Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja Catalinu seka um mansal Vitnisburðir kvenna vegna rannsóknar lögreglu á meintri vændisstarfsemi Catalinu Ncoco benda til þess að hún hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum þeirra, sem bera að hún hafi selt þær í vændi. Hún hafi beitt ótilhlýðilegri aðferð, ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu gegn konunum. Hæstiréttur framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir Catalinu til 23. apríl. 31.3.2010 04:30
Slysum fækkaði um 15 prósent Alvarleg umferðarslys í fyrra voru fimmtán prósentum færri en árið áður, eða 170 miðað við 200 árið 2008. Þetta kemur fram í árlegri samantekt slysaskráningar Umferðarstofu. 31.3.2010 03:00
Mikil mildi að enginn slasaðist Mikil mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast þegar bíl var ekið í gegnum girðingu og inn á lóð leikskólans Suðurborgar í Breiðholti á mánudag. Börnin voru innan dyra þegar atvikið varð. 31.3.2010 01:30
Kveikt í rusli við Hólabrekkuskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað í Breiðholtið í kvöld en þar hafði verið kveikt í rusli á lóð Hólabrekkuskóla. Að sögn vaktstjóra var um minniháttar eld að ræða og slökkvliðsmenn áttu ekki í vandræðum með að slökkva í glæðunum. Að öðru leyti hefur kvöldið verið rólegt hjá slökkviliðs- og lögreglumönnum. 30.3.2010 22:25
Varnarmálastofnun lokað um áramót Varnarmálastofnun verður lögð niður 1. janúar næstkomandi verði boðað frumvarp ríkisstjórnarinnar samþykkt. 30.3.2010 21:33
Níu mánaða fangelsi fyrir þjófnað og ölvunarakstur Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyri þjófnað og umferðarlagabrot. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánuði einnig, en þá var dómurinn bundinn skilorði að fullu. 30.3.2010 20:26
Ungir framsóknarmenn á Austurlandi vilja hætta ESB viðræðum Stjórn Eysteins - félags ungra framsóknarmanna á Austurlandi, skorar á ríkisstjórn Íslands að hætta aðildarviðræðum við Evrópusambandið og draga aðildarumsóknina til baka. Það er austfirski miðillinn Austurglugginn sem greinir frá þessu en félagið samþykkti ályktun þess efnis í gær. Þetta er þvert á nýlega ályktun Sambands ungra framsóknarmanna. 30.3.2010 19:55
Gróðurinn stendur af sér kuldakastið Kuldakastið undanfarna daga, hefur engin áhrif á gróðurinn, sem byrjaður er að lifna við. Þetta segir Náttúrufræðistofnun. Margir hafa velt fyrir sér áhrifum kuldans á gróðurinn sem er að kvikna eftir veturinn, en það mun vera alvanalegt að kuldaköst sem þessi komi eftir að gróður hefur tekið við sér. Hann mun því harka af sér frosthörkur síðustu daga. 30.3.2010 19:07
TR borgar bæturnar á morgun Tryggingastofnun ríkisins hyggst borga lífeyrisþegum mánaðarlegar bætur á morgun eða degi fyrr en vanalega vegna páskahátíðarinnar. 30.3.2010 19:06
Ekki inn í gilin í Þórsmörk án súrefniskúta Þótt Þórsmörk hafi nú verið opnuð á ný verður fólki bannað fara inn í gilin sem hraunið rennur um vegna hættu á eiturgasi og gufusprengingum. 30.3.2010 18:56
Gosrásin beygði á síðustu stundu til Fimmvörðuháls Litlu munaði að eldgosið kæmi upp í austurjaðri hábungu Eyjafjallajökuls og ylli stórhlaupi í Markarfljóti sem hefði rofið varnargarða og sett fólk í bráða hættu. Kvikan beygði hins vegar á síðustu stundu í átt til Fimmvörðuháls á leið sinni til yfirborðs. 30.3.2010 18:36
Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp um fækkun lögregluumdæma Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Rögnu Árnadóttur dómsmála- og mannréttindaráðherra þess efnis að lögregluumdæmum verði fækkað úr 15 í 6 og að yfirstjórn lögreglu verði skilin frá embættum sýslumanna frá og með 1. janúar 2011. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að miðað sé við að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi á morgun að fengnu samþykki stjórnarflokka. 30.3.2010 17:34
