Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Almannavarnanefnd: Leiðir greiðar að gosinu með takmörkunum þó Fundi almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt almannavarnadeild ríkislögreglustjórans og í samráði við vísindamenn er lokið. Niðurstaða fundarins er sú að umferð að Þórsmörk verður opnuð aftur. Þá er hægt að ganga Fimmvörðuhálsinn en umferð vélknúinna ökutækja upp Skógaheiði er bönnuð. 1.4.2010 11:46
Vilja afsökunarbeiðni frá lögreglustjóranum Stjórn Lögreglufélags Reykjavíkur krefst þess að Stefán Eiríksson, lögreglustjóri, biðji formann félagsins afsökunar vegna ummæla sem höfð voru eftir Stefáni í fjölmiðlum. 1.4.2010 09:55
Tíu gistu hjá lögreglunni Talsverður erill var hjá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt og mikið af útköllum vegna hávaða og slagsmála í miðbænum. 1.4.2010 09:54
Tólf þingmenn vilja kjósa um kvótann Tólf stjórnarþingmenn hafa lagt fram þingsályktunartilllögu á Alþingi um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan íslenskar fiskveiðistjórnar. Meðal flutningsmanna eru Ólína Þorvarðardóttir, Atli Gíslason og Ögmundur Jónasson. 1.4.2010 09:52
Öll umferð að gosinu bönnuð Lögreglan á Hvolsvelli hefur lokað fyrir alla umferð að gosstöðvunum á Eyjafjallajökli vegna nýrrar sprungu sem myndaðist þar í gærkvöldi. Engin umferð verður leyfð upp á svæðið en almannavarnanefnd fundar klukkan ellefu og tekur ákvörðun um framhaldið. 1.4.2010 09:43
Almannavarnanefnd fundar um nýja sprungu Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu ásamt almannavarnadeild ríkislögreglustjórans og vísindamönnum ætla hittast kl.11:00 í dag til að meta nýja stöðu í eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi. 1.4.2010 09:23
Fimmtán teknir fyrir of hraðan akstur Lögreglan á Ísafirði stöðvaði og sektaði fimmtán ökumenn í gær fyrir að of hratt. Ökumennirnir voru stöðvaðir í Ísafjarðardjúpinu en að sögn varðstjóra er umferðareftirlit mjög strangt þessa daganna á Ísafirði. 1.4.2010 09:19
Ábending frá Veðurstofu Íslands Vegna mikillar snjókomu síðustu daga og ótryggra snjóalaga á Norðurlandi og Austurlandi, er þeim tilmælum beint til skíðafólks, vélsleðamanna og annara, sem eru á ferð á snjóflóðastöðum, að halda sig frá snjóflóðabrekkum og vera ekki á ferð, þar sem snjóflóð geta fallið. 1.4.2010 16:31
Allar vaktir á Landspítalanum mannaðar Allar vaktir eru mannaðar á Landspítalanum háskólasjúkrahúsi og öryggi sjúklinga tryggt að sögn Ólafs Baldurssonar, sviðsstjóra Lækninga á spítalanum. 1.4.2010 09:56
Fólk í bráðri hættu við nýja gossprungu Hópur fólks var í bráðri lífshættu þegar ný sprunga opnaðist á gossvæðinu á Fimmvörðuhálsi í gærkvöldi. 1.4.2010 08:00
Skulda 150.000.000.000 krónur í bílalán Um 49.000 aðilar eru nú með bílalán. Um 90 prósent þeirra taka breytingum í samræmi við gengi erlendra gjaldmiðla. 70-80 prósent þessara lána voru tekin á árunum 2006 og 2007 þegar gengi krónunnar var hvað sterkast. Frá árslokum hefur gengisvísitalan hækkað um 90 prósent. Í dag er verðmæti þessara lána samtals um 150 þúsund milljónir króna, eða 150 milljarðar. 1.4.2010 08:00
Tómatar urðu kannabis Fjórir karlmenn hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir kannabisræktun og undirbúning vatnsræktunar sem gæti numið allt að 600 kannabisplöntum á bænum Karlsstöðum í Djúpavogshreppi. Þar fundust sextán plöntur. 1.4.2010 07:00
