Fleiri fréttir

Frávísunarkröfunni hafnað í héraðsdómi

Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði frávísunarkröfu Materia Invest ehf, Magnúsar Ármann og Kevins Stanford frá dómi í dag. Ekki er hægt að kæra úrskurðinn og því heldur mál Nýja Kaupþings gegn Materia og þeim félögum enn áfram.

Ráðin kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins

Þórey Vilhjálmsdóttir hefur verið ráðin til Sjálfstæðisflokksins sem kosningastjóri fyrir borgarstjórnarkosningar 2010. Þórey mun síðar taka við starfi framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks af Kristínu Hrefnu Halldórsdóttur sem fer í fæðingarorlof.

Sjálfstæðismenn á Ísafirði ætla í prófkjör

Sálfstæðismenn á Ísafirði ákváðu í gær á aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna að halda prófkjör til að velja á lista flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Í tilkynningu frá flokknum segir að dagsetning liggi ekki fyrir en að stefnt sé að halda prófkjörið fyrir lok febrúar.

Elti þjófinn og hringdi á lögreglu

Bíl var stolið rétt eftir miðnætti á bensínstöð í Reykjavík. Eigandi bílsins varð var við það þegar þjófurinn ók á brott og fékk hann kunningja sinn til þess að aka á eftir þrjótnum. Þeir höfðu síðan samband við lögreglu sem skarst í leikinn og handtók bílþjófinn. Sá er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna eða lyfja og gistir hann nú fangageymslur.

Brotist inn í leikskóla

Tilkynnt var um innbrot í leikskólann Seljakot í nótt. Þjófarnir voru á bak og burt þegar lögreglu bar að garði og höfðu þeir á brott með sér eitthvað af þýfi en ekki er ljóst hverju nákvæmlega var stolið. Málið er í rannsókn.

Ökuferðin kom upp um kannabisrækt

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærkvöldi ökumann fyrir ógætilegan akstur í Reykjanesbæ. Í ljós kom að maðurinn var undir áhrifum fíkniefna og í framhaldi var gerð húsleit heima hjá honum en hann býr á Suðurnesjum. Þar kom í ljós nokkuð blómleg kannabisrækt og reyndist maðurinn vera með um þrjátíu kannabisplöntur í ræktun. Hann gekkst við brotinu og telst málið upplýst að sögn lögreglu.

Fangar skiluðu þvagsýni

Fjölmennt lið fór í allsherjarleit, þar á meðal að fíkniefnum og sterum, í fangelsinu á Kvíabryggju í gær. Leitin stóð í allan gærdag. Tilefni hennar var að kanna almennt ástand mála í fangelsinu. Þar höfðu sterar og tól til að nota þá fundist fyrir nokkru, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.

Veitingamenn neita ásökunum um svik

„Mér finnst eðlilegt að hann biðjist afsökunar,“ segir Steinþór Jónsson á Hótel Keflavík, sem er ósáttur við yfirlýsingar Níelsar S. Olgeirssonar, formanns Matvæla- og veitingafélags Íslands, um meinta svarta starfsemi í veitingageiranum á Suðurnesjum.

Fjarlægt yfirvald án yfirsýnar

„Það er áhugavert að skoða þessi ummæli með tilliti til fiskveiðistjórnunar okkar og umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Með aðild myndi Ísland gangast undir hina sameiginlegu fiskveiðistefnu ESB. Henni er miðstýrt frá Brussel, fjarri þeim sem nýta auðlindir sjávar og eiga mestra hagsmuna að gæta,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.

Hjúkrunarrými fyrir níu milljarða

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að heimila Árna Páli Árnasyni, félags- og tryggingamálaráðherra, að vinna að hugmyndum um byggingu 361 hjúkrunarrýmis fyrir aldraða á árunum 2010 til 2012. Að sögn Árna Páls yrði kostnaður við verkefnið um níu milljarðar króna.

