigurður sagði þó að góð samvinna væri milli manna. Hann vildi ekki svara því hvort hann teldi sérstakan saksóknara hafa farið of hart fram í málinu.

Gagnrýna lífsýnatöku úr Bobby Fischer

Gagnrýnt er hvernig staðið var að lífsýnatöku úr stórmeistaranum Bobby Fischer. Rannsókn á lífsýnunum leiddi í ljós að stúlka sem taldi sig vera dóttir hans, er honum óskyld. Lögmenn hennar munnhöggvast í erlendum fjölmiðlum.

Sjá næstu 50 fréttir