E.C.A. býður upp á gosflug í herflugvélum Eldgos Hollenska fyrirtækið E.C.A., sem sótt hefur um að fá að skrá 20 óvopnaðar orrustuþotur á Miðnesheiði, ætlar að bjóða landsmönnum í útsýnisflug yfir gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi eftir hádegi í dag í sérútbúnum Herkúles-flutningavélum. 1.4.2010 07:00
Ummæli saksóknara ómakleg Ummæli þriggja saksóknara í Fréttablaðinu um síðustu helgi þess efnis að suma verjendur skorti háttvísi í dómsal eru gegnumsneitt ómakleg. 1.4.2010 06:30
Munaðarlaus börn á Haítí fengu ný tjöld „Það var átakanleg sjón að sjá börnin, og auðvitað fær maður hnút í magann við að hugsa til baka,“ segir Björgvin Barðdal, framkvæmdastjóri Seglagerðarinnar Ægis. 1.4.2010 04:00
Rammaáætlun þarf afbrigði Beita þarf afbrigðum eigi að taka frumvarp um rammaáætlun um verndun og nýtingu á dagskrá Alþingis á yfirstandandi þingi. Í gær var útbýtingardagur, en þá þarf að leggja fram þau frumvörp sem lögð verða fyrir þingið. 1.4.2010 03:00
Lokað inn í Þórsmörk og upp á Sólheimajökul Veginum inn í Þórsmörk hefur verið lokað tímabundið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samhæfingarstöð. Ein hefur leiðinni verið lokað upp á Sólheimajökul. 31.3.2010 21:10
Engin hætta í byggð Byggð er ekki talin stafa hætta af nýju gossprungunni sem myndaðist á Fimmvörðuhálsi í kvöld. Nú er búið að ná stjórn á vettvangi við gosstöðvarnar að því er fram kemur hjá Samhæfingarmiðstöð. Ferðamönnum við gosstöðvarnar hefur verið snúið aftur til Skóga og niður í Þórsmörk og einnig hefur farartækjum á Mýrdalsjökli verið snúið til baka. 31.3.2010 21:52
Fólk í Básum heldur kyrru fyrir þar Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur öllu ferðafólki verið komið niður af Fimmvörðuhálsi. Veginum inn í Þórsmörk hefur verið lokað en fólk sem statt er inni í Básum mun halda kyrru fyrir þar. Þar er nokkur fjöldi fólks en lögregla hefur ekki nákvæma tölu á fjöldanum. 31.3.2010 21:27
Landsvirkjun kemur af fjöllum og segir skilyrði uppfyllt á Kárahnjúkum Landsvirkjun vísar því á bug að ekki hafi verið staðið við öll skilyrði varðandi Kárahnjúkavirkjun en eins og greint var frá í dag hefur umhverfisráðherra ákveðið að láta kanna það. Ráðherra sagðist í daga hafa fengið ábendingar um að skilyrði í úrskurði ráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar hafi ekki verið uppfyllt og því hefur Umhverfisstofnun verið falið að kanna málið. 31.3.2010 20:46
Aukin viðbúnaður vegna nýju sprungunnar Aukin mönnun er í Samhæfingarstöð vegna óvissunnar á Fimmvörðuhálsi en þar opnaðist ný sprunga um klukkan sjö. Í samhæfingarmiðstöðinni eru nú um 12 manns að störfum. Aðgerðastjórn á Hellu hefur einnig verið boðuð til starfa. 31.3.2010 20:30
Mælar Veðurstofunnar sýna engin merki um nýja sprungu Á mælum Veðurstofunnar er ekki hægt að sjá að ný sprunga hafi opnast á Fimmvörðuhálsi eins og raunin er. Að sögn jarðfræðings á vakt eru engin merki um aukinn óróa og engir jarðskjálftar hafa komið fram á mælum. 31.3.2010 20:14
Allt í lás hjá læknum Fátt bendir til annars en að neyðarástand skapist á Landspítalanum á morgun þegar sextíu læknar ætla að leggja niður störf vegna deilna um vinnutíma. 31.3.2010 19:05
Hraunið ekki á hraðferð í Þórsmörk Hraunið frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi hefur ekkert nálgast Þórsmörk frá því fyrir helgi. Ástæðan er víxlverkun hraunfossanna ofan í gilin tvö sem veldur því að nýjar hraunspýjur hlaðast upp í giljunum hver ofan á annnarri. 31.3.2010 18:39
