Fleiri fréttir

Mótmælendur handteknir við lögreglustöðina

Tveir voru handteknir fyrir utan lögreglustöðina eftir að þeir reyndu að koma í veg fyrir að lögreglumenn gætu lokað hliði að porti lögreglustöðvarinnar við Hverfisgötuna.

Stúlkurnar fundnar

Týndu stúlkurnar, sem lýst var eftir fyrr í dag, eru búnar að skila sér á heilu og höldnu.

Hagkaup ekki dýrast - Nóatún er það

Í fréttatilkynningu sem var send á fjölmiðla í dag frá verðlagseftirliti ASÍ var ranglega sagt að Hagkaup væri oftast með hæsta verðið í könnunninni eða í 28 tilvikum af 55. Þetta kemur fram í leiðréttingu sem ASÍ sendi frá sér nú fyrir stundu.

Ómar Ragnarsson fordæmir ofbeldisfull mótmæli

„Að sparka í höfuð einhvers er einhvert hættulegasta athæfi sem hugsast getur, því að fæturnir eru miklu öflugri en handleggirnir og auk þess oft um harða skó að ræða sem lenda í höfði þess sem sparkað er í,“ skrifar náttúruverndarsinninn Ómar Ragnarsson á bloggið sitt í kvöld.

Mótmælum frestað vegna frestunar á heræfingum

Samtök hernaðarandstæðinga á Norðurlandi hafa frestað mótmælum sem áttu að fara fram á morgun. Sjálfir segja þeir í tilkynningu að ástæðan sé sú að bandaríska herveldið hafi hörfað undan friðarvilja Norðlendinga.

Icesave-samningur meitlaður í stein

Fjármálaráðherra vill ekki ræða fyrirvara við Icesave heldur segir hann Alþingi einungis vera að búa til umgjörð um ríkisábyrgð vegna Icesave. Hann segir fátt um gildi slíkrar umgjarðar. Bretar telja að ríkisstjórn Íslands hafi skuldbundið sig til að tryggja stuðning Alþingis við samningana.

Álverssamningur undirritaður í skugga skyrslettna

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, og Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls undirrituðu í dag fjárfestingarsamning vegna álvers Norðuráls í Helguvík. Meginmarkmið með samningnum er að tryggja ákveðinn stöðugleika í laga- og rekstrarumhverfi álversins sem er forsenda þess að ljúka megi fjármögnun verkefnisins. Samningurinn er sambærilegur þeim samningum sem gilda fyrir álverin á Grundartanga og á Reyðarfirði.

Lögreglan handtók skyrslettumenn

Lögreglan handtók þrjá einstaklinga, tvo karla og eina konu, á Ingólfstrætinu eftir að þeir skvettu grænu jukki á iðnaðarráðuneytið nú fyrir skömmu.

Grétar Már Sigurðsson látinn

Grétar Már Sigurðsson, sendiherra og fyrrverandi ráðuneytisstjóri, andaðist í morgun, 50 ára að aldri, eftir baráttu við illvígt mein.

Um 800% verðmunur á grænmeti

Bónus var með lægsta verðið á 38 vörutegundum af þeim 55 sem skoðaðar voru þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudaginn. Hagkaup var oftast með hæsta verðið eða í 28 skipti.

Þýskur ferðamaður handtekinn eftir átök við Bónus

Lögregla handtók í dag að því talið er þýskan ferðamann við verslun Bónus í Helluhrauni. Maðurinn hafði að sögn lögreglu gert sig líklegan til að ganga út úr versluninni með talsvert af vörum án þess að greiða fyrir.

Lýst eftir Huldísi Ingu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Huldísi Ingu Bjarkadóttur, sextán ára að aldri, en hún mun vera í samfloti við Aðalsteinu Líf sem lýst var eftir á Vísi fyrr í dag.

Ráðherra kynnti frumvarp um rýmri heimildir til eignakyrrsetningar

Skattrannsóknarstjóra verður heimilt að krefjast kyrrsetningar á eignum í málum sem hann rannsakar ef hætta þykir á að eignum verði skotið undan eða þær glatist eða rýrni að mun, samkvæmt nýju frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti fyrir ríkisstjórninni í morgun.

