Fleiri fréttir

Ögmundur hvetur til sátta

„Nú reynir á að við fylkjum liði. Höldum áfram að vinna einsog gert hefur verið,“ segir þingmaðurinn Ögmundur Jónasson um leið og hann hvetur til sátta vegna deilna innan VG sem spruttu upp eftir forval flokksins í Reykjavík í byrjun mánaðarins.

Bjarni: Mjög ánægður með samninganefndina

„Ég er afar sáttur við störf samninganefndarinnar. Ég tel að við höfum komist að skynsamlegri niðurstöðu hér heima fyrir um þau skilaboð sem átti að færa Bretum og Hollendingum. Nefndin hefur staðið sig sérstaklega vil í því að útskýra okkar málstað,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Ölvaður maður olli ótta hjá börnum

Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir að hafa valdið óspektum og hneyksli á almannafæri með því að angra gesti á tjaldstæði við Gaddstaðaflatir þann 15. ágúst í fyrra.

Hraðakstursbrotum fjölgar um 92%

Alls óku 3072 of hratt í janúar síðastliðnum, samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra. Þetta er fjölgun um 92% brot ef miðað er við síðustu tvö ár, en þá óku um 1600 of hratt í þessum sama mánuði. Að meðaltali voru 99 hraðakstursbrot á dag í janúar síðastliðnum.

Þátttaka aldrei meiri en nú

Sjö manna dómnefnd tónlistarsérfræðinga hefur komist að niðurstöðu um tilnefningar til Íslensku tónslistarverðlaunanna 2010. Sérstaka athygli vekur að aldrei hafa fleiri lagt fram hljóðrit til Íslensku tónlistarverðlaunanna en nú í ár, eða í kringum 160 talsins. Það er um hundrað prósent aukning frá því í fyrra. Úrslitin verða kunngjörð í Íslensku óperunni laugardagskvöldið 13. mars. Verða þau í fyrsta sinn sýnd í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2.- rve/Sjá sérblaðið Hljómgrunnur

Óttuðust þjóðargjaldþrot 2011

Þeir Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, funduðu með Sam Watson, sem stýrir sendiráði Bandaríkjanna hér á landi þar sem sendiherra hefur ekki verið skipaður.

Mikilvægt að nemendur hafi val

Mikilvægt er að nemendur hafi áfram val um skólagerð, milli bekkjarkerfis og fjölbrautakerfis segir Kristrún G. Guðmundsdóttir, skólastjóri Hlíðaskóla. Framhaldsskólarnir séu með misjafnar áherslur og ekki víst að hverfisskólarnir henti endilega öllum nemendum.

Milljarða útgreiðsla hangir yfir borginni

„Á meðan við erum að forgangsraða í þágu grunnþjónustu og annars sem mestu máli skiptir getum við auðvitað ekki varið það að endurgreiða lóðir nema það sé alveg skýrt að það sé okkar skylda,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

Minni sala sýklalyfja á Íslandi

Sala á sýklalyfjum hérlendis dróst saman um 5,6 prósent í fyrra. Þetta kemur fram í grein Haraldar Briem sóttvarnalæknis í nýju hefti Farsóttafrétta.

Stærsta eignin seld úr búi Fons

JP Lögmönnum hefur verið falið að annast formlegt ferli á öryggisvörslufyrirtækinu Securitas. Fyrirtækið er helsta eign þrotabús Fons, félags áður í meirihlutaeigu Pálma Haraldssonar. Stefnt er að því að nýir eigendur taki við Securitas í kringum 20. mars næstkomandi.

Standa í stað milli mánaða

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í janúar námu 2,1 milljarði króna. Þar af voru um 700 milljónir króna vegna almennra lána og um 1,4 milljarðar vegna annarra lána.

Má setja skilyrði fyrir veitingu smálána

Full ástæða er til að nýta heimild í nýjum lögum um neytendalán til að setja skilyrði fyrir veitingu smálána, að mati Neytendastofu. Slík skilyrði myndu meðal annars skylda veitendur svokallaðra SMS-lána til að gera lántakendum gleggri grein fyrir kostnaði við lántökuna.

