Fleiri fréttir

Jarðskjálftar á Reykjaneshrygg

Jarðskjálftahryna hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi með að minnstakosti fimm skjálftum að styrkleika yfir þremur á Richter. Sá snarpasti mældist 3,9. Töluverð virkni hefur verið á svæðinu síðan og hafa nokkrir skjálftar mælst tæplega þrír á Richter í nótt. Upptök skjálftanna eru á tæplega tíu kílómetra dýpi.

Kveikt í ruslagámi við Skipholt

Eldur var kveiktur í ruslagámi við Skipholt í Reykjavík í nótt. Töluverður eldur var í gámnum þegar slökkvilið kom á vettvang, en hann stóð ekki hættulega nálægt byggingum við götuna. Þrátt fyrir að eldurinn hafi verið slökktur á skammri stundu, skemmdist gámurinn talsvert. Brennuvargurinn er ófundinn.

Fáein loðnuskip að veiðum

Fáein íslensk loðnuskip eru að veiðum út af ósum Rangánna, á milli lands og Vestmannaeyja, en síðasta norska loðnuskipið hélt heimleiðis í gær eftir löndun á Fáskrúðsfirði.

Biðlistar lengjast að óbreyttu

Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í leikskólaráði, telur víst að biðlistar eftir leikskólavist hjá Reykjavíkurborg muni lengjast mikið á næstu mánuðum vegna þeirrar ákvörðunar að breyta

Er sáttur eftir krefjandi ár

„Staðan er mjög góð og mun aðeins batna á næstunni,“ segir Theo Hoen, forstjóri Marel. Hann bætir við að alþjóðlega fjármálakreppan hafi gert flestum fyrirtækjum erfitt fyrir á síðasta ári. Geti Marel vel við unað. „Ég er sáttur,“ segir hann.

Óttast verðfall verði jörðin Nauteyri seld

Nokkur óánægja mun nú vera meðal landeigenda í innanverðu Ísfjarðardjúpi með að sveitarstjórn Strandabyggðar virti viðlits 15 milljóna króna tilboð Hraðfrystihússins Gunnvarar í jörðina Nauteyri á Langadalsströnd með því að ákveða að gera fyrirtækinu gagntilboð.

Vonast eftir 140 listamönnum

„Íbúum Skagastrandar fjölgaði um 21 prósent á síðasta ári miðað við þá 108 listamenn sem bjuggu í bænum á vegum Ness listamiðstöðvar. Miklu munar um þá 173 listamenn sem til Skagastrandar hafa komið frá upphafi,“ segir á skagastrond.is.

Stofna samtök Evrópusinna

Stofnfundur nýrra samtaka Evrópusinnaðra sjálfstæðismanna verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu á föstudag. Samtökin bera nafnið Sjálfstæðir Evrópumenn.

Sveitarfélögin ráða við flutning stofnana

Flutningur á rekstri heilbrigðisstofnana frá ríki til sveitarfélaga er að mati forsvarsmanna sveitarfélaganna og forstjóra heilbrigðisstofnana vel gerlegur og jafnvel til bóta. Hins vegar virðist þessi hugmynd ekki hafa verið rædd af alvöru víðar en á Suðurnesjum.

Ísland með 93 af 100 stigum

Ísland er í fararbroddi í mengunarstýringu og nýtingu náttúruauðlinda og því efst landa á lista yfir góða frammistöðu í umhverfismálum, segir í skýrslu sem bandarísku háskólarnir Yale og Columbia hafa nýverið sent frá sér og gefin er út á tveggja ára fresti.

Útboð á mötuneyti Landspítala ógilt

Bjóða þarf aftur út rekstur á mötuneyti Landspítalans segir kærunefnd útboðsmála sem kveður Ríkiskaup hafa brotið á Sláturfélagi Suðurlands með því að vísa frá tilboði fyrirtækisins í útboði í fyrra.

Skutlar fólkinu heim í kojuna

„Þetta er nú aðallega vinna um helgar,“ segir Jóhann Unnar Guðmundsson, sem fengið hefur jákvæða umsögn hreppsnefndar Hrunamannahrepps um starfsemi leigubílaþjónustu í hreppnum.

Nýstárleg leið til að fá karla á fund

Fundur Ódýrara er fyrir karl og konu að mæta saman á morgunverðarfundinn Fjölbreytni í forystu en fyrir einstakling að skrá sig til leiks. Á fundinum verður greint frá leiðum sem viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar.

Vegurinn liggi um Varmahlíð

Skipulagsnefnd Skagafjarðar er andvíg áformuðum flutningi hringvegarins þannig að hann liggi ekki lengur um Varmahlíð heldur frá Arnarstapa að Sólheimagerði.

SÁÁ er of stór biti fyrir okkur

„Auðvitað eru það vonbrigði að þeir skuli ekki finna aðrar leiðir til að fást við sinn niðurskurð,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, um þá ákvörðun SÁÁ að loka göngudeild samtakanna á Akureyri í vor.