Lögreglan leitar að Aðalsteinu

Lögreglan á höfðuborgarsvæðinu leitar af Aðalsteinu Líf Kjartansdóttur. Hún fór frá heimili sínu í fyrradag og hefur ekki skilað sér heim. Hún var klædd í bláar gallabuxur, svartan bol og grárri hettupeysu. Hún er 14 ára, 140-150 cm á hæð, ljóshærð og grönn.

Björn L. Bergsson settur sérstakur ríkissaksóknari

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra hefur í dag sett Björn L. Bergsson hrl. til að fara með hlutverk og valdheimildir ríkissaksóknara gagnvart embætti sérstaks saksóknara, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um meðferð sakamála, sbr. lög nr. 80/2009, er tóku gildi í dag.

Berserksgangur í Kaupþingi litinn alvarlegum augum

„Öll svona atvik eru litin alvarlegum augum og farið yfir öll ferli og kannað hvernig eigi að meðhöndla áframhaldið," segir Berghildur Erla Bernharðsdóttir, upplýsingafulltrúi Kaupþings.

Sakfelldur fyrir slysaskot í veiðifélagann

Maður var á miðvikudag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa af gáleysi valdið því að skot hljóp úr byssu og í framhandlegg veiðifélaga hans. Þá var Benelli haglabyssa í eigu mannsins gerð upptæk.

Fjöldi svínaflensutilfella komið upp í 72

Sjötíu og tveir hafa greinst með svínaflensu, nýju H1N1 inflúensunna, á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá Landlækni. Sýktum hefur því fjölgað um níu frá í gær. Bóluefnis er fyrst að vænta til Íslands í september eða október.

Vistun Papeyjarfanga gæti kostað samfélagið 350 milljónir

Það gæti kostað alls 352 milljónir að vista mennina sem voru dæmdir í Papeyjarmálinu í gær í fangelsi næstu árin. Samkvæmt upplýsingum frá Páli Winkel fangelsismálastjóra kostar vistun fanga 24 þúsund krónur á sólarhring.

Deilur í Borgarahreyfingunni: Þór segir fundinn í gær gagnslausan

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, segir félagafund hreyfingarinnar vegna klofnings þingflokksins í gær gagnslausan bæði málefninu og hreyfingunni. Þetta kemur fram bæði á heimasíðu Þórs og í athugasemdum við fundarboðið á heimasíðu Borgarahreyfingarinnar.

Fimmtán mánaða fangelsi fyrir Grettisgötuárás

Arvydas Guobis var dæmdur í 15 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir alvarlega líkamsárás á Grettisgötu í byrjun júní. Tveir félagar Guobis þurfa að greiða 120 þúsund króna sekt til ríkissjóðs fyrir að koma þeim sem fyrir árásinni varð ekki til læknishjálpar. Maðurinn missti meðvitund og var líf hans í hættu um tíma eftir barsmíðarnar. Þá var Guobis dæmdur til að greiða þeim sem hann réðst á 400 þúsund krónur í skaðabætur.

Makríllinn enn til vandræða

Síldveiðiskipin, sem veiða úr Norsk- íslenska síldarstofninum norðaustur af landinu, eiga í stökustu vandræðum vegna þess hve mikill makríll er í aflanum, en hlutfall hans í heildarafla hvers skips má ekki fara yfir tólf prósent.

Obama ánægður með bensínhákafrumvarpið

Barack Obama lýsti í dag mikilli ánægju sinni með að öldungadeild Bandaríkjaþings skyldi samþykkja áætlun sem gengur út á að borga fólki fyrir að losa sig við gamla bíla sem eru frekir á bensínið. Tveir milljarðar Bandaríkjadala verða settir í verkefnið sem ætlað er að minnka mengun og um leið örva sölu á nýjum bílum í landinu en bílaiðnaðurinn hefur verið í gríðarlegum vandræðum í bandaríkjunum síðustu árin.

Dularfullur ljósagangur fyrir norðan

Lögreglan á Akureyri og menn úr björgunarsveitinni Súlum leituðu án árangurs í nótt á Svalbarðsströnd og á Miðvíkurfjalli að einhverju, sem skýrt gæti torkennilegt grænleitt ljós, sem tilkynnt var um að þar hafi fallið til jarðar laust eftir miðnætti.