Catalina reyndi að lokka samfanga sinn í vændi Catalina Ncoco bauð samfanga sínum, ungri konu, að starfa fyrir sig sem vændiskona, þegar hún væri laus úr fangelsi. Hún var úrskurð í áframhaldandi gæsluvarðhald í dag. Stefnt er á aðalmeðferð í máli hennar þann 12. apríl. Breki Logason. 30.3.2010 17:18
Óvíst að fiskum fjölgi þrátt fyrir hvalveiðar Útreikningar um hagkvæmni hvalaveiða eru hæpnir, að mati Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands. Hann segir að þessir útreikningar sýni hvað það sé hættulegt þegar hagfræðingar komist í tölur sem þeir skilji ekki. Meginniðurstaða skýrslunnar er sú að hvalveiðar þjóðhagslega hagkvæmar. Því vísar Árni á bug. 30.3.2010 16:22
Gunnar tók þriðja sætið Tuttugu og tveggja manna framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi var samþykktur á fulltrúarfundi flokksins í gær. Fátt kemur á óvart á listanum sem endurspeglar niðurstöðu prófkjörsins í Kópavogi. 30.3.2010 15:51
Veðurstofan sagði að rólegra væri undir Eyjafjallajökli Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis fékk þær upplýsingar frá Veðurstofunni laust fyrir klukkan fimm á gosdaginn, þann 20. mars, að heldur rólegra væri undir Eyjafjallajökli en hefði þá verið undanfarna daga. Engu að síður væri unnið eftir áætlunum um óvissustig á svæðinu vegna mögulegs eldgoss. 30.3.2010 14:23
Páskaeggin brotnuðu öll á leið til Danmerkur Íslenskur afi sem ætlaði að senda páskaegg til barnabarna sinna í Danmörku segir farir sínar ekki sléttar í samskiptum við danska póstinn. Hann sendi átta páskaegg til Esbjerg í síðustu viku en þegar þau komust á leiðarenda voru þau öll brotin nema eitt. 30.3.2010 14:01
Fyrrverandi ráðherra vill kalla sendiherra í Bandaríkjunum heim Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, vill að sendiherra íslands í Bandaríkjunum verði kallaður heim. Hann gagnrýnir á bloggi sínu að enn hafi ekki verið skipaður bandarískur sendiherra hér, og vill að íslenski sendiherrann vestra verði kallaður heim til skrafs og ráðagerða sem fyrst. 30.3.2010 12:29
Alvarlegum umferðarslysum fækkaði um 15% Alvarlegum umferðarslysum fækkaði um 15% í fyrra, eða úr 200 í hitteðfyrra í 170 slys á síðasta ári. Þetta sýna niðurstöður samantektar slysaskráningar Umferðarstofu á umferðarslysum fyrir síðasta ár. Slysaskráning Umferðarstofu byggist á lögregluskýrslum úr gagnagrunni Ríkislögreglustjóra. 30.3.2010 12:12
Veðurstofan varaði Almannavarnir við hálfum degi fyrir upphaf goss Veðurstofan tilkynnti Almannavörnum hálfum sólarhring fyrir upphaf eldgossins á Fimmvörðuhálsi um verulega grynnri skjálftavirkni í Eyjafjallajökli, sem benti til að kvikan væri á uppleið. Ekki var talin ástæða til sérstakra viðbragða enda var þá þegar búið að lýsa yfir óvissustigi. 30.3.2010 12:03
Ólíklegt að það gjósi víðar við Eyjafjallajökul Litlar líkur eru á því að eldgos verði annarsstaðar við Eyjafjallajökul, segir almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Þetta var niðurstaða fundar almannavarnanefndar Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu með almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og vísindamönnum í gær. Eyjafjallajökull verður áfram lokaður fyrir umferð. 30.3.2010 09:57
Yfir 700 manns fengu íslenskan ríkisborgararétt Alls fengu 728 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt í fyrra en þeir voru 914 árið áður. Aldrei höfðu fleiri fengið íslenskan ríkisborgararétt en árið 2008. Hagstofan segir að árið 1991 hafi 161 einstaklingur fengið íslenskan ríkisborgararétt en þeim hafi fjölgað jafnt og þétt síðan. 30.3.2010 09:42
Enginn strætó á föstudaginn langa og páskadag Akstur vagna Strætó bs. um páskahátíðina verður sem hér segir: Á skírdag, fimmtudaginn 1. apríl, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Á 30.3.2010 08:52
