Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir fullyrðingar Geirs Haarde ekki réttar Forsætisráðuneytið hefur ákveðið að birta tölvupóstsamskipti milli ráðuneytisins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í tilefni orða Geirs H. Haarde á Alþingi í dag. Þar sagði Geir að forsætisráðherra hefði sagt ósatt um áskilinn trúnað AGS á athugasemdum sem sjóðurinn sendi stjórnvöldum fyrr í þessum mánuði. 16.2.2009 17:08
Tvær og hálf milljón á mann hjá Sjálfstæðisflokknum Þeim tilmælum hefur verið beint til þáttakenda í prófkjörum Sjálfstæðisflokknum um allt land að þeir leggi að hámarki 2,5 milljónir króna í baráttuna. Þetta var ákveðið á sameiginlegum fundi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, formanna kjördæmisráða og formanna kjörnefnda í síðustu viku þar sem fjallað var um takmarkanir á kostnaði frambjóðenda í fyrirhuguðum prófkjörum flokksins. 16.2.2009 16:36
Lyfjakostnaður jókst um 32% vegna gengishruns Lyfjakostnaður sjúkratrygginga nam 9.287 milljónum króna árið 2008 og jókst um 2.233 millj.kr. eða um 32% frá fyrra ári. 16.2.2009 16:21
Sara Dögg gefur kost á sér Sara Dögg Jónsdóttir, skólastjóri Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3ja sæti á lista Samfylkingar í suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 25. apríl 2009. „Köllun eftir nýju fólki til starfa er áskorun sem ég tek fagnandi,“ segir Sara Dögg. 16.2.2009 16:16
Davíð býður sig fram í Reykjavík Þá hefur Davíð Stefánsson gefið kost á sér í 2.-3. sæti í forvali VG fyrir komandi Alþingiskosningar. Davíð er 35 ára bókmenntafræðingur. Börn hans heita Ása Rut og Askur Ari og er hann í sambúð með Höllu Gunnarsdóttur. 16.2.2009 16:13
Tíkin drapst: Rannsókn á banameini hafin Fíkniefnahundur lögreglunnar á Selfossi, Bea, er allur. 16.2.2009 16:05
Vill tengja íslensku krónuna við þá norsku Kannaður verður möguleikinn á því að tengja íslensku krónuna við aðra mynt, til dæmis norsku krónuna í samráði og samstarfi við norsk stjórnvöld, verði þingsályktunartillaga, sem Jón Magnússon mælti fyrir á Al 16.2.2009 15:51
Hnífamanni sleppt Búið er að sleppa manni sem reyndi að skera annan mann á háls í samkvæmi á Ísafirði síðustu helgi. Árásin átti sér stað aðfaranótt sunnudags en þá réðist maðurinn að öðrum í samkvæmi. Hann var vopnaður hnífi og reyndi að skera hann á háls en gestir í samkvæminu stöðvuðu manninn. 16.2.2009 15:39
Geir segir Jóhönnu fara með rangt mál Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins kom í pontu á Alþingi í dag undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir þar sem hann spurði Jóhönnu Sigurðardóttur út í samskipti forsætisráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Geir sakaði Jóhönnu um að hafa sagt ósatt þegar hún sagði að fyrstu athugasemdir sjóðsins við nýju frumvarpi um Seðlabanka Íslands yrði að fara með sem trúnaðarmál. 16.2.2009 15:38
Sirrey jarðsungin Sirrey María Axelsdóttir, var jarðsungin í dag frá Bústaðakirkju en hún fannst látin í dúfnakofa við Kapelluhraun í Hafnarfirði í byrjun febrúar. 16.2.2009 15:15
Árni Þór býður sig fram í annað sætið Árni Þór Sigurðsson þingmaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík, sem fram fer þann 7. mars næstkomandi. Árni hefur setið á þingi síðan 2007 en þá skipaði hann annað sætið í Reykjavíkurkjördæmi norður. Árni mun sækjast eftir því að skipa áfram 2. sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. 16.2.2009 15:11
Vændiskonur umkringja lögreglustöðina Þrjár vændiskonur halda til í íbúð við Rauðaárstíg í Reykjavík en Stöð 2 sagði frá því í síðustu viku að annað vændishús væri hinu megin við lögreglustöðina, það er að segja við Hverfisgötu 105. 16.2.2009 14:57
Hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni Hjúkrunarfræðinemar munu hlúa að sýndarsjúklingnum Hermanni á Háskóladeginum sem fram fer í Háskóla Íslands næstkomandi laugardag. Hermann er nýtt verkfæri, brúða í fullri líkamsstærð sem getur kveinkað sér undan sýndarverkjum. Þá hefur hæfileiki Hermanns til að skipta um kyn einnig vakið athygli þeirra sem með hann hafa sýslað. 16.2.2009 14:42
Leita að vitnum að íkveikju á Akranesi Að kvöldi laugardagsins 14. febrúar var slökkvilið og lögreglan á Akranesi kölluð til vegna bruna að Dalbraut 1 á Akranesi. Eldur var laus í nýbyggingu við húsið, sem hýsa á Bæjarbókasafn Akraness. Í byggingunni eru m.a. verslunin Krónan og Penninn / Eymundsson. 16.2.2009 14:02
Landgrunn vöktuð í von um að loðna finnist Ákveðið hefur verið að vakta öll grunn við sunnanvert landið þar sem von er til að loðna gangi í einhverju magni. Enn hefur ekki tekist að mæla nægilegt magn til þess að fiskifræðingar treysti sér til að gefa út byrjunarkvóta á loðnuveiðunum. 16.2.2009 13:42
Barnið svipt vernd með nafngreiningu „ Með því að birta nafn geranda, til dæmis þegar hann er faðir þolanda, er búið að svipta barnið mikilvægri vernd sem nafnleyndinni er ætlað að veita" segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, kennari í refsirétti og afbrotafræði við HR, um nafnbirtingar á föður tæplega fjögurra ára gamallar stúlku sem finna má á bloggsíðum og Facebook. Bloggari, sem heldur úti vefsíðu undir véböndum mbl.is, nafngreindi föður stúlkunnar. Að auki hefur hópur manna tekið sig saman á Facebook og birt nafn mannsins þar sem gjörðir hans eru fordæmdar. Maðurinn, sem er 25 ára gamall, var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness snemma í síðustu viku fyrir að misnota dóttur sína. 16.2.2009 13:24
Traust til forsetans fer minnkandi Flestir Íslendingar bera traust til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra ef marka má nýja skoðanakönnun MMR. Innan við þriðjungur segist bera traust til forseta Íslands. 16.2.2009 12:55
Aldrei færri bílar á nagladekkjum Um 40% bíla í Reykjavík voru á negldum hjólbörðum í byrjun febrúar og hafa þeir aldrei verið færri á þessum árstíma. 16.2.2009 12:36
Ráðherra fundar með starfsfólki Landspítalans Heilbrigðisráðherra fundar nú með starfsfólki Landspítalans um niðurskurð á spítalanum. Fram hefur komið í máli Huldu Gunnlaugsdóttur, forstjóra spítalans að stjórnendur á Landsspítalanum þurfi að skera niður kostnað um 2,6 milljarða á þessu ári, samkvæmt kröfum frá heilbrigðisráðuneytinu. 16.2.2009 12:18
Karlarnir á móti fléttulista Karlarnir þrír, sem allir sækjast eftir efstu sætum á lista Samfylkingarinnar í Noðrausturkjördæmi greiddu atkvæði gegn tillögu um að tvö efstu sætin yrðu skipuð konu og karli, þegar um það var kosið á kjördæmisþingi flokksins í gærkvöldi. 16.2.2009 12:11
Búist við töluverðum breytingum á seðlabankafrumvarpi Búist er við að töluverðar breytingar verði gerðar á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um Seðlabanka Íslands, sem formaður viðskiptanefndar Alþingis stefnir á að afgreitt verði úr nefndinni á morgun. 16.2.2009 12:03
Svínakjötsbirgðir hlaðast upp Svínabændur leita nú allra leiða til að selja umframbirgðir af svínakjöti úr landi á slikk, frekar enn að þurfa að urða það með ærnum kostnaði. Á sama tíma stór eykst innflutningur á svínakjöti frá Evrópusambandinu. 16.2.2009 11:56
