Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ákvæði um stjórnlagaþing fellt út Stjórnarflokkarnir og Framsóknarflokkurinn létu undan hótunum Sjálfstæðismanna um að tala um stjórnarskrána fram að kosningum og féllust á að fella ákvæði um stjórnlagaþing út úr stjórnlagafrumvarpinu á Alþingi í dag. 14.4.2009 18:54
Hústökufólk á Vatnsstíg Um 200 manns höfðu komið sér fyrir innandyra og utan við mannlaust hús við Vatnsstíg og neituðu að yfirgefa það síðdegis þrátt fyrir tilmæli eigenda. Óskað hefur verið eftir aðstoð lögreglu við að fjarlægja hústökufólkið. 14.4.2009 18:50
Dregur úr fjárframlögum ríkisins til Sjálfstæðisflokksins Viðbúið er að stórlega dragi úr framlögum ríkisins til sjálfstæðisflokksins, missi hann jafn mikið fylgi og kannanir hafa sýnt. Sjálfstæðismenn segja þetta verða högg fyrir flokkinn. 14.4.2009 18:35
Betra hefði verið að taka ekki við styrkjunum árið 2006 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, segir að styrkir til flokksins frá fjársterkum fyrirtækjum árið 2006 hafi verið óeðlilegir eftir á að hyggja. Betra hefði verið að taka ekki við þeim. Á sínum tíma hafi það hins vegar horft öðruvísi við. 14.4.2009 18:30
Lithái í gæsluvarðhald - rauf farbann Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir litháískum karlmanni í síðustu viku. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir líkamsárás og rán í Reykjavík. Maðurinn sat í gæsluvarðhaldi vegna málsins frá 14.-17.október á síðasta ári en farbanni vegna þess frá 12.febrúar. 14.4.2009 18:06
UVG: Fagna sumarönnum í háskólum Ung vinstri græn fagna skjótum viðbrögðum og vasklegri framgöngu menntamálaráðherra Katrínar Jakobsdóttur við kröfum námsmanna um sumarnám í háskólum. 14.4.2009 17:08
Meirihlutinn í Grindavík starfar áfram út kjörtímabilið Bæjarfulltrúar B og S lista í Grindavík hafa sammælst um að halda samstarfi áfram út kjörtímabilið. Flokkarnir eru sammála um að ráða Maggý Hrönn Hermannsdóttur í starf skólastjóra Hópsskóla. Skólastarf mun hefjast í janúar 2010. 14.4.2009 16:21
Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur þingmönnum í RN Sjálfstæðisflokkurinn fengi einungis tvo kjördæmakjörna þingmenn í Reykjavíkurkjördæmi norður, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Ríkisútvarpið. 14.4.2009 16:07
Góður gangur á kolmunnaveiðunum yfir páskana Kolmunnaveiðar skipa HB Granda gengu vel um páskana að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs félagsins. 14.4.2009 15:59
Segir heiður Alþingis í húfi Umræður um stjórnskipunarfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra héldu áfram á Alþingi í dag. Helst var deilt um þá hugmynd að setja á fót stjórnlagaþing til að endurskoða stjórnarskrána. 14.4.2009 15:34
Ákærð fyrir að stela 35 milljónum króna undan skatti Ríkislögreglustjóri hefur ákært par á sjötugsaldri sem grunur leikur á að hafi haldið undan virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda samtals að upphæð 35 milljónum króna. Þá er parið grunað um að hafa ekki skilað virðisaukaskattskýrslum og skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda. Meint brot eru talin hafa átt sér stað á seinni hluta ársins 2007 og á fyrri hluta ársins 2008. 14.4.2009 15:16
Soffía Vagnsdóttir: Ég er döpur yfir þessum vinnubrögðum „Ég á bara ekki orð yfir vinnubrögðunum þarna, þetta er bara pólitíkin í hnotskurn í dag," segir Soffía Vagnsdóttir, sem sótti um starf skólastjóra í Hópsskóla í Grindavík. 14.4.2009 13:55
Menntamálaráðherra ætlar að kenna í sumar Búist er við að það muni liggja fyrir í vikulok hvernig Háskóli Íslands mun bregðast við kröfum nemenda. 14.4.2009 13:38
