Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigurður mætir til yfirheyrslu - myndskeið Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings mætti til yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara í morgun. Hann svaraði nokkrum spurningum blaðamanna á leið sinni til saksóknara og myndskeið af því má sjá hér. 19.8.2010 10:41
Morðið í Hafnarfirði: Ákvörðun um varðhald liggur ekki fyrir Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort óskað verði eftir gæsluvarðhaldi yfir karlmanni sem handtekinn var í gær og grunaður er um aðild að dauða Hannesar Þórs Helgasonar. Að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi var ákveðið að halda manninum í fangageymslu í nótt. 19.8.2010 10:14
Færðu svæfingadeildinni gjafir Kvenfélagið Hringurinn færði svæfingadeild Landspítala Hringbraut veglegar gjafir í byrjun vikunnar. Um var að ræða fjóra súrefnismettunarmæla til þess að mæla súrefnismettun hjá börnum. Mælarnir eru mjög nákvæmir og byggja á nýrri tækni. 19.8.2010 09:57
Fyrirtöku í máli Eiðs Smára frestað Fyrirtöku í máli Eiðs Smára Guðjohnsen, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, var frestað. DV fjallaði um fjármál Eiðs Smára og fjárfestingar undir lok síðasta árs. Eiður Smári mótmælti umfjölluninni í bréfi sem Heimir Örn Herbertsson, lögmaður hans, sendi ritstjórum DV. Taldi hann umfjöllunina ólöglega. 19.8.2010 09:57
Svandís mæti á fund þingnefndar Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, komi á fund umhverfisnefndar Alþingis og ræði áform um stækkun friðlands í Þjórsárverum og rammaáætlun Norðlingaölduveitu. Áður höfðu fjórir þingmenn úr þremur flokkum óskað eftir því að Svandís og Katrín Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, kæmu á fund iðnaðarnefndar. 19.8.2010 09:35
Hafró: Vélstjórar boða til vinnustöðvunar Boðað hefur verið til vinnustöðvunar vélstjóra á skipum Hafrannsóknarstofnunar. Kjarasamningur vegna starfa vélstjóra á skipum stofnunarinnar rann út þann 31. mars 2009 og í samningaviðræðum hafa viðsemjendur Félags vélstjóra og málmtæknimanna ekki verið til viðræðu um leiðréttingu á grunnlaunum vélstjóra á skipum Hafró. 19.8.2010 09:03
Sigurður segist vera með hreina samvisku Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er kominn til yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara, en hann kom til landsins frá Bretlandi síðdegis i gær. 19.8.2010 09:03
Innbrot í skóla Tilkynnt var innbrot í Digranesskóla í Kópavogi klukkan hálfsjö í morgun. Ekki liggur fyrir hvort einhverju hafi verið stolið en lögregla rannsakar málið. Þá var bifreið stolið nú í morgunsárið í Hafnarfirði og er það mál einnig í rannsókn. 19.8.2010 07:13
Maður í haldi vegna morðsins Lögregla handtók í gær mann af erlendu bergi brotinn sem grunaður er um aðild að dauða Hannesar Þórs Helgasonar. Að loknum yfirheyrslum í gærkvöldi var ákveðið að halda manninum í fangageymslu í nótt. 19.8.2010 06:00
Verður yfirheyrður hjá saksóknara í dag Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, kom til landsins í gær, en hann hefur verið eftirlýstur í þrjá mánuði. Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar, staðfestir að hann verði yfirheyrður hjá Sérstökum saksóknara í dag. 19.8.2010 06:00
