Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jafnt kynjahlutfall í stjórnum fyrirtækja mikilvægt Það er líklegra til árangurs að hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtækja og hefur auk þess jákvæð árangur á skilvirkni og vinnulag. Þetta segir Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingarfyrirtækisins Auður Capital. 10.2.2010 12:37
Segir löggjöf um spilavíti „forkastanlega hugsun“ Setja þarf sérstaka löggjöf um rekstur spilavíta ef áform Icelandair og Arnars og Bjarka Gunnlaugssona eiga að verða að veruleika. Stjórnarþingmaður segir landið hafa verið eitt stórt spilavíti og segist aldrei ætla að styðja slíka löggjöf. 10.2.2010 12:30
Aðalmeðferð lokið í mansalsmálinu Aðalmeðferð í mansalsmálinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vænta má dóms innan fjögurra vikna. Þinghald í málinu er lokað fjölmiðlum og almenningi. Í málinu eru sex menn ákærðir. Fimm Litháar og einn Íslendingur. 10.2.2010 12:07
Nauðsynlegt að breyta reglum hjá VG Formaður kjörstjórnar Vinstri grænna segir nauðsynlegt að breyta kosningareglum flokksins í ljósi þeirrar kvörtunar sem barst eftir forval Vinstri grænna í Reykjavík um síðustu helgi. 10.2.2010 12:04
Indriði svarar fullum hálsi Indriði H. Þorláksson aðstoðarmaður fjármálaráðherra og einn samningamanna í Icesave samninganefnd Svavars Gestssonar, rífur niður grein Kristrúnar Heimisdóttur fyrrverandi aðstoðarmannas utanríkisráðherra um Icesave málið í Fréttablaðinu í dag. Hann segir samninga um Icesave hafa legið fyrir í tíð fyrri ríkisstjórnar, þar sem Ísland hafi gengist við lágmarksskuldbindingum vegna Icesave innistæðna. 10.2.2010 11:57
Sonur Sivjar í framboði Húnbogi Þorsteinsson, 25 ára gamall sonur Sivjar Friðleifsdóttur alþingismanns og fyrrverandi ráðherra, gefur kost á sér í prófkjöri Neslistans vegna komandi bæjarstjórnarkosninga á Seltjarnarnesi. Húnbogi sækist eftir 5. til 6. sæti. Móðir hans var 28 ára gömul þegar hún var fyrst kjörin í bæjarstjórn Seltjarnarness. 10.2.2010 11:37
Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent í dag Forseti Íslands mun í dag, 10. febrúar, afhenda Íslensku bókmenntaverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Athöfnin hefst klukkan fjögur. 10.2.2010 11:15
Guðrún áfram oddviti VG í Hafnarfirði Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi, mun líkt og fyrir fjórum leiða framboðslista Vinstri grænna í Hafnarfirði í komandi kosningum. Félagsfundur VG samþykkti fyrr í vikunni tillögu uppstillingarnefndar um röð ellefu efstu á lista flokksins. 10.2.2010 11:13
Ríkið auki hagkvæmni innkaupa Ríkisendurskoðun telur að ráðuneytin þurfi að gefa innkaupamálum aukið vægi í starfsemi sinni, setja sér tímasett og mælanleg markmið á þessu sviði og fylgjast með árangri undirstofnana sinna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu stofnunarinnar um innkaupastefnu ráðuneytanna. Þá er bent á að brýnt sé að innkaup séu merkt sérstaklega í bókhaldi ríkisins eftir innkaupaaðferð til að hægt sé að meta ávinning mismunandi aðferða. Þá þurfi fjármálaráðherra að setja samræmdar reglur um hvenær stofnunum sé heimilt að sneiða hjá rammasamningum. Í skýrslunni er fjármálaráðherra hvattur til að setja samræmdar siðareglur um opinber innkaup sem nái til allra ráðuneyta og stofnana. 10.2.2010 10:49
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun boðnar út Landsvirkjun hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í nokkra verkhluta vegna upphafsframkvæmda við Búðarhálsvirkjun: vinnu við gröft jarðganga, skurða og vatnsþróar og tilheyrandi styrkingu með sprautusteypu. Takist samningar um orkusölu og fjármögnum virkjunarinnar verða helstu áfangar framkvæmdarinnar boðnir út síðar á þessu ári, að fram kemur í tilkynningu frá Landsvirkjun. 10.2.2010 10:44