Segir allt um stuðninginn við Íraksstríð liggja fyrir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist vera hlynnt því að allar upplýsingar um aðdraganda stuðnings Íslands við Íraksstríðið verði gerðar opinberar. Þetta sé þó ekki sérlega brýnt, enda liggi allar upplýsingar um málið þegar fyrir.

Óánægja með endurkomu hverfisskóla

Nýjar innritunarreglur í framhaldsskóla búa til fleiri vandamál en þær leysa, segir Ingi Ólafsson, skólastjóri í Verslunarskóla Íslands, sem í fyrsta sinn í sögu skólans verður að hverfisskóla. Skiptar skoðanir eru hjá skólastjórum framhaldsskóla um reglurnar sem fela í sér að að minnsta kosti 45 prósent nýnema eigi að koma úr skólum í grenndinni.

Ríkið láti gera stærri flugstöð

Bæjarráð Akureyrar vill að flugstöð og flughlað á Akureyrarflugvelli verið stækkað sem fyrst og tekur þar með undir áskorun þess efnis frá stjórn Markaðsstofu ferðamála á Norðurlandi.

Nóg af súkkulaði og núggat

Hilmir Hjálmarsson hjá Sveinsbakaríi bar sigur úr býtum í keppni um Köku ársins sem Landssamband bakarameistara efnir til árlega í samstarfi við Nóa-Síríus.

Hluti gagna birtur á ensku

Lítill hluti þeirra gagna sem vísað er til á kynningarvef vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu hefur ekki verið þýddur úr ensku á íslensku. Opnað var fyrir kynningarvefinn í gær.

Póstdreifingarmiðstöð flutt frá Hvolsvelli til Hellu

Stjórn Íslandspósts hefur samþykkt fyrir sitt leyti að flytja póstdreifingarmiðstöðina á Hvolsvelli til nágrannabæjarins Hellu. Guðmundur Oddsson, formaður stjórnarinnar, segir endanlega ákvörðun vera í höndum Ingimundar Sigurpálssonar, forstjóra Íslandspósts.

Yfirheyrður vegna nauðgunar

Karlmaður hefur verið yfirheyrður hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna nauðgunar sem kærð var eftir síðustu helgi. Þá kannar lögregla vísbendingar varðandi annan meintan nauðgara.

Minni verðmæti en í fyrra

Heildarafli íslenskra fiskiskipa, metinn á föstu verðlagi, í janúar 2010 var 8,9 prósent minna en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Gaf fólki varning úr sjoppu

Maður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir að afhenda varning út um lúgu söluskála Olís á Selfossi án þess að taka greiðslu fyrir.

Varar við miklum flýti í aðild að ESB

„Finnist ekki sanngjörn úrlausn í skuldamálum tapa allir,“ segir breski stjórnmálamaðurinn Diana Wallis, en hún er varaforseti Evrópuþingsins. Wallis hélt erindi í Háskólanum í gær undir yfirskriftinni „Icesave, Ísland og Evrópusambandið – hvers skuld er þetta annars?“

Amfetamínið út um glugga

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa rúmlega 300 grömm af amfetamíni í fórum sínum til að dreifa og selja.

Formaður HK segir félagið ekki notað í pólitískum tilgangi

„Þetta bréf er ekki á vegum HK," segir formaður HK í Kópavogi, Sigurjón Sigurðsson, um bréf sem hefur ratað á félagsmenn og þeir hvattir til þess að skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn til þess að kjósa Ármann Kr. Ólafsson í prófkjöri flokksins. Bréfið er stílað á félagsmenn íþróttafélagsins en þar segir meðal annars:

Leynigagnið kom frá Wikileaks - það má lesa í heild sinni hér

Skjalið sem lak út og sagði frá ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins, Einar Gunnarsson, og aðstoðarmanni utanríkisráðherra, Kristján Guy Burgess, sem kröfðust þess við starfandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, að þeir tækju afstöðu í Icesave málinu, kom frá Wikileaks en það má finna hér fyrir neðan.