Hraunið myndar skeifu um skjöldinn Minningarskjöldurinn um ungmennin þrjú, sem fórust á Fimmvörðuhálsi fyrir fjörutíu árum, er enn óskemmdur á sínum stað, rétt við rætur nýja eldfjallsins. Tvær hrauntungur hafa myndað skeifu utan um skjöldinn, en vari gosið lengi gæti minningarreiturinn lent undir hrauni. 31.3.2010 18:30
Hleypt inn í hollum í Heiðrúnu Margir hyggja á ferðalög um páskana og því kemur ekki á óvart að mikið hafi verið að gera í vínbúðum borgarinnar í dag. Meðfylgjandi mynd var tekin í Heiðrúnu fyrir stundu og þar var hleypt inn í hollum. 31.3.2010 17:22
Ráðherra undirritar makrílreglugerð Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur í dag undirritað reglugerð um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2010. Í tilkynningu frá ráðuneytinu er tekið fram að ekki hafi náðst samkomulag við önnur strandríki um fyrirkomulag eða leyfilegt heildarmagn makrílveiða, og verða því leyfi til veiða á makríl einungis gefin út fyrir yfirstandandi ár. 31.3.2010 16:59
Fjórtándi hjálparstarfsmaður Rauða krossins til Haítí Valgerður Grímsdóttir, hjúkrunarfræðingur, heldur til Haítí þriðjudaginn 6. apríl til starfa fyrir Rauða kross Íslands. Valgerður hefur áður starfað í neyðarverkefnum Rauða krossins í Pakistan og Írak. Í tilkynningu frá Rauða krossinum segir að hún sé fjórtándi hjálparstarfsmaðurinn sem Rauði kross Íslands sendir til Haítí. 31.3.2010 16:47
Kárahnjúkar: Kannað hvort staðið hafi verið við skilyrði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur falið Umhverfisstofnun að kanna hvernig staðið hefur verið við þau skilyrði sem umhverfisráðuneytið setti í úrskurði um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar í desember 2001. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ábendingar hafi borist um að ekki hafi verið staðið við öll skilyrði sem sett hafi verið og þess vegna hafi ráðherra falið Umhverfisstofnun að kanna það sérstaklega. 31.3.2010 16:32
Þungar áhyggjur af deilum almennra lækna við Landspítalann Læknaráð Landspítala lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þess ástands sem skapast ef deildar- og aðstoðarlæknar á sjúkrahúsinu mæta ekki til vinnu um næstu mánaðarmót. Tugir lækna gera ráð fyrir að leggja niður störf á morgun ef ekki næst sátt í deilu þeirra við stjórnendur spítalans sem snýst um vinnufyrirkomulag. 31.3.2010 15:32
Sýna myndir af gosinu í HD gæðum Stöð 2 Sport HD sýnir um þessa dagana fyrstu myndirnar af gosinu á Fimmvörðuhálsi sem teknar eru upp með svokallaðri HD tækni. Myndirnar hafa verið í sýningu síðan í fyrradag og verða eitthvað áfram, að sögn Haraldar Ása Lárussonar, sem tók myndirnar. 31.3.2010 14:50
Leggja niður störf á morgun að óbreyttu Tugir ungra lækna á Landspítalanum munu leggja niður störf frá og með morgundeginum ef ekki næst sátt um breytingar sem fyrirhugaðar eru á spítalanum. Þetta er mikill meirihluti almennra lækna á spítalanum,“ segir Gunnar Thoroddsen, hjá Félagi almennra lækna. Hann segist ekki geta sagt til um hversu margir læknar leggi niður störf. Þó er ljóst að þeir hlaupa á tugum. 31.3.2010 13:58
Upplýsingavefur um kosningar opnaður Upplýsingavefur dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, sem hefur slóðina www.kosning.is, eins og við aðrar kosningar, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna. 31.3.2010 12:48
Veiði í Elliðavatni hefst á morgun Stangaveiði í Elliðavatni hefst á morgun. Það er mánuði fyrr en verið hefur síðustu áratugi. Veiðimenn geta útvegað sér leyfi til veiðanna á 31.3.2010 12:18