Óþarfi að slá alla umræðu út af borðinu

„Það sem við erum að reyna að gera er að velta upp mögulegum leiðum að lausnum,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, um þá hugmynd að lífeyrissjóðirnir komi að lausn Icesave-deilunnar með láni til ríkisins.

Stefnt getur í neyðarástand á gjörgæslu

Ef ekki tekst að hindra útbreiðslu svínaflensunnar með bólusetningu getur það raskað starfsemi Landspítalans. Þar eru til þrjár hjarta- og lungnavélar, en allmargar öndunarvélar að auki. Þetta segir Þórólfur Guðnason starfandi sóttvarnalæknir.

Með fíkniefni í fjórum dósum

Ríkissaksóknari hefur höfðað mál á hendur litháískri konu á þrítugsaldri fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnasmygls.

Færeyingar eru vinir í raun

Forsætisráðherra Íslands þakkaði í gær Færeyingum fyrir lán upp á þrjú hundruð milljónir danskra króna sem þeir veittu Íslendingum stuttu eftir íslenska bankahrunið.

Funduðu um SMS-lán Kredia

Forvarsmenn og lögmaður Kredia ehf. funduðu í gær með talsmanni neytenda og lögfræðingum frá Neytendastofu og Fjármálaeftirlitinu. Efni fundarins var umdeild smálán á háum vöxtum sem Kredia býður nú í gegnum sms-skilaboð.

Gítarstillir seldur til 134 landa

Tunerific, gítarstillingarforrit sem þróað var af íslenska sprotafyrirtækinu Hugvakanum, hefur vakið gríðarlega athygli eftir að það var sett á markað síðastliðið sumar. Forritið trónir í efsta sæti hjá Ovi, netverslun finnska símarisans Nokia, og hefur nú dreifst til 134 landa á þessum stutta tíma.

Lán Norðmanna háð AGS

Í erindi norsku fjárlaganefndarinnar til Stórþingsins kemur skýrt fram að lán til Íslendinga haldist í hendur við afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á málefnum þjóðarinnar. Þá verði Íslendingar að standa við sínar alþjóðlegu skuldbindingar og fara eftir regluverki Evrópusambandsins um fjármál.

Einbeiti sér að fjárlaganefnd

Ásbjörn Óttarsson Sjálfstæðisflokki leggur til að þeir þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd Alþingis sitji í þeirri nefnd einni og ekki öðrum. Hann vék að þessu í umræðum um fjáraukalög í gær.

Dómsmálaráðherra heimsótti sérstakan saksóknara

Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra heimsótti embætti sérstaks saksóknara í gær, 12. október 2009. Embættið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum vikum, starfsfólki hefur verið fjölgað, þrír nýir saksóknarar skipaðir og starfsemin verið flutt í ný og rúmbetri húsakynni.

Ráðherra hlíti nefnd eða leiti samþykkis Alþingis fyrir dómaraskipan

Sömu reglur munu gilda um skipan hæstaréttardómara og héraðsdómara nái tillögur nefndar, sem Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun, fram að ganga. Dómnefnd mun þá gefa umsögn um hæfi umsækjenda um dómarastöður en hingað til hafa hæstaréttadómarar gefið umsögn um hæfi umsækjenda í stöðu hæstaréttardómara.

Biluð umferðarljós við gatnamót Breiðholtsbrautar

Umferðarljós gatnamóta Breiðholtsbrautar og Jaðarsels verða óvirk frá miðvikudagsmorgni í allt að þrjá daga vegna framkvæmda. Endurnýja þarf stjórnkassa og einnig verður umferðarljósunum sjálfum skipt út, en sett verða svokölluð díóðuljós sem eru bjartari og skýrari fyrir akandi og gangandi umferð.

Sex líkamsárásir - einn nefbrotinn

Sex líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina en fjórar þeirra áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags. Allar voru þær minniháttar og ekki er vitað til þess að fólk hafi orðið fyrir alvarlegum meiðslum að sögn lögreglu.