Birta vill afsökunarbeiðni frá rektor LHÍ

Fatahönnuðurinn Birta Björnsdóttir hefur sent rektor Listaháskóla Íslands bréf þar sem hún krefst þess að hann biðji hana afsökunar á viðbrögðum Lindu Bjarkar Árnadóttur, fagstjóra fatahönnunardeildar skólans. Þetta kom fram á vefsíðunni Miðjan.is.

Fyrstu stiklurnar úr kvikmynd Dags Kára

Fyrstu stiklur úr nýrri kvikmynd Dags Kára, The Good Heart, sem skarta stórstjörnunum Paul Dano og Brian Cox í aðalhlutverkum, eru komnar á netið.

Icesave-sendinefndin kemur heim í kvöld

Samninganefndin sem fór utan til Bretlands í könnunarviðræður kemur heim í kvöld, þetta kom meðal annars fram eftir fund formanna stjórnmálaflokkanna í forsætisráðuneytinu. Fundinum lauk fyrir stundu en hann hófst síðdegis.

Formenn funda

Formenn stjórnmálaflokkanna funda í stjórnarráðinu þessa stundina vegna Icesave. Fundurinn stendur enn yfir en greint verður frá niðurstöðu fundarins hér á Vísir þegar honum lýkur.

Kröfðust þess að BNA tæki afstöðu í Icesave málinu

Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Einar Gunnarsson, og aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Kristján Guy Burgess, kröfðust þess við starfandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, að þeir tækju afstöðu í Icesave málinu.

Vill lækka laun skilanefndarmanna

Fjármálaráðherra ætlar að beita sér fyrir því að laun skilanefndarmanna bankanna verði lækkuð. Ofurlaun þeirra sendi röng skilaboð út í samfélagið.

Fær ekki bætur vegna látins föður

Sonur manns sem lést í sjóslysi í Viðeyjarsundi árið 2005 fær ekki dánarbætur úr fjölskyldutryggingu föður síns vegna þess að sambýliskona hans lést hálftíma síðar í sama slysi.

Akureyrarbær sýknaður af kröfu slökkviliðsmanns

Hæstiréttur Íslands snéri við úrskurði Héraðsdóms Norðurlands eystra þar sem Akureyrarbæ var gert að greiða slökkviliðsmanni rúmlega tvær milljónir króna eftir að hann réði sig sem slökkviliðsmaður á Akureyri árið 2007.

Indriði: Bretar og Hollendingar mögulega til í vaxtabreytingar

Indriði H. Þorláksson aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra, staðfestir í símaviðtali við Bloomberg fréttastofuna í dag að Bretar og Hollendingar hafi gefið það til kynna að þeir séu reiðubúnir til þess að ræða breytingar á vaxtakjörum Icesave-samninganna.

Gæti lent í fangelsi fyrir að aka á nagladekkjum

Karlmaður á fertugsaldri þarf að dúsa í fangelsi í tvo daga greiði hann ekki 10 þúsund króna sekt sem Héraðsdómur Suðurlands dæmdi hann til að greiða fyrir að aka um á nagladekkjum.

Dregur úr notkun sýklalyfja

Á árinu 2009 dró úr sölu sýklalyfja og fjölda ávísana á sýklalyf miðað við árin á undan. Heildarsamdráttur í sölu sýklalyfja var 5,6%, sem er mun meiri samdráttur en í sölu lyfja almennt, sem nam 1,6%. Þetta kemur fram í nýjum Farsóttarfréttum, fréttabréfi embættis sóttvarnalæknis.

Rafmagnið komið á í Mosfellsbæ

Rafmagn er nú komið á í Mosfellsbæ en bærinn varð rafmagnslaus að hluta eftir hádegi þegar háspennustrengur var grafinn í sundur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni sem vann að viðgerð.

Sjá næstu 50 fréttir