Fleiri fréttir

Fínt færi fyrir norðan

Opið er á skíðasvæðunum fyrir Norðan þrátt fyrir að allt sé bráðnað í Bláfjöllum. Í Hlíðarfjalli er opið til klukkan sjö í kvöld og þar er rúmlega 10 gráðu frost, vindur er 4 - 5 metrar á sekúndu og dálítil snjókoma.

Sameining bráðamóttaka skerðir ekki þjónustu

Sameining bráðamóttaka Landspítalans í Fossvogi og á Hringbraut mun ekki lengja tímann sem líður frá því hjartasjúklingur kemur á bráðamóttökuna í Fossvogi uns hann er kominn undir hendur sérfræðinga á Hringbraut.

Þingmenn vilja bólusetja gegn leghálskrabba

Lögð hefur verið fram þverpólitísk þingsályktunartillaga á Alþingi um að fela heilbrigðisráðherra að hefja undirbúning að bólusetningu allra 12 ára stúlkna gegn HPV smiti og leghálskrabbameini.

Kettir gætu kennt þingmönnum ýmislegt

Þingflokkur VG hittist á fundi klukkan hálftvö í dag þar sem meðal annars verður rætt um ketti, í kjölfar ummæla forsætisráðherra um kattasmölun. Þingmaður VG segir að kettir séu göfug góð og vitur dýr sem hafi margt til eftirbreytni.

Eldgosið í rénun

Fyrstu merki um að eldgosið á Fimmvörðuhálsi sé í rénun sjást nú. Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að á síðustu tveimur dögum dreggið úr virkni um 20-25 prósent, mest frá miðnætti í nótt.

Ekkert ferðaveður á Fimmvörðuhálsi

Ekkert ferðaveður er í grennd við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Þar er hvasst og mikið frost og samsvarar vindkælingin uppi á hálsinum 28 stiga frosti. Heldur minni kraftur var í gosinu en í fyrrinótt og nóttina þar á undan, en eigi að síður er þar mikil virkni og hraun fossar niður í tvö gil.

Tólf ákærðir fyrir hnífstungu

Tólf unglingar verða í dag ákærðir fyrir aðild sína að morði á Viktoríu lestarstöðinni í London. Sofyen Belamúadden var stunginn margsinnis þegar tvær unglingaklíkur bárust á banaspjót í lestarstöðinni á föstudaginn var á háannatíma. Lögreglan hefur nú kært 12 unglinga á aldrinum 16 - 17 ára fyrir aðild sína að málinu og dómari tekur kæruna fyrir síðar í dag.

Íbúafundur í Ólafsvík

Verkalýðsfélag Snæfelllinga og Snæfellsbær boða í sameiningu til almenns íbúafundar í Klifi í Ólafsvík í kvöld til að ræða þá alvarlegu stöðu, sem upp er komin í atvinnumálum í sveitarfélaginu.

Fjallað um hreinlæti og sótthreinsum í HÍ

Elizabeth Scott, dósent við Simmons College í Boston, Massachusetts, flytur í dag fyrirlestur um stefnur og strauma á sviði hreinlætis og sótthreinsunar á heimilum í Háskóla Íslands klukkan tólf.

Sinueldur í Mosfellsbæ

Kveikt var í sinu í grennd við Skálatúnsheimilið í Mosfellsbæ uppúr klukkan eitt í nótt. Slökkviliðið var hvatt á vettvang og lauk slökkvistarfi á tæpri klukkustund. Engin mannvirki voru í hættu þar sem eldurinn logaði á milli akvegs og göngustígs.

Bílvelta á Akureyri

Ökumaður slapp ómeiddur þegar jepplingur rann til og valt á hliðina í Gilinu á Akureyri í gærkvöldi. Ökumaður missti stjórn á bílnum í snjó og hálku, en skafrenningur og vetrarfæri er nú á Akureyri og þar í grennd.

Árstöf vegna Icesave kostar 50 milljarða

Tafir á framkvæmdum vegna stóriðju valda því að landsframleiðsla mun dragast saman í ár miðað við í fyrra. Þetta kemur fram í útreikningum hagfræðinga Alþýðusambands Íslands fyrir Fréttablaðið. Frekari tafir munu orsaka minni landsframleiðslu sem hleypur á milljarðatugum.

Stjórnlagaþing kosið í október?

Formaður allsherjarnefndar Alþingis stefnir að því að ljúka afgreiðslu frumvarps um stjórnlagaþing upp úr páskum. Lög verði sett fyrir sumarhlé Alþingis og kosið til stjórnlagaþings í október á þessu ári.

Raunsætt að fækka stofnunum ríkisins um 30-40%

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill fækka ráðuneytum úr tólf í níu á þessu ári og telur raunsætt að fækka megi ríkisstofnunum um 30-40 prósent á næstu tveimur til þremur árum.

Mikið um gostúrista í dag

Björgunarsveitarmenn hafa þurft að beita valdi til að koma í veg fyrir að ferðamenn á eldgosasvæðinu við Fimmvörðuháls fari sér að voða. Fólk þrjóskast við að verða við tilmælum björgunarsveitarmanna.

Ritstjóri DV sáttur við eigendaskiptin

„Ég er mjög ánægður. Ég held að þetta sé mjög farsælt fyrir DV,“ segir Reynir Traustason, annar ritstjóri DV, en hann hefur keypt blaðið ásamt Lilju Skaftadóttur, listverkasala. Að sögn Reynis eru um 20 einstaklingar sem koma að eignarhaldi DV, þar á meðal eru kráareigandi og prestur.

Ofkældist klæddur í leðurjakka og gallabuxur

Björgunarsveitin á Hellu bjargaði ungum karlmanni sem hafði gengið upp að Baldvinsskála klæddur í strigaskó, leðurjakka og gallabuxur, en hann reyndist vera með merki um ofkólnun. Formaður Flugbjörgunarsveitar Hellu, Svanur S. Lárusson, sagðist ekki búast við því að maðurinn yrði sendur á spítala með sjúkrabíl.

Landnámshænsnabóndinn: „Ég held ótrauður áfram“

„Mér líður bara ömurlega,“ sagði Júlíus Már Baldursson, þegar Vísir hafði samband við hann en útihúsið hans brann í nótt ásamt um 200 landnámshænum og tæplega þúsund eggjum sem áttu að klekjast út eftir þrjá daga.

Villtust á Mýrdalsjökli

Lögreglan á Hvolsvelli fékk tilkynningu um hálf tólf í morgun að vélsleðamenn hefðu villst upp á Mýrdalsjökli en þar er nokkur umferð vegna eldgosins. Fólkið bjargaðist þó fljótlega en það rataði aftur til baka.

Erill í miðbænum

Nóttin var frekar erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mikið um svokölluð minniháttar brot. Undir morgun var nokkuð um útköll en þau mál leystust yfirleitt farsællega á vettvangi. Fáir gistu þó fangageymslur og ekkert stórvægilegt kom upp að sögn lögreglu.

Gosið í beinni hjá Mílu

Míla fór á dögunum og setti upp vefmyndavélar á Þórólfsfelli og á Fimmvörðuhálsi þannig hægt er að skoða gosið úr stofunni heima. Vefmyndavélarnar má finna hér.

Ætlar að breyta myntkörfulánum í krónulán

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, telur líklegt að hægt verði að ganga frá samkomulagi við eignaleigufyrirtækin í næstu viku um afskriftir bílalána. Til stendur að breyta erlendum bílalánum í verðtryggð krónulán.

Hraunið rennur í átt að Krossá

Eldgosið heldur áfram af sama krafti og hraunið rennur niður Hrunagil og Hvannárgil í átt að Krossá. Fisflugvél nauðlenti á Fimmvörðuhálsi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hafa fáir skjálftar verið á svæðinu í dag og eldgosið verið nokkuð stöðugt.

Fisflugvél hrapaði nærri eldgosinu

Fisflugvél nauðlenti á Fimmvörðuhálsinum upp úr klukkan fjögur í dag. Vélin var á flugi yfir svæðinu þegar flugmaðurinn virðist hafa þurft að lenda á hálsinum nærri eldgosinu.

Björgunarsveitamenn hræðast Mýrdalsjökul

„Það sem við hræðumst er Mýrdalsjökull,“ segir Kristinn Ólafsson, björgunarsveitamaður og framkvæmdarstjóri Landsbjargar spurður hvernig gangi með ferðamenn á Fimmvörðuhálsinum. Hann segist minnstar áhyggjur hafa af göngufólki sem gengur upp að gosstöðvunum. Það er þó ísskalt, kuldinn getur farið niður í 20 gráður í mínus með vindkælingu. Að sögn Kristins er þó einfalt að komast áleiðis upp að gosstöðvunum þar sem ferðamenn feta slóð. Því er auðvelt að finna þá ef eitthvað kemur fyrir.

Meiðyrðamál vegna forstjóra SS fellt niður

Ríkissaksóknari hefur fellt niður ákærur á hendur Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem var ákærður fyrir meiðyrði í garð Steinþórs Skúlasonar, forstjóra Sláturfélags Suðurlands.

400 fóru fótgangandi að gosinu í morgun

Lögreglan á Hvolsvelli telur að um 400 manns hafi lagt af stað upp Fimmvörðuhálsinn fótgangandi í morgun. Um er að ræða marga hópa ásamt leiðsögumönnum.

Líflátshótanir hræða túlka úr réttarhöldum

Dæmi eru um að sakborningar í alvarlegum brotamálum hafi hótað túlkum í dómsal og hrætt þá svo að þeir hafa hætt í miðjum réttarhöldum. Ákæruvaldið hefur þá þurft að bregða skjótt við og útvega nýja túlka.

Ók niður lækni á reiðhjóli

Tæplega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi og til greiðslu 333 þúsunda króna í skaðabætur fyrir að aka niður mann á reiðhjóli.

Forherðing í réttarsalnum

Einkenni skipulagðrar glæpastarfsemi koma glöggt fram í íslenskum dómsölum. Dæmi um þetta er ósannsögli sakborninga, sem talin er stafa af hreinum ótta. Þetta er nýr veruleiki sem rannsóknarlögreglumenn og ákæruvaldið þurfa að horfast í augu við. Í sumum stærri málum er vafasamt að hægt hefði verið að sakfella brotamenn ef ekki hefði komið til tæknivinna lögreglu, sem sannaði svo ekki varð um villst að sakborningarnir voru að segja ósatt.

Kjósendurnir sýna óánægjuna í verki

Það kemur ef til vill ekki sérstaklega á óvart að Besti flokkurinn, grínframboð Jóns Gnarr, njóti nokkurs stuðnings eftir það sem á undan hefur gengið í íslenskum stjórnmálum.

Fölsuð lyf keypt í bílförmum

Rannsókn Samtaka gegn misferli og spillingu á heilbrigðissviði (EHFCN) sýnir að markaður með fölsuð lyf í Evrópu nemur 10,5 milljörðum evra á ári, eða um 1.200 milljörðum íslenskra króna.

Framhaldsdeild ekki möguleg

Ekkert fjármagn er til að stofna framhaldsdeild á Hvammstanga frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þetta kemur fram í svari mennta- og menningarmálaráðuneytisins við umleitan sveitarstjórnar Húnaþings vestra og Húnahornið greinir frá.

Mun fleiri á grásleppu í ár

Mun fleiri bátar sækja á grásleppuveiðar í ár en í fyrra. Alls er 161 bátur byrjaður á veiðum í ár en þeir voru 78 í fyrra á sama tíma, að því er kemur fram á vef smábátasjómanna.

Skólastarf allt árið um kring

Nýr skóli, Krikaskóli, var tekinn í notkun í Mosfellsbæ í gær. Skólinn er fyrir börn á aldrinum eins til níu ára.

Um 300 sektir á fjórum árum

Eftirlitsmenn Vegagerðarinnar stöðvuðu alls 6.332 ökutæki á árunum 2006 til 2009 til að kanna hvort ökumenn hefðu dælt litaðri vinnuvélaolíu á tankana. Af þeim fjölda reyndust 312 brotlegir, samkvæmt upplýsingum fráVegagerðinni.

Kvarta yfir orðum þingmanns

Stjórnendur sjónvarpsþáttarins Óla á Hrauni á ÍNN, Ólafur Hannesson og Viðar Helgi Guðjohnsen, hafa sent formlega kvörtun til Alþingis vegna ummæla þingmannsins Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur í ræðustól. Þeir fara fram á formlega afsökunarbeiðni frá Steinunni.

Milestone-piltur sakar lögregluna um njósnir

Ásakanir forsvarsmanna vefsíðunnar Wikileaks þess efnis að íslensk lögregla hafi handtekið starfsmann vefsíðunnar og yfirheyrt í 21 klukkustund má rekja til þess þegar piltur á sautjánda ári var gripinn við innbrot í fyrirtækið Málningu í Kópavogi á mánudagskvöld. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var þar á ferð sami piltur og stal gögnum frá Milestone í desember og bauð fjölmiðlum til kaups.

Endurreisnin hér gengið vel

Íslenskir ráðherrar sem funduðu með forsvarsmönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) lögðu mikla áherslu á að endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og sjóðsins tefðist ekki vegna Icesave-málsins.

Samið um starfsemi Ekron út júní

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur samið við Ekron - atvinnutengda endurhæfingu, um áframhaldandi rekstur úrræða á sviði atvinnutengdrar endurhæfingar en fyrri samningur rann úr gildi um síðustu áramót. Samningurinn gildir út júní á þessu ári.

Besti flokkurinn hefur alla burði til að ná langt

Besti flokkurinn, flokkur Jóns Gnarr, virðist sópa til sín atkvæðum óánægðra kjósenda í borginni. Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands telur að flokkurinn hafa alla burði til að ná langt í komandi kosningum.

Sjá næstu 50 fréttir