Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fundi lokið – Engin ákvörðun um nýja samninga Fundi íslensku Icesave samninganefndarinnar við Breta og Hollendinga er lokið. Fundurinn var gagnlegur, segir Elías Jón Guðjónsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins, og stendur til að halda viðræðum áfram. Hins vegar hafi Bretar og Hollendingar ekki fallist á að taka upp að nýju samningaviðræður um Icesave. 16.2.2010 14:13
Sex ára fangelsi fyrir skotárás í Þverárseli Birkir Arnar Jónsson, 23 ára gamall Reykvíkingur, var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir tilraun til manndráps aðfararnótt sunnudagsins 15. nóvember síðastliðinn. 16.2.2010 13:05
Stofnfundur Lista Grindvíkinga Stofnfundur Lista Grindvíkinga verður annað kvöld, miðvikudaginn 17.febrúar, á Sjómannastofunni Vör. Að stofnuninni stendur breiður hópur fólks sem vill vinna faglega og lýðræðislega að málefnum bæjarins, að fram kemur í tilkynningu. 16.2.2010 16:40
Nýi hluti gjörgæsludeildar opnaður formlega Viðbygging gjörgæsludeildar á Landspítala Hringbraut verður formlega tekin í notkun á morgun klukkan þrjú. Í fréttatilkynningu frá Landspítalanum segir að gjörgæsludeildin við Hringbraut sé í „gamla spítala" 16.2.2010 15:35
Full ástæða til að óttast brottflutning fólks Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir að það sé full ástæða til að hafa áhyggjur af brottflutningi fólks frá Íslandi. 16.2.2010 14:54
Fimm mánaða skilorð fyrir að berja mann með glasi Nítján ára gamall karlmaður úr Fjarðarbyggð hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á annan pilt og lamið hann með glerglasi. 16.2.2010 13:47
Jóhanna ætlar ekki að víkja Anne Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ætlar ekki að víkja breska hagfræðingnum Anne Sibert úr peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands vegna greinar sem hún skrifaði nýverið á vefritið VoxEu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, spurði Jóhönnu út í málið við upphaf þingfundar í dag. Hann sagði að umrædd grein gangi út að Ísland sé ekki of lítið til að borga allar kröfur Breta og Hollendinga í Icesavedeilunni. 16.2.2010 13:46
Mun færri bílar nýskráðir Um 29% færri ökutæki voru nýskráð á tímabilinu 1. janúar til 15 febrúar í ár, miðað við sama tímabil í fyrra. Alls voru 316 ökutæki nýskráð í ár en 444 í fyrra, samkvæmt tölum frá Umferðarstofu. 16.2.2010 13:39
Þýskt herskip til sýnis almenningi Stórt þýskt herskip liggur nú í Reykjavíkurhöfn. Þetta er freigátan Meckelnburg-Vorpommern sem kom í kurteisisheimsókn í gær og mun liggja við Miðbakka fram á föstudagsmorgun. Herskipið er opið almenningi til sýnis næstu þrjá daga milli klukkan tvo og fjögur, í dag, á morgun og á fimmtudag. Freigátan er sérstaklega smíðuð til kafbátahernaðar en einnig til loftvarna. Í áhöfn eru 199 manns en auk þess er 19 manna flugáhöfn. Freigátan var smiðuð í Bremen árið 1996 og er 6.275 tonn að stærð. Lengd skipsins er 140 metrar og breidd 16,7 metrar en það ristir 6,8 metra. Meckelnburg-Vorpommern gengur mest 29 hnúta. 16.2.2010 12:57
Þrjátíu börn fengu ókeypis tannlæknaþjónustu Þrjátíu börn á aldrinum 6 til 18 ára frá efnalitlum fjölskyldum hafa undanfarið fengið ókeypis tannviðgerðir hjá tíu tannlæknum. Tannlæknarnir buðu börnunum þessa þjónustu í gegnum Fjölskylduhjálp Íslands. 16.2.2010 12:36