Tvær konur hæfari en bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Tvær konur voru hæfari en bæjarfulltrúinn Garðar Páll Vignisson til þess að gegna starfi skólastjóra við Hópsskóla í Grindavík. Þetta kemur fram í fundargerð Fræðslu- og uppeldisnefndar Grindarvíkurbæjar. 14.4.2009 13:20
Guðlaugur fór af þingflokksfundi Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Sjálfstæðisflokksins fór af þingflokksfundi flokksins sem haldinn var í morgun á undan öðrum þingmönnum. 14.4.2009 13:17
Leiddist Selfoss og kveikti í sér Lögreglan á Selfossi var kölluð að verslun Krónunnar aðfaranótt laugardag eftir að þeim barst tilkynning um mann sem eldur hafði komist í. 14.4.2009 12:42
Meirihlutaslit: Svekkjandi ef þetta endar svona „Mér finnst það fulllangt gengið í pólitísku harki að menn fái ekki að sækja um störf," segir Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík og forseti bæjarstjórnar. Framsóknarmenn slitu formlega samstarfi flokkanna með bréfi sem þeir sendu Samfylkingunni í gær. 14.4.2009 12:17
Ríkisstjórnin kemur til móts við námsmenn Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að auka eigið fé Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 600 milljónir króna til þess að koma til móts við þá námsmenn sem sáu annars fram á atvinnuleysi. Katrín Jakobsdóttir mun í dag ræða við stjórnendur Háskóla Íslands um hvernig málum verður háttað. 14.4.2009 12:03
Vilhjálmur vill rannsókn á viðræðum OR við Geysi Green Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík hefur óskað eftir því að innri endurskoðun Reykjavíkurborgar fari yfir samningaferlið þegar Orkuveita Reykjavíkur og FL Group ásamt Geysir Green Energy ræddu fyrirhugaða sameiningu félaganna í borgarstjóratíð Vilhjálms. 14.4.2009 12:02
Sr. Gunnar fær ekki að ferma Biskupsstofa hefur ákveðið í samráði við sr. Gunnar Björnsson, sóknarprest í Selfossprestakalli, að hann taki við embætti sínu 1. júní en ekki 1. maí eins og áður hafði verið tilkynnt. Settur sóknarprestur, sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, mun þjóna prestakallinu út maí og annast fermingar sem áformaðar eru í maí. 14.4.2009 11:32
Röskva kallar eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar „Stúdentum við Háskóla Íslands virðist hrunið rétt að hefjast. Þúsundir þeirra sjá fram á atvinnu - og jafnvel tekjuleysi í sumar en ríkisstjórnin er tvístígandi og frestar í sífellu ákvörðun. Örvænting grípur um sig meðal stúdenta sem margir hverjir hafa fjölskyldur á sínu framfæri og afborganir 14.4.2009 11:12
Ólíklegt að Ríkisendurskoðun geti skoðað mál Guðlaugs Vafi leikur á því hvort Ríkisendurskoðun sé heimilt að taka út störf Guðlaugs Þórs Þórðarsonar alþingismanns þann tíma sem hann starfaði sem stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur. Í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór sendi frá sér í gær sagðist hann ætla að fara þess á leit við stofnunina að hún tæki störf sín út. 14.4.2009 10:43
Meirihlutinn í Grindavík sprunginn „Hún er bara sprungin," sagði bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Grindavík, Sigmar Eðvarsson, um stöðu meirihluta bæjarstjórnar í bænum. Svo virðist sem meirihlutinn, sem samanstóð af Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, sé einfaldlega sprunginn. 14.4.2009 09:58