Mál Baldurs gegn Eimskipi tekið fyrir Mál Baldurs Arnar Guðnasonar, fyrrverandi forstjóra Eimskips, gegn félaginu var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 16.2.2009 11:42
Rauði krossinn ræðst gegn einelti Hjálparsími Rauða krossins stendur fyrir átaksviku gegn einelti þessa vikuna. Átakið hófst í gær og því líkur á laugardaginn. „ Tvisvar á ári erum við með svokallaðar átaksvikur. Seinast vorum við með 16.2.2009 11:10
Umboðsmaður Alþingis úrskurðar svæfingalækni í vil Umboðsmaður Alþingis hefur úrskurðað að fyrrum forstöðumaður Tryggingastofnunnar, Karl Steinar Guðnason, hafi brotið gegn svæfingalækni með ummælum sínum varðandi ásakanir á hin fyrrnefnda um að hafa stolið tugum milljóna króna af stofnuninni. Svæfingalæknirinn, sem var sýknaður í héraði vegna málsins, vísaði ummælum Karls Steinars, auk fleiri atriða sem viðkoma samskipti stofnunarinnar við fjölmiðla, til umboðsmanns Alþingis. Hann kemst að þeirri niðurstöðu að stofnunin sé hugsanlega skaðabótaskyld vegna málsins. 16.2.2009 10:47
Birgir krefur Jóhönnu um upplýsingar varðandi AGS Birgir Ármannsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í Viðskiptanefnd hefur sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra bréf þar sem hann óskar eftir upplýsingum vegna samskipta ráðuneytisins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 16.2.2009 10:25
Barnaníðingi mótmælt á Facebook Maðurinn sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að níðast á barnungri dóttur sinni hefur verið mynd- og nafnbirtur á Facebook, en þar hefur síða verið stofnuð honum til höfuðs. Síðan telur um fjórtán hundruð meðlimi en allir mótmæla þeir níðingsskap líkt og maðurinn gerðist sekur um. 16.2.2009 10:21
Segir Ólaf Ragnar hafa farið með rangt mál Eiður Guðnason fyrrverandi sendiherra segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi farið með rangt mál þegar hann bar af sér í Kastljósi ýmis ummæli, sem sendiherra Noregs sagði hann hafa látið falla í hádegisverðarboði erlendra sendiherra í danska sendiráðinu á Íslandi í fyrrahaust, og fræg urðu. 16.2.2009 07:19
Lætur af formennsku frjálslyndra í Eyjafirði Jóhann Kristjánsson, formaður frjálslyndra í Eyjafirði, ætlar að láta af embættinu og hefur lagt til að Hallgrímur Guðmundsson, sem situr í stjórn félagsins, taki sætið. Í tilkynningu segir Jóhann að hann hafi ákveðið þetta í samráði við fjölskyldu sína, enda þurfi hann að sinna mikilvægum verkefnum á næstunni. 16.2.2009 07:14
Tvö efstu sætin ekki skipuð konu og karli Tillaga um að tvö efstu sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi yrðu skipuð konu og karli var felld á kjördæmisþingi Samfylkingarinnar í gærkvöldi. 16.2.2009 07:09
Átök við Hverfisgötu Til átaka kom milli nokkurra manna á Hverfisgötu í Reykjavík um tvöleytið í nótt. Þegar lögregla kom á vettvang var mesti móðurinn runninn af mannskapnum og lofuðu allir bót og betrun gegn því að þurfa ekki að gista fangageymslur. 16.2.2009 07:06
Innbrotsþjófar stálu kvenfatnaði og snyrtivörum Brotist var inn í verslun við Laugaveg í nótt og þaðan stolið einhverju af kvenfatnaði og snyrtivörum. Þjófurinn, sem spennti upp bakdyrnar, er ófundinn. Lögregla greip hins vegar þjófana tvo sem brutust inn í íbúðarhús í Kópavogi í nótt og stálu þaðan nokkrum bíldekkjum. Þeir gista nú fangageymslur. 16.2.2009 07:03
Breytti ekki siðferðilega rétt Séra Svavar Alfreð Jónsson breytti ekki siðferðilega rétt þegar hann skírði stúlku á Akureyri í óþökk föður hennar, að mati áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar. 16.2.2009 05:00