Tekjur ríkisins meiri en búist var við Handbært fé frá rekstri ríkisins var neikvætt um 36,5 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins. Tekjur voru 27,7 milljörðum meiri en á sama tímabili í fyrra og voru 16,4 milljörðum meiri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir. Gjöld voru 3,1 milljarði meiri en í fyrra. 19.8.2010 06:00
Notkun aukist um helming Notkun rítalíns og annarra lyfja sem notuð eru við athyglisbresti og ofvirkni, ADHD, hefur aukist um helming milli áranna 2006 og 2009 samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands. 19.8.2010 05:15
Fengu konunglega heimsókn Haraldur Noregskonungur heimsótti íslenska sýningarsvæðið á sýningunni Nor-Fishing, sem stendur nú yfir í Þrándheimi. 19.8.2010 05:00
Ríkisstjórn veitir níu milljónir til rannsókna Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu um níu milljóna króna framlag til rannsóknar á áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á heilsu manna og dýra. Óskað var eftir framlaginu vegna vinnu við gagnasöfnun á gossvæðinu sem fram á að fara í haust, áður en gögn kunna að glatast. 19.8.2010 04:15
Fjórar ákærðar fyrir slagsmál Ríkissaksóknari hefur ákært fjórar rúmlega tvítugar konur fyrir líkamsárás á Akureyri. 19.8.2010 04:00
Stúdentaráð óttast brottfall Ríflega sautján prósent á námsbækur mun bæði draga úr bóksölu og leiða til aukins brottfalls úr námi, segir Jens Fjalar Skaptason, formaður stúdentaráðs HÍ, í opnu bréfi sem hann hefur ritað fjármálaráðherra til að vara við hugmyndum um hækkun virðisaukaskatts á bækur. 19.8.2010 04:00
Reiðarslag ef hætt verður við Helguvík Það væri gríðarlegt reiðarslag ef eigendur Norðuráls hætta við byggingu álvers í Helguvík vegna óvissu um raforku og tafa á veitingu virkjanaleyfis segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. 19.8.2010 03:45
Söfnunarsími fyrir Pakistan UNICEF á Íslandi hefur tekið í notkun söfnunarsíma til að afla fjár til stuðnings þeim sem orðið hafa verst úti í flóðunum í Pakistan. Að minnsta kosti 15 milljónir manna hafi orðið illa úti í flóðunum í Pakistan, um helmingurinn börn, að mati UNICEF. 19.8.2010 03:45
Greiða skólagjöld fyrir atvinnulausa „Við erum að svara mikilli eftirspurn fyrirtækja í hugverkaiðnaði eftir fólki. Þau fáu atvinnuleyfi sem við gefum út eru vegna starfa hjá hugbúnaðarfyrirtækjum. Það er greinilega ekki fólk hér í störfin,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. 19.8.2010 03:30
Framlenging á greiðslustöðvun Héraðsdómur hefur framlengt greiðslustöðvun Kaupþings fram til 24. nóvember þessa árs. Var það gert að beiðni bankans. Er þetta í þriðja sinn sem Kaupþing fær framlengingu á greiðslustöðvun. Hinn 24. nóvember 2008 var upphaflega veitt heimild til 13. febrúar 2009, síðan var framlengt til 13. nóvember og síðast til 13. ágúst 2010. 19.8.2010 03:00
Atvinnuauglýsingum fjölgar atvinna Rúmlega tuttugu prósentum fleiri atvinnuauglýsingar birtust í dagblöðum fyrstu sjö mánuði ársins en á sama tíma í fyrra. 19.8.2010 02:00
Fundurinn var mikið bakslag Ekki náðist árangur á kjarafundi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) og launanefndar sveitarfélaganna í gær. 19.8.2010 02:00
Annar maður í haldi vegna morðrannsóknar Síðdegis í dag var maður handtekinn í tengslum við rannsókn á andláti Hannesar Þórs Helgasonar og færður til yfirheyrslu samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 18.8.2010 22:31