Framboðsfrestur rennur út á hádegi Frestur til að skila inn framboðum vegna kosninga til Alþingis, sem fram fara annan laugardag, rennur út á hádegi í dag. Fresturinn var framlengdur samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga sem samþykkt voru á Alþingi í síðasta mánuði. Fresturinn var 15 dagar samkvæmt eldri lögum um kosningar til Alþingis en í dag eru hins vegar 11 dagar til kosninga. 14.4.2009 09:43
Tveir teknir á ofsahraða Tveir ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi í umdæmi Selfosslögreglu grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var hraðamældur og reyndist hann á 162 kílómetra hraða. 14.4.2009 06:51
Par handtekið í Leifsstöð með dóp innvortis Lögreglan á Suðurnesjum handtók á páskadag tvo aðila vegna gruns um innflutning fíkniefna en tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafði stöðvað fólkið við komuna til landsins. 14.4.2009 06:49
Kjartan lagði að Geir að afþakka styrkina Geir H. Haarde tók einn ákvörðun um að þiggja boð til Sjálfstæðisflokksins um háa fjárstyrki frá FL Group og Landsbankanum seint á árinu 2006. Hann taldi nauðsynlegt að veita styrkjunum viðtöku til að rétta fjárhag flokksins af. 14.4.2009 05:00
Stefnir í nokkurra vikna sumarþing Guðbjartur Hannesson, forseti Alþingis, segir að sumarþing, að loknum kosningum, standi væntanlega í einhverjar vikur. Á því verði hægt að fjalla um og afgreiða mál sem hugsanlega dagi uppi nú. Í þeim efnum horfir hann fyrst og fremst til þingmannamála. 14.4.2009 04:30
Þingmenn tengdir minnst 55 félögum Fimmtán alþingismenn áttu að öllu leyti eða að hluta minnst sautján fyrirtæki í árslok 2007. Þetta kemur fram í skýrslu sem Creditinfo Ísland vann fyrir Fréttablaðið. 14.4.2009 04:00
Þingfundi frestað tvisvar Þingfundi sem átti að hefjast klukkan 17:30 var frestað til klukkan 17:45. Forseti Alþingis frestaði hinsvegar þingfundi aftur til klukkan 18:15. Nokkur mál eru á dagskrá þingsins og má þar nefna endurskipulagningu þjóðhagslega mikilvægra atvinnufyrirtækja. 14.4.2009 03:00
Vill að Ríkisendurskoðun taki út störf sín Guðlaugur Þór Þórðarson ætlar að fara þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún taki út störf sín sem stjórnarformaður Orkuveitur Reykjavíkur. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðlaugur Þór sendi Fréttastofu Sjónvarpsins í kvöld. 13.4.2009 19:15
FL styrkur vekur upp spurningar um mútur Styrkur FL-Group til Sjálfstæðisflokksins vekur upp spurningar um mútur að mati Svandísar Svavarsdóttur sem sat í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í REI-málinu. 13.4.2009 18:49
Höfðu forgöngu eða vitneskju um milljónastyrki Fyrrverandi formenn Samfylkingarinnar höfðu forgöngu eða vitneskju um marga milljónastyrki sem flokkurinn fékk frá bönkum og eigendum þeirra árið 2006. Fyrrverandi samstarfsflokkur þeirra þáði einnig tugi milljóna í styrki frá bönkum og eigendum þeirra þetta sama ár. 13.4.2009 18:38
Stormsker í miðjum óeirðum í Bangkok Tónlistarmaðurinn Sverrir Stormsker er staddur í Bangkok í Tælandi þar sem óeirðir hafa staðið yfir síðustu daga. Herinn beitti meðal annars hríðskotabyssum í morgun. Stormsker sem staddur var á kaffihúsi í morgun segist hafa séð nokkrar rútur sprengdar í loft upp og nokkra bíla og byggingar standa í frektar björtu báli. Hann segist þó ekki hafa nokkrar áhyggjur af þessu þar sem tælenskir karlar séu frekar latir. Þeir vilji helst dytta að mótorhjólunum sínum og fara í kynskiptiaðgerðir og hafa það „næs“. 13.4.2009 16:40
Borgarahreyfingin býður fram í öllum kjördæmum Borgarahreyfingin - þjóðin á þing, hefur lokað framboðslistum allra sex kjördæma landsins og mun því bjóða fram á landsvísu í komandi Alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum í dag. Þar segir að listarnir séu settir fram að því gefnu að ekki verði mögulegt að bjóða fram óraðaða lista eins og Borgarahreyfingin hefur stefnt að. Það velti hinsvegar á ríkisstjórninni hvort það verði mögulegt. 13.4.2009 18:05