Hæstiréttur er 90 ára í dag Hæstiréttur Íslands er 90 ára í dag, en hann var stofnaður þann 16. febrúar árið 1920. Af því tilefni efnir Orator, félag laganema við Háskóla Íslands, til málþings. Á málþinginu mun Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra fjalla um frumvarp um dómstóla sem felur meðal annars í sér breytingar fyrirkomulagi við skipan hæstaréttardómara. 16.2.2010 12:08
Viðskiptaleg rök fyrir lögleiðingu spilavíta Samtök ferðaþjónustunnar sjá ekkert athugavert við lögleiðingu á starfsemi spilavíta hér á landi. Ferðamálastofa segir viðskiptaleg rök fyrir lögleiðingunni vissulega vera fyrir hendi. Mörgum spurningum er þó ósvarað. 16.2.2010 12:03
Íslenska samninganefndin fundar með Bretum og Hollendingum Íslenska Icesave samninganefndin settist á fund með samninganefndum Hollendinga og Breta klukkan ellefu í morgun. Hún ræddi við ráðgjafa sína á fyrir fundinn. 16.2.2010 11:56
Dvelur enn á Landsspítalanum Skoska konan, sem bjargað var kaldri og hrakinni af Langjökli í fyrrinótt, dvelur enn á Landsspítalanum, en hún hlaut minniháttar kal á höndum. Samkvæmt heimildum fréttastofu dvelur hún þar til öryggis, á meðan hún er að jafna sig á miklu andlegu losti, sem hún varð fyrir. 16.2.2010 11:52
Póstatkvæði í forvali VG endurtalin Að lokinni endurtalningu þeirra atkvæða sem greidd voru bréflega í forvali Vinstri grænna í Reykjavík 6. febrúar er ljóst að niðurstöður talningar eru þær sömu og á kjördag. Þetta kemur fram á vef VG. Viðstaddir endurtalningu voru umboðsmenn frambjóðenda, fulltrúar stjórnar VGR sem framkvæmdu talninguna, auk þess sem fulltrúi forvalsstjórnar mætti til að gera skil á kjörgögnunum. 16.2.2010 11:02
Á batavegi eftir slysið í Hoffelli Báðir mennirnir sem misstu meðvitund um borð í fjölveiðiskipinu Hoffelli á Fáskrúðsfirði á sunnudagsmorgun eru á batavegi. 16.2.2010 10:36
Löggan keyrir minna 163 ökutækjum lögreglu var ekið um 600 þúsund kílómetrum minna á árinu 2009 en árið áður. Þetta kemur fram í upplýsingum frá starfshópi ríkislögreglustjóra sem hefur eftirlit með tækjum og búnaði lögreglunnar. Í fyrra voru eknir rúmlega 4,5 milljónir kílómetra sem er um 12% minni akstur en á árinu 2008. Þá hefur tjónakostnaður sem fellur á lögregluna lækkað verulega milli ára, eða úr 13 milljónum árið 2008 í 5,4 milljónir á síðasta ári. Undir þennan lið falla öll tjón sem tryggingafélög bæta ekki. 16.2.2010 10:31
Vilja ódýrari frístundir fyrir börn og unglinga Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram á fundi borgarstjórnar síðar í dag tillögu um ódýrari frístundir barna og unglinga til að bregðast við erfiðri stöðu margra fjölskyldna í borginni. 16.2.2010 10:23
Fimm leituðu til læknis eftir bilveltu Fimm stúlkur voru fluttar til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja eftir að bifreið þeirra lenti út af veginum á Fellavegi rétt fyrir ofan byggðina í Vestmannaeyjum um ellefuleytið i gærkvöld. 16.2.2010 10:18
Á fimmta þúsund hata að Móri reyni að stinga þau Fljótlega eftir að fréttir bárust af átökum Magnúsar Björnssonar, sem er betur þekktur sem rapparinn Móri, og Erps Eyvindarsonar í húsakynnum útvarpsstöðvarinnar X-ins 977 í Skaftahlíð í gær var stofnaður hópur á Facebook sem heitir: „Ég hata þegar Móri reynir að stinga mig þegar ég er að skúra.“ Viðbrögðin létu ekki á sér standa og fjölgaði miðlimum hópsins ört og í dag eru þeir orðnir tæplega 4800. 16.2.2010 10:12