Hjörleifur fær rúmar sextán milljónir fyrir að hætta hjá Orkuveitunni Hjörleifur Kvaran fær minnsta kosti sextán milljónir króna í starfslokakjör en samkvæmt útvarpsfréttum Ríkisútvarpsins í kvöld þá verður hann á launum næstu níu mánuðina. 18.8.2010 20:21
Enginn sérsamningur við Sigurð Einarsson Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var eftirlýstur af Interpol frá 11. maí síðastliðnum og þar til í gær en þá var handtökuskipunin tekin út af vefsíðu Interpol. Hann hafði ekki sinnt kvaðningu sérstaks saksóknara um að mæta í yfirheyrslur. 18.8.2010 18:34
Rítalínkostnaður Sjúkratrygginga hefur stóraukist Kostnaður Sjúkratrygginga vegna Rítalíns og skyldra lyfja við ADHD stefnir í að fara upp undir átta hundruð milljónir króna í ár, og hefur þrefaldast á fjórum árum. 18.8.2010 18:49
Lögðu hald á 37 kíló af Khat Tollverðir á Keflavíkurflugvelli handtóku Litháa og Breta þann 10. ágúst síðastliðinn en þeir reyndust vera með samanlagt 37 kíló af fíkniefninu Khat. Um er að ræða afurð plöntu frá Norðaustur Afríku. 18.8.2010 18:22
Handteknir eftir bílveltu Tveir menn af erlendu bergi brotnir voru handteknir vegna bílveltunnar við vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk í dag. Grunur leikur á að annar þeirra, 18.8.2010 17:18
Stóra Seyruvökvamálið:Fyrirtækið harmar mistökin Holræsa- og Stífluþjónusta Suðurlands ehf., segist harma þau mistök að hafa losað seyruvökva á vatnsverndarsvæðinu á Þingvöllum um helgina. 18.8.2010 17:07
Sáttafundi slitið Upp úr slitnaði á sáttafundi Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Launanefndar sveitarfélaganna, í húsakynnum Ríkissáttasemjara, um fjögurleytið. Viðræðunefndir aðilanna höfðu setið á fundi frá klukkan tvö og tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið í viðræðum á fimmtudaginn var. 18.8.2010 16:15
Bílvelta í Heiðmörk Bílvelta varð í Heiðmörk við vatnsverndarsvæðið suðaustan við Elliðavatn á fjórða tímanum í dag. Þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn fannst enginn ökumaður en hann gerði vart við sig eftir að sjúkraflutningamenn höfðu verið á staðnum í um það bil tíu mínútur. Hann var ómeiddur. Olía lak úr bílnum og eru fulltrúar frá umhverfiseftirlitinu að kanna aðstæður og mögulega mengun vegna lekans. 18.8.2010 16:03
Nokkrir verið handteknir vegna morðsins í Hafnarfirði Yfirheyrslur hafa staðið yfir í dag vegna morðsins í Hafnarfirði á sunnudag, samkvæmt upplýsingum frá Friðriki Smára Björgvinssyni, yfirlögregluþjóni frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 18.8.2010 15:12
Gunnar Eyjólfs og Ómar Ragnars rúlluðu síðasta spölinn Starfsfólk Reykjadals gekk í rúman hálfan sólarhring með þjóðþekkt fólk í hjólastólum til þess að safna áheitum fyrir sumarbúðirnar og nú hefur markmiðum söfnunarinnar verið náð, en rúmlega 15 milljónir króna hafa safnast. 18.8.2010 18:45
Kostar 14 dollara að ferðast án áritunar til BNA Frá og með 8. september þurfa allir sem ferðast án áritunar til Bandaríkjanna að greiða gjald sem nemur 14 Bandaríkjadollurum (u.þ.b. 1.600 krónur) þegar þeir sækja um ESTA ferðaheimild. 18.8.2010 17:33
Sigurður Einarsson kominn til landsins Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, er kominn til Íslands Samkomulag hefur náðst við Sigurð um að hann mæti til yfirheyrslu hjá Sérstökum saksóknara í fyrramálið, að því er fram kemur á fréttavef RÚV 18.8.2010 15:31