Sofnaði undir stýri og ók á ljósastaur Umferðaróhapp varð á Sandgerðisveg um kl. 08:00 í morgun. Þar hafði ökumaður sofnað undir sýri og farið yfir á öfugan vegarhelming og hafnaði þar á ljósastaur. Engin slys urðu á fólki og bifreiðin er ekki mikið skemmd. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á suðurnesjum. 13.4.2009 16:47
Segir ofurstyrkina styðja málflutning sinn í borgarstjórn Ólafur F Magnússon borgarfulltrúi fagnar því að komið hafi í ljós hverjir helstu styrktaraðilar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu. Hann segir þetta styðja í einu og öllu sinn málflutning í borgarstjórn Reykjavíkur. Hann segist ætla að krefjast þess að Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri svari því til hvort Landsbankinn hafi styrkt hana í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. 13.4.2009 14:48
Þrjú þúsund manns í Bláfjöllum Um þrjú þúsund manns hafa rennt sér á skíðum í Bláfjöllum í dag. Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, segir dásamlegt veður á svæðinu, fjögurra stiga hiti sé og logn. Góð stemming sé á svæðinu líkt og í Skálafelli en báðir staðirnir eru opnir til klukkan fimm í dag. 13.4.2009 14:02
Fráleitt að draga Kjartan Gunnarsson inn í málið Bjarni Benediktsson formaður sjálfstæðisflokksins segir fráleitt að draga nafn Kjartans Gunnarsson inni í umræðu um umdeilda styrki sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. 13.4.2009 10:10
Líkamsárás á Suðureyri Lögreglan á Ísafirði fékk tilkynningu um líkamsárás á Suðureyri um klukkan hálf tvö í nótt. Karlmaður gekk í skrokk á konu en að sögn lögreglu voru áverkar minniháttar. Konan, sem er á þrítugsaldri, hefur ekki lagt fram kæru í málinu. 13.4.2009 09:59
Frábært skíðaveður í dag Það er logn og heiðskírt á Siglufirði í dag og fínasta skíðafæri. Skíðasvæðið verður opið frá klukkan 10:00 til 16:00 til fjögur. Í dag er einnig opið í Bláfjöllum og Skálafelli frá klukkan 10:00 til 17:00. Á báðum stöðum er einstaklega gott veður, sól og hiti. Í tilkynningu frá skíðasvæðunum segir að þetta sé flottasti dagurinn af páskahelginni og um að gera að skella sér í fjöllin, þó ekki væri nema bara til að njóta útiverunnar. 13.4.2009 09:41
Brauðmolum kastað til lýðsins Hagsmunasamtök heimilanna mótmæla harðlega þeirri ákvörðun stjórnvalda og fjármálafyrirtækja að sniðganga með öllu sanngjarnar og hóflegar tillögur samtakanna um leiðréttingu gengis- og verðtryggðra fasteignalána. Að sama skapi mótmæla samtökin þeim ólýðræðislegu vinnubrögðum sem liggja til grundvallar samkomulagi stjórnvalda og fjármálafyrirtækja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna. 13.4.2009 09:25
Sprengingar við Valhöll Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um flugelda rétt fyrir tvö leytið í nótt. Sá sem hafði samband við lögreglu sagði sprengignarnar koma frá Háaleitsbraut en þegar lögregla kom á svæðið var ekkert að sjá. 13.4.2009 09:11
Íbúðalánasjóður á fjórfalt fleiri íbúðir en í byrjun síðasta árs Íbúðalánasjóður á nú nærri fjórfalt fleiri íbúðir sem hann hefur eignast á nauðungarsölu, en í byrjun síðasta árs. 12.4.2009 18:45
Kjartan stendur við orð sín - vissi ekki um styrkina Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, stendur við orð sín frá því fyrir helgi og segist ekki hafa vitað um tvo stóra styrki sem flokkurinn hlaut árið 2006. 12.4.2009 18:03