Einelti í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni Rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja er ríkisvaldinu gjörsamlega ofviða og hringlandaháttur stjórnvalda dragi máttinn úr starfsfólki stofnunarinnar, að mati stjórnar Starfsmannafélags Suðurnesja. Stjórnin telur að tími sé kominn til að eineldi stjórnvalda í garð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja linni. Hátt í 50 félagsmenn félagsins starfa á heilbrigðisstofnunni. 10.2.2010 10:06
Samfylkingin rannsaki þátt flokksins í bankahruninu Mörður Árnason, varaþingmaður Samfylkingarinnar, segir að kannski sé kominn tími til að Samfylkingin rannsaki þátt flokksins í bankahruninu í stað þess að bíða skjálfandi eftir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. 10.2.2010 09:18
InDefence hvetur Íslendinga til að hafna Icesavelögunum InDefence hópurinn hvetur Íslendinga til að hafna Icesavelögunum í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Hópurinn boðar til blaðamannafundar í dag og markar sá fundur upphafið að starfi hanss í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um nýju Icesavelögin sem Alþingi samþykkti í lok síðasta árs og forsetinn hafnaði að staðfesta. 10.2.2010 08:55
Páll Valur efstur í Grindavík Páll Valur Björnsson sigraði í forvali Samfylkingarinnar í Grindavík sem fór fram í gær. Samfylkingin fékk tvo bæjarfulltrúa kjörna í kosningunum fyrir fjórum árum en þeir sóttust ekki eftir endurkjöri. 10.2.2010 08:16
Ólafur vill leiða VG áfram í Kópvogi Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi og öldrunarlæknir, býður sig fram í fyrsta sæti á lista VG í Kópavogi í forvali flokksins þann 27. Febrúar. Ólafur hefur verið bæjarfulltrúi VG í Kópavogi frá kosningunum 2006 og varaþingmaður flokksins í Suðvesturkjördæmi frá 2009. Hann er uppalinn í Kópavogi, og hefur búið þar stærstan hluta ævinnar. Helstu baráttumál Ólafs eru fjölskyldu- og velferðarmál, málefni aldraðra og gegnsæ stjórnsýsla, að fram kemur í tilkynningu. 10.2.2010 07:43
Fluttur á slysadeild með þyrlu Ökumaður bíls slasaðist alvarlega þegar bíllinn valt út af veginum i Refasveit, rétt norðan við Blönduós um miðnætti. Kallað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti manninn á slysadeild Borgarspítalans, þar sem læknar tóku á móti honum. Hann mun ekki vera í lífshættu. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir. 10.2.2010 07:18
Skáli brann til kaldra kola Skáli við Hafravatn, í eigu Skógræktarfélags í Mosfellsbæjar, brann til kaldra kola í nótt og leikur grunur á að kveikt hafi verið í honum. Slökkvililiði barst tilkynning um eldinn um klukkan þrjú í nótt og þegar það kom á vettvang var skálinn alelda og að hruni kominn. Eldsupptök eru ókunn, en þar sem ekkert rafmagn er tengt í skálann leikur grunur á íkveikju. 10.2.2010 07:12
Stöðvuðu 15 ára stúlku með naglamottu Ofsaakstri fimmtán ára stúlku á stolnum bíl lauk í nótt með því að bíllinn nam staðar eftir að það sprakk samstundis á þremur hjólbörðum, þegar stúlkan ók bílnum yfir svonefnda naglamottu, sem lögreglan á Selfossi hafði lagt á þjóðveginn við hringtorgið í Hveragerði. Stúlkuna og vinkonu hennar sakaði ekki. 10.2.2010 07:05
Fjöldi tilkynninga vegna aukaverkana Tilkynningar um aukaverkanir lyfja voru meira en tvöfalt fleiri á árinu 2009 en árið 2008, samkvæmt nýbirtum tölum Lyfjastofnunar. Í fyrra bárust 203 tilkynningar um aukaverkanir en 92 á árinu 2008. 10.2.2010 06:45
Ræddi við erlendu ráðherrana í gær „Ég tel við séum í aðalatriðum búin að ná utan um þetta af okkar hálfu,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um fund forsvarsmanna stjórnar og stjórnarandstöðu um Icesave-málið. 10.2.2010 06:00
Hafa leiðrétt kynjahlutfallið Sjö konur og átta karlar verða í fimmtán manna stjórn VR eftir kosningu trúnaðarráðs og trúnaðarmanna, sem lauk í gær. 10.2.2010 06:00
Fær ekki að gefa einkaskýrslu Heimildarmaður fréttastofu Stöðvar 2 fær ekki að gefa skýrslu einslega fyrir dómara í meiðyrðamáli fjögurra útrásarvíkinga á hendur starfsmönnum fréttastofunnar. Héraðsdómur kvað upp úrskurð þess efnis í gær. 10.2.2010 06:00
