Hraunið rennur í átt að Krossá Breki Logason. skrifar 27. mars 2010 18:45
Eldgosið heldur áfram af sama krafti og hraunið rennur niður Hrunagil og Hvannárgil í átt að Krossá. Fisflugvél nauðlenti á Fimmvörðuhálsi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hafa fáir skjálftar verið á svæðinu í dag og eldgosið verið nokkuð stöðugt. Um hádegisbil í gær fór hraun að renna niður Hvannárgil eins og sést á þessum myndum sem Guðmundur Óli Gunnarsson tók af hraunfossinum mikilfenglega í gær. Þar má sjá hraunið renna í allri sinni dýrð fram af brúninni en hraunið rennur einnig niður Hrunagil. Bólstrarnir á svæðinu hafa minnkað mikið síðan í gær sem bendir til þess að hraunið sé nú búið að bræða nær allan ís, en það rennur nú hægt í átt að Krossá. Talið er að hrauntungan renni um einn meter á klukkustund og er nú komið rétt tæpa 2 kílómetra frá gosstaðnum. Víðir Reynisson frá Almannavörnum segir rennslið hafa verið stöðugt í dag og litlar breytingar hafi orðið síðan í gær. Almannavarnir halda þó enn öryggissvæði í fimm kílómetra radíus, auk þess sem Þórsmörk og Eyjafjallajökull eru enn lokuð og verða eitthvað áfram. Um klukkan fjögur í dag nauðlenti fisflugvél á Fimmvörðuhálsi en flugmaðurinn virðist skyndilega hafa þurft að lenda vélinni nærri gosinu. Samkvæmt lögreglunni á Hvolsvelli var einn maður um borð og er hann ómeiddur. Rannsóknarnefnd flugslysa og lögregla fóru á vettvang til þess að kanna aðdraganda slyssins en mikil flugumferð hefur verið á svæðinu undanfarna daga.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Fleiri fréttir Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Sjá meira