Fleiri fréttir

Sjálflýsandi hross til varnar slysum

Nokkuð var um tilkynningar um laus hross í umdæmi lögreglunnar á Hvolsvelli í liðinni viku. Undanfarin sumur hafa hlotist nokkur slys þegar vegfarendur hafa ekið á hrossin í myrkrinu.

Reykjavíkurbiskup leiður yfir brottrekstri

„Kaþólsku kirkjunni á Íslandi þykir leitt að stjórn Landakotsskóla ses. hafi átt í erfiðleikum,“ skrifar Pétur Bürcher, Reykjavíkurbiskup í tilkynningu sem Kaþólska kirkjan sendi frá sér til fjölmiðla.

Landakotsskóli: Breytist fram á síðasta dag

Skólastjóra Landakotsskóla, Fríðu Regínu Höskuldsdóttur, var sagt upp störfum um helgina. Stjórn skólans tók ákvörðunin á föstudaginn og svo fékk Fríða uppsagnarbréf afhent um helgina. Ekki var óskað eftir því að hún ynni þriggja mánaða uppsagnarfrest. Aðstoðarskólastjórinn, Sigríður Hjálmarsdóttir, tekur við starfinu tímabundið. Stjórnin segir uppsögnin hluta af hagræðingu.

Gripu til vopna eftir Facebookdeilur

Búið er að sleppa piltunum fjórum sem grunaðir eru um að hafa ógnað manni sem var við vinnu sína í Höfðahverfi í Reykjavík með skotvopni.

Leikskólinn opnar eftir svínaflensu

Leikskólinn Aðalþing hóf störf í dag eins og aðra daga og ekki kom til formlegrar lokunar en sex starfsmenn skólans greindust með svínaflensuna fyrir skömmu.

Michael Hudson: Geta Íslendingar borgað?

Ísland er til umfjöllunar í grein í Financial Times í dag eftir hagfræðiprófessorinn Michael Hudson sem hefur starfað sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórna Bandaríkjanna, Kanada, Mexíkó og Lettlands. Hann skrifar um skuldastöðu Íslands og Lettlands og spyr hvort ríkin geti greitt erlendar skuldir.

Framsóknarmenn einhuga um andstöðu gegn Icesave

Einhugur er í þingflokki Framsóknarflokksins um flokkurinn standi einn gegn niðurstöðu Icesave-málsins. Þetta segja bæði Gunnar Bragi Sveinsson þingflokksformaður og Siv Friðleifsdóttir, reynslumesti þingmaður flokksins.

Sumrinu framlengt í Nauthólsvík

Ákveðið hefur verið að framlengja sumrinu á Ylströndinni í Nauthólsvík og hafa þar opið til 31. ágúst, en til stóð að loka Ylströndinni í dag.

Í hættu á bátstuðru

Félagar í Björgunarfélagi Vestmannaeyja fengu útkall rétt fyrir hálf ellefu í gærkvöldi vegna tuðru sem var í vanda stödd við Bakkafjöru. Þetta kemur fram á fréttavefnum eyjar.net.

Annað kjötránið á stuttum tíma

Um tólf hundruð kílóum af kjöti hefur verið stolið frá Kjöthúsinu á Smiðjuvegi í sumar. Um 7-800 kílóum var stolið þaðan í nótt og í maí var stolið þaðan 500 kílóum.

Björgunarsveitir kallaðar út vegna sjósundkappa

Allar björgunarsveitir í Skagafirði voru kallaðar út á laugardaginn eftir að tilkynning barst til lögreglunnar um að sjósundkappi hefði horfið í miðju Drangeyjarsundi. Þetta kom fram á Feykir.is.

Stjórnarformaður OR fordæmir árásir hugleysingja

Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur skrifar harðorða grein í Morgunblaðið þar sem hann fordæmir árásir á heimili fjölskyldna stjórnenda í orku- og stóriðjufyrirtækjum.

Nýskráningar dragast saman um 76 prósent

Mikil fækkun er í nýskráningum ökutækja það sem af er ári. Í tölum frá Umferðarstofu kemur fram að 3.732 ökutæki hafi verið skráð á árinu samanborið við 15.345 ökutæki á sama tímabili í fyrra. Þetta gerir 75,68 prósenta fækkun milli ára.