Rafræn skráning brýtur blað Evrópusambandið (ESB) hefur tekið gilda rafræna hestapassa sem Bændasamtök Íslands hafa komið á fót í samstarfi við Alþjóðasamtök íslenska hestsins. Skráning gagnabankans er á www.worldfengur.com, eða WF. 10.2.2010 05:00
Trefillinn jafnlangur jarðgöngunum Á Siglufirði er í gangi óvenjulegt prjónaverkefni en listakonan Fríða Björk Gylfadóttir stendur fyrir því að prjónaður sé 17 kílómetra langur trefill, sem ná á frá miðbæ Siglufjarðar yfir í miðbæ Ólafsfjarðar, og er þá jafnlangur jarðgöngum þeim sem þar munu koma á milli. 10.2.2010 05:00
Ekki aukning í fyrsta sinn Starfsemi Landspítala jókst ekki á síðasta ári og er það í fyrsta sinn frá sameiningu árið 2000. Þetta kemur fram í nýjum starfsemisupplýsingum LSH sem birtast í heild á næstu dögum. 10.2.2010 05:00
Sveitarfélögum settar fjármálareglur Unnið er að endurskoðun laga og reglna um fjármál sveitarfélaga í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Stefnt er að því að setja sveitarfélögum fjármálareglur þar sem fram koma viðmiðanir um leyfilega skuldsetningu. 10.2.2010 04:00
Borguðu 894 milljónir fyrir innlenda ráðgjöf árið 2009 Heildarkostnaður skilanefndar Kaupþings vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu á síðasta ári nemur 3.225 milljónum króna. 10.2.2010 04:00
54% hækkun á sorphirðugjaldi í Árborg Árborg, Akranes og Akureyri hækka sorphirðugjald mest allra sveitarfélaga, samkvæmt könnun sem ASÍ gerði. 10.2.2010 03:15
Hryllileg kattardráp á Austurlandi Tveir kettir í eigu Kristin Kristmundssonar verslunareiganda á Egilsstöðum hurfu fyrir 10 dögum. Um var að ræða læðu og lítinn kettling undan læðunni. Læðan fannst morgunin eftir á plani um 2 - 300 metrum frá verkstæði Kristins þar sem hann hafði kettina. Læðan var dauð og virðist hún hafa verið drepin á hryllilegan hátt. Kettlingurinn hefur hins vegar ekki fundist. 9.2.2010 21:22
Orkuveitan og Ölfus í samningum um kísilver Samningar eru í burðarliðnum um risastóra kísilverksmiðju í Þorlákshöfn. Fjárfestingin næmi um 150 milljörðum króna og yfir þrjúhundruð framtíðarstörf skapast. 9.2.2010 18:32
Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell Héraðsdómur dæmdi í dag karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifjaspell auk fjölda annarra brota. Hann var sakfelldur fyrir að nauðga systur sinni í júní í fyrra auk þess sem hann útvegaði henni ofskynjunarlyfið LSD. Maðurinn bar við minnisleysi en DNA rannsókn þótti sanna að hann hafi haft mök við systur sína. 9.2.2010 16:29
Átján ára piltur játaði vopnað rán Átján ára piltur hefur játað að hafa framið rán í matvöruverslun í Hlíðunum um kvöldmatarleytið á sunnudag. 9.2.2010 18:11
Meira en 270 milljónir renna frá Actavis til Haítí Actavis hefur ákveðið að styrkja hjálparstarfið í kjölfar jarðskjálftans í Haítí um meira en 270 milljónir króna, í formi fjárstyrkja og lyfja. Í fréttatilkynningu frá Actavis kemur fram að lyfin séu send frá ýmsum löndum þar sem fyrirtækið starfi, meðal annars Íslandi, Búlgaríu, Tyrklandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Hluti framlagsins sé þegar kominn til viðtakenda. 9.2.2010 16:53
Í gæsluvarðhald grunaður um fíkniefnainnflutning Karl um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. febrúar að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem er erlendur ríkisborgari að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu, er grunaður um aðild á innflutningi fíkniefna til landsins en um er að ræða amfetamín í fljótandi formi. Lögregla segir að málið sé rannsakað í samvinnu við tollyfirvöld en ekki er tilgreint um hver mikið magn sé að ræða. 9.2.2010 16:25
Hvar er úrið mitt? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú eigenda nokkurra hluta sem sýnt þykir að séu stolnir, meðal annars forláta vasaúrs sem sést á meðfylgjandi mynd. Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að setja sig í samband við lögreglustöðina á Dalvegi 18 í Kópavogi í síma 444-1130. 9.2.2010 16:00