Kosningin í samræmi við reglur

„Niðurstaðan er sú að þessi kosning hafi verið í samræmi við reglur. Úrslitin standa því óbreytt,“ segir Stefán Pálsson, formaður kjörnefndar VG í Reykjavík. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi og frambjóðandi í prófkjöri VG fyrir sveitastjórnarkosningarnar, sem fram fóru í gær kærði

Jarðkjálftar við Eldey

Hrina jarðskjálfta hefur fundist við Eldey á Reykjaneshrygg í kvöld. Stærsti skjálftinn var um 3,9 á Richter en hann fannst þegar klukkan var átta mínútur gengin í ellefu. Að minnsta kosti fjórir aðrir minni skjálftar hafa mælst í kvöld.

Mikill hiti í nemendum vegna árshátíðarmálsins

„Ákvörðunin stendur," segir Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari í Fjölbrautaskólans í Breiðholti, um þá ákvörðun að meina nemendafélaginu í FB að halda árshátíð utan Reykjavíkur.

Segir að atkvæði fólks hafi verið sótt heim

„Ég frétti af því að það væru ákveðnir aðilar að bjóða upp á að fara heim til fólks með kjörseðil og láta það fylla hann út og koma með hann á kjörstað,“ segir Þorleifur Gunnlaugsson borgarfulltrúi.

Viltu kaupa flottasta símanúmer í heimi?

Símafyrirtækið Nova fór um helgina af stað með uppboð á símanúmerinu 777 7777, sem stjórnendur fyrirtækisins telja að sé flottasta símanúmer í heimi. Lágmarksboð í númerið var 10 þúsund krónur en hæsta boð stendur nú í 112 þúsund krónum.

Möguleikar Húsavíkur aukast

Ákvörðun umhverfisráðherra að stöðva Þjórsárvirkjanir styrkir stöðu Norðurlands í samkeppni um iðnaðaruppbyggingu og gæti dregið úr líkum á því að álver rísi við Húsavík.

Segir smálán „siðlausa sjóræningjastarfsemi“

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, hyggst beita sér fyrir lagasetningu sem kemur böndum á starfsemi fyrirtækja sem veita smálán. Hann segir lánveitingar til ungmenna með mörg þúsund prósenta vöxtum siðlausa sjóræningjastarfsemi.

Bloggið kemur upp um tryggingasvindlara

Dæmi eru um að upp komist um íslenska tryggingasvindlara í kjölfar gáleysislegra skrifa þeirra á bloggi og öðrum netsíðum. Einn svikarinn gekk svo langt að gorta sig á alheimsnetinu af vátryggingasvindli sem hann hafði kokkað upp. Talið er að tryggingafélögin tapi milljörðum á tryggingarsvikum árlega.

Leiðindaskjóða fékk á kjaftinn

Tveir sextán ára piltar voru handteknir í Reykjavík í fyrrinótt eftir að hafa látið dólgslega og ógnað vegfarendum. Piltarnir heimtuðu fjármuni og áfengi af fólki sem þeir mættu á förnum vegi. Annar þeirra var vopnaður hnífi sem lögreglan lagði hald á.

Skipar fjárhaldsstjórn yfir Álftanes

Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur ákveðið að skipa fjárhaldsstjórn til að hafa forystu um endurskipulagningu fjármála Sveitarfélagsins Álftaness

Fyrrverandi umhverfisráðherra vill verða forstjóri Útlendingastofnunar

Jónína Bjartmarz, fyrrverandi umhverfisráðherra og þingmaður Framsóknarflokksins, er á meðal 10 umsækjenda um embætti forstjóra Útlendingastofnunar. Umsóknarfrestur rann út á fimmtudaginn síðasta en embættið var auglýst laust til umsóknar þann 15. janúar. Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn frá og með 1. apríl 2010.

Mikill erill hjá gæslunni í tengslum við loðnuveiðarnar

Mikill erill hefur verið hjá Landhelgisgæslunni undanfarna daga vegna loðnuveiða Norðmanna djúpt undan Austfjörðum. Varðskip hefur verið við eftirlit á miðunum en gefinn var út loðnukvóti fyrir norsk skip upp á 28.431 tonn. Öll norsku skipin hættu veiðum í gær sunnudag og tilkynntu þau alls 27.745 tonna afla að því er fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Vegleg gjöf sem bragð er að

Krabbameinsfélagið Framför hefur gefið öllum 40 almenningsbókasöfnum á landinu eintak af bókinni Bragð í baráttunni: Matur sem vinnur gegn krabbameini auk DVD disks sem félagið gaf nýlega út. Það var söfnunarátak hárgreiðslustofunnar 101 Hárhönnun sem gerði félaginu kleift að veita þessa gjöf en starfsmenn stofunnar söfnuðu alls 330.000 krónum þann 6. nóvember sl. með því að láta allan ágóða af klippingum renna til Krabbameinsfélagsins Framfarar.

Fannst meðvitundarlaus

Karlmaður á fertugsaldri fannst meðvitundarlaus í blóði sínu aðfaranótt laugardags á Bárugötu á Akranesi. Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn kominn til meðvitundar en mikið blæddi úr höfði hans og því var hann fluttur á sjúkrahús með sjúkrabifreið.