Íris nýr formaður innflytjendaráðs Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað fulltrúa í innflytjendaráð til næstu fjögurra ára. Nýr formaður ráðsins er Íris Björg Kristjánsdóttir og tekur hún við af Hrannari B. Arnarssyni, aðstoðarmanni forsætisráðherra. 16.2.2010 09:36
Bregst við dómi með nýju frumvarpi Eygló Harðardóttir hefur ákveðið að leggja fram frumvarp til laga á Alþingi um frestun nauðungarsölu og flýtimeðferð einkamála vegna erlendra lána. 16.2.2010 09:14
Erpur og Móri ætla að kæra hvor annan Rapparinn Erpur Eyvindarson átti fótum sínum fjör að launa á útvarpsstöðinni X-inu í gær þegar annar rappari, Móri, réðst að honum vopnaður hníf og rafbyssu. 16.2.2010 06:00
Lánþegar gætu átt endurgreiðslu inni Héraðsdómurinn sem kvað myntkörfulán ólögmæt er vandaður og hefur víðtækt fordæmisgildi. Hann kann því að hafa áhrif á hvort tveggja bílalán og fasteignalán. 16.2.2010 06:00
Kannabisrest í dós á klóinu Leifar af kannabisefnum fundust í dós inni á salerni Tækniskólans síðastliðinn fimmtudag, þegar lögregla leitaði í húsnæðinu með þrem fíkniefnaleitarhundum, að beiðni skólayfirvalda. 16.2.2010 06:00
Dræmar undirtektir „Ég held að það sé óhætt að segja að þeir hoppuðu ekki hæð sína í loft upp af hrifningu," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um viðbrögð Breta og Hollendinga við hugmyndum Íslendinga um nýja lausn Icesave-málsins. 16.2.2010 06:00
Rætt um stöðu efnahagsmála Staða efnahagsmála verður rædd utan dagskrár á Alþingi í dag. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra verður til andsvara. Umræðan, sem hefst klukkan tvö, stendur í klukkustund. 16.2.2010 06:00
Með risaverksmiðju á sveitabæ Lögreglustjórinn á Austurlandi hefur ákært fjóra karlmenn fyrir Héraðsdómi Austurlands fyrir kannabisræktun og jafnframt að hafa komið sér upp mikilvirkri kannabisverksmiðju, þar sem hefði verið hægt að rækta allt að sex hundruð kannabisplöntur í senn. 16.2.2010 05:15
Kostnaður Glitnis meiri en Kaupþings Aðkeypt sérfræðiþjónusta að meðtöldum virðisaukaskatti þegar við á nam 3,4 milljörðum króna árið 2009 hjá skilanefnd og slitastjórn Glitnis. „Þar af námu greiðslur til erlendra aðila 2,6 milljörðum króna en 0,7 milljörðum króna til innlendra aðila,“ segir í svari við fyrirspurn blaðsins um kostnað skilanefnda bankanna vegna aðkeyptrar sérfræðiþjónustu. 16.2.2010 05:15
Sameining stofnana rædd Skipulagsbreytingar hjá Landlæknisembættinu verða til umræðu á fundi heilbrigðisnefndar Alþingis í dag. 16.2.2010 05:00
Lögregla leitar brennuvargs Lögreglan á Selfossi leitar brennuvargs sem kveikti í þvottahúsi í fjölbýlishúsi við Austurveg 34 á Selfossi á föstudag. 16.2.2010 04:45
Kísilverksmiðja fái orku sem ætluð var álveri Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkti í gær rammasamning um orkusölu frá Hverahlíðarvirkjun til kísilmálm- og sólarkísilverksmiðju við Þorlákshöfn. Stefnt er að bindandi samkomulagi á næstu mánuðum. 16.2.2010 04:45
Ármann Snævarr látinn Ármann Snævarr, fyrrverandi hæstaréttardómari og rektor Háskóla Íslands, er látinn. 16.2.2010 04:15
Heilagur papi talinn særa velsæmiskennd Breyta þurfti nafni og flöskumiða nýs páskabjórs brugghússins Ölvisholts svo hann fengist seldur í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Nafnið, sem og kross sem sjá mátti á flöskumiðanum, var talið brjóta í bága við almennt velsæmi með skírskotun til trúarbragða. 16.2.2010 04:00
