Ómar Ragnarsson fordæmir ofbeldisfull mótmæli 7. ágúst 2009 21:12 Ómar Ragnarsson er einn þekktasti baráttumaður fyrir náttúruvernd hér á landi. Mynd/Arnþór Birkisson „
Að sparka í höfuð einhvers er einhvert hættulegasta athæfi sem hugsast getur, því að fæturnir eru miklu öflugri en handleggirnir og auk þess oft um harða skó að ræða sem lenda í höfði þess sem sparkað er í," skrifar náttúruverndarsinninn Ómar Ragnarsson á bloggið sitt í kvöld. Tilefnið er handtaka fimm einstaklinga fyrir utan iðnaðarráðuneytið síðdegis í dag. Lögreglan segir þá hafa sparkað í höfuð lögreglumanns en frá því var greint á fréttavef Morgunblaðsins. Sömu mótmælendur köstuðu grænu skyri á ráðuneytið og lúxusbifreið ráðherrans. Tilefni mótmælanna var undirskrift fjármögnunarsamnings vegna álvers í Helguvík. Ómar er ósáttur við líkamlegt ofbeldi mótmælendanna. Sjálfur er hann einn frægast baráttumaður landsins fyrir náttúruvernd og fékk meðal annars 15 þúsund manns til þess að ganga með sér niður Laugaveginn árið 2007 til þess að mótmæla Kárahnjúkum. Ómar setur þó þann fyrirvara á að það sé rétt að mótmælendur hafi sannarlega orðið uppvísir af ofbeldisfullu lögbroti. „Ef það er rétt að maður hafi sparkað í höfuð lögreglumanns er það forkastanlegt og gildir einu hvað manninum gengur til," skrifar Ómar sem skilur illa ofbeldið. Að lokum frábiður hann sér tengingar bloggara við slíkt athæfi og skrifar: „Ég frábið mér að að vera spyrtur við slíkt athæfi eins og nú er gert á blogginu, en þar er meðal annars sagt að þetta sé "týpiskt fyrir málstað grænna."
Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Erlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Fleiri fréttir „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Sjá meira