„Hvar er Tónlistarhúsið?“

„Eftir því sem ég best veit þá er það að rísa niðri við höfnina," svaraði Steingrímur J. Sigfússon þegar Pétur H. Blöndal þingmaður benti á að hvergi væri minnst á Tónlistarhúsið í fjárlögum eða fjáraukalögum. Umræða um fjáraukalög fer nú fram á Alþingi. Pétur sagði að það ætti að vera inni í fjáraukalögum líkt og Icesavesamkomulagið.

Hálf öld á milli yngsta og elsta þjófsins

Yngsti þjófurinn sem lögreglan greip um helgina reyndist vera tólf ára gamall drengur en hann varð uppvís af búðarþjófnaði í verslunarmiðstöð á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

BSRB: Hörð mótmæli gegn sviknum fyrirheitum

Stjórn BSRB mótmælir harðlega þeim áformum núverandi ríkisstjórnar að ætla sér ekki að standa við gefin fyrirheit frá árinu 2008 um að létta skattbyrði hinna tekjulægstu með hækkun persónuafsláttar.

Dæmdur fyrir að nefbrjóta mann

Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að nefbrjóta annan mann í gleðskap sem var haldinn í félagsheimili Fáks í Víðidal í Reykjavík í febrúar á síðasta ári. Mennirnir runnu til í hálku fyrir utan félagsheimilið og upphófust slagsmál.

Bjarni á erfitt með að gleðjast yfir góðum fréttum

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins spurði fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrir stundu hvaða þýðingu það hefði að nú sé talið að um 90% fáist upp í Icesaveskuldbindingarnar. Hann sagði ljóst að meginþorri þeirra skuldbindinga sem við værum að fara að taka á okkur væru vegna vaxtakostnaðar.

Dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun

Karlmaður var dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir nauðgun í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn nýtti sér ölvun og svefndrunga konu og hafði við hana samræði þegar hún var áfengisdauð.

Fær engar bætur fyrir 25 milljóna króna Porsche-inn sinn

Tæplega fertugur eigandi Porschebifreiðar sem fór út af Grindavíkurvegi í janúar á síðasta ári fær bílinn ekki bættann samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Vátryggingarfélag Íslands var sýknað af kröfum mannsins sem vildi fá fullar bætur fyrir bílinn, sem er metinn á tæpar 25 milljónir króna. Talið er að maðurinn hafi verið að lágmarki á 170 km hraða á klukkustund þegar hann fór út af.

Bókelskur bófi: Stal óútgefnum Dan Brown frá Bjarti

„Það var tvennt sem þeir tóku, annars vegar tölvuskanni og svo þýðinguna að nýjustu bók Dan Brown,“ segir Guðrún Vilmundardóttir, útgáfustjóri Bjarts, en óprúttinn þjófur fór inn í húsnæði Bjarts á Bræðraborgarstígnum og stal skanna og glóðvolgu handriti að Týnda tákninu, nýjustu skáldsögu Browns. Hann er hvað frægastur fyrir að hafa skrifað Da vinci lykilinn.

Ekki komin niðurstaða í Icesave

Eftir því sem fréttastofa kemst næst er ekki komin niðurstaða um lendingu með Bretum og Hollendingum í Icesave málinu. Heimildir fréttastofu herma að ríkisstjórnin sé ekki tilbúin með nýtt frumvarp um ríkisábyrgð sem viðsemjendurnir eru tilbúnir til að fallast á.

Þú deyrð af að senda SMS

Sexþúsund Bandaríkjamenn deyja árlega vegna þess að þeir freistast til að senda SMS meðan þeir eru að keyra bíl samkvæmt nýrri rannsókn þar í landi.