Íslensk upplýsingatækni til Sameinuðu þjóðanna

Ein af skrifstofum Sameinuðu þjóðanna (OCHA) hefur tekið í notkun samskipta- og upplýsingagátt frá íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu TM Software fyrir samræmt hjálparstarf á hjálpar- og hamfarasvæðum. Lausnin byggir á íslensku hugviti og hefur meðal annars verið nýtt af stjórnvöldum í Mexíkó fyrir hjálparstarf vegna inflúensufaraldurs (H1N1) þar í landi.

Harður árekstur á Höfðabakka í gærkvöldi

Tveir voru fluttir á sjúkrahús með sjúkrabílum eftir harðan árekstur þriggja bíla á Höfðabakka í Reykjavík í gærkvöldi. Fólkið mun ekki vera alvarlega slasað en bílarnir eru mikið skemmdir. Tildrög slyssins eru óljós.

Tilkynnti um innbrot sem hann framdi sjálfur

Þjófur, sem braust inn í mannlaust íbúðarhús á Akureyri um helgina, reyndi nýstárlega leið til að leiða grun frá sjálfum sér. Hann hafði samband við húseigandann og sagði honum að sér hafi sýnst, þegar hann átti leið þar framhjá, að það hafi verið brotist inn hjá honum.

Brennt barn forðast eldinn

Nítíu prósent þeirra erlendu fjármálafyrirtækja sem fjárfest hafa á Íslandi telja ólíklegt að þau rói á íslensk mið á næstunni ef marka má nýja könnun.

Hætt komnir um borð í slöngubáti

Fjórir menn voru hætt komnir á ellefta tímanum í gærkvöldi, þegar utanborðsmótor á slöngubáti þeirra bilaði, rétt eftir að þeir höfðu lagt af stað frá Bakkafjöru og ætluðu til Vestmannaeyja.

Stálu 800 kílóum af frystu kjöti

Þjófar sprengdu upp öflugan lás á frystigámi fyrir utan fyrirtæki við Smiðjuveg í Kópavogi undir morgun og stálu þaðan sjö til átta hundruð kílóum af frystu kjöti og komust undan.

Samdráttur í ferðaþjónstu kemur ekki niður á Íslandi

Þrátt fyrir að viðskipta- og hvataferðum hingað til lands hafi fækkað svo um munar hefur erlendum ferðalöngum fjölgað töluvert. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Samdráttur í ferðaþjónustu kemur ekki niður á Íslandi, ólíkt öðrum Evrópulöndum.

Tildrög banaslyssins enn í rannsókn

Sú sem lést í banaslysinu í Langadal í Húnavatnssýslu síðastliðið föstudagskvöld hét Margrét Jósefsdóttir til heimilis að Vesturgili 12, Akureyri. Hún var 50 ára og lætur eftir sig eiginmann og uppkomin börn. Tildrög slyssins eru enn í rannsókn.

Ástþór: Egill Helgason vanhæfur til að starfa á RÚV

Þáttastjórnandinn og stjórnmálaskýrandinn Egill Helgason er vanhæfur til að starfa á Ríkissjónvarpinu, að mati Ástþórs Magnússonar. Egill var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar sagðist Egill hafa greitt Borgarahreyfingunni atkvæði sitt í kosningunum í vor.

Verðlaunahundurinn Larry fundinn

Bandaríski púðlu- og verðlaunahundurinn Larry sem týndist síðastliðið fimmtudagskvöld við Rockville á Suðurnesjum er fundinn.

Þung umferð til Reykjavíkur

Umferð hefur gengið vel það sem af er degi en þyngist eftir því sem líður á, sérstaklega til Reykjavíkur. Lögreglan í Borgarnesi segir að allt hafi gengið sinn vanagang og engin umferðaróhöpp hafi komið upp á. Veður sé gott og ökumenn ekki að drífa sig.

Karl fundinn

16 ára gamall drengur, Karl Sigtryggsson, sem lögreglan á Selfossi lýsti eftir í dag er fundinn. Karl skilaði sér heilu og höldnu en hann fór að heim á miðvikudag og ekki hafði spurst til hans frá því á föstudag.

Kyrrsetning eigna rædd í þingnefnd

Rýmri heimildir til eignakyrrsetningar verða til umræðu í efnahags- og skattanefnd Alþingis á morgun. Ríkisstjórn samþykkti nýverið frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, um auknar heimildir skattrannsóknarstjóra til kyrrsetningar eigna.