Líflegt undir Eyjafjallajökli

Jarðskjálftavirknin undir Eyjafallajökli frá áramótum er sú tíðasta sem mælst hefur í eldstöðinni frá upphafi stafrænna skjálftamælinga Veðurstofunnar árið 1994, að því er fram kemur í janúaryfirliti stofnunarinnar. Skjálftarnir eru skýrðir með því að svokallað kvikuinnskot sé í gangi en sérfræðingar Veðurstofunnar hafa ekki túlkað hræringarnar þannig að eldgos sé í uppsiglingu. Athygli vekur að skjálftavirkninn hefur færst ofar í jarðskorpuna, á eins til fjögurra kílómetra dýpi, en Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir það ekki þýða að svo grunnt sé orðið niður á glóandi kviku. Hún sé talin vera á fimm til sex kílómetra dýpi. Steinunn telur að kvikan kunni að vera að safnast þar í kvikuhólf og segir ekki útlokað að ef þrýstingur byggist þar upp geti það leitt til eldgoss. Því verði áfram fylgst náið með þróun mála undir Eyjafjallajökli.

Þórarinn Tyrfingsson ekki hrifinn af spilavítum

Formaður SÁÁ segist finna fyrir miklum þrýstingi varðandi opnun spilavítis hér á landi. Allar helstu stofnanir landsins fjalla nú um spilavíti sem Icelandair vill opna við Suðurlandsbraut.

Sérfræðingur í samningatækni fenginn til ráðgjafar

Stjórn og stjórnarandstaða eru að ná saman um það á hvaða forsendum nýjar viðræður verða við Breta og Hollendinga, ef þær verða að raunveruleika. Lee Buchheit, bandarískur sérfræðingur í samningatækni og alþjóðalögum kemur væntanlega til landsins á morgun til ráðgjafar.

Mikilvægur stuðningur við hjálparstarfið á Haítí

Barnaheill, Save the Children, fengu nýverið fimm milljóna króna fjárstyrk frá utanríkisráðuneytinu til neyðaraðstoðar á Haítí. Framkvæmdastjóri Barnaheilla á Óslandi segir að þetta sé mikilvægur stuðningur við hjálparstarfið á Haítí.

Hætta í Gettu betur verði ekki haldin árshátíð

Nemendur við Fjölbrautarskólann í Breiðholti eru ósáttir við ákvörðun skólameistara um að fella niður fyrirhugaða árshátíðarferð. Mótmæli standa nú yfir og íhugar nemendafélagið að draga lið skólans úr Gettu betur verði kröfum þeirra ekki mætt.

Brotist inn í 23 bíla Orkuveitunnar

Rúður voru brotnar og verðmætum stolið úr 23 bílum á afgirtu svæði Orkuveitu Reykjavíkur í gærmorgun. Bílarnir stóðu fyrir utan húsnæði framkvæmdadeildar fyrirtækisins rétt hjá aðalhúsnæði Orkuveitunnar á Bæjarhálsi. Upptökur af verknaðinum náðust á eftirlitsmyndavélar.

Funda um Icesave í fjármálaráðuneytinu

Fundur er nú að hefjast í fjármálaráðuneytinu þar sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og starfandi forsætisráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra funda með forystumönnum stjórnarandstöðunnar.

Starfsfólkið eignast fyrirtækin - ekki fyrrverandi eigendur

Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG og formaður viðskiptanefndar, vill að starfsfólki fyrirtækja sem bankarnir hafa leyst til sín verði gefinn kostur á að eignast þau í stað fyrrverandi eigenda sem oftar en ekki komi ekki inn með eigið fé í reksturinn. Hún telur brýnt að settar verði meginreglur um markmið með skuldbreytingum fyrirtækja og heimila. Rætt var við Lilju í þættinum Í bítið á Bylgjunni fyrr í morgun.

25 milljónir fyrir ráðgjöf til Alþingis

Breska lögmannsstofan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi og fjárlaganefnd 25 milljóna króna reikning fyrir lögfræðiráðgjöf vegna Icesave-deilunnar við Breta og Hollendinga. Þá var Jón Daníelsson, prófessur í Lundúnum, gerður út af örkinni til að rukka þingið um reikninginn.

Norsku loðnuskipin sigla heim á leið

Norsku loðnuskipin sem verið hafa að veiðum á Íslandsmiðum undanfarna daga hafa nú snúið til síns heima enda kvótinn fullnýttur. Norsk skip máttu veiða um 28 þúsund tonn af loðnukvótanum sem gefinn var út nýverið og nýttu þeir sér það til fulls.

Leituðu að ungum dreng

Björgunarsveit var kölluð út í Reykjanesbæ í gærkvöldi til þess að leita að fjögurra ára gömlum dreng sem horfið hafði af heimilli sínu. Lögreglumenn tóku einnig þátt í leitinni en strákurinn hvarf um hálf átta í gærkvöldi. Hann fannst þó skömmu síðar og hafði hann brugðið sér í heimsókn í næsta hús án þess að foreldrarnir yrðu þess varir. Ósk um aðstoð björgunarsveitar var því afturkölluð.

Sjá næstu 50 fréttir