Vilja að allur mjólkurkvóti fari á kvótamarkað Kúabændur vilja að allur mjólkurkvóti, sem losnar, fari um kvótamarkað þar sem allir bændur geti boðið í hann og að viðskiptin verði gegnsæ. Stjórn Samtaka ungra bænda fagnar mjög þessum hugmyndum, ekki síst nú þegar hætta sé á að að bankar eignist skuldug kúabú og fari að ráðstafa mjólkurkvótanum úr þeim eins og örðum eignum, án auglýsinga, eins og dæmin sanni.- 30.3.2010 07:42
Slösuðust í bílveltu í Hamarsfirði Tveir erlendir ferðamenn slösuðust, en þó ekki alvarlega, þegar jepplingur þeirra valt í Hamarsfirði skammt frá Höfn í Hornafirði í gærkvöldi. Gert var að meiðslum þeirra á heilsugæslustöðinni á Höfn og gistu þeir á Höfn í nótt. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en hálka var á veginum og gekk á með snörpum vindhviðum.- 30.3.2010 07:26
Enn finnst fólk í hrakningum á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitarmenn á Fimmvörðuhálsi fundu enn kalda og hrakta göngumenn á slóðum eldgossins seint í gærkvöldi eftir að myrkur var skollið á. Þeir leituðu af sér allan grun um fleiri, sem þannig væri ástatt um 30.3.2010 07:00
Sóttu mann af grænlenskum togara Sjómaður á grænlenskum togara slasaðist þegar togarinn var að veiðum á milli Íslands og Grænlands síðdegis í gær. Togarinn hóf þegar siglingu á fullri ferð áleiðis til Íslands og óskaði skipstjórinn eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja hinn slasaða. TF LÍF var send til móts við togarann og var skppverjinn hífður um borð og fluttur til Reykjavíkur, þar sem þyrlan lenti um klukkan ellefu og hinn slasaði komst undir læknis hendur. Hann er ekki lífshættulega slasaður.- 30.3.2010 07:00
Braggabúar voru stimplaðir Þúsundir manna bjuggu í braggahverfum í Reykjavík í síðari heimsstyrjöld og fyrstu áratugina eftir stríð. Íbúar hverfanna sættu oft og tíðum neikvæðum viðbrögðum umhverfisins og voru stimplaðir af samfélaginu, eingöngu vegna búsetu sinnar. 30.3.2010 07:00
Ölvuð kona ók á bíl Kona ók bíl sínum utan í annan bíl í Skeifunni í Reykjavík í gærkvöldi, og reyndist hún drukkin, þegar til kom. Lögreglan tók hana í sína vörslu og færði hana í blóðpröfu og bílinn á lögreglustöðina. Annars var óvenju rólegt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt.- 30.3.2010 07:00
Vill stjórnarandstöðuna að borðinu Ef meirihluti ríkisstjórnarinnar á Alþingi er of veikur til að hrinda aðgerðum í framkvæmd verður að fá stjórnarandstöðuna með að samningaborðinu, ásamt stjórninni, atvinnurekendum og ASÍ, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. 30.3.2010 06:00
Bæta við fólki þrátt fyrir kreppuna Bandaríska fyrirtækið Sabre Holdings hefur keypt íslenska sprotafyrirtækið Calidris. Skrifað var undir pappíra í síðustu viku en tilkynnt um kaupin í gær. Kaupverð er ekki gefið upp. 30.3.2010 06:00
Langur biðlisti eftir eggjum Frumvarp sem gerir einhleypum konum með skerta frjósemi heimilt að nota gjafaegg við glasafrjóvgun bíður afgreiðslu á Alþingi. Guðmundur Arason, kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir í tæknifrjóvgunarstofunni Art Medica, fagnar því verði frumvarpið samþykkt. Til þess að mæta þeirri þörf sem þá myndist þurfi þó fleiri íslenskar konur að gefa egg enda er nú þegar skortur á eggjum. 30.3.2010 06:00
Ekki stendur til að mismuna fólkinu Forsvarsmenn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hittu fulltrúa Fjölskylduhjálpar Íslands að máli í gær og fóru yfir mannréttindastefnu borgarinnar. Sérstaklega var rætt um að mismuna ekki fólki á grundvelli þjóðernis, í ljósi frétta um að Íslendingar nutu forgangs í síðustu matarúthlutun hjálparinnar. 30.3.2010 05:00
Skýrslur Bandaríkjamanna óþolandi Óþolandi og óviðeigandi er í samskiptum vinaríkja að til séu leyniskýrslur um íslenska stjórnmálamenn og ekki síður að þær séu varðveittar með þeim hætti að þær leki ítrekað í fjölmiðla. Svo segir utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, um bandarískar skýrslur sem birtust um hann, Jóhönnu Sigurðardóttir forsætisráðherra og Albert Jónsson sendiherra á vef Wikileaks í gær. 30.3.2010 05:00