Hvalveiðisinnar noti ekki bæinn Ólafur Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Kópavogi, lýsir furðu sinni á að nafn sveitarfélagsins hafi verið notað í auglýsingaherferð fyrir hvalveiðum án undangenginnar umræðu. „Slíkt ber ekki vott um góða stjórnsýslu. 16.2.2009 04:30
Lóðarkaupandi segir áhættu nánast enga „Það er engin áhætta í þessu lengur,“ segir Þorleifur H. Lúðvíksson, einn fimm sem þáðu einbýlishúsalóð á Reynisvatnsási úr síðasta hópi umsækjenda. 16.2.2009 04:30
Útgreiðslan skerðir atvinnuleysisbætur Atvinnulaust fólk sem er í greiðsluvanda og tekur út séreignarlífeyrissparnað, til dæmis til að greiða niður skuldir, getur átt von á því að útgreiðslan skerði atvinnuleysisbætur í þeim mánuði sem sparnaðurinn er tekinn út nema reglum verði breytt. 16.2.2009 03:45
Heilbrigðisþjónusta hér er í fremstu röð Íslensk heilbrigðisþjónusta er í fremstu röð á heimsmælikvarða. Þetta kemur fram í nýrri grein í Læknablaðinu, sem fjórir íslenskir sérfræðingar hafa tekið saman. 16.2.2009 03:00
Búið að velja formenn fyrir bankaráðin Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að búið sé að óska eftir því við tvo einstaklinga að taka að sér formennsku í bankaráði Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis. 16.2.2009 03:00
Efins um rannsókn Seðlabanka „Ég ætla strax á morgun [í dag] að hafa samband við Steingrím J. Sigfússon og fara yfir þetta með honum. Það er ekkert leyndarmál að ein af ástæðum þess hversu veikt við stöndum núna er þetta þekkingarleysi á vanskilum heimila, sem er í stofnunum eins og Seðlabankanum. Þar eru ekki þau tæki og tól sem þarf til að gera svona, hvað þá á tveimur mánuðum," segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo, sem heldur meðal annars utan um vanskilaskrá. 16.2.2009 02:30
Endurskoðar áform um Suðurlandsveg Samgönguráðherra hefur ákveðið að endurskoða áform um að Suðurlandsvegur yfir Hellisheiði verði fjögurra akreina. Hann vill hins vegar hafa kaflann milli Hveragerðis og Selfoss tvo plús tvo veg og byrja á honum. 15.2.2009 20:15
Opinn borgarafundur í Háskólabíói Annað kvöld fer fram borgarfundur í Háskólabíói. Yfirskrift fundarins er: Staðan - Stefnan - Framtíðin. Frummælendur verða Haraldur L. Haraldsson hagfræðingur, Andrés Magnússon geðlæknir og Aðalheiður Ámundadóttir laganemi. 15.2.2009 21:15
Jón Baldvin ekki kjörinn í póstkosningu Ljóst er að Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, verður ekki kjörinn formaður Samfylkingarinnar í póstkosningu bjóði hann sig á annað borð fram. Samkvæmt lögum flokksins er hann of seint á ferðinni með framboðshugleiðingar sínar til að svo megi verða, en hann getur boðið sig fram á landsfundi flokksins í mars. 15.2.2009 20:45
Staðgöngumæðrun til skoðunar í vinnuhóp Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað vinnuhóp sem kemur saman eftir helgi til að skoða siðfræðileg, lögfræðileg og læknisfræðileg álitaefni varðandi staðgöngumæðrun og hvort leyfa eigi staðgöngumæðrun hér á landi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. 15.2.2009 19:57
St. Jósefsspítali starfar áfram í núverandi mynd Heilbrigðisráðherra ætlar að snúa við ákvörðun Guðlaugs Þórs Þóraðarsonar, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, um að leggja niður St. Jósefsspítala í núverandi mynd. 15.2.2009 18:29
Ingibjörg verður að fara að ákveða sig Yfirlýsingar Jóns Baldvins Hannibalssonar í gær skaða ekki Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, að mati Einars Mars Þórðarsonar stjórnmálafræðings. Hann telur að Ingibjörg verði að gera það fljótt upp við sig hvort hún ætli að halda áfram. 15.2.2009 19:30
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent