Innlent

Villtust á Mýrdalsjökli

Lögreglan á Hvolsvelli fékk tilkynningu um hálf tólf í morgun að vélsleðamenn hefðu villst upp á Mýrdalsjökli en þar er nokkur umferð vegna eldgosins. Fólkið bjargaðist þó fljótlega en það rataði aftur til baka.

Lögreglan og almannavarnir hafa áður gefið það út að það er beinlínis stórhættulegt að ferðast um jökulinn án þess að vera með staðsetningatæki. Fylgi ökumenn ekki réttum hnitum er hætta á því að fólk fari inn á sprungusvæði.

Þá bilaði sleði á Mýrdalsjökli en maðurinn komst niður af sjálfsdáðum.

Miklu minni umferð er um svæðið en í gær að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Álagið er mun minna en í gær var óttast að slys yrðu á fólki en talið er að um fimm þúsund hafi lagt leið sína að gosinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×