Fleiri fréttir

Sigurður kominn aftur í yfirheyrslu

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, mætti til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara á Laugavegi klukkan tvö eftir hádegishlé. Sigurður Einarsson kom til landsins frá Bretlandi í gær og mætti svo til yfirheyrslu í morgunsárið. Interpol gaf út handtökuskipun á Sigurð í vor en hún var felld úr gildi í fyrradag.

Bassaleikari HAM aðstoðar Jón Gnarr tímabundið

S. Björn Blöndal varaborgarfulltrúi er aðstoðarmaður Jóns Gnarr borgarstjóra nú tímabundið á meðan Heiða Kristín Helgadóttir er í sumarfríi. S. Björn er framkvæmdastjóri Besta flokksins auk þess að vera bassaleikari hljómsveitarinnar HAM. Hann skipaði níunda sætið á lista Besta flokksins í vor og mun gegna starfinu til mánaðarmóta þegar að Heiða tekur aftur við starfinu.

Tillaga Hönnu Birnu um aukna samvinnu samþykkt

Tillaga Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, forseta borgarstjórnar, um aukna samvinnu og samráð borgarfulltrúa var samþykkt á fundi borgarráðs í morgun. Þar er lagt til að sameiginlegir vinnufundir allra borgarfulltrúa verði fastur liður í starfsáætlun borgarstjórnar. Hanna Birna segir að tilgangur tillögunnar sé fyrst og síðast að bæta störf borgarstjórnar og tryggja góðar lausnir fyrir borgarbúa.

Gamli söluturninn fluttur aftur á Lækjatorg

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun flutning gamla söluturnsins sem nú stendur í Mæðragarðinum aftur á Lækjartorg þar sem hann mun lífga upp á ásýnd miðborgarinnar. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar turninum

Rauði krossinn fjórfaldar neyðarbeiðni vegna flóðanna í Pakistan

Alþjóða Rauði krossinn fjórfaldaði í dag neyðarbeiðni sína vegna flóðanna í Pakistan og kallar nú eftir 8.2 milljörðum íslenskra króna til hjálparstarfsins. Neyðaraðstoð Rauða krossins og Rauða hálfmánans mun ná til um 900 þúsund íbúa á flóðasvæðunum.

Glæpamenn stálu flatskjá af gamalmennum

Eldri borgarar á Álftanesi urðu fyrir því óláni að á þriðjudagsmorgun var brotist inn í félagsaðstöðu þeirra og flatskjá sem var í þeirra eigu stolið. Guðrún Jónsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Álftanesi, segir að þetta sé tilfinnanlegt tjón fyrir þau. Sérstaklega í ljósi þess að staða sveitarfélagsins Álftaness sé það bágborin að engin tök séu á því að kaupa nýjan flatskjá.

Sigurður Einarsson: Góð samvinna milli manna

Hlé hefur verið gert á yfirheyrslu sérstaks saksóknara yfir Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, sem hófst í morgun. Um er að ræða um klukkustundarlangt hádegishlé. Þegar Sigurður yfirgaf húsnæði embættis sérstaks saksóknara ásamt lögmanni sínum vildi hann lítið ræða við fjölmiðla. Sigurður sagði þó að góð samvinna væri milli manna. Hann vildi ekki svara því hvort hann teldi sérstakan saksóknara hafa farið of hart fram í málinu.

Gagnrýna lífsýnatöku úr Bobby Fischer

Gagnrýnt er hvernig staðið var að lífsýnatöku úr stórmeistaranum Bobby Fischer. Rannsókn á lífsýnunum leiddi í ljós að stúlka sem taldi sig vera dóttir hans, er honum óskyld. Lögmenn hennar munnhöggvast í erlendum fjölmiðlum.

Ófyrirsjáanleg verðbólga valdi forsendubresti

Talsmaður neytenda segir að ef ófyrirsjáanleg verðbólga veldur forsendubresti gagnvart verktaka, þá gildi hið sama gagnvart neytendum. Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt að mögulegt sé að víkja samningi verktaka til hliðar vegna efnahagshrunsins.

Erlendur réttarmeinafræðingur rannsakar morðið

Erlendur réttarmeinafræðingur er kominn hingað til lands til þess að rannsaka líkið af Hannesi Þór Helgasyni sem myrtur var á heimili sínu aðfaranótt sunnudags. Lögregla hefur sleppt karlmanni sem hafði verið í haldi frá því í gær.