Níu milljónir til að rannsaka áhrif eldgossins á heilsufar Níu milljónum króna verður varið til rannsóknar á áhrifum eldgossins í Eyjafjallajökli á heilsu manna og dýra, samkvæmt tillögu sem samþykkt hefur verið í ríkisstjórn. Óskað var eftir framlaginu vegna vinnu við gagnasöfnun á gossvæðinu sem fram á að fara í haust, en mikilvægt er að það náist svo gögnin glatist ekki. 18.8.2010 14:07
Dregið úr kynbundnum launamun hjá borginni Árangur hefur náðst síðasta áratug við að draga úr kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg. Úttekt um málið var lögð fram á síðasta borgarráðsfundi og staðfestir hún niðurstöður rannsóknar frá 2008 sem sýnir að Reykjavíkurborg hefur náð árangri á síðasta áratug við að draga úr launamun kynjanna. 18.8.2010 12:48
Ekkert alltof spenntir fyrir hugmyndum AGS um skuldahámark Sérfræðingar sem vinna nýju frumvarpi til sveitarstjórnarlaga vilja að sett verði þak á lántökur þannig að sveitarfélög geti ekki skuldsett sig umfram upphæð sem nemur 150 prósentum af árstekjum þeirra. Þetta er í samræmi við tilmæli AGS. 18.8.2010 12:00
Útilokar ekki frekari uppsagnir Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavikur, útilokar ekki frekari uppsagnir starfsfólks hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Hann segir að 18.8.2010 11:51
Bruninn á Laugavegi líklega af mannavöldum Líklegt þykir að eldur sem kom upp í húsi á Laugavegi fjögur í morgun hafi verið af mannavöldum. Mildi þykir að ekki fór verr en mikill eldsmatur er í húsinu sem er eitt af þeim sem Reykjavíkurborg keypti á sínum tíma og stendur til að gera upp í upprunalegri mynd. Verkstjóri sem var að mæta til vinnu sá reyk á annari hæð og kallaði strax á slökkvilið. 18.8.2010 11:50
Starfsmenn kirkjunnar þurfa að heimila aðgang að sakaskrá Þjóðkirkjan er nú að fara af stað með átak þar sem allir starfsmenn kirkjunnar verða beðnir um að samþykkja að heimila aðgang að sakaskrá með tilliti til kynferðislegs ofbeldis. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Kirkjuráð sendi frá sér í dag. 18.8.2010 10:49
Nítján morð á níu árum Í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra segir að á árunum 2000 til 2009 hefur nítján einstaklingum verið ráðinn bani samkvæmt skilgreiningu 211. gr. hegningarlaga. Þar segir að yfirleitt séu tengsl milli gerenda og þolenda en tvö tilvik séu þar sem tengslin voru engin. 18.8.2010 10:48
Eldur kom upp í húsnæði á Laugavegi 4 Eldur kom upp í húsnæði að Laugavegi 4 nú á áttunda tímanum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn. Reykkafarar fóru inn í húsið og náðu að slökkva eldinn á tiltölulega stuttum tíma, samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Verið er að slökkva í síðustu glæðunum. 18.8.2010 07:54
Útkall hjá slökkviliði: Grauturinn brann við Slökkviliðið var kallað út um klukkan sex í morgun þar sem tilkynning hafði borist um reykjarlykt og skynjara í gangi í Mávahlíð í Reykjavík. Þegar dælubíll og sjúkrabílar komu á staðinn kom í ljós að reykurinn stafaði frá potti á eldavél. Sjúkraliðar snéru því frá en slökkvilliðsmennirnir reykræstu íbúðina. 18.8.2010 07:12
Vilja að þak á skuldir sveitarfélaga verði 150% af tekjum Vinna við frumvarp um breytingar á sveitarstjórnarlögum er langt komin, en þar er meðal annars ætlunin að stemma stigu við mikilli skuldsetningu sveitarfélaga. Sérfræðingar vilja skuldaþak sem er nærri 150 prósentum af árstekjum sveitarfélaga, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. 18.8.2010 06:00