Þúsundir mættar til Dalvíkur

Þúsundir manna eru þegar komnar til Dalvíkur til að taka þátt í fiskideginum þar á morgun og eru öll tjaldstæði þegar orðin yfirfull. Gestir eru farnir að tjalda, leggja húsbílum sínum utan bæjarmarkanna, en fólk var farið að safnast þar saman strax á miðvikudag.

Persónulegar deilur innan Borgarahreyfingarinnar harmaðar

Félagsfundur Borgarahreyfingarinnar, sem stóð framundir miðnætti, harmar þann skaða, sem persónulegar deilur meðal stjórnarmanna og þinghópsins hafa valdið hreyfingunni. Þess er krafist að þingmenn og stjórnarmenn geri út um þessar deilur þannig að ekki hljótist frekari skaði af, og einbeiti sér að því að hrinda stefnumálum Borgarahreyfingarinnar í framkvæmd.

Mun meira af geitungum

Mun meira er af geitungum í sumar en í fyrrasumar. Þetta segir Erling Ólafsson skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands.

Mikill meirihluti á móti

Mikil andstaða er við Icesave-samninginn meðal þjóðarinnar samkvæmt könnun Capacent-Gallup fyrir Andríki.

Telur hættu á fólksflótta síst ofmetna

Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur þær tölur sem nefndar hafa verið um mögulega fólksflutninga vegna kreppunnar síst ofætlaðar.

Mikið forskot Fréttablaðsins í lestri

Heldur dregur úr lestri á dagblöðum í sumar samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup. Fréttablaðið er sem fyrr með mun meiri lestur en Morgunblaðið, og helst forskot blaðsins svo til óbreytt frá síðustu könnun. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var á tímabilinu 2. maí til 31. júlí, lásu 61,1 prósent hvert tölublað Fréttablaðsins að meðaltali. Það er ívið minna en í síðustu könnun, sem gerð var á tímabilinu 1. febrúar til 30. apríl, þegar lesturinn mældist 61,9 prósent.

Flest störf í skólunum mönnuð

Vel hefur gengið að ráða í lausar stöður í grunnskólum Reykjavíkurborgar, að sögn Kjartans Magnússonar, formanns menntaráðs. „Almennt séð eru skólarnir fullmannaðir,“ segir hann og kveður hljóðið gott í skólastjórum hvað þetta varði.

Svört skýrsla um Hróarskeldubanka gæti nýst Íslendingum

Sérstakur saksóknari og forstjóri Fjármálaeftirlitsins telja að nýútkomin skýrsla danskra lögfræðinga um fall Hróarskeldubanka, þar sem líkur eru leiddar að umfangsmiklum lögbrotum stjórnenda, kunni að nýtast við rannsókn mála hérlendis.

Mál og menning á Laugavegi

Bókabúð Máls og menningar verður áfram rekin á Laugavegi 18, þrátt fyrir að reksturinn sem þar hefur verið sé að flytjast á Skólavörðustíg.

Fjölskylduerjur þingmannsins

Munnleg málsmeðferð fór fram í Héraðsdómi Suðurlands í gær í máli Eggerts Haukdals, fyrrverandi alþingismanns, gegn frænku hans og eiginmanni hennar. Fyrir tæpum þremur árum seldi hann bróðurdóttur sinni og manni hennar jörð sína ásamt húsi.

Styrkur bara fyrir Íslendinga

Creighton-háskólinn í Omaha í Bandaríkjunum hefur ákveðið að styrkja Ragnheiði Á. Gunnars­dóttur í nám við skólann.

Enginn þingmaður mætti

Enginn þingmaður Borgarahreyfingarinnar mætti á félagafund hreyfingarinnar sem haldinn var í gærkvöldi.

Styðja við miðstöð í Namibíu

Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra á Íslandi (SHH) mun styðja við bakið á stjórnvöldum í Namibíu við stofnun og starfrækslu sambærilegrar stofnunar þar í landi.

Sjá næstu 50 fréttir