Yfirmenn lögreglunnar féllu á prófinu

Ráðist var á Björgvin Björgvinsson, fyrrverandi yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, af miklu ofstæki eftir að hann tjáði sig um kynferðisbrotamál í DV á dögunum. Þetta segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands í pistli á Pressunni.

Kynnir rannsóknarskýrsluna fyrir þingforsetum

Páll Hreinsson, hæstaréttardómari og formaður rannsóknarnefndar Alþingis, gerir grein fyrir störfum nefndarinnar á árlegum fundi forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sem fer fram í Reykjavík í dag. Í erindi sínu mun Páll fara yfir hvernig staðið var að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna haustið 2008.

Morðið í Hafnarfirði: Maðurinn laus úr haldi

Lögregla mun ekki fara fram á að maðurinn sem handtekinn var í gær í tengslum við morðið á Hannesi Þór Helgasyni verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Hann var látinn laus fyrir stundu.

Sigurður mætir til yfirheyrslu - myndskeið

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings mætti til yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara í morgun. Hann svaraði nokkrum spurningum blaðamanna á leið sinni til saksóknara og myndskeið af því má sjá hér.

Morðið í Hafnarfirði: Ákvörðun um varðhald liggur ekki fyrir

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem handtekinn var í gær og grunaður er um aðild að dauða Hannesar Þórs Helgasonar. Að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi var ákveðið að halda manninum í fangageymslu í nótt.

Færðu svæfingadeildinni gjafir

Kvenfélagið Hringurinn færði svæfingadeild Landspítala Hringbraut veglegar gjafir í byrjun vikunnar. Um var að ræða fjóra súrefnismettunarmæla til þess að mæla súrefnismettun hjá börnum. Mælarnir eru mjög nákvæmir og byggja á nýrri tækni.

Fyrirtöku í máli Eiðs Smára frestað

Fyrirtöku í máli Eiðs Smára Guðjohnsen, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, var frestað. DV fjallaði um fjármál Eiðs Smára og fjárfestingar undir lok síðasta árs. Eiður Smári mótmælti umfjölluninni í bréfi sem Heimir Örn Herbertsson, lögmaður hans, sendi ritstjórum DV. Taldi hann umfjöllunina ólöglega.

Svandís mæti á fund þingnefndar

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, komi á fund umhverfisnefndar Alþingis og ræði áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum og rammaáætlun Norðlingaölduveitu. Áður höfðu fjórir þingmenn úr þremur flokkum óskað eftir því að Svandís og Katrín Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, kæmu á fund iðnaðarnefndar.

Hafró: Vélstjórar boða til vinnustöðvunar

Boðað hefur verið til vinnustöðvunar vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar. Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum stofnunarinnar rann út þann 31. mars 2009 og í samningaviðræðum hafa viðsemjendur Félags vélstjóra og málmtæknimanna ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á grunnlaunum vélstjóra á skipum Hafró.

Sigurður segist vera með hreina samvisku

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara, en hann kom til landsins frá Bretlandi síðdegis i gær.

Innbrot í skóla

Tilkynnt var innbrot í Digranesskóla í Kópavogi klukkan hálfsjö í morgun. Ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en lögregla rannsakar málið. Þá var bifreið stolið nú í morgunsárið í Hafnarfirði og er það mál einnig í rannsókn.

Maður í haldi vegna morðsins

Lögregla handtók í gær mann af erlendu bergi brotinn sem grunaður er um aðild að dauða Hannesar Þórs Helgasonar. Að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi var ákveðið að halda manninum í fangageymslu í nótt.

Verður yfirheyrður hjá saksóknara í dag

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, kom til landsins í gær, en hann hefur verið eftirlýstur í þrjá mánuði. Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar, staðfestir að hann verði yfirheyrður hjá Sérstökum saksóknara í dag.

Tekjur ríkisins meiri en búist var við

Handbært fé frá rekstri ríkisins var neikvætt um 36,5 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins. Tekjur voru 27,7 milljörðum meiri en á sama tímabili í fyrra og voru 16,4 milljörðum meiri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir. Gjöld voru 3,1 milljarði meiri en í fyrra.

Notkun aukist um helming

Notkun rítalíns og annarra lyfja sem notuð eru við athyglisbresti og ofvirkni, ADHD, hefur aukist um helming milli áranna 2006 og 2009 samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands.