Hjálpa geðsjúkum að ná tökum á lífi sínu Samfélagsgeðteymi tekur formlega til starfa nú um mánaðamótin. Um er að ræða þverfaglegt teymi geðheilbrigðisstarfsmanna og tilheyrir það geðsviði Landspítalans. Markmið teymisins er að minnka þörf á innlögnum og tryggja góðan stuðning og eftirfylgd. Þungamiðjan í þjónustunni er vitjanir í heimahús og að virkja fólk til þátttöku í samfélaginu. Beiðnir um aðstoð eru þegar teknar að berast. 30.3.2010 04:00
Erlend bílalán gætu lækkað um 40 prósent Höfuðstóll bílalána, sem tekin voru í jenum og svissneskum frönkum síðla árs 2007, mun lækka um 36 til 38 prósent fallist eignaleigufyrirtæki á tillögur félagsmálaráðuneytisins um að færa erlend bílalán yfir í íslenskar krónur með 15 prósenta álagi á upphaflegan höfuðstól. 30.3.2010 04:00
Veitingamenn krefjast bóta Veitingamenn í nektargeiranum ætla að krefjast skaðabóta af ríkinu vegna nýrra laga sem banna nektardans. Davíð Steingrímsson, sem rekur Vegas, segir engan vafa á þessu: „Ég hef ekki brotið nein lög eða reglur og hef fjárfest og stólað á að geta rekið staðinn til 2013, þegar gildandi rekstrarleyfi rennur út.“ Nýju lögin taka gildi 1. júlí. 30.3.2010 04:00
Ísfélagið bíður eftir svörum frá Chile Enn ríkir óvissa um afgreiðslu skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile á tveimur öflugum skipum til Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Stöðin stórskemmdist í jarðskjálfta 27. febrúar. Forsvarsmenn ASMAR halda því fram að þeir séu ekki bundnir af smíðasamningum skipanna þar sem fyrirsjáanlegar vanefndir á afhendingu skipanna eru til komnar vegna náttúruhamfara. 30.3.2010 03:15
Þingmenn eignist ketti Sigríður Heiðberg, sem sér um Kattholt, segir það vera erfitt að smala köttum. „Ég held að það sé nú hálferfitt. Þeir eru það sjálfstæðir að þeir láta ekki smala sér neitt," sagði Sigríður í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Jóhanna Sigurðardóttir sagði 29.3.2010 21:39
Svava er fundin Svava Hrönn Þórarinsdóttir, sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir á fimmtudaginn, fannst á Akureyri í kvöld. Svava hvarf frá Götusmiðjunni í Grímsnesi fyrir tíu dögum. 29.3.2010 21:57
Hraunjaðarinn í Hrunagili á sama stað og fyrir helgi Þótt fyrstu merki sjáist nú um að kraftur eldgossins á Fimmvörðuhálsi fari þverrandi telja vísindamenn að það geti enn staðið í nokkrar vikur. Hraunfossarnir skiptast nú á um að renna ýmist niður Hrunagil eða Hvannárgil en mesta spennan er um hvort hrauneðjan muni síðan ná niður á eyrarnar í Þórsmörk. 29.3.2010 18:50
Dómar hafa fyrnst áður en afplánun gat hafist Dæmi eru um að skortur á rými í fangelsum landsins hafi valdið því að óskilorðsbundnir dómar hafi fyrnst áður en afplánun gat hafist. Ríkisendurskoðun birti skýrslu um fangelsismál í dag. Þar kemur fram að þetta geti dregið úr varnaðaráhrifum refsinga og grafið undan trausti almennings á réttarvörslukerfinu. 29.3.2010 17:10
Forsætisráðherra vakti furðu með tilteknum ummælum Forsætisráðherra vakti óneitanlega furðu ýmissa með tilteknum ummælum á flokkstjórnarfundi í gær, segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður VG, eftir þingflokksfund sem haldinn var í dag. Hún segir hins vegar að þingmenn flokksins séu brattir og glaðbeittir og engan bilbugur sé á þeim í þessu ríkisstjórnarsamstarfi. „Við erum alveg heil og óskipt hvað það varðar,“ segir Guðfríður. 29.3.2010 16:45
Brá þegar að hún heyrði um áform forsætisráðherra Formaður BSRB segir að sér hafi brugðið í gær þegar að hún heyrði áform forsætisráðherra um að sameina 80 ríkisstofnanir. Á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í gær sagðist Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telja raunhæft að skera niður og sameina allt að 80 ríkisstofnanir á næstu tveimur til þremur árum. 29.3.2010 15:43
Þingflokkur VG fundar enn Fundur þingflokks Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs stendur enn yfir. Hann hófst klukkan tvö í dag. 29.3.2010 15:19