Dæmdur fyrir kynferðisbrot

Tuttugu og þriggja ára gamall karlmaður var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára gamalli stúlku í Héraðsdómi Suðurlands á föstudaginn síðasta.

Lítill þrýstingur á heita vatninu í vesturborginni

Vegna bilunar í aðveituæð heits vatns í Öskjuhlíð verður lítill þrýstingur á heita vatninu í Reykjavík vestan Öskjuhlíðar fram eftir morgni, eða á meðan viðgerð stendur. Ekki reyndist þörf á að loka alveg fyrir rennsli og því á ekki verða alveg vatnslaust að því er fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni.

Brotist inn á Bræðraborgarstíg

Brotist var inn í íbúð á Bræðraborgarstíg í Reykjavík í nótt. Þjófurinn eða þjófarnir komust undan en það sást til þeirra. Ákveðnar vísbendingar liggja fyrir því lögreglan kannast við bílinn sem þeir eru grunaðir um að hafa verið á og er málið í vinnslu að sögn vaktstjóra.

Ægir á undan áætlun

Vel hefur gengið hjá varðskipinu Ægi en það er á leið til hafnar með Grænlenska bátinn Qavak í togi sem varð vélarvana miðja vegu á milli Grænlands og Íslands í fyrradag. Dráttartaug var komið fyrir um borð í bátnum í gærmorgun og hafa skipin verið á siglingu síðan þá. Fyrst var reiknað með að þau næðu til hafnar á miðvikudagsmorgun en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er nú reiknað með að Ægir komi til hafnar í Reykjavík um áttaleytið í kvöld.

Heimili borga meira í heilbrigðisþjónustu

Útgjöld íslenskra heimila vegna heilbrigðismála jukust um 29 prósent að raungildi milli áranna 1998 og 2006. Þetta er niðurstaða Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Noregsferð gekk vonum framar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir Noregsferð sína og Höskuldar Þórhallssonar þingmanns hafa gengið vonum framar. Viðbrögð við hugmyndum um lánalínu frá Noregi hafi verið mjög jákvæð, helst hafi fulltrúar Verkamannaflokksins verið hlédrægir. Þetta kom fram í bréfi sem Sigmundur sendi flokksfélögum sínum.

Lögvarðir hagsmunir voru ekki virtir

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra braut stjórnsýslulög þegar hún gaf forsvarsmönnum Norðuráls ekki kost á því að gæta hagsmuna félagsins þegar hún felldi úrskurð vegna Suðvesturlínu, að því er segir í bréfi Norðuráls til ráðherra.

Listamenn streyma í vinnu á Skagaströnd

„Þetta fólk kann óskaplega vel við sig og hefur sýnt af sér gríðarlega indæla og góða framkomu,“ segir Sigurður Sigurðar­son, formaður stjórnar Nes listamiðstöðvar á Skagaströnd, um erlenda listamenn sem flykkst hafa til dvalar í lista­miðstöðinni.

Samþykkja að veðsetja þrjár húseignir

Bæjarráð Hafnar­fjarðar hefur samþykkt að veðsetja þrjár húseignir bæjarins vegna skuldbreytinga á lánum. Um er að ræða húseignir á Sólvangsvegi 2 og Strandgötu 31 og 33.

Hugmyndin galin segir talsmaður LL

Mikill ávinningur yrði af því að greiða upp skuldbindingar ríkisins vegna Icesave með láni frá lífeyrissjóðunum, að mati Viðskiptaráðs Íslands. Hugmyndin er galin, segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða (LL).

Íbúðalán dragast saman um helming

Þótt útlán Íbúðalánasjóðs hafi aukist á milli mánaða í septem­ber er samdráttur milli ára. Samkvæmt tölum sjóðsins námu heildarútlán ríflega 2,9 milljörðum króna í septem­ber, þar af voru um 1,8 milljarðar í almenn útlán og 1,1 milljarður vegna leiguíbúðalána.

Sjá næstu 50 fréttir