Ljós á mótum Njarðargötu og Hringbrautar endurbætt Í fyrramálið, miðvikudaginn 10. febrúar, verður stýribúnaður umferðarljósa á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar uppfærður. Vegna tengivinnu verða ljósin gerð óvirk tímabundið frá kl. 09:30, en áætlað er að verkið taki um þrjár klukkustundir. 9.2.2010 15:55
Sjúkrabílstjóri sektaður fyrir brot á umferðarlögum Héraðsdómur sektaði í dag ökumann sjúkrabíls fyrir brot á umferðarlögum þegar hann ók í forgangsakstri gegn rauðu ljósi með þeim afleiðingum að annar bíll ók á sjúkrabílinn sem valt. Áreksturinn varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu en sjúkrabíllinn var á leið í útkall á Hagamel og var í forgangsakstri vestur Hringbraut. 9.2.2010 15:24
Tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju á Leifsgötu Karlmaður var í dag dæmdur í tveggja ára óskilorðisbundið fangelsi fyrir að leggja eld að bíl á Leifsgötu í Reykjavík í október 2008. Eldurinn breiddist út með þeim afleiðingum auk bifreiðin brann og önnur til sem stóð við hlið hennar. Dómarinn kemst að þeirri niðurstöðu að með íkveikjunni hafi maðurinn skapað almannahættu en auk tjónsins á bílunum urðu sótskemmdir á þriðja bílnum auk þess að sprungur komu í rúður hússins sem bílarnir stóðu við. 9.2.2010 14:37
Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í næstu viku Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt. Þrjú verkefni hafa verið tilnefnd úr hópi umsækjenda: tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra, Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg - heimildarmyndahátíð á Patreksfirði.E 9.2.2010 13:09
Hafnar ásökunum um okurlánastarfsemi Árni Páll Árnason gagnrýndi harðlega starfsemi fyrirtækja sem veita smálán gegnum netið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Hann sagði að lán til ungmenna á þúsund prósenta vöxtum væru siðlaus sjóræningjastarfsemi. Jafnframt hyggst ráðherrann beita sér fyrir lagasetningu til að takmarka starfsemi fyrirtækja eins og Kredia. Leifur A. Haraldsson, framkvæmdastjóri Kredia, segist ekki geta tekið undir orð ráðherrans. 9.2.2010 12:30
Ógn við samfélagið Samstarf vélhjólaklúbbsins MC Iceland, áður Fáfnis og erlendra deilda Hells Angels glæpasamtakanna sem og fyrirhuguð innganga íslenska hópsins í samtökin skapar hættu á aukinni skipulagðri glæpastarfsemi á Íslandi og felur því í sér ógn við samfélagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni vegna ákvörðunar yfirvalda að senda Leif Ivar Kristanssen, foringja Hells Angels samtakanna í Noregi, sem var stöðvaður við komuna til landsins í gær aftur til Noregs með flugi í morgun. 9.2.2010 12:26
Sumarlokanir leikskóla lengja biðlista Fulltrúi Samfylkingar í leikskólaráði Reykjavíkurborgar furðar sig á að meirihlutinn hyggist lengja biðlista eftir plássi enn frekar með því að spara sér að ráða afleysingafólk í sumar. Hún efast um að sparnaðurinn skili sér. 9.2.2010 12:25
Andmælabréfin hafa verið send út Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sent út andmælabréf til þeirra einstaklinga í stjórnkerfinu sem nefndin telur að hafi hugsanlega sýnt vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins. 9.2.2010 12:01
Telur Svandísi brjóta gegn stjórnsýslulögum Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, telur að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi brotið gegn stjórnsýslulögum þegar hún hafnaði skipulagi Þjórsárvirkjana. Dæmi eru um að sveitarfélög séu með ákvæði um gjaldtöku fyrir aðalskipulag í sérstökum samþykktum, sem ráðherra hefur staðfest. 9.2.2010 12:00
Selja fasteignir án réttinda Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir allt of algengt að sölumenn komi fram sem fasteignasalar án þess að vera það. Slíkt sé grafalvarlegt líkt og nýlegt dæmi frá Danmörku sýni þegar rúmlega 70 sölumenn á fasteignasölum voru kærðir til lögreglu af eftirlitsaðilum fyrir að sigla undir fölsku flaggi. 9.2.2010 11:58