Fengu konunglega heimsókn

Haraldur Noregskonungur heimsótti íslenska sýningarsvæðið á sýningunni Nor-Fishing, sem stendur nú yfir í Þrándheimi.

Ríkisstjórn veitir níu milljónir til rannsókna

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu um níu milljóna króna framlag til rannsóknar á áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á heilsu manna og dýra. Óskað var eftir framlaginu vegna vinnu við gagnasöfnun á gossvæðinu sem fram á að fara í haust, áður en gögn kunna að glatast.

Stúdentaráð óttast brottfall

Ríflega sautján prósent á námsbækur mun bæði draga úr bóksölu og leiða til aukins brottfalls úr námi, segir Jens Fjalar Skaptason, formaður stúdentaráðs HÍ, í opnu bréfi sem hann hefur ritað fjármálaráðherra til að vara við hugmyndum um hækkun virðisaukaskatts á bækur.

Reiðarslag ef hætt verður við Helguvík

Það væri gríðarlegt reiðarslag ef eigendur Norðuráls hætta við byggingu álvers í Helguvík vegna óvissu um raforku og tafa á veitingu virkjanaleyfis segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.

Söfnunarsími fyrir Pakistan

UNICEF á Íslandi hefur tekið í notkun söfnunarsíma til að afla fjár til stuðnings þeim sem orðið hafa verst úti í flóðunum í Pakistan. Að minnsta kosti 15 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan, um helmingurinn börn, að mati UNICEF.

Greiða skólagjöld fyrir atvinnulausa

„Við erum að svara mikilli eftirspurn fyrirtækja í hugverkaiðnaði eftir fólki. Þau fáu atvinnuleyfi sem við gefum út eru vegna starfa hjá hugbúnaðarfyrirtækjum. Það er greinilega ekki fólk hér í störfin,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar.

Framlenging á greiðslustöðvun

Héraðsdómur hefur framlengt greiðslustöðvun Kaupþings fram til 24. nóvember þessa árs. Var það gert að beiðni bankans. Er þetta í þriðja sinn sem Kaupþing fær framlengingu á greiðslustöðvun. Hinn 24. nóvember 2008 var upphaflega veitt heimild til 13. febrúar 2009, síðan var framlengt til 13. nóvember og síðast til 13. ágúst 2010.

Atvinnuauglýsingum fjölgar

atvinna Rúmlega tuttugu prósentum fleiri atvinnuauglýsingar birtust í dagblöðum fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra.

Fundurinn var mikið bakslag

Ekki náðist árangur á kjarafundi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaganna í gær.

Annar maður í haldi vegna morðrannsóknar

Síðdegis í dag var maður handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti Hannesar Þórs Helgasonar og færður til yfirheyrslu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Enginn sérsamningur við Sigurð Einarsson

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var eftirlýstur af Interpol frá 11. maí síðastliðnum og þar til í gær en þá var handtökuskipunin tekin út af vefsíðu Interpol. Hann hafði ekki sinnt kvaðningu sérstaks saksóknara um að mæta í yfirheyrslur.

Lögðu hald á 37 kíló af Khat

Tollverðir á Keflavíkurflugvelli handtóku Litháa og Breta þann 10. ágúst síðastliðinn en þeir reyndust vera með samanlagt 37 kíló af fíkniefninu Khat. Um er að ræða afurð plöntu frá Norðaustur Afríku.

Handteknir eftir bílveltu

Tveir menn af erlendu bergi brotnir voru handteknir vegna bílveltunnar við vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk í dag. Grunur leikur á að annar þeirra,

Sáttafundi slitið

Upp úr slitnaði á sáttafundi Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaganna, í húsakynnum Ríkissáttasemjara, um fjögurleytið. Viðræðunefndir aðilanna höfðu setið á fundi frá klukkan tvö og tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið í viðræðum á fimmtudaginn var.

Bílvelta í Heiðmörk

Bílvelta varð í Heiðmörk við vatnsverndarsvæðið suðaustan við Elliðavatn á fjórða tímanum í dag. Þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn fannst enginn ökumaður en hann gerði vart við sig eftir að sjúkraflutningamenn höfðu verið á staðnum í um það bil tíu mínútur. Hann var ómeiddur. Olía lak úr bílnum og eru fulltrúar frá umhverfiseftirlitinu að kanna aðstæður og mögulega mengun vegna lekans.

Sjá næstu 50 fréttir