Sóttvarnalæknir mælir ekki með lokunum vegna svínaflensunnar

Haraldur Briem, sóttvarnalæknir, mælir ekki með lokunum vegna svínaflensunnar. Þegar fréttastofa náði tali af Haraldi hafði hann ekki heyrt af leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi og fjallað var um á Vísi fyrr í dag. Sex af 19 starfsmönnum leikskólans hafa verið frá vinnu síðustu daga en grunur leikur á að fjórir þeirra séu með svínaflensu.

Lögreglan lýsir eftir Karli

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Karli Sigtryggssyni fæddum árið 1993. Hann fór að heiman á miðvikudag í síðustu viku, en ekki hefur spurst til hans frá því á föstudag. Hann var þá á Selfossi.

Ók inn í verslun á Ísafirði

Ökumaður ók fyrir mistök jeppabifreið sinni inn í verslunina Hamraborg á Ísafirði á föstudag. Við glugga verslunarinnar sátu ferðamenn að snæðingi. Frá þessu er greint á fréttavefnum BB.is.

Sextán milljónum ríkari

Það var heppinn áskrifandi sem var einn með allar tölurnar réttar í Lottóinu í gærkvöldi og fær vinningshafinn tæplega 16 milljónir króna í sinn hlut.

Útilokar ekki að semja þurfi á nýjan leik

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, útilokar ekki að Íslendingar þurfi að semja á nýjan leik við Breta og Hollendinga um Icesave reikninga Landsbankans. Hún telur að viðbrögð þeirra við þeim breytingartillögum sem fjárlaganefnd samþykkti í fyrrinótt geta orðið með þeim hætti að semja þurfi upp á nýtt. Lilja er ánægð með niðurstöðu fjárlaganefndar, en hún hefur verið í hópi þeirra þingmanna VG sem hvað harðast hafa gagnrýnt hafa Icesave samninganna.

Meirihlutaálitið fínpússað

Önnur umræða um Icesave frumvarpið fer að öllum líkindum fram á Alþingi á þriðjudag eða miðvikudag. Fjárlaganefnd afgreiddi frumvarpið fyrir sitt leyti í fyrrinótt en um helgina er unnið að fínpússun á meirihlutaálitinu.

GSM á Íslandi 15 ára í dag

Í dag eru 15 ár frá því að Póstur og Sími tók GSM kerfið í notkun hér á landi í fyrsta sinn og um leið hófst bylting í fjarskiptamálum Íslendinga. Virkum GSM númerum hefur heldur betur fjölgað síðastliðin 15 ár. Fyrsta árið voru þau rúmlega 2100 en í dag eru á fjórða hundrað þúsund virk númer á Íslandi.

Fjórar líkamsárásir í miðbænum

Fjögur líkamsárásarmál í miðbæ Reykjavíkur komu inn á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Að sögn varðstjóra voru árásirnar allar minniháttar en tveir gistu fangageymslur í tengslum við þær. Þá stöðvaði lögreglan sex ökumenn sem grunaðir voru um akstur undir áhrifum áfengis og voru tveir þeirra vistaðir í fangaklefum í nótt.

Tekinn fyrir ofsaakstur í Hveradalabrekku

Karlmaður á þrítugsaldri var staðinn að ofsaakstri í Hveradalabrekku í grennd við Skíðaskálann eftir miðnætti í nótt. Maðurinn mældist á 183 kílómetra hraða og var hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða eftir að hafa verið færður á lögreglustöðina á Selfossi.

Ósammála um hvort fyrirvararnir kalli á nýja samninga

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að afgreiðsla fjárlaganefndar á Icesave frumvarpinu kalli á nýjar viðræður við Breta og Hollendinga. Forsætis- og fjármálaráðherra eru þessu ekki sammála en segja þó að auðvitað verði að útskýra fyrirvarana fyrir viðsemjendum Íslendinga.

Icesave á dagskrá Alþingis í næstu viku

Um leið og nefndarálit verða tilbúin hefst umræða um þær breytingartillögur sem fram eru komnar við frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagins. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis.

Vegurinn um Langadal opnaður

Búið er að opna veginn um Langadal, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Veginum var lokað í morgun. Farþegi í flutningabifreið lést þegar bifreiðin fór út af veginum í gærkvöldi.

Fyrirvararnir kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag

Þær breytingartillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis samþykkti í nótt varðandi Icesave samkomulagið kalla ekki á viðræður um nýtt samkomulag við Breta og Hollendinga, að mati Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.

Sjá næstu 50 fréttir