Nítján ráðgjafar fengu 732 milljónir króna Nítján innlendar lögfræðiskrifstofur og ráðgjafarfyrirtæki seldu Glitni þjónustu fyrir meira en fimm milljónir króna á árinu 2009. Kostnaður skilanefndar og slitastjórnar Glitnis vegna innlendrar sérfræðiráðgjafar nam á árinu 732 milljónum króna, en í þeim tölum eru greiðslur til þeirra sem starfa í skilanefnd og slitastjórn bankans. 16.2.2010 04:00
Verne greiði fjögur sent á kílóvattstund Gagnaver Verne Holdings á Keflavíkurflugvelli mun greiða fjögur sent fyrir hverja kílóvattstund af raforku eða rúmar fimm krónur miðað við núverandi gengi. Þetta segir tæknistjóri Verne í viðtali við bandarískt dagblað. Það er talsvert lægra en meðalverð raforku til fiskvinnslustöðva, samkvæmt upplýsingum frá Rarik, en hins vegar hærra en garðyrkjubændur greiða. 16.2.2010 04:00
Þrír milljarðar í rannsóknir Ríflega 130 styrkumsóknir bárust til AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi að þessu sinni. Öll eiga verkefnin að hafa það að markmiði að auka verðmæti sjávarfangs. 16.2.2010 03:30
Segir vinnubrögð ámælisverð „Það er ljóst að fyrirtæki Halldórs voru færð verk á silfurfati og tilboða ekki leitað. Það er ólíðandi í opinberri stjórnsýslu og brýnt að alltaf sé leitað tilboða til að tryggja hagstæðasta verð,“ segir Guðríður Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi. 16.2.2010 03:30
Landvinnslu og stórum verkefnum fagnað HB Grandi hélt um helgina móttöku fyrir starfsfólk og gesti til viðurkenningar fyrir góðan árangur í landvinnslu félagsins. Einnig vegna þess að fyrir endann sér á stórum verkefnum. 16.2.2010 03:15
Garður tengist vatnsleiðslu Hönnun nýrrar vatnsleiðslu á milli Garðs og Sandgerðis er á lokastigi. Með tilkomu leiðslunnar mun Garðurinn tengjast vatnsveitu sveitarfélaganna úr Gjánni á Reykjanesi, eins og Víkurfréttir sögðu frá í gær. 16.2.2010 03:15
Samræmir mat á stami barna Stam ungra barna er almennt ekki bundið tungumálinu og geta talmeinafræðingar metið stam án þess að skilja tungumálið sem börnin tala. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar dr. Jóhönnu Einarsdóttur, lektors í talmeinum, máltöku barna og aðferðafræði. 16.2.2010 03:15
Vandræðahúsum fækkar „Eftir því sem ég best veit hafa þessi mál færst til miklu betri vegar á undanförnum misserum,“ segir Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn um stöðu svokallaðra vandræðahúsa. 16.2.2010 03:00
Utanlandsferðum fækkar Níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands á síðasta ári, samkvæmt nýrri könnun Ferðamálastofu. Þetta er hærra hlutfall en fyrri kannanir hafa sýnt. 16.2.2010 03:00
Fæðingardeild starfi óbreytt „Sveitarstjórn Húnaþings vestra mótmælir harðlega öllum hugmyndum sem lúta að því að dregið verði úr viðbúnaði og þjónustu á fæðingardeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi,“ segir í ályktun sveitarstjórnarinnar. Hún kveður mikinn meirihluta verðandi mæðra í Húnaþingi vestra hafa valið að fæða börn sín á Akranesi. 16.2.2010 03:00
Sjö vilja hanna nýjan Landspítala Alls bárust sjö umsóknir í forval vegna hönnunarsamkeppni nýs Landspítala og eru stærstu verkfræðistofur landsins meðal þátttakenda. Ábyrgðaraðilar hönnunarteymanna sjö, sem skiluðu inn umsóknum í forvalið, eru allir íslenskir: Mannvit, TBL Arkitektar, VSÓ Ráðgjöf, Efla, Verkís, Almenna verkfræðistofan og Guðjón Bjarnason. 16.2.2010 02:45