Hraunið fossar niður í Hrunagil Mikið hraunrennsli hefur verið niður í Hrunagil í morgun frá eldstöðinni á Fimmvörðuhálsi og sjást miklar gufusprengingar reglulega ofan í gilinu sem senda stóra gufubólstra hátt til himins. Mikill kraftur er enn í gosinu. 31.3.2010 12:06
Mæðrastyrksnefnd úthlutar matarpökkum með hátíðarbrag Matarpökkum verður úthlutað hjá hjálparsamtökum á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi. Hátíðarbragur verður á pökkunum hjá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og minnsta páskaeggið í boði fyrir börnin. 31.3.2010 12:05
Menntamálaráðherra las fyrir leikskólabörn Formaður Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra afhenti nú í vikunni mennta- og menningarmálaráðherra fyrstu eintök af SAFT lestrarbókum fyrir börn um jákvæða og örugga netnotkun. 31.3.2010 11:47
Forsetinn sendi samúðarkveðjur til Rússlands Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson sendi í dag Dimitry Medvedev forseta Rússlands samúðarkveðjur sínar og íslensku þjóðarinnar vegna 31.3.2010 11:41
Ráðherra gaf út reglugerðir um skötuselsveiðar Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jón Bjarnason, hefur undirritað tvær reglugerðir er snerta veiðar á skötusel. 31.3.2010 11:15
Fjölmörgum frumvörpum dreift í dag Engin mál eru á dagskrá Alþingis í dag, en dagurinn verður þess í stað notaður til að dreifa frumvörpum, enda er þetta síðasti dagur til þess á þessu vorþingi. Frumvörp, sem þingflokkar stjórnarflokkanna og ríkisstjórnin hafa samþykkt, skipta tugum, og mörg hver varða endurreysn efnahagslífsins. 31.3.2010 09:24
Innbrotsþjófar fóru inní fyrirtæki við Skipholt Brotist var inn í fyrirtæki við Skipholt í Reykjavík i nótt og þaðan stolið dýrum tækjabúnaði, að sögn lögreglu. Það var öryggisvörður, sem tilkynnti um innbrotið, en þá voru þjófarnir á bak og burt og eru ófundnir. Búnaðurinn mun vera sérhæfður og er því ekki talinn markaðsvara á fíkniefnamarkaðnum. 31.3.2010 07:38
Kveiktu í timburgámi í Borgarnesi Mikill eldur gaus upp í timburgámi fyrir úrgangstimbur á gámasvæðinu í Borgarnesi í gærkvöldi og skíðlogaði úr honum þegar slökkvilið kom á vettvang. Auk þess lagði mikinn reyk yfir bæinn. Slökkvistarf gekk vel og eldurinn náði ekki að teygja sig í verðmæti í grenndinni. Brennuvargurinn er ófundinn.-Það var líka kveikt í rusli á skólalóð Hólabrekkuskóla í Reykjavík, en ekki hlaust tjón af áður en eldurinn var slökktur. Ekki er vitað hver kveikti í.- 31.3.2010 07:33
Vildu fá endurgreidda töng sem þeir stálu Lögreglan á Akranesi handtók í gær tvö kalrmenn um tvítugt á bensínstöð Olís þar í bæ, þar sem þeir voru að reyna að fá endurgreidda forláta töng, sem þeir höfðu skömmu áður stolið í Olísstöðinni í Borgarnesi. 31.3.2010 07:07
Tifandi tímasprengja á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveit var kölluð út undir morgun eftir að kona hafði fest bíl sinn í krapa og íshröngli í Gilsá í Fljótsdal, en hún var ásamt tveimur öðrum á leið að gosstöðvunum við Fimmvörðuháls. 31.3.2010 07:00
Hyggjast leigja makrílkvóta Sú hugmynd er rædd af alvöru innan sjávarútvegsráðuneytisins, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, að makrílkvóta þessa árs, sem er 130 þúsund tonn, verði ekki deilt út til útgerðanna í landinu í neinu samhengi við veiðireynslu þeirra. Útgerðir sem hafa aflað sér veiðireynslu undanfarin fjögur ár muni fá tiltekið magn í sinn hlut en frekari veiðiheimildir þurfi viðkomandi útgerð að greiða fyrir